Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 6
26 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1996 Iþróttir Vetur kormngur tók völdin í ensku knattspyrnunni um helgina: Everton og Tottenham lentu í vandræðum - áöeins Qórir leikir spilaðir - Man. Utd og Aston Villa ein komin áfram Rangers býður 1.200 milljónir í Alan Shearer Breska dagblaðið Sunday Mirror skýrði frá því í gær að skosku meistararnir Glasgow Rangers hefðu boðið Blackburn 1.200 millj- ónir króna í markaskorarann Alan Shearér. Þetta yrði langhæsta upphæð sem greidd hefði verið fyrir breskan knattspyrnumann en ekki er talið líklegt að Blackbum láti freistast. Shearer framlengdi nýlega samning sinn við félagið til þriggja ára og talið er að Jack Walker, eigandi Blackbum, væri ekki í vandræðum með að hækka launin hjá Shearer ef með þyrfti. Asprilla byrjar að spila með Newcastle eftir tvær vikur Newcastle gekk á fostudaginn frá kaupum á kólumbíska landsliðsmanninum Faustino Asprilla frá Parma fyrir 670 millj- ónir króna. John Hall, stjómarformaður Newcastle, sagði að það tæki um tvær vikur að fá tilskilin leyfi til að hann gæti byijað að leika með liðinu. „Kevin hefur mikið álit á honum og aðrir telja hann einn af þremur bestu knattspymumönnum heims. Hann talar ekki ensku og það mun taka hann einhvern tíma að aðlagast hér. Við teljum best að styrkja liðið á meðan við erum á toppnum. Það gerði Liverpool á sínum tíma,“ sagði Hall. Fyrstu kynni Asprilla af Englandi voru ekki góð, honum mættu snjókoma og kuldi. Símamynd Reuter Manchester United og Aston ViUa eru einu liðin sem hafa tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Ellefu leikjum af fimmtán var frestað en einn er á dagskrá í kvöld, og tveir af þeim fjórum sem fóru fram enduðu með jafntefli. Mikið vetr- arríki var á Englandi um helgina og flestir vellir ónothæfir. Þetta eru mestu frestanir í ensku knatt- spymunni í 33 ár. Bikarmeistarar Everton máttu sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn 1. deildar liöi Port Vale. Duncan Ferguson virtist hafa tryggt Everton sigurinn þegar hann skoraði, 2-1, þegar tvær mínútur voru eftir, en varamað- urinn Ian Bogie náði að jafha 'metin með einni af síðustu spyrn- um leiksins, af 35 metra færi, 2-2. Port Vale fær nú tækifæri á heimavelli til að leggja bikar- meistarana. Sama gerðist í London þar sem 1. deildar lið Wolves náði jafntefli gegn Tottenham á White Hart Lane. Clive Wilson virtist hafa komið Tottenham á beinu braut- ina þegar hann skoraði snemma leiks en Don Goodman jafnaði fljótlega fyrir Úlfana með 16. marki sínu á tímabilinu, 1-1, eftir mikil mistök í vöm Tottenham. Um 14 þúsund áhorfendur troð- fylltu hinn litla leikvang Reading og sáu heimaliðið veita Manch- ester United harða keppni fram- an af. Ryan Giggs kom United yfir eftir hlé og þegar Paul Parker skoraði, nýkominn inn á sem varamaður, voru úrslitin ráðin. Eric Cantona innsiglaði sigurinn í lokin eftir fyrirgjöf frá Lee Sharpe, 0-3. Sheffield United hefur gert úr- valsdeildarliðum skráveifur síð- ustu árin og sló út Arsenal í 3. umferðinni. En Aston Villa var of stór biti, Trínidadhúinn mark- sækni, Dwight Yorke, skoraði eina markið á Bramall Lane og kom Villa áfram, 0-1. -VS Chris Armstrong, sóknarmaður Tottenham, hefur betur í baráttu við varnarmenn Wolves, Dean Richards og Neil Emblem. Það gerðist þó sjaldan í bikarslag liðanna á laugardaginn, varnarmenn Úlfanna höfðu Armstrong og félaga hans, Teddy Sheringham, undir smásjánni og þeir komust lítið áleiðis. Símamynd Reuter England Bikarkeppnin - 4. umferð Bolton-Leeds .........frestað Charlton-Brentford .... frestað Coventry-Manch.City . . . frestað Everton-Port Vale.........2-2 1- 0 Amokachi (40.), 1-1 Foyle (59.), 2- 1 Ferguson (88.), 2-2 Bogie (90.) Huddersfield-Peterboro . frestað Ipswich-Walsall.......frestað Middlesbro-Wimbledon . frestað Nott. Forest-Oxford .... frestað Q.P.R.-Chelsea........í kvöld Reading-Manch.United .... 0-3 0-1 Giggs (36.), 0-2 Parker (56.), 0-3 Cantona (89.) Sheff. Utd-Aston Villa....0-1 0-1 Yorke (63.) Shrewsbury-Liverpool . . frestað Southampton-Crewe . . . frestað Swindon-Oldham........frestað Tottenham-Wolves..........1-1 1-0 Wilson (13.), 1-1 Goodman (28.) West Ham-Grimsby .... frestaö 1. deild Millwall-Portsmouth.......1-1 Efstu liö: Efstu lið: Derby 27 14 8 5 45-30 50 Charlton 26 12 9 5 39-28 45 Huddersf. 28 11 9 8 37-32 42 Sunderland 25 11 9 5 31-20 42 Southend 27 11 8 8 31-32 41 Millwall 28 10 10 8 30-34 40 Leicester 26 10 9 7 40-36 39 Stoke 27 10 9 8 37-33 39 Skotland Bikarkeppnin: Caledonian-East Fife.........1-1 Hibernian-Kilmamock ..........0-2 Keith-Rangers...............1-10 Raith Rovers-Queen’s Park ... 3-0 Ross County-Forfar...........0-3 Whitehill-Celtic.............0-3 Níu leikjum var frestað. Dregið var til 4. umferðar. Helstu leikir: Clyde/Dundee-Rangers Celtic-Raith Rovers Kilmamock-Hearts/Partick Clydeh./Stirling-Motherw./Aberd. Langþráö hjá Parker Paul Parker er ekki oft á með- al markaskorara Manchester United og mark hans gegn Read- ing á laugardaginn var hans fyrsta í þrjú ár. Það virtist held- ur ekki ætlun hans að skora en fyrirgjöf hans frá hægra kanti sigldi beint í markhornið nær! Salernin frosin Ekki var öllum leikjum á Englandi frestaö vegna vaUar- skilyrðanna. í Southampton hefði verið hægt að spila, gegn Crewe, en þar var frosið í öllum leiðslum á salernunum og að- staðan því ekki boðleg áhorfend- um. Arsenal vill Berti Bresk blöð skýrðu frá því um helgina að Bruce Rioch, fram- kvæmdastjóri Arsenal, hygðist bjóða 510 milljónir króna í Nicola Berti, ítalska landsliðs- manninn hjá Inter Milano. Hann myndi fá 2,1 milljónir króna í vikulaun hjá Arsenal ef af yrði. United gegn City? Dregiö var til 5. umferðar ensku bikarkeppninnar i gær þó aðeins tvö lið væru komin áfram. Líkur eru á stórleik í Manchester því United dróst gegn sigurvegaranum úr leik Coventry og Manchester City. Útkoman úr drættinum varð þessi: Shrewsb./Liverpool-Charlt./Brentf. Nott.For/Oxford-Tottenham/Wolves Bolton/Leeds-Everton/Port Vale Ipswich/Walsall-Aston Villa Swindon/Oldh.-Southampt./Crewe Manch. Utd-Coventry/Man.City Hudders/Peterb.-Midd.br./Wimbled. West Ham/Grimsby-QPR/Chelsea Leikirnir fara fram 17.-19. febrúar. Frakkland Auxerre-Le Havre 1-0 Bastia-Guingamp 0-1 Bordeaux-Gueugnon .. . 3-1 Lille-Mónakó 0-0 Martigues-Strasbourg . . 2-0 Nice-Montpellier 1-2 Paris SG-Cannes 2-1 Rennes-Lens 2-1 ParisSG 25 14 9 2 48-20 51 Auxerre 25 14 3 8 41-23 45 Metz 24 12 8 4 24-16 44 Mónakó 25 11 7 7 37-27 40 Guingamp 25 10 9 6 21-17 39 Belgía Waregem-Club Brugge . . 2-5 Molenbeek-Lommel .... 0-2 Ekeren-Beveren 1-0 Aalst-Antwerpen 0-0 Lierse-Gent 2-3 Seraing-Mechelen 2-1 St. Truiden-Anderlecht . 0-5 Charleroi-Harelbeke ... 0-6 Cercle Brugge-Standard . 2-3 Cl. Brugge 21 14 5 2 51-19 47 Anderlecht 21 14 3 4 52-22 45 Lierse 21 10 7 4 37-26 37 Molenbeek 21 8 8 5 23-20 32 Standard 21 7 9 5 30-24 30 Cer.Brugge 21 7 9 5 31-29 30 Sluppu við bann Knattspyrnusamband Evrópu aflétti á fostudaginn banni af Tottenham og Wimbledon í Evr- ópukeppni. Félögin lögðu fram sannanir fyrir því að þau hefðu fengið samþykki frá UEFA fyrir því að tefla fram varaliðum sín- um í Intertoto-keppninni siðasta sumar. Spánverjar með Ensku liðin ætla ekki að vera með í Intertoto-keppninni næsta sumar. Spánverjar, sem ekki voru með í fyrra, hafa hins veg- ar boðað þátttöku sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.