Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Page 45
53 LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2001 Tilvera Bridgehátíð Flugleiða, BSÍ og BR 2001: Zia er kominn! Myndasögur Bridgehátíð 2001 hófst í gærkvöld með setningarathöfn og setti Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra mótið. Þetta er í 20. skipti sem Bridgehátíð er haldin og er óhætt að segja að sjaldan hafi fleiri bridgestjörnur verið samankomnar hérlendis. Mest er um vert að Zia er kominn með sveit aftur eftir nokkurt hlé. Þá eru silfurverðlaunahafar síðasta ólympíumóts, Pólverjar, einnig komnir til leiks og er líklegt að erfltt verði að halda þeim frá verð- launapöllunum. Hackett-tvíburarnir blanda sér áreiðanlega í baráttuna um verðlaunasætin og ekki má gleyma okkar eigin stórstjömum. Hátíðin hófst í gærkvöld með 130 para tvímenningskeppni sem spiluð er með barometerformi. Henni lýk- ur um kvöldmatarleytið en á morg- un hefst síðan tíu umferða sveita- keppni með þátttöku 80-90 sveita. Zia hefur unnið hana langoftast og er líklegt að sveit hans verði í topp- baráttunni. Pólverjarnir Jassem og Tuszynski voru i baráttunni í 3. IOC Grand Prix-mótinu sem haldið var í Lausanne í Sviss í sl- nóvember- mánuði. Þar höfnuðu þeir í fjórða sæti eftir að hafa tapað fyrir erkifj- endum sínum, ítölum, í keppni um bronsið. Skoðum eitt spil frá mótinu sem kom fyrir milli sveita Kína og Pól- lands: N/O * 10643 V _ * ÁD954 * ÁK105 * ÁK75 »95 * G106 * G987 X * DG2 * ÁD743 * K73 * 63 * 98 * KG10862 * 82 * D42 lokaða salnum sátu n-s Pól- arnir Pszczola og Kwiecien en a- io og Yang. Þar gengu sagnir á a leið: Noröur Austur Suöur Vestur pass 2 * pass pass dobl pass pass redobl pass 3 * pass pass dobl pass pass pass Það verður að teljast vafasöm ákvörðun hjá suðri að passa við dobli norðurs þvi hann hafði sagt pass í upphafi. Á það reyndi hins vegar ekki þegar vestur SOS redoblaði og austur flúði í þrjú lauf. Úrspilið var ekki flókið. Suður spilaði út trompi og Cao drap heima á drottninguna. Hann svínaði síðan tíguldrottningu, tók ásinn og tromp- aði tígul, spilaði síðan tveimur hæstu í trompi og fríu tíglunum. Stefán Guðjohnsen skrifar um bridge Vömin fékk því fjóra slagi á spaða og einn á tromp. Einn niður og 100 til Póllands. í opna salnum sátu n-s Ju og Fu en a-v Tuszynski og Jassem. Eins og á hinu borðinu opnaði austur á tveimur hjörtum. Norður doblaði síðan og Jasspm ákvað að treysta makker. Hann reyndist traustsins verður. Suður spilaði út laufi og sagnhafi drap heima til að svína tíglinum. Síðan kom spaði úr blindum. Norð- ur fór upp með kóng og spilaði trompfimmi. Austur lét gosann og suður drap á drottningu. Hann spil- að meira laufi, drepið í blindum, tígulás tekinn og tígull trompaður. Síðan spilaði sagnhafi sig út á spaða. Norður yfirtók slaginn af suðri og gaf honum laufstungu. Austur trompaði síðan spaðaútspil- ið og spilaði hjartakóng. Þegar nían kom frá norðri var spilið unnið og Pólland gi-æddi 11 impa. Ástæða er til að hvetja sem flesta til að bregða sér á Hótel Loftleiðir um helgina og fylgjast með bridgemeisturunum. Sýningartafla verður í gangi á sunnudag og mánu- dag þar sem valdir leikir verða sýndir. Sömu spil verða spiluð á öll- um borðum í sveitakeppninni sem gefur færi á fjölsveitaútreikningi milli para. Zia Mahmood ír kominn aftur eftir tveggja ára hlé á bridgehátíö í Reykjavík. K«9 fíilv.ti SyoöcaKi. ix. W/orlcl nghti - Vertu ekki að kvarta vió mig! Það varst þú sem vildir hitta nýju nágrannana! fEiginlega ér dýralræóin mjög ^ ! áhugaverð, finnst þér ekki gaman j ^ að læra um dýr, Mummi? ' :---------- -------------

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.