Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001 27 Sport ENGLAND Robbie Fowler skorar hér síöara mark Liverpool gegn Manchester United án þess aö Fabien Barthez og Nicky Butt komi vörnum viö. Á innfelldu myndinni sést Eiöur Smári Guöjohnsen fagna sigurmarki sínu fyrir Chelsea gegn Middlesborugh. Reuters Enska knattspyrnan: - Eiður Smári Guðjohnsen skoraði sigurmark Chelsea gegn Middlesborough Úrvalsdeild: Eiður Smári Guðjohnsen heldur áfram að láta að sér kveða í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði sig- urmark Chelsea í 2-1 sigri á Midd- lesborough eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Gianfranco Zola skoraði fyrra mark Chelsea og til- einkaði það David Rocastle, fyrrum félaga sínum hjá Chelsea og áður hjá Arsenal og enska landsliðinu, en hann lést af völdum krabbameis á laugardag. „Það var ánægjulegt að spila og ég tileinka markið David Rocastle. Þegar ég kom fyrst til Chelsea þá hjálpaði hann mér. Hann var sannur atvinnumaður og mér líkaði afar vel við hann.“ Zola sagði mikilvægt fyrir liðið að ná Evrópusæti fyrir næsta tímabil. „Við ætlum ekki að spila í Inter Toto-keppninni. Tímabilið er nógu langt og ef af því verður verður að- eins um stutt hlé milli tímabila að ræða.“ Liverpool náði á laugardag þeim frábæra árangri í fyrsta skipti í 22 ár að sigra Manchester United í báð- um leikjum í deildinni þegar liðið vann 2-0 á Anfield, þrátt fyrir að vera einum færri í 25 mínútur. Liverpool vann leikinn á frábærum fyrri hálfleik og sterkri liðsheild í síðari hálfleik með Sami Hypiia sem sinn besta mann. Danny Murphy, sem skoraði sigurmarkið í fyrri leik liðanna á Old Trafford, gerði sig sekan um alvarleg mistök þegar hann fékk annað gula spjaldið sitt í leiknum fyrir brot á Denis Irwin út við hliðarlínu langt utan hættusvæðis. United tókst hins veg- ar ekki að nýta sér liðsmuninn og eina mark þess var dæmt af vegna rangstöðu. Bæði liðin eiga fyrir höndum stóra leiki i Evrópukeppn- um í vikunni og mátti greina það á leik United að hugur leikmanna var við leikinn við Bayern Múnchen á þriðjudag. „Þetta er mjög mikilvæg vika,“ sagði Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, á laugardag. „Við leikum í undanúrslitum í UEFA- bikamum og síðan í undanúrslitum FA-bikarsins en ég sagði við strák- ana: „Höldum áíram að vinna okkar vinnu og verum með báða fætuma á jörðinni." “ Leeds vann góðan útisigur á Sunderland þrátt fyrir að missa Al- an Smith út af með rautt spjald í síðari hálfleik. David O’Leary, stjóri Leeds, sagði liðið berjast fyrir þriðja sætinu í deildinni en sú bar- átta hefði kannski byrjað of seint. Sigurinn gefur þeim þó mikið sjálfs- traust fyrir undanúrslitaleikinn í meistaradeildinni gegn Deportivo. Arsenal vann góðan sigur á Tottenham í Lundúnaslag, 2-0, en dagurinn var þó íjarri því að vera ánægjulegur fyrir liðið sem fékk þær fréttir snemma dags að fyrrver- andi félagi þeirra, David Rocastle, væri látinn. Þeir heiðruðu minn- ingu hans á glæsilegan hátt með miklum yfirburðum gegn Totten- ham. „Að minu mati spiluðum við vel og þurftum að vera þolinmóðir. Við fengum nóg af færum og ég var alltaf viss um að við myndum skora en við vörðumst mjög vel,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Leikurinn gefur góð fyrir heit fyrir slag liðanna í undanúrslitum FA- bikarsins um næstu helgi. Leicester missti af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti þegar liðið tapaði fyrir Charlton, 2-0. Liðið átti hins, að því er virtist, ekki skilið að skora enda var sókn- armönnum þess heldur mislagðir fætur í leiknum. Bolton tapaði dýrmætum stigum á heimavelli í toppbaráttu 1. deildar þegar liðið gerði jafntefli við Wimbledon á heimavelli á meðan Blackburn skellti sér uppfyrir þá í annað sætið sem gefur sæti í úrvals- deild að ári. -ÓK \+9- SKOTLAND St. Johnstone-Hibernian .... 2-0 Aberdeen-Celtic . :........0-1 Dundee-Kilmamock...........2-2 Hearts-Motherwell .........3-0 Rangers-Dundee Utd ........0-2 St. Mirren-Dunfermline.....1-1 Staða efstu liða: Celtic 31 26 4 1 78-23 82 Rangers 31 21 3 7 58-30 66 Hibernian 32 17 9 6 52-25 60 Hearts 32 13 7 12 51-43 46 Kilmarnock 31 13 7 12 36-41 46 Dunfermline 32 11 8 13 31-46 41 Dundee -. -31. -10- 8 -13 - 44-39 - 38 - Arsenal-Tottenham............2-0 1-0 Pires (70.), 2-0 Henry (87.). Bradford-Newcastle .........2-2 1-0 Wetherall (8.) ., 2-0 Blake (10.), 2-1 Cort (25.), 2-2 Chelsea-Middlesbrough .... 2-1 1-0 Zola (35.), 1-1 Windass (54.), 2-1 Eiður Smári (63.). Coventry-Derby...............2-0 1-0 Hadji (43.), 2-0 Hartson (48.). Liverpool-Manch.Utd .........2-0 1-0 Gerrard (13.), 2-0 Fowler (41.). Manch. City-Aston Villa .... 1-3 1-0 Goater (12.), 1-1 Merson (14.), 1-2 Dublin (44.), 1-3 Hendrie (65.). Sunderland-Leeds ........... 0-2 0-1 Smith (24.), 0-2 Viduka (90.). West Ham-Everton ............0-2 0-1 Unsworth (44., víti), 0-2 Alexanders- son (71.). Charlton-Leicester...........2-0 1-0 Todd (33.), 2-0 Bartlett (82.). Staðan í úrvalsdeild: Man. Utd 31 21 7 3 68-21 70 Arsenal 31 16 9 6 49-29 57 Leeds 31 14 8 9 46-38 50 Liverpool 29 14 7 8 50-31 49 Ipswich 30 15 4 11 44-36 49 Sunderland 31 13 9 9 37-32 48 Chelsea 30 12 9 9 54-38 45 Charlton 31 12 9 10 4142 45 Leicester 30 13 6 11 31-33 45 Southampt. 29 12 8 9 34-34 44 Aston Villa 30 10 11 9 34-31 41 Tottenham 31 10 9 12 36-40 39 Newcastle 30 11 6 13 36-43 39 West Ham 31 8 11 12 35-40 35 Everton 31 9 8 14 33-44 35 Derby 31 8 11 12 31-47 35 Middlesboro 31 6 13 12 34-38 31 Man. City 31 6 9 16 34-52 27 Coventry 31 6 9 16 28-51 27 Bradford 30 3 9 18 22-57 18 1. deild: Tranmere-Fulham.............1-4 0-1 Saha (3.), 0-2 Hayles (28.), 0-3 Cl- arke (65.), 0-4 Saha (84), 1-4 Osborne (90.). Bamsley-Stockport ..........0-2 0-1 Kuqi (10.), 0-2 Wilbraham (62.). Bolton-Wimbledon............... 1- 0 Elliott (28.), 1-1 Agyemang (31.), 2- 1 Hendry (66.), 2-2 Cooper (90.). Crystal Palace-Crewe........1-0 1-0 Austin (62.). Huddersfield-Portsmouth . . . 4-1 0-1 Mills (33.), 1-1 Booth (56.), 2-1 Facey (71.), 3-1 Gorre (90., víti), 4-1 Baldry (90.). Norwich-Grimsby ............2-1 1- 0 Roberts (3.), 1-1 Campbell (32.), 2- 1 Llewellyn (74.). Nott. Forest-Q.P.R..........1-1 1-0 Harewood (13.), 1-1 Wardley (85.). Preston-Gillingham..........0-0 W.B.A.-Watford .............3-0 1-0 Quinn (52.), 2-0 Hughes (59.), 3-0 Clement (90.). Blackbum-Burnley............5-0 1-0 Short (14.), 2-0 Davis (28., sjálfsm.), 3-0 Jansen (56.), 4-0 Jansen (69.), 5-9 Hignett (82.). Birmingham-Wolves ..........0-1 0-1 Ndah (1.). Sheff. Wed-Sheff. Utd.......1-2 0-1 D’Jaffo (50.), 0-2 Asaba (70.), 1-2 Sibon (76.). Staöa efstu liða: Fulham 38 27 7 4 81-26 88 Blackburn 36 21 9 6 60-32 72 Bolton 38 20 12 6 65-39 72 Birmingham 39 21 6 12 53-41 69 WBA 40 20 8 12 55-46 68 Preston 38 19 7 12 51-43 64 Nott. For. 39 18 6 15 48^4 60 2. deild: Brentford-Wrexham .........1-0 Stoke-Bristol Rovers.......4-1 1-0 Hanson (4.), 2-0 Hanson (15.), 3-0 Thorne (71.), 4-0 Thorne 86, 4-1 Gall (88.). Staða efstu liða: Rotherham 39 23 8 8 72-49 77 Millwall 39 22 8 9 70-36 74 Reading 38 22 7 9 70-41 73 Walsall 39 19 10 10 67-43 67 Wigan 40 16 17 7 46-34 65 Stoke 39 17 13 9 63-42 64 Bristol City 39 16 12 11 62-48 60 Notts C. 1 . . 38 15 10 13 50-54 55 ÍNGIAND h David Rocastle, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliösins, lést af völdum krabbameins á laugardag, að- eins 33 ára aö aldri. Rocastle lék 277 leiki fyrir Arsenal á ámnum 1983 til 1992. Leikmenn Arsenal og Tottenham minntust leikmannsins með mínútu þögn fyrir leik liðanna á laugardag. Eióur Smúri Guöjohnsen skoraði sigurmark Chelsea gegn Middles- boroug á Stamford Bridge eftir að hafa hafa komiö inn á sem varamaður fyrir Jesper Gronkjær á 47. mínútu. Þórður Guójónsson var í byrjunar- liði Derby gegn Coventry en fór út af á 58. mínútu fyrir George Kinkladze. Guöni Bergsson spilaði allan leikinn fyrir Bolton sem gerði jafntefli við Wimbledon. Guðni fékk gult spjald undir lok leiksins. Bjarki Gunnlaugsson var á vara- mannabekk Preston sem gerði 0-0 jafntelfi við Gillingham. Lárus Orri Sigurösson var á vara- mannabekk WBA þegar liðið sigraði Watford, 3-0. Heiöar Helguson var í byrjunaliði Watford en fór út af á 71. minútu fyrir Noel Williams. Ólafur Gottskálksson og ívar Ingi- marsson spiluðu allan leikinn fyrir Brentford sem vann Wrexham, 1-0. Stefán Þóröarson var I byrjunarliði Stoke sem vann Bristol Rovers, 4-1. Það sama-má-segja um Bjarna- Guö- jónsson, Rikharó Daöason og Brynjar Björn Gunnarsson. Stefán fór út af á 78. mínútu og Bjarni og Rík- harður á 73. mínútu. Birkir Kristins- son var á varamannabekk liðsins. Sig- urinn var kærkominn fyrir liðið sem hefur átt nokkuð slæmu gengi að fagna undanfarið eftir frábæra tvo mánuði í kringum áramót. Bjarnólfur Lárusson var í byrjunar- liði Scunthorpe og skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri á Barnet i 3. deild- inni. Scunthorpe er í 8. sæti með 56 stig þegar sjö umferðir eru eftir og hefur liðið góða móguleika á að kom- ast í umspil um sæti i 2. deild. Arnar Gunnlaugson kom inn á fyrir Dean Sturridge á 61. mínútu þegar Leicester tapaði fyrir Charlton. ........................-ÓK-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.