Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1996, Qupperneq 18
26
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1996
t
íþróttir
Vandamál Tony Adams, fyrirliða Arsenal:
Skrautlegur ferill
í fylgd Bakkusar
- leikmenn Arsenal æfareiðir vegna leka til íjölmiðla
játningum hans leyndum og lagði
mikla áherslu á að fjölmiðlar
kæmust ekki í málið.
Þær óskir voru virtar að vettugi
af einhverjum innan liðsins.
„Adams á betra skilið"
Þegar játningar Adams höfðu
lekið í fjölmiðla, aðeins nokkrum
Tony Adams á betra skilið en
þetta,“ sagði Wright.
„Flýr ekki raunveruleikann"
Pat Rice sagði: „Okkur þótti
mjög vænt um að Adams skyldi
koma og ræða við okkur og leik-
mennina. Hann er ekki maður sem
flýr raunveruleikann heldur tekur
á málunum. Hann á allan okkar
Tony Adams, fyrirliði Arsenal í
ensku knattspymunni og fyrirliði
enska landsliðsins í Evrópukeppn-
inni í Englandi í sumar, hefur blás-
ið til sóknar gegn áfengisvanda
sem hrjáð hefur þennan snjalla
knattpymumann síðustu árin.
Áfengi hefur að miklu leyti
stjórnað lífi hans og tekið völdin
þegar síst skyldi.
Eftir úrslifaleik Englands
og Þýskalands í Evrópukeppn-
inni í sumar, gerðust hlutir í
einkalífi Adams sem áttu
mikinn þátt í því að hann
pantaði fund með stjórnend-
um Arsenal. í stað þess að
hampa Evrópubikamum hélt
hann á bjórflöskum í báðum
höndum næstu dagana eftir
úrslitaleikinn. Þegar töm-
inni lauk stóð hann fyrir
framan spegil á heimili sínu
og sagði við sjálfan sig.
„Þetta gengur ekki lengur.
Þú þarft á hjálp að halda og
nú gerir þú eitthvað í þín-
um málum.“
Afdrifaríkur fundur
meö Rice og Stewart
Adams hélt nú á dögun-
um á umræddan fund. Þar
vora auk Adams þeir Pat
Rice og Stewart Houston,
sem þá vora við stjómvöl-
inn hjá Arsenal til bráða-
birgða.
Adams lét sprengjuna
falla. Hann sagðist vera
áfengissjúklingur og
þurfa á hjálp að halda.
Það tók Adams þrjá daga
að safna kjarki til þess að
gera játninguna. . nF Adams og fjölskvlda hanc ■> .. .
„Þaö þarf mikinn per- e'tunyfjavandamál aö strífta 0g áfengiö tók"vöIdiníiá #5^?* Ja"e kona hans átti lengi
sónuleika til að gera 0 010 hJa fyrirhöa Arsenal. 9
svona hluti. En það er Adams klukkustundum eftir fundinn með
einmitt, mikilll persónuleiki,"
sagði Rice við breska blaðamenn.
Tony Adams lét ekki staðar
numið. Hann fór fram á að fá fund
með leikmönnum Arsenal. Leyfi
hjá þeim Rice og Stewart var auð-
fengið og skömmu síðar tilkynnti
Adams leikmönnum Arsenal að
hann ætti í miklum vandræðum og
útskýrði hvers kyns vandinn væri.
Hann fór jafnframt fram á við fé-
laga sína að þeir héldu þessum
leikmönnum liðsins, greip um sig
irikil reiði meðal leikmanna. Ian
Wright var einn af þeim sem ekki
var kátur: „Adams er okkur öllum
fyrirmynd hjá Arsenal. Nú hefur
einhver auli bragðist honum ger-
samlega. Sá sem hefur lekið þessu
í fjölmiðla ætti að hengja haus og
skammast sín. Þessi kjaftaskur á
ekki skilið að vera í búningi
Arsenal lengur. Það sem þessi leik-
maður hefur gert er hræðilegt og
stuðning og hann verður mun betri
leikmaður en áður og mun sterkari
persónuleiki."
Konan í meöferö líka -
skilnaður
Eiginkonan reyndist Adams erf-
ið en hún hefur lengi barist við eit-
urlyfjaneyslu. Þar kom að skilnað-
ur var ekki annað en rökrétt fram-
hald af atburðarásinni. Skilnaður-
inn var Adams erfiður og hann
reyndi allt sem hægt var til að
halda hjónabandinu gangandi,
krakkanna vegna.
Það vora fleiri vandamál sem
þau Adams og Jane, eiginkona
hans, glímdu við en áfengis- og eit-
urlyfjafíkn. Peningavit höfðu þau
skötuhjú ekkert. Laun Adams, um
1,2 milljón króna á viku, urðu vit-
anlega ekki til að halda Jane
frá dýrum verslunum og
hún eyddi og eyddi. Ad-
ams var auðvitað drjúgur
við að koma laununum
fyrir kattarnef líka en
það sem hann keypti var
oftast i fljótandi formi og
þá helst í nokkra daga eft-
ir leiki.
Síöasta bréfiö
Þegar skilnaðurinn var
um garð genginn og hún
hafði tilkynnt honum að
hún hefði fundið sér nýjan
mann skrifaði Adams fyrr-
verandi konu sinni bréf og
í því stóð meðal annars
þetta:
„Ég finn mig knúinn til
að skrifa þetta bréf. Ég hef
nú tekið mig á og er að
þroskast. Ég vissi ekki
hvernig ég átti að hafa hem-
il á tilfínningum mínum. Ég
reyndi að fá þig til baka. Ég
skammaðist mín og taldi
það skyldu mína að reyna að
halda okkar sambandi barn-
anna vegna. Nú hefur þú ný-
lega sagt mér frá sambandi
þínu við annan mann og þær
fréttir vora mér mikill léttir í
raun og vera. Nú get ég byrj-
að upp á nýtt og fúndið hinn
eina sanna Tony Adams.“
Skrautlegur ferill meö
Bakkus viö stýriö
Ferill Adams í fylgd Bakkusar er
skrautlegur.
Hann var tekinn fyrir ölvun við
akstur fyrir nokkram árum og sat
í fangelsi í 3-4 mánuði. Þá varð að
sauma 19 spor í enni hans eftir fall
í stiga á næturklúbbi og eitt langt
fylliríið endaði hann uppi á sviði
með nektardansmær þar sem hann
sjálfur var afskaplega fáklæddur.
-SK
Breyting á
lokaumferð
Mótanefhd KSÍ hefur ákveðið í
samráði við hlutaðeigandi félög
að færa fjóra leiki í lokaumferð
1. deildarinnar fram um einn
dag. Laugardaginn 28. september
klukkan 14 leika Keflavík-ÍBV,
Leiftur-Grindavík, Stjarn-
an-Breiðablik og Valur-Fylkir.
Síðasti leikurinn í deildinni
þetta árið fer svo fram sunnu-
daginn 29. september en þá leiða
saman hesta sína tvö efstu liðin,
ÍA og KR, og fer leikurinn fram
á Akranesi.
-GH
ÍBR bikarinn
Á sunnudaginn verður gerð
þriðja tilraunin til að halda
keppni um ÍBR bikar kvenna í
golfi í Grafarholti en tvisvar hef-
ur þurft að fresta keppni vegna
óveðurs. Ræst verður út frá
klukkan 12 og er skráning í sima
587-2211. Leikin er punkta-
keppni, stableford, 7/8 forgjöf,
tvær i liöi leika betri bolta.
Þýskur hand-
bolti á Stöð 3
Ákveðið hefur verið að sýna
frá leikjum 1 þýska handboltan-
um á Stöð 3 í vetur.
Eflaust fagna handknattleiks-
unnendur þessu uppátæki Stööv-
ar 3 manna. Leikir úr þýska bolt-
anum verða sýndir á miðviku-
dagskvöldum í kringum mið-
nættið. Atli Hilmarsson mun
lýsa leikjunum en hann lék um
tíma i Þýskalandi.
Sem kunnugt er leika margir
íslenskir handknattleiksmenn
með liðum í Þýskalandi. Þar má
nefna Ólaf Stefánsson og Dag
Sigurðsson hjá Wuppertal, Sig-
urð Bjamason hjá GWD Minden
og Patrek Jóhannesson hjá
Essen. -SK
Pétur yfir
20 metrana
Pétur Guðmundsson kúlu-
varpari náði á dögunum besta
árangri sínum í kúluvarpi í
langan tíma. Pétur kastaði þá
kúlunni 20,12 metra á móti í
Bandaríkjunum. -SK
Sonur Pele
rekinn út af
Edinho, sonur Brasiliumanns-
ins Pele, eins af bestu knatt-
spyrnumönnum heims fyrr og
síðar, var einn af 11 leikmönn-
um í b rasilísku meistarakeppn-
inni sem fengu að líta rauða
spjaldið um helgina.
Edinho, sem leikur í stöðu
markvarðar hjá Santos, fékk að
fjúka út af fyrir ljótt brot á síð-
ustu mínútu leiks Santos og Goi-
as þar sem síðarnefnda liðið fór
með sigur af hólmi, 2-0.
-GH
Geir Sveinsson hjá handknattleiksliðinu Montpellier í Frakklandi:
„Heillar mig ekki nógu mikið"
Geir Sveinsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í hand-
knattleik og atvinnumaður
með Montpellier í Frakk-
landi, er hóflega bjartsýnn á
gengi liðsins í frönsku 1.
deildinni sem hefst nú um
helgina. Geir er á samningi
hjá Montpellier út þetta
keppnistimabil.
„Við höfum verið að spila
mikið af æfingaleikjum fyrir
mótið og bara gengið betur
en ég átti von á. Það hafa orð-
ið miklar breytingar á liðinu,
við höfum misst átta leik-
menn frá því í fyrra en feng-
ið fjóra í staðinn; landsliðs-
mann frá Alsír, rúmenska
landsliðsmarkvörðinn og tvo
franska unglingalandsliðs-
menn.
Fljótt á litið fannst mér
við ekki vera með nægilega
sterkt lið en til að gera eitt-
hvað í frönsku deildinni held
ég að þetta verði i lagi,“ sagði
Geir í samtali við blaðamann
DV i gær.
Marseille dæmt niöur
Það er ljóst að nýir meist-
arar vera krýndir í Frakk-
landi en meistaraliðið frá því
í fyrra, Marseille ,hefur verið
dæmt niður í 3. deild þar sem
liöið er nánast gjaldþrota.
Tveir af bestu leikmönnum
liðsins og franska landsliðs-
ins, Fredric Völle og Jackson
Richardson eru farnir til
Þýskalands, Völle til Wallau
Massenheim, liðs Kristjáns
Arasonar, og Richardson til
Grosswallstadt.
„Þar sem ekkert Marseille
lið er lengur í 1. deildinni á
ég von á að París SG og Ivry
muni berjast á toppnum og
við munum kannski koma
þar á eftir í 3.-4. sætinu," seg-
ir Geir.
Taka sæti Marseille í
Evrópukeppninni
Montpellier tekur sæti
Marseille í Evrópukeppninni.
Liðið leikur í sömu keppni og
Stjaman og mætir Sporting
Lissabon frá Portúgal í 1. um-
ferðinni.
Geir reiknar ekki með að
spila lengur en keppnis-
tímabilið í Frakklandi. „Ég
veit svo sem ekkert hvað tek-
ur við eftir það. Ég er í fínu
formi, líkaminn er í lagi og
hver veit nema ég verði bara
áfram að spila erlendis. Ég
býst samt fastlega við að fara
héðan. Franska deildin heill-
ar mig ekki nógu mikið,“
sagði Geir.
Geir segir að leikdagar ís-
lenska landsliðsins í hand-
knattleik í vetur rekist á við
leiki Monpellier í deildinni
og að ljóst sé að hann muni
missa úr einhverja leiki með
liðinu.„Það er ekki mikil án-
ægja með það en maður vill
endilega spila fyrir ísland
þessa mikilvæga leiki,“ sagði
Geir. -GH