Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2000, Síða 25
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
DV
29
Tilvera v
mmaam
Dancer in the Ðark
**★* Dancer in the Dark er hámeló-
dramatísk sápuópera gerð af hjartans ein-
lægni og miklu næmi en um leið læöist
stöðugt að manni sá grunur aö von Trier
sé að skemmta sér viö aö hafa áhorfand-
ann að fífli. -ÁS
High Fídelity
**** Þetta er sérlega skondin mynd um
ofur venjulegt nútímafólk og ofur venjuleg-
ar raunir þess, þannig gerð að manni
stendur ekki á sama um fólkið í henni og
vill því allt hið besta. Það er gott að finna
þannig til þegar maður gengur út úr
bíóinu. -ÁS
Buena Vista Social CEub
■t
—
***i Einstök upplifun, innihaldsrík og
skemmtileg heimildamynd um tónlist og
tónlistarmenn á Kúbu sem voru velflestir
horfnir af sjónarsviðinu þegar blúsgítarleik-
arinn og kvikmyndatónskáldiö Ry Cooder
hafði upp á þeim árið 1997 og gerði með
þeim plötu sem ber sama heiti og kvik-
myndin. Tæpum tveimur árum síðar fór Ry
Cooder aftur til Kúbu og þá var Wim
Wenders með í förinni og afraksturinn er
ein besta heimildarmynd síðari ára, gef-
andi kvikmynd, ekki eingöngu um tónlist
og tónlistarmenn heldur einnig lífið
sjálft. -HK
The Straight Story
**** Hugljúf og gefandi mynd úr smiðju
Davids Lynch sem sýnir að hann getur
verið á mannlegum nótum. Myndin er
óvenjuleg vegamynd þar sem segir frá
mörg hundruö mílna ferð mannas á átt-
ræðisaldri á sláttuvél. Hinn nýlátni leikari,
Richard Farnsworth, er kjölfestan í mynd-
inni og Lynch leyfir honum að
njóta sín. -HK
In the Mood for Love
*** In the Mood for Love fjallar um
ástina. Og eins og í góöum ástarsögum
þá sigrar ástin persónurnar svo rækilega
að þær verða næstum óhæfar til að lifa;
einnig að njóta ástarinnar. Og hún segir
frá framhjáhaldi betur en ég hef séð
lengi. Við sjáum ekki hina seku en fylgj-
umst með fórnarlömbunum leita huggun-
ar hvort hjá öðru þar til ástin kemur aftan
að þeim og gerir þau að því sem þau fyr-
irtíta: ástföngnu fólki. -GSE
X-Men
*** X-Men er mikið sjónarspil, tæknilega
fullkomin. Hraðinn í atburðarásinni kemur þó
aldrei niður á sögunni sjálfri, sem hefur
marga anga, og það er merkilegt hvað tekist
hefur að gera teiknimyndaofurmenni að jafn-
lifandi persónum og raunin er. Leikarar eru
yfirleitt mjög góðir, með þá lan McKellan og
Patrick Stewart fremsta meðal jafningja. -HK
101 Reykjavík
*** Hilmir Snær leikur auðnuleysingjann
Hlyn sem lifir og hrærist í hverfi 101
Reykjavík. Líf hans er í föstum skoröum
þar til vinkona móður hans kemur í heim-
sókn og úr veröur einhver sérkennilegasti
ástarþríhyrningur íslenskrar kvikmynda-
sögu. Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri
og alvarlegri undiröldu. -BÆN
Kjúklingaflóttinn:
Rokki
/ ensku út
gáfunni er
notast
viO
Mel
Gib-
sons
en í ís-
lensku
útgáf-
unni er þaö
Hilmir Snær
Guðnason
sem Ijær
töffaran-
um rödd
sína.
Flótti eða kjúklingabaka
smiðjunni voru hrifhir af hugmynd-
inni og dældu peningum í framieiðsl-
una. Þessir peningar hafa verið vel
ávaxtaðir því Kjúklingaflóttinn sló eft-
irminnilega í gegn bæði á Bret-
landseyjum og í Bandarikjunum og
var lofuð í hástert af gagnrýnendum.
í Kjúklingaflóttanum fylgjumst við
með fóngum sem eru lokaðir á bak við
háa viragirðingu. Þetta eru að vísu
engir venjulegir fangar heldur hænur
og kjúklingar á kjúklingabúinu Eggja-
stöðum. Hænumar lifa í eilífri
hræðslu um að ef þær verpi ekki á
morgnana geti þær endað sem kvöld-
verður. Sú íramtakssamasta í hópnum
er Gígja sem er ákveðin í að skipu-
leggja flótta, ekki síst þegar það fréttist
að eigandi búgarðsins, frú Skaði, er að
hugsa um að breyta rekstrinum og
leggja áherslu á kjúklingabökur. Það
er því ekki að undra að örvæntingar
gæti meðal fanganna þegar ailt í einu
birtist einfarinn, hetjan mikla, Rokki.
Koma hans breytir andrúmsloftinu og
vonin um betri framtíð kviknar...
Kjúklingaflóttinn verður sýnd hér á
landi bæði meö íslensku og ensku tali.
Islenska útgáfan skartar leikurunum
Hilmi Snæ Guðnasyni, sem talar fyrir
Rokka, Ingu Maríu Valdimarsdóttur,
Harald G. Haraldsson, Helgu Jónsdótt-
ur, Pétri Einarssyni, Jóhönnu Vigdísi
Amardóttur, Brynhildi Guðjónsdóttur,
Ladda og Hjálmari Hjálmarssyni. f
ensku útgáfúnni er það stórstjaman
Mel Gibson sem talar fyrir Rokka. í
öðrum hlutverkum eru breskir leikar-
ar, margir vel þekktir, má þar neöia
Juliu Sawalha og Jane Horrocks, sem
báðar léku í hinni vinsælu þáttaröð
Absolutely Faboulous, Miranda Ric-
hardson, Timothy Spall og Imelda
Staunton. -HK
í Laugarásbíói, Háskólabíói og
Borgarbíói á Akureyri verður á
morgun frumsýndur spennu-
tryllirinn The Cell, sem er mikil
myndræn upplifun um lendur hug-
ans, þar sem ýmsir afkimar eru
skoðaðir. í myndinni leikur Jenni-
fer Lopez bamasálfræðinginn
Catherine Deane, sem tengist
framsækinni rannsóknaráætlun
á sviði sálfræðinnar. Dag einn er
hún beðin um að fara inn í huga
raðmorðingja sem liggur í dauðadái
í þeirri von að hún geti bjargað síð-
asta fómarlambi hans. Á meðan
hún ferðast um þann viðbjóðs-
lega heim sem er að fmna i
vitund hins vitstola
glæpamanns verður
alríkislögreglumað-
urinn Peter Novak,
sem sér um málið, að
hafa sig allan við að ráða í vísbend-
ingamar sem fram koma svo hann
geti átt möguleika á að bjarga
stúlkunni, sem nú er í hættu.
Auk Jennifer Lopez leika i mynd-
inni Vincent D’Onofrio, sem leikur
raðmorðingjann Carl Stargher, sem
þegar liggur í dái en geymir í þröng-
um klefa síðasta fórnarlambið.
Vince Vaughn leikur lögregliunann-
inn sem telur Catherine síðustu
vonina til að bjarga lífl fómar-
lambsins. í smærri hlutverkum em
Marianne Jean-Baptiste, Dylan
Baker og James Gammon.
Leikstjóri The Cell heitir Tarsem
Singh, sem kallar sig einfaldlega
Tarsem. Hann er margverðlaunaður
fyrir tónlistar- og auglýsingamynd-
bönd sín og er á heimavelli þegar
um er að ræða kvikmynd sem býð-
ur upp á mikla litagleði. The Cell er
fyrsta kvikmyndin sem hann leik-
stýrir og er ekki annað hægt að
segja en hann hafi farið vel af stað,
því myndin hefur fengið góðar við-
tökur, bæði hjá áhorfendum sem og
gagnrýnendum.
Jennifer Lopez hefur verið mun
meira í fréttum undanfarið út af
einkalífi sínu og framtaki sínu í tón-
listarheiminum heldur en afrekum í
kvikmyndum, en hún hefur verið í
tygjum við vandræðagemlinginn
Puff Daddy og lenti meðal annars í
fangelsi þegar hann tók sig til og ot-
aði skotvopnum á nærstadda. Það
má þó ekki gleymast að á fimm ára
ferli slnum hefur hún fengið krefj-
andi hlutverk sem hún hefur skilað
vel, má þar nefna í myndum á borð
við U-Turn, Blood and Wine, Out of
Sight og Selena.
-HK
Jennifer Lopez
Sálfræöingur sem gerir tilraunir meö nýja geislameöferö.
The Cell:
Ferðast um
í huga rað-
morðingja
Vincent
D'Onofrio
Raömoröingi
sem fellur í dá á
meöan fórnar-
lamb hans er
lokað í gildru.
Kvíönir kjúklingar
Kjúklingarnir á Eggjastööum eru fang-
ar og eiga litla von um betra líf þar til
Rokki birtist.
Kjúklingaflóttinn (Chic-
ken Run), sem frumsýnd
verður á morgun í Bíó-
höllinni, Háskólabíói,
Nýja bíói, Keflavík og
Nýja bíói, Akureyri, er sú teiknimynd,
sem þykir einna frumlegust og
skemmtilegust í flóru margra ágætra
teiknimynda sem litiö hafa dagsins
ljós á þessu ári. Hún er unnin af
breska fyrirtækinu
Aardman, litlu fyrir-
tæki sem haföi af-
rekað það að fá ósk-
arsverðiaun fyrir
stuttar teiknimynd-
ir. Þegar Aardman
hóf gerð Kjúklinga-
flóttans, sem er sam-
bland af teiknimynd
og brúðumynd, voru
ekki miklir peningar
til að gera myndina
sem best úr garði.
Það varð þeim til
hjálpar að Spielberg
og fleiri hjá Drauma-
«
«.
C