Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 2
18 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001 Sport DV ^IVIN GRE^, Ragnar hetja Dunkerque Ragnar Óskarsson, sem leikur með franska handknattleiksliðinu Dunkerque, var hetja liðsins í gær þegar hann tryggði því sigur, 24-23, gegn Montpellier úr vítakasti, 14 sekúndum fyrir leiks- lok. Ragnar skoraði sex mörk í leiknum og átti að auki nokkrar stoðsendingar. „Þetta var stærsti sigur okkar í deildinni í vetur. Það átti engin von á þessu enda Montpellier eitt sterkasta lið deildarinnar. Það var nánast kraftaverk að vinna það,“ sagði Ragnar eftir leikinn. Dunkerque er í 7. sætinu í 1. deild með 38 stig en sem fyrr er Chambery í efsta sæti með 51 stig. -JKS 15 ára strákur setti heimsmet Bandaríski unglingurinn Mich- ael Phelps setti um helgina heims- met í 200 metra flugsundi á banda- riska meistaramótinu í Austin í Texas. Phelps, sem er aðeins 15 ára gamall, synti á 1:54,92 mínút- um en gamla metið átti Tom Malchow sem hann setti í júní í fyrra. Það var 1:55,18 mínútur en í sundinu í Austin varð Malchow í ööru sæti á 1:55,46 mínútum. Þá var heimsmetið í 50 m bringusundi tvíbætt í aukagrein- um á mótinu. Fyrst á flmmtudag- inn þegar Anthony Robinson synti á 27,49 sekúndum, sem var milli- timi hans í 100 metra bringusundi, og síðan Ed Moses sem gerði enn betur á laugardaginn þegar hann synti á 27,39 sekúndum sem var einnig millitimi í 100 m bringu- sundi. Fyrir mótið átti Úkraínumaður- inn Alexander Dzhaburiya metið í 50 m bringusundi, 27,61 sekúndur, og var það orðið fimm ára gamalt. Meistaramótið, sem lauk í gær, var um leið úrtökumót fyrir HM sem fram fer í Japan í sumar og tryggöu tveir fyrstu í hverri grein sér þátttökurétt. Því var hart barist um toppsætin og árangur mjög góður. -JKS Rogers á HM í fjórða skipti Ástralski sundkappmn Phil Rogers verður fyrstur Ástraia til að taka þátt í fjórum heimsmeist- aramótum eftir að hann tryggði sér þátttökuréttinn með því að ná öðru sæti í 50 m bringusundi á ástralska meistaramótinu sem lauk í Horbart í gær. Rogers, sem verður þrítugur seinna í mánuöin- um, verður einn af 26 sundmönn- um í HM-liði Ástrala sem einnig voru meðal keppenda á ÓL í Sydney en auk þeirra eru níu nýliðar í liðinu. -EK Patrekur sá rauða spjaldið Patrekur Jóhannesson fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 15 mínútna leik gegn Bayer Dormagen. Patrekur braut illa á leikmanni Dormagen og fékk umsvifalaust brottvikningu. Hann skoraði eitt mark fyrir Essen en Róbert Sig- hvatsson skoraði fiögur mörk fyrir Dormagen Sigurður Bjamason skoraði fiög- ur mörk fyrir Wetzlar sem sigraði Willstátt, 24-22. Julian Róbert Duranona skoraði tvö mörk fyrir Nettelstedt sem sigr- aði Hildesheim, 20-29, á útivelli. Hameln tapaði á heimavelli fyrir Solingen, 27-31, og Gústaf Bjarna- son og félagar í Minden sigruðu Bad Schwartau, 27-21. Staða efstu liða breyttist ekkert um helgina. Flensburg hefur 45 stig eftir 28 leiki, Magdeburg 42 stig eft- ir 27 leiki og í þriðja sæti er Lemgo með 42 stig eftir 28 leiki. -JKS Magdeburg mætir Metkovic í úrslitum Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Magdeburg mæta Met- kovic Jambo í úrslitum um Evrópu- meistaratitil félagsliða í handknatt- leik. Magdeburg tapaði að vísu síð- ari leiknum fyrir spænska liðinu Bidasoa, 23-17, um helgina en vann hins vegar fyrri leikinn í Þýska- landi með átta marka mun og sam- anlagt 49-47. Ólafur Stefánsson var bestur i liði Magdeburg og skoraði fimm mörk, Magdeburg hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik og leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 8-10. í síðari hálfleik tóku Spánverjamir smám saman völdin og sigruðu með sex marka mun. Barcelona og Portland leika til úrslita í meistaradeild Evrópu tryggði Barcelona sér sæti í úrslitum með því að leggja Kiel að velli, 33-28, en þýska liðið vann fyrri leikinn með fiögurra marka mun. Viðureignin i Barcelona var æsispennandi og lokamínútur leiksins voru spennu- þrungnar. Lozano skoraði tíu mörk fyrir Barcelona en Nenad Peruncic skoraði níu mörk fyrir Kiel. Spænska liðiö San Antonio Portland sigraði Celje Pivovarna Lasko, 29-32, í Slóveniu. Gerralda, Jakimovic og Errekondo skoruðu sex mörk hver fyrir Portland. Spán- verjamir unnu fyrri leikinn á heimavelli með tveimur mörkum. í Evrópukeppni bikarhafa verða það Flensburg og spænska liðið Ademar Leon sem leika til úrslita. Ademar sigraði Valladolid, 33-22, í síðari viðureign liðanna í gær og Flensburg sigraði Grosswaldstadt, 29-24, en Flensburg vann fyrri leikinn með eins marks mun. -JKS Birgir Leifur lék gott golf í Villamartin Birgir Leifur Hafþórsson, at- vinnukylfingur frá Akranesi, átti frábæran lokahring á Segura Viu- das-áskorendamótinu, sem lauk á Villamartin-golfvellinum á Costa Blanca í gær, þegar hann lék á 68 höggum, eða fiórum undir pari vall- arins. Birgir Leifur tryggði sér þar með 10.—11. sætið á mótinu á samtals 282 höggum, eða alls sex höggum undir pari vallarins, og hlaut fyrir það um 190 þúsund krónur í verð- launafé. Hann hefur þar með þénað rúma hálfa milljón króna í fyrstu tveimur mótum vetrarins sem verður að telj- ast góð byrjun hjá kappanum. Birg- ir Leifur var í 18.-25. sæti fyrir loka- hringinn eftir að hafa spfiað fyrsta og annan hringinn á 72 höggum, eða á pari, og þann þriðja á 70 höggum. Hann byrjaði síðasta hringinn mjög vel og var tveimur undir pari strax eftir fimm holur. Síðan spilaði hann tvær af næstu þremur á einum yfir pari en náði sér svo aftur á strik í lokin þegar hann spilaði þrjár af fimm síðustu holunum á einum und- ir pari. í heildina lék Birgir Leifur 41 holu af 72 á pari, 18 einum undir pari og 13 einum yfir pari. Sigur- vegari mótsins varð Skotinn Euan Little á samtals 277 höggum, eða 11 undir pari. Spánverjinn Jesus Maria Arruti varð í öðru sætinu á 278 höggum og Carlos Larrain frá Venesúela í þriöja sætinu á 279 höggum. Larrain leiddi mótið lengst af og hafði tveggja högga forskot á Little fyrir lokaumferðina en Skot- inn spilaði síðasta hringinn á 68 höggum og skaust þar með upp í efsta sætið og hlaut fyrir þaö um 1,2 milljónir króna í verðlaunafá. Jusus Maria var aftur á móti sá sem átti besta skor á hring en hann lék síðasta hringinn á 64 höggum, eða 8 undir pari, sem tryggði honum annað sætið og um 800 þúsund krón- ur í verðlaunafé. -EK Birgir Leifur Hafþórsson. Hvít-Rússinn Aliksandr Shamkuts skoraði þrjú mörk af línunni fyrir Hauka í síöari leiknum gegn Metkovic Jambo í Krótaíu um helgina. Haukar eru úr leik i keppninni en frammistaða liðsins var mjög góö engu að síöur. Haukar úr leik í Evrópukeppninni í handknattleik: Góð reynsla - töpuðu síðari leiknum við Metkovic í Króatíu, 29-25 Haukar töpuðu síðari leik sínum gegn króatíska liðinu Metkovic Jambo, 29-25, í Evrópukeppni fé- lagsliða í handknattleik í Króatíu á laugardaginn. í hálfleik var staðan 16-13 fyrir Metkovic sem vann því samanlagt í leikjunum tveimur, 51-45. Að sögn Þorgeir Haraldssonar, formanns handknattleiksdeildar Hauka, var leikurinn á laugardag hörukurimma. Leikurinn var meira og minna í jafnvægi en Króatarnir náðu mest sex marka forystu. Fyrri hálfleikur var jafn en það sem skildi liðin af var markvarsla Króatanna. Markvörður þeirra lokaði markinu og varði að minnsta kosti fiögur dauðafæri á stuttum kafla. Króatiska liöið var hvatt áfram af rúmlega 3000 þúsund áhorfendum og var gríðarleg stemning í íþrótta- höllinni. Svissneskir dómarar höfðu góð tök á leiknum, að sögn Þorgeirs Haraldssonar. „Það var mikil reynsla fyrir okk- ar lið að taka þátt í þessari keppni og hún mun nýtast okkur síðar meir. Við erum sáttir þannig séð en auðvitað hefðum við viljað fara í úr- slit keppninnar. Við sýndum það og sönnuðum að við eigum fullt erindi í svona keppni. Það má segja að fyrri leikurinn heima hafi orðið okkur að falli en það hefði breytt miklu að koma hingað út í síðari leikinn með 3-4 mörk í farteskinu," sagði Þorgeir. Halldór Ingólfsson var marka- hæstur Hauka í leiknum með 7 mörk. Þorvarður Tjörvi Ólafsson og Rúnar Sigtryggsson skoruðu 5 mörk hver, Einar Örn Jónsson var með 4 mörk, Aliksandr Shamkuts 3 mörk og Óskar Ármannsson 1. „Við erum ákveðnir að taka þátt í Evrópukeppninni næsta vetur en við höfum þegar tryggt okkur sæti í Evrópukeppni bikarhafa. Viö mæt- um tvíefldir til leiks í þessa keppni næst. Við förum út úr þessari keppni með smáhalla. Með góðum stuðningi yfirvalda i Hafnarfirði og leikmanna sjálfra er staðan viðunandi," sagði Þorgeir Haralds- son. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.