Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 16
32 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001 ' fr y > Stjarnan fagnaði sigri á íslandsmóti í hópfimleikum um helgina: Kærur gengu á víxl og samtals 25,25 stig eða 0,05 stigum meira en Björk. Þetta er mirmsti mun- ur sem hægt er aö gera á liðum. Stjömustúlkur hlutu því loks gull á ís- landsmóti en undanfarin ár hafa þær þurft að sætta sig við annað sætið. í keppnisreglum í hópfimleikum er grein sem fjallar um kærufrest og er hann 15 mínútur eftir að móti lýkur en fyrir verðlaunaafhendingu. Aðeins er hægt að kæra frammistöðu eigin liðs, þ.e. ekki er hægt að kæra einkunn eða frammistöðu hjá öðrum liðum. Nú tók við mikil dramatík þar sem þjálfarar nokkurra liöa kepptust við að skrifa kærur og mikil rekistefiia fór fram við mótshaldaraborðið. Áhorfendur létu ekki sitt eftir liggja og komu lika mið- ur falleg orð frá þeim tO dómara, þjálf- ara og skipuleggjenda. Þetta var leiðin- leg uppákoma en virðist vera að festa sig í sessi en allt frá því 1992 hafa kom- ið upp rifrildi og kærumál í lok móta. Það er leiðinlegt að svona þurfi að fara og mega þjálfarar, keppendur og áhorfendur skammast sín yfir fram- komu sína. Ráðist var á dómara með þvílíkum svívirðingum og yfirlýsing- um sem ekki er vert að hafa eftir. Verst er að nú þegar eru þrautreyndir dómarar famir að neita að dæma ís- landsmót vegna þessara leiðindamála og ekki kæmi á óvart þótt fleiri bættust í þann hóp fyrir íslandsmót að ári. Gyða Kristmannsdóttir og Jóhannes Níels Sigurðsson, þjáifarar Stjömunn- ar, vom að vonum glöð eftir mótið. „Loksins, loksins, eftir öll þessi ár í öðm sæti. Þetta er búið að vera ótrú- legt og loks var komið að okkur,“ sagði Gyða. Jóhannes var ánægður en samt þungur á brún og sagði: „Það er leiðin- legt hvemig þessi Islandsmót era að þróast og þau virðast enda meö leið- indum ár eftir ár og það er íþróttinni ekki til framdráttar en ég er ánægður með mitt lið í dag, stúlkumar stóðu sig ótrúlega vel,“ sagði Jóhannes enn fremur. Sólveig Jónsdóttir, sem búsett er í Noregi, kom heim fyrir nokkm tfi að geta tekið þátt á íslandsmótinu. „Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, ég er svo glöð, en nú verð ég heima fram að Norðurlandamóti og hver veit hvað við nælum okkur í þar, allavega ætl- um við okkur stóra hluti.“ Þröstur Hrafnsson og Steinunn Ket- fisdóttir, þjálfarar Bjarkarstúlkna, vom vonsvikin. „Við skfijum þetta ekki alveg," sagði Steinunn. „Ég er ofsalega ósátt við einkunnina á gólfi og vil fá einhverjar útskýringar því mér frnnst við ails ekki eiga þessa einkunn skilið. Bara það að jafnvægi í dansin- um, sem alltaf hefúr fengið gildið 0,3, fékk bara 0,2 í dag er nóg til að kosta okkur sigurinn. Það er auðvitað alltaf hægt að telja svona áfram en mér finnst þetta mjög undarlegt," sagði Steinunn. -AIÞ íslandsmót í hópfimleikum var haldið um helgina í íþróttahúsinu Austurbergi. Á mótinu var keppt með nýju fyrirkomulagi sem fyrst var próf- að í vetur og er þannig að keppt er á öllum áhöldum í einu og því er aldrei nein bið eftir dómurum. Fyrir vikið gengur keppni mjög hratt fyrir sig. Mótið var hin besta skemmtun. Lið- in sýndu skemmtfiegar og erfiðar æf- ingar, þó svo að framan af keppni hafi liðin gert töluvert af mistökum í æfing- um sínum. Eftir tvö áhöld af þremur leit út fyrir að Björk myndi fara með sigur af hólmi. Þær vom með 17,2 stig eftir tvö áhöld og áttu aðeins gólfæfmg- ar eftir. Stjaman var með 16,6 stig og áttu dýnustökk eftir. Björk gerði æf- ingar sínar á gólfi og fógnuðu stúlk- umar vel á eftir svo gerði Stjaman æf- ingar sínar og þær fögnuðu líka vel. Björk hlaut 8,2 á gólfi og um leið upp- götvuðust mistök við einkunnagjöf á trampólíni þarrnig að Bjarkarstúlkur hlutu samtals 25,2 stig á mótinu. Stjömustúlkur hlutu 8,65 á dýnustökki íslandsmeistarar Stjörnunnar í hópfímleíkum ánægöar í mótslok. DV-mynd E.ól. NBA'HEILDIN Úrslit á fimmtudag: Washington-Golden State 116-100 Alexander 24, Vanterpool 21, White 21 (16 frák., 3 varin) - Jamison 31, Bla- ylock 18 (11 stoðs., 4 stolnir), Foyle 14 (10 frák., 4 varin). Atlanta-Indiana..........104-93 Terry 28, Mohammed 18 (15 frák.), John- son 14 - Miller 24, O’Neal 16, Rose 16. Chicago-Boston...........104-106 Brand 22 (11 frák., 5 varin), Mercer 17, Miller 15 - Pierce 24, Walker 23 (11 frák., 11 stoðs.), Palacio 19. Milwaukee-Miami ..........104-96 Robinson 27, Cassell 17, Hunter 17 - Hardaway 25, Mason 18, Grant 15, Mourning 8 (6 frák., 1 stoðs.). Houston-Phoenix............85-90 Olajuwon 20,11 frák., 3 stolnir), Norr- is 15, Francis 13, Mobley 13 - Kidd 43, Gugliotta 11, Rogers 11. San Antonio-Utah..........106-88 Duncan 29, Anderson 23, Robinson 12 (3 stolnir, 6 varin) - Malone 24, Mars- hall 16, Stockton 13. Vancouver-New York........89-68 Abdur-Rahim 30, Bibby 16, Dickerson 15, Reeves 14 (10 frák.) - Ward 13, Houston 12, Jackson 10. Úrslit á föstudag: Philadelphia-Golden State 102-89 Iverson 35 (11 frák., 4 stolnir), Hill 21 (14 frák.), Snow 11 - Jamison 32 (3 stolnir), Cummings 16, Blaylock 11. Toronto-New Jersey.......110-99 Carter 27, Williams 23 (3 stolnir), , Murray 20 - Newman 27, Van Horn 22, Williams 18 (4 varin). Boston-Indiana.............87-92 Pierce 23, Walker 20, Stith 13 - Cros- here 32 (10 frák.), Rose 25, O’Neal 15 (3 stolnir). Charlotte-Denver..........96-103 Wesley 24 (3 stolnir), Mashburn 18, Campbell 15 - Van Exel 41 (10 stoðs.), LaFrentz 17 (12 frák.), Posey 14. Detroit-Orlando ..........100-97 Stackhouse 33, WUliamson 16, WaUace 13 (21 frák, 3 varin) - Miller 21, McGrady 18, Armstrong 17. Utah-Cleveland ............95-88 Malone 33 (4 stolnir), MarshaU 17 (3 varin), Stockton 14 - MiUer 24 (4 stolnir), Mihm 15, Person 15. Portland-New York .........96-79 Wallace 30 (3 stolnir), Wells 16, Pippen 8, Sabonis 8 - Sprewell 21 (3 stolnir), Houston 13, Camby 12. Seattle-LA CUppers ........94-84 Payton 28 (4 stolnir), Baker 13 3 var- in), Lewis 12 - Olowokandi 16 (3 var- in), Piatkowski 15, Miles 13. LA Lakers-Dallas...........98-89 O’Neal 35 (13 frák.), Shaw 14, Grant 12 (10 frák.) - Nowitzki 24, Finley 18, Bradley 12. Sacramento-Minnesota . . . 110-98 Webber 28, Pollard 18 (13 frák., 4 stolnir, 5 varin), Christie 18 - Brandon 20, Garnett 18 (4 stolnir, 5 varin), Lopez 16. Úrslit á laugardag: Washington-Houston.......86-96 Profit 18 (7 stolnir), Alexander 16, Laettner 16 - Francis 25, Mobley 17, Olajuwon 15 (11 frák., 3 varin). Atlanta-Denver ............99-88 Kukoc 23 (11 stoðs.), Mohammed 16 (15 frák.), Wright 11 - WUlis 21 (10 frák.), Van Exel 19, LaFrentz 8 (10 frák., 6 var- in). Chicago-Miami..............90-97 Brand 20, Guyton 19, Artest 13 - hardaway 21 (10 stoðs.), Mason 18 (12 frák.), Ceballos 13, Mourning 12. San Antonio-MUwaukee ... 77-86 Duncan 20 (12 frák.), Robinson 19 (11 frák.), Anderson 10 - Casseil 24, Caff- ey 15, Allen 14 (11 frák.), Robinson 14. LA Clippers-CIeveland .. . 104-97 Piatkowski 20, Magette 18, Mclnnis 14, Odom 11 (10 frák., 10 stoðs.) - MiU- er 19, Murray 18, Harpring 17. --------------------------í—j____ Fullkomin þrenna Lið Þróttar í Neskaupstað full- komnaði þrennuna þegar félagið lagði ÍS í úrslitaleik Islandsmótsins í blaki í Neskaupstað á laugardag- inn. Fyrir leikinn höfðu Þróttar- stúlkur hampað deildar- og bikar- meistaratitlinum og það sama var uppi á teningnum á síðasta ári og því var þetta annað árið í röð sem Norðfjarðarliðiö nær þrennunni. Stúdínur náðu þó að bíta frá sér og vinna hrinu en þær enduðu 25-14, 25-11, 20-25 og 25-17. Sigur heimaliösins var þó aldrei í raun- verulegri hættu. Það má segja að stúdínur hafi aldrei náö sér al- mennilega á strik i leiknum og með rúmlega þrjú hundruð manns, sem hvöttu heimaliðið til dáða, var erfitt að fá byr í seglin. Heimaliðið var líka mun ágengara í öllum leik sinum og betra á öllum sviðum leiksins á meðan stúdínum voru mislagðar hendur með flesta hluti. Petrún Jónsdóttir, þjálfari liðsins, sem hefur stýrt liðinu undanfarin ár, var líka kampakát. „Við lentum í því fyrir leikinn að lykilleikmaður liðsins, uppspilarinn Natalia Gomzina, lék ekki með þar sem hún er bamshafandi og því var ég nokk- uð stressuð fyrir leikinn. Hún tók þó þátt í upphituninni en treysti sér svo ekki til þess að spila leikinn. Hulda Elma Eysteinsdóttir, sem hef- ur verið einn aðalkantskellur liðs- ins, og Anna Pavloucka tóku að sér uppspilið og það var lagt upp með það að sækja á köntunum og það gekk vel.“ Aðspurð um velgengni liðsins sagði Petrún aö lykillinn að velgengninni hefði fyrst og fremst verið verið góð æfingasókn þar sem aflir leikmenn liðsins hefðu lagt sig fram. Norðfirðingar voru líka flestir ánægðir í leikslok og það var fagnað fram á nótt í Neskaupstað. Zdravko Demirev, þjálfari stúdina, var hins vegar fámáll eftir leikinn og sagði að sitt lið hefði aldrei náð sér úr start- holunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.