Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
I>V
5
Fréttir
Kópavogsbúi sem var með hátt í 400 barnaljósmyndir í tölvu sinni:
Fær 200 þúsund króna
sekt fvrir barnaklámefni
---------—i.
E-töflur.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli:
Rúmlega fertugur karlmaður hefur
verið dæmdur til að greiða 200 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir
að hafa haft umtalsvert barnaklám-
efni á heimili sínu. Maðurinn dreifði
5 myndum sem sýna börn á kynferðis-
legan og klámfenginn hátt til þriggja
aðila í gegnum tölvu sína.
Lögreglan fór inn á heimili manns-
ins í Kópavogi í október fyrir 2 árum
og lagði þar hald á tölvubúnað manns-
ins. Við rannsókn kom í ljós að á
tölvudiskum og hörðum diski tölvu
mannsins voru hátt í 400 barnakláms-
ljósmyndir.
Þegar málið var tekið til dómsmeð-
ferðar nýlega fyrir Héraðsdómi
Reykjaness óskaði ákærði ekki eftir
því að fá verjanda og játaði allt sem
honum var gefið að sök í ákæru ríkis-
saksóknara. Maðurinn kvaðst þó vilja
taka fram að þær 5 myndir sem hann
var ákærður fyrir að senda þremur
aðilum hefðu verið fyrir aðila sem
hafi haft heimasíður til dreifingar á
slíku efni.
Ríkissaksóknari lagði til í málinu
að því yrði lokið með svokallaðri við-
urlagaákvörðun þar sem maðurinn
viðurkenndi sekt sina og féllst á að
greiða 200 þúsund krónur í sekt innan
4ra vikna, ella kæmi fangelsi í 40
daga. Einnig er tölvubúnaður manns-
ins dæmdur til upptöku til ríkissjóðs
- Macintosh Performa Power PC
tölva, litaprentari, 77 tölvudiskar og
fleira. Ákærði greiðir auk þessa sak-
arkostnað upp á 47 þúsund krónur.
-Ótt
Handtekinn
með e-töflur
innvortis
Tollgæslan á Keflavíkurflug-
velli handtók íslenskan karlmann
um þrítugt síðastliðinn sunnudag
vegna gruns mn að maðurinn
væri að smygla eiturlyfjum inn-
vortis. Maðurinn reyndist hafa
um 80 verjur fylltar e-töflum inn-
vortis. Hann var fluttur á sjúkra-
hús þar sem hann liggur 'enn, þar
sem líkami hans hefur ekki skilað
öllum smokkunum. Þar af leið-
andi er enn óvist með hversu mik-
ið magnið er. Ef ein verjan rifnar
getur það reynst manninum lífs-
hættulegt.
Maðurinn var að koma frá
Frankfurt í Þýskalandi.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur tekið við málinu
af tollgæslunni og er það í rann-
sókn. Auk þessa manns sitja níu
manns í gæsluvarðhaldi í augna-
blikinu vegna gruns um aðild að
eiturlyfjasmygli og hefur lögregl-
an lagt hald á 17 kíló af hassi, 8
kíló af amfetamini og 5000 e-töflur,
fyrir utan það sem fannst í líkama
mannsins sem handtekinn var á
sunnudag.
-SMK
Tálknafjörður:
Pallur brotn-
aði af vörubíl
Ekki fór ekki betur en svo hjá
vörubílstjóra, sem var að sturta
hlassi af bíl sínum á Tálknaflrði á
þriðjudag, en að pallur bflsins
rifnaði af bflnum og fór niður með
hlassinu. BíUinn varð hins vegar
eftir á hjólunum og sakaði öku-
manninn ekki. BíUinn er hins veg-
ar mikið skemmdur og er grind
hans öU skökk eftir atvikið.
Maðurinn var að störfum við
vegaframkvæmdir sem eiga sér
stað þessa dagana við gömlu kirkj-
una í Tálknafirði. Að sögn lögregl-
unnar á Patreksfirði er þetta
þriðja óhappið af þessum toga hjá
vörubUum í vegavinnu á hennar
svæði síðan í vor.
-SMK
Símakortum
stoliö
Brotist var inn á hótelið á Ólafs-
firði, Hótel Ólafsfjörð, á miUi
klukkan 3 og 4 aðfaranótt þriðju-
dagsins. Svo virðist sem þjófinum
hafl tekist að opna glugga á hótel-
inu innan frá áður en húsinu var
lokað, farið þar inn, haft á brott
með sér símakort og farið svo út
um dyr sem hann skUdi eftir
ólæstar. Engin skemmdarverk
voru unnin á hótelinu.
Lögreglan á Ólafsfirði er með
málið í rannsókn og biður hún þá
sem gætu hafa orðið varir við
mannaferðir við hótelið aðfara-
nótt þriðjudagsins um að hafa
samband við sig.
-SMK
943S0
69.995 kr.
Kælir/frystir
Stærð: 200x59,5x60
59r99f)
42.995 kr.
Blástursofn
Til í hvítu og svörtu
JBr99D
13.995 kr.
Ryksuga
1500W og 375w sogkraftur
2©r990
49.990 kr.
Uppþvottavél
5 þvottakerfi
47390
37.995 kr.
Kælir/frystir
Stærð: 140x54,5x60
HÚSASMIÐJAN
www.husa.is