Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 jfþróttir Keflvíkingurinn Haukur Ingi Guðnason lœt- ur mjög vel að veru sinni hjá enska stórliðinu Liverpool. Haukur Ingi gekk í raöir liðsins skömmu eftir síðustu áramót og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning við liðið. Það vissu allir að það tœki einhvern tímafyrir þennan 19 ára gamla leikmann, en bráðefni- lega, að sanna sig og festa sig í sessi hjá einu besta liði Bretlandseyja. Fyrstu mánuðirnir lofa að minnsta kosti góðu í þeim efnum. Haukur Ingi er metnaðarfullur og ákveðinn í að standa sig vel á Anfield Road á sig sem einhverjar súperstjömur sem eru eitthvað ööruvísi." - Finnst þér að þú hafir tekið framförum og styrkst llkamlega eftir að þú fórst utan? „Já, ég er á því og ekki hvað síst líkamlegi þátturinn. Leikurinn hér er miklu hraðari og maöur er kom- inn í bakiö um leiö og maður fær boltann. í dag er ég reiöubúnari að höndla það eins og mörg önnur smá- atriði. Það er ekki hægt annað en að taka framfórum þegar maður er að æfa með góðum knattspymumönn- um. Undir þannig kringumstæöum hlýtur manni að fara fram.“ - Hvað segja menn almennt um árangur liðsins á þessu tímabili? Varla eru menn sáttir. „Liðiö datt út úr deildarbikar- og bikarkeppninni en þrátt fyrir það er engin neúcvæöni í hópnum eða neitt þannig. Svo virðist sem leikmenn ætli bara aö gera betur næst og ljúka tímabilinu með sæmd. Það er jákvætt að mannskapurinn sé ekki að svekkja sig á því sem liðiö er heldur líta þess í stað björtum aug- um til framtíöarinnar.“ - Eru fyrirsjáanlegar miklar breytingar á liöinu fyrir næsta tímabil? „Ég veit það ekki en þó er nokk- uð líklegt að Patrick Berger yfirgefi herbúöir liðsins. Það er einnig spuming hvort David James veröi áfram. Ég hef þá trú að annar hvor þeirra fari. Ég held svona í fljóti bragöi að breytingar á liðinu verði ekki umtalsverðar." - Hver heldur þú að verði lík- legur arftaki Roy Evans í stóli knattspymustjóra? „Það er alltaf veriö aö nefna einhver nöfn í þessu sambandi og í síðustu viku nefhdu menn til sögunnar Frakka nokkurn. Ég veit ekki hver I veröur niðurstaðan í þessu máli. Ef liðiö næði t.d. ööra sæti í deildinni verður Roy Evans kannski bara áfram. Það er rosaleg pressa á hon- um frá almenningi og stuðnings- mönnum." Roy Evans er alveg toppnáungi Evans er alveg toppnáungi og góður karl og innst inni langar mann ekkert til að hann fari. Bent hefur veriö á að hann sé ekki nógu harður en málið er að hann er góð- hjartaður karl.“ - Þú telur kannski allt stefha 1 það að Manchester Unlted hreppi titilinn? „Ég hef trú á því enda gríöarlega sterkt liö þar á ferð. Þaö getur vel verið að meistaradeildin eigi eftir að há þeim eitthvaö en liðiö leggur einnig þunga áherslu á árangur í þeirri keppni. Samt sem áöur held ég að United hafi þetta. Liðið á eftir aö tapa fleiri leikjum í deildinni sem getur oröiö til þess aö spenna skapist á lokasprettinum." - Ertu kominn í þá vinnu sem þig dreymdi alltaf um? „Mig dreymdi þessa stöðu oft. Þetta er samt ofsalega harður heimur, bæði líkamlega og andlega og ekki síst þegar á móti blæs. Ég hef aldrei lent í henni sjálfur en sjálfsagt á eftir aö koma tímabil þar sem hlutimir ganga ekki upp hjá mér. Ég vildi ekki skipta um at- vinnu í dag. Þetta er í einu oröi sagt meiri háttar lifsreynsla." - Það hlýtur einnig að vera draumur þinn aö leika meö A-landsliði ís- lands? „Auðvitað er það takmark. Ég ætla að standa mig hér og vonandi kemur að því að ég verði valinn í A-landsliöið. Ég myndi koma heim ef kallið kæmi og ábyggilega yröi þaö frábær stund. Þaö var alltaf draumur þegar ég var yngri og sá landsliösmennina hlýöa á þjóösöng- inn aö einhvern tímann stæði ég í sömu sporum." - Hvemig var fyrir þig að koma inn í breska menningu, hefur það gengið vel? „Það hefur orðið seinkun á því að ég fengi mitt eigiö húsnæði en von- ir standa til að það geti oröiö að veruleika núna á allra næstu dög- um. Síöan ég kom út hef ég verið með herbergi hjá fjölskyldu. Það var gott að byrja þannig en með því komst ég fyrr inn í umhverfið og var fljótur aö kynnast fólki. Það má því segja að mér hafi gengið vel að komast inn í breska menningu en það verður gott að fá sitt eigið hús- næöi.“ Kemstvonandi í frí til íslands „Ég er aö gera mér vonir um að komast í stutt frí til íslands í næstu viku en hún er frátekin fyrir enska landsliðið og liggur því keppni niöri af þeim sökum. Ég er aö gera mér vonir um að fá nokkurra daga frí og komast þannig til íslands. Kærasta mín er í skóla á íslandi en hún hef- ur heimsótt mig einu sinni og kem- ur líklega síðan aftur um páskana," sagði Haukur Ingi Guðnason í viö- talinu við DV. -JKS r«. Haukur Ingi segir lífið á Anfleld Road helmilislegt. Hann segist vera kominn I draumavinnuna og íhenni ætlar hann aö standa sig. Hann segir enn fremur ab stórstjörnur liösins á borö viö Robbie Fowler og Steve McManaman l(ti ekkl stórt á sig og þeir séu einfaldlega venjulegar persónur. „Ég verð að viöurkenna aö þetta hefur gengið framar vonum. Þegar ég hélt utan til Liverpool var mark- miö mitt að komast i leikmanna- hópinn eftir 1-2 ár. í dag er ég bú- inn að fá búning og fá að leika. Þetta er því alveg frábært í mínum huga. Það var alls ekki raunhæft aö gera sér vonir um þetta því barátt- an hér er geysilega mikil," sagði Haukur Ingi eftir æfingu liösins á fimmtudag. - Þú hefur verið að leika með varaliðinu fram til þessa og það er að sjá aö þar hefur þú verið að leika vel. „Mér hefur gengið vel með vara- liðinu, verið aö skora og leggja upp mörk. Þeir hata verið ánægðir með mig. Við verðum að hafa í huga að þetta er alltaf spurning um heppni og hún hefur verið með mér til þessa. Mér líður vel hjá Liverpool, allir vinalegir og passaö er upp á það aö manni líði vel.“ - Hvemig hefur liðið komið þér fyrir sjónir? Þetta hlýtur að vera stórt og mikið fyrirtæki? „Jú, þaö er rétt en samt er um- hverfið mjög heimilislegt. Manni líður bara alveg eins og heima hjá sér og aðstandendur liðsins sjá til þess að öllum líði vel.“ -Hvemig líður venju- legur dagur hjá þér? „Æfingarnar byrja alltaf klukkan hálfellefu alla morgna. Leikmenn þurfa samt alltaf að vera komnir á æflngasvæðið korter fyrir tíu. Æfingin stendur til tólf og einstaka sinnum eru lyfti- og sprettæfingar eftir hádegiö. Allur mannskapur- inn æfir saman en þegar nálgast í leik era 16 leik- menn teknir út til frekari imdirbúnings. Menn fara ekki heim til sín á milli æf- inga heldur borða saman i mötuneyti sem er á svæð- inu.“ - Þú hefur ekki enn ver- ið í leikmannahópi fyrir deildar- eða bikarleik? „Ekki enn þá en ég lék hins vegar með aðalliðinu gegn Glasgow Rangers á dögunum. Mér var sagt að vera tilbúinn fyrir leikinn gegn Bolton um síðustu helgi. Redknapp og fleiri leikmenn vora vafasamir vegna meiðsla en þegar á reyndi var ég ekki valinn í hópinn. Ef koma upp meiðsli aftur á ég fastlega von á því að vera á bekknum í einhveijum leik á þessu tímabili." - Það hlýtur að hafa verið meiri háttar upplifun fyrir þig að taka þátt í leiknum gegn Rang- ers? „Það var í einu orði sagt frábært. Það var smá munur á því aö leika heima í Keflavík frammi fyrir nokkrum hundruöum áhorfenda eða á Ibrox þar sem yfir 50 þúsund manns fylgdust með.“ Kominn með hlaupasting eftirtvær mínutur Ég kom inn á þegar tuttugu mín- útur voru eftir af leiknum, og þvilík upplifun! Ég var kominn með hlaupasting | eftir tvær mínútur," segir i Haukur Ingi og skellihlær. „Þetta var frábær reynsla. Ef ég fæ tæki- færið aftur veit mað- ur alveg við hverju maöur á að búast.“ - Nú varst þ búinn að horfa á þessar stjörnur í sjónvarpi. Hvemig var svo tilfinn- ingin að vera allt í einu í návígi við þær? „Þetta eru allt samanfíriir náungar. Ég man aö þegar ég kom á fyrstu æfinguna fannst mér ótrúlegt að vera kominn á æfingu með leikmönnum á borö við Robbie Fowler og Steve McManaman. Núna finnst mér þeir vera ósköp venjulegar persónur. Þeir era bara venjulegir og ekkert merkilegri en hver annar. Þessir strákar era ekki með neina stjömu- stæla, heldur mannlegir og líta ekki Markmiðið var að komast í hópinn eftir 1-2 ár Af því sem sjá hefiir mátt á prenti til þessa um Hauk Inga má ljóst vera að hann er að vinna vel og hefur framganga hans hjá varaliö- Haukur Ingl Guönason klæddist búningi Liverpool þegar Ijóst varð aö hann gengi f raöir „rauöa hersins". Hann skrifaöi sföan undir þriggja og háifs árs samning. inu vakið athygli. Þar hefur Haukur Ingi verið að skora nokkur mörk og margir vilja meina að þess verði ekki lengi að bíða að hann fái að spreyta sig með aöalliðinu. Hann lék aö vísu með aöalliðinu á dögunum þegar það lék ágóðaleik sem haldinn var fyrir Walter Smith, knattspymustjóra Glasgow Rang- ers, en hann lætur af störfum hjá liðinu í vor. Það var mikil lífsreynsia fyrir Hauk Inga að verða þátttakandi í þessum leik en rúmlega 50 þúsund áhorfendur troöfylltu Ibrox í Glas- gow. DV átti í vikunni viðtal við Hauk Inga og lá beinast við að spyrja hann hvernig honum líkaöi lífið innan um stórstjömumar á Anfield Road? Meiri háttar lífsreynsla - segir Keflvíkingurinn Haukur Ingi Guðnason hjá enska stórliðinu Liverpool
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.