Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 68
iFRÉTTASKOTIÐ iqsfMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 Lögreglumenn- irnir fá ekki áminningu Tveimur lögreglumönnum, sem var vísað timabundið úr starfl í byrjun febrúar sl., verður ekki veitt áminn- ing af lögreglustjóra. Lögreglumennirnir, sem eru báðir í umferðardeild, neituðu að stjóma um- ferð á Miklubraut eftir að umferðar- ljós þar biluðu. Töldu þeir öryggi sitt í hættu vegna ófullnægjandi búnaðar við slæmar aðstæður. Gáfu þeir stjórnstöð lögreglunnar til kynna að þeir vildu sækja sér betri búnað. í kjölfarið var þeim vikið tímabundið úr starfi. Lögreglumennimir skiluðu greinargerð um málið þar sem þeir töldu sig hafa farið rétt að miðað við aðstæður. „Við höfum skoðað þennan atburð itarlega og það var ákveðið að þeim yrði ekki veitt áminning. Það verða / í* engir frekari eftirmálar af háifu emb- ættisins," sagði Böðvar Bragason lög- reglustjóri í samtali við DV. „Málið hefur að mínu mati fengið mjög réttmæta niðurstöðu. Það var engin ástæða til harðra aðgerða í þessu máli. UmferðardeOdin stóð fast að baki lögreglumönnunum. Það hef- ur eflaust veitt þeim mikinn stuðn- ing,“ segir Hilmar Þorbjömsson, yfir- maður umferðardeildar, aðspurður um málið. Samkvæmt heimUdum DV vUja lög- reglumennimir tveir ekki láta þar við sitja heldur leita frekar réttar síns. Þeir munu vinna áfram í málinu ásamt lögfræðingum sínum. -RR Stúlkan fundin 15 ára stúlka sem lögregla lýsti eft- ir fannst heil á húfi í gær. Lögregla fann stúlkuna í húsi við Tunguveg ásamt fleiri ungmennum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er sterkur grunur um að ungmennin hafi neytt fikniefna í húsinu. Lögregla leitaði fikniefna í húsinu í gær en ekki fengust upplýsingar um hvort eitthvað hefði fundist. -RR 1SU# Enn betra bragð... ...enn meiri angan Nescafé MERKILEGA MERKIVELIN brother pt-22q ný vói Islenskir stafir Taska fylgir 8 leturgeröir, 6 stæröir 6, 9, 12, 18 mm boröar Prentar [ 4 línur Aðeins kr. 10.925 J Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Sjötugur karlmaður: Kynferðis- brot á 3 ára tímabili Veöriö a morgun --------0 v cut iu d manuuag. Hvassviðri og éljagangur Éljagangur og frost Spáð er hvassri suðvestanátt og éljagangi, einkum sunnan- og vestan til á landinu. Frystir um mestaUt land. Sþáð er alhvassri vestanátt sunnan- og vestanlands. Hægari norðlæg átt verður norðan- og austanlands. Éljagangur og frost 0-7 stig. Hjónin koma upp stigann í fylgd fangavarðar t.v. Rétt eftir að myndin var tekin réðst konan harkalega að Ijósmynd- aranum. DV-mynd E.ÓI. OtP ia J em mS> tm' 'tiri i éf Tæplega sjötugur karlmaður úr sveitahéraði á Suðurlandi hefur, verið ákærður fyrir kynferðisbrotl gegn 15 ára stúlku - kynferðislega háttsemi gagnvart baminu sern, samkvæmt sakargiftum stóðu yfir á þriggja ára tímabUi, á árunum' 1995,1996 og fram á vor 1997. Stúlk- an var þá 12-14 ára. Sakargiftn eru á þá leið að maðurinn hafi sý framangreindu timabUi í ótUtekin skipti en margoft haft í frammil kynferðislega tUburði við barnið. Stúlkan er barnabam þeirrar konu sem bjó með manninum á til-,, teknu tímabUi. Málið barst barna-| vemdamefnd sem síðan fjallaði um það og sendi lögregluyfirvöld- , um. Rannsókn málsins stóð yfir seinni hluta síðasta árs en ákæra var gefin út í janúar. Maðurinr hefur áyallt neitað öUum sakargift-J um. Héraðsdómur Suðurlands mun fiaUa um málið á næstunni. Dóm-J urinn hefur verið fiölskipaður m.a. með hliðsjón af vafaatriðum sen kunna að skapast við málsmeð-1 ferðina. -Ótt ”4 r ir A ý ii 4 ra A infl I fii m :n-i ‘■a' A em eö-^ Sænsk kona og norskur eiginmaður í réttarhaldi í gær vegna e-töflu- og LSD-máls: Hjonin jata sok konan sparkaði harkalega í ljósmyndara DV er hann var við störf sín í gær Sænsk kona, búsett í Amsterdam, og norskur eiginmaður hennar viður- kenndu bæði fyrir dómara í gær að ákæra standist alfarið á hendur þeim og tveimur íslendingum um innflutn- ing á 1.100 e-töflum og 296 skömmtum af LSD hingað tU lands í desember. Annar islendinganna viðurkennir að mestu sakargiftir en hinn segir ákæruna ranga og neitar sök. Þegar fólkið var að ganga í hús í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, þar sem ákæra á hendur því var þingfest í fyrsta réttarhaldi málsins, kom til átaka þegar sænska konan réðst að ljósmyndara DV, sparkaði harkalega í sköflung hans á þykkbotna skóm og braut flass af myndavélinni. Hún var þá í fylgd hins norska eiginmanns síns ásamt fangavörðum. Fólkið var ekki í handjárnum og náðu fangaverð- irnir ekki að stöðva afiögu konunnar. Telja verður með eindæmum að ráðist sé að fiöbniðlafólki við störf sín hér á landi og eru sakborningar i sakamál- um þar meðtaldir. Ljósmyndarinn lagði fram kæru tU lögreglu í gær. Samkvæmt ákæru, sem Ragnheiður Harðardóttir saksóknari lagði fram í fíkniefnamálinu í gær, stóðu fiór- menningamir aUir að skipulagningu og innflutningi á fikniefnunum. Það voru hins vegar íslendingamir sem lögðu fram fé. Norðmaðurinn sá um að kaupa efnin í Amsterdam og koma hluta þeirra fyrir í tveimur hárgels- túpum. Kona hans kom því sem eftir var fyrir í líkama sínum. Hún flutti síðan efnin til Islands. Efnunum var komið fyrir í rusla- tunnu við Laugaveg í Reykjavík. Fíkniefnalögreglan fylgdist vel með, tók efnin og kom „gerviefnum“ fyrir í pakkanum í stað fikniefnanna. Annar Islendinganna kom síðan að tunn- unni, tók pakkann og fór með hann að sumarhúsahverfi í Varmadal. Það er hann sem neitar sök í málinu að því undanskildu að hafa náð í pakkann. Hin sænska kona og íslendingarnir tveir voru handteknir eftir að efnin fundust. Hinn norski eiginmaður, sem var í Amsterdam, ákvað siðan að koma sjálfviljugur til íslands og svara til saka. Annar íslendinganna viðurkenndi í gær að hafa lagt fram fé til kaupa á 1.000 e-töflum. Um afganginn af efn- unum segist hann ekki hafa vitað. -Ótt 4 4 4 4 4 4 Upplýslngar frá Voöurstofu S Sunnudagur Mánudagur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.