Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
5
Préttir
Dyraverðir ákváðu að láta hendur skipta við drukkinn gest klukkan fjögur að nóttu:
Tvífótbrotinn eftir að
hafa verið hent út
- staðurinn vill gera allt til að bæta skaðann, segir rekstrarstjóri Café Thomsen
21 árs Reykvíkingur, Þór Sigurðs-
son, liggur rúmfastur eftir að hafa
tvífótbrotnað þegar verið var að
vísa honum út af veitingahúsinu
Café Thomsen rétt undir klukkan
fjögur aðfaranótt sunnudagsins.
Þegar DV ræddi við hann á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur sagðist Þór ætla
að leggja fram kæru. Numo
Aleksander, annar rekstrarstjóri
Café Thomsen, segist hafa verið í
frii þegar atburðurinn átti sér stað
en fúllyrðir að staðurinn sé tilbúinn
að gera allt til að bæta Þór skaðann.
„Ég hafði verið inni á Café Thom-
sen, fór út og kom svo aftur inn. Ég
var að bíða eftir vini mínum við
innganginn og bað annan kunningja
að ná í hann því ég ætlaði ekki að
borga mig inn í annað skiptið. Eftir
talsverða stund kom dyravörður og
ég var rifmn niður stigann. Annar
vörður kom og hjálpaði honum.
Einn hélt í fæturnar á mér. Síðan
lögðu þeir mig harkalega niður og
héldu mér áður en mér var sleppt.
Eftir það stóð ég ekki meira upp.
Sjúkrabíll kom skömmu síðar,“
sagði Þór sem gat nánast ekkert
hreyft vinstri fótinn í gær vegna
verkja niður við ökkla þar sem
bæði beinfesting losnaði og bein-
pípa brotnaði. Þór fékk verkjalyf í
æð.
Þór neitar því alls ekki að hafa
Hann fór í bæinn á laugardags-
kvöldið, varð vel drukkinn, var vís-
að út og verður óvinnufær í haust.
DV-mynd GVA
verið vel ölvaður - hann og vinur
hans hafi einmitt setið inni á um-
ræddum stað í 2-3 klukkustundir
áður en hann fór út. Hins vegar seg-
ir hann ákaflega súrt að liggja tví-
fótbrotinn og óvinnufær eftir að
vera vísað út af veitingahúsi.
Numo rekstrarstjóri segir að Café
Thomsen hafi verið opinn í um eitt
og háift ár. Þetta sé i fyrsta skiptið
sem eitthvað alvarlegt gerist. Stað-
urinn var opinn til sex þennan
morgun og stundum sé opið til átta.
Numo benti á að við slíkar aðstæð-
ar geti vissulega kastast í kekki á
miili dyravarða í vinnu og oft og tíð-
um mjög drukkinna gesta enda séu
Islendingar ekki þeir hófsömustu
þegar áfengi er annars vegar og
langt er liðið fram á morgun. -Ótt
700 sáu Ýtur
í lífi þjóðar
DV.Vesturlandi:
Um 700 manns sáu sýninguna
Ýtur í lífi þjóðar sem haldin var á
Hvanneyri 14.-15. ágúst. Að sýn-
ingunni stóðu Búvélasafnið á
Hvanneyri, verktakafyrirtækið
Jörvi hf., Vegminjasafnið, Vega-
gerðin í Borgarnesi og Hekla hf.
Sýndar voru beltavélar og jarðýt-
ur auk ýmissa fylgiverkfæra. Með
sýningunni var riijaður upp þátt-
ur þessara tækja í ræktunar- og
samgöngusögu landsmanna.
Elsta vélin var frá byrjun 4.
áratugarins en sú yngsta kom til
landsins sumarið 1999. Innanhúss
var sögusýning þar sem brugðið
var upp nær hundrað gömlum
þjóðlífsmyndum þar sem beltavél-
ar og jaröýtur komu við sögu.
Fæstar myndanna höfðu birst
áöur opinberlega. Efhi sögusýn-
ingarinnar verður varðveitt í Bú-
vélasafhinu.
í tengslum við sýningima var
haldin Ýtumannavaka þar sem
eldri og yngri ýtumenn komu sam-
an og rifjuðu upp kátleg atvik og
svaðilfarasögur frá fyrstu árum
þessara merkilegu véla. -DVÓ
Reykvískir sundgestir i vanda:
Þrjár sund-
laugar lokað-
ar samtímis
„Þetta er tilviljun og óheppilegt
og alls ekki á áætlun okkar að loka
þremur sundlaugum í Reykjavík
samtíms. Það var bara ekki hjá
því komist,“ sagði Erlingur Jó-
hannsson hjá íþrótta-og tóm-
stundaráði Reykjavíkur en Sund-
laug vesturbæjar, Árbæjarsund-
laugin og Sundhöllin við Baróns-
stíg eru nú allar lokaðar vegna
viðgerða. „Sundhöllin átti að vera
tilbúinn en þetta er gamalt mann-
virki og viðgerðir þar urðu viða-
meiri en ráð var fyrir gert,“ sagði
Erlingur.
Árbæjarlaugin er lokuð vegna
árlegs viðhalds og þrifa enda er
hún sú laug á höfuðborgarsvæðinu
sem mest mæðir á og hefur lengst-
an afgreiðslutíma að sögn Erlings. í
Vesturbæjarlauginni er verið að
fúa upp öll böð og mála potta og í
Sundhöllinni standa yfir miklar
viðgerðir og steypuvinna á anddyri
hússins sem var farið að leka.
„Við notum þennan tíma til að
loka laugunum vegna þess að
reynslan sýnir okkur að seinni
hluti ágústmánaðar er sá rólegasti
í laugunum hvað svo sem veldur. í
september hefst svo skólasundið á
fullu og þá verður allt að verða
klárt,“ sagði Erlingur.
„Ég verð að ganga alla leið inn í
Laugardal til að þvo mér og það er
mér næstum um megn daglega,"
sagði íbúi á Bergþórugötu sem hef-
ur notað Sudnhöllina til baða um
árabil. „Ég hef ekki aðgang að
sturtu um þessar mundir og engan
bil,“ sagði íbúinn.
Ráðgert er að opna Vesturbæjar-
laugina og Árbæjarlaugina á föstu-
daginn og vonast er til að viðgerð-
um á Sundhöllinni verði lokið á
mánudaginn í næstu viku. -EIR
Ómar með lyklana að sportbílnum sem hvarf af bílasölu meðan hann brá sér i frí til Benidorm. DV-mynd Teitur
Setti sportbíl á bílasölu og fór í frí til Benidorm:
Bíllinn hvarf og
fannst illa farinn
Arbæjarlaug er lokuð vegna viðgerða eins og Sundhöllin og
Vesturbæjarlaug.
„Ég setti bílinn minn á bílasölu
rétt áður en ég fór til Benidorm í
þrjár vikur. Nú, þegar ég kom aftur
úr fríinu aðfaranótt fimmtudags var
bíllinn horflnn. Aðeins lyklarnir
voru eftir og þeir á bílasölunni
vissu ekkert þegar ég hafði sam-
band við þá á fimmtudeginum. Síð-
ar um daginn fann lögreglan síðan
bílinn í Höfðahverfinu, eyðilagðan
og illa farinn. Hann var beyglaður,
allt rifið og tætt inni í honum og
felgumar famar. Þetta er mjög sárt
og mikið fjárhagslegt tjón fyrir
mig,“ segir Ómar Djermoun, í sam-
tal við DV.
Ómar kom frá Benidorm í fyrra-
dag. Hann segir að bíllinn, rauður
Nissan Sunny GTI 1000 sportbíll ár-
gerð ‘92, hafi sést á bílasöluplaninu
hjá Bílasölunni Skeifunni á föstu-
dag fyrir viku. Síðan hafi enginn
vitað neitt fyrr en hann kom heim
úr fríi aðfaranótt fimmtudags. Bíll-
inn er ekki kaskótryggöur og því
fær hann ekkert út úr tryggingun-
um. Tjónið er því tilfinnanlegt.
Ómar segist hafa viljað að bíllinn
Akranes:
yrði settur inn í hús meðan hann
var í burtu en þvi verið hafnað.
Hjá Bílasölunni Skeifunni fengust
þær upplýsingar að bíllinn hefði
verið í röð annarra bíla á planinu
þar sem að jafnaði em hátt í 300 bíl-
ar. Ekki væri við bílasöluna að
sakast. Svona hlutir gerðust því
miður. Aldrei hefði staðið til að
setja ‘92 árgerð af bíl sem seljast átti
á um 900 þúsund inn í hús innan
um skínandi nýja bíla sem væm
mun dýrari. Það væri að jafhaði
ekki gert. -hlh
Mikið malbikað og steypt
DV, Akranesi:
Á síðasta ári og það sem af er
þessu ári hefur verið mikið malbik-
að og steypt á Akranesi. Á árinu
1998 voru malbikuð bílastæði við
fjölbýlishús og hjá fyrirtækjum fyr-
ir um 20-30 milljónir króna og á
þessu ári stefnir i það að flest ef
ekki öll bilastæði fjölbýlishúsa
muni hafa bundið slitlag. Þetta er
breyting frá því sem áður var. Fyr-
ir opnun Hvalfjarðarganga voru að-
eins tvö bílastæði við fjölbýlishús
bimdin slitlagi en nú stefnir í að um
20 bílastæði fjölbýlishúsa verði
bundinn slitlagi. Hvort það er til-
koma Hvalfjaröarganga skal ósagt
látið en íbúar á Akranesi virðast
hafa fengið aukna orku með til-
komu ganganna.
Þá hefur verið mikið steypt á
Akranesi á þessu og síðasta ári með
nýrri tækni. Fyrir skemmstu var
Leynisbrautin steypt þar sem nýtt
hverfi hefur risið með undraverð-
um hraða síðustu mánuði, þá hefur
verið lokið við að steypa bogaveg-
inn fyrir framan Stjómsýsluhúsið
við Stillholtið. Við verkið hefúr ver-
ið notuð útlagningavél í eigu Stein-
vegar ehf. sem getur lagt allt aö 10
metra breiða veghellu. Hér er um
nýja tækni að ræða sem hefur gefið
góða raun en í fyrra vom Kalmans-
vellir og Smiðjuvellir steyptir upp
með þessari sömu vél.
Sléttleiki gatnanna er meiri en
áður hefur þekkst við gatnasteypur
á Akranesi. Þá er nýlokið við að
steypa Jaðarsbraut með þessari
sömu tækni. -DVÓ