Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 8
8
9
Útlönd
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
I>V
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
DV
Útlönd
Soltys-hjónin
Nikolay Soltys stakk vanfæra eigin-
konu sína í magann meö hnífi.
Þessi ijósmynd af hjónunum fannst í
yfirgefnum bíl Soltys í fyrradag.
Nikolay Soltys:
Ginnti son sinn
með leikföngum
Úkraínski innflytjandinn Nikolay
Soltys, sem hefur myrt sex meðlimi
stórfjölskyldu sinnar nærri Sacra-
mento íKalifomíu síðustu daga, er
talinn hafa skipulagt gjöminginn
vandlega og verið meðvitaður um at-
hafnir sínar. Allsherjarleit stendur
yftr að morðingjanum og hefur
þremur milljónum króna verið heitið
fyrir upplýsingar um ferðir hans.
Þriggja ára sonur Soltys fannst lát-
inn í pappakassa á þriðjudag. Lög-
reglumenn á vettvangi greindu fót-
spor fullorðins manns og barns að
pappakassanum, en einungis sá full-
orðni sneri aftur frá kassanum. Svo
virðist sem Soltys hafi ginnt son
sinn i pappakassann með nýjum
leikfóngum, en mörg slík fundust í
alblóðugum kassanum. Barnið hafði
verið skorið og stungið með hnífi,
eins og hinir fimm myrtu ættingjar
Nikolays Soltys.
Ófriðurinn fyrir botni Miðjarðarhafs:
Eldflaugaárásir á hátt-
setta Palestínumenn
Skærur á óróasvæðinu fyrir
botni Miðjarðarhafs aukast nú
dag frá degi, en í gær bættust að
minnsta kosti sjö Palestínumenn
í hóp fallinna. í gær féllu fimm
manns þegar ísraelsk hersveit
hóf skothríð á hóp Palestínu-
manna í bænum Betiba, sem er
vestur af Nablus i nágrenni Vest-
urbakkans.
Talsmaður hjálparsamtakanna
Rauöa hálfmánans sagði að að-
koman hefði verið hræðileg og lík-
amar þeirra föllnu hefðu hrein-
lega verið fullir af byssukúlum.
Hann sagði að til skorbardaga
hefði komið eftir að hersveitin
hefði komið að hópi hryðjuverka-
manna sem unnu við aö koma fyr-
ir sprengjum við vegkantinn.
Þá féll einn Palestímumaður á
Gaza-svæðinu þegar eldflaug var
skotið að bifreið sem hann var
farþegi í. Maðurinn mun hafa
verið félagi í Hamas-samtökun-
um, sonur Adnan al-Ghoul, sem
þar er háttsettur, og mun eld-
flaugin hafa verið ætluð honum.
Loks var palentínskur lögreglu-
maður skotinn til bana á Gaza-
svæðinu seint í gærkvöldi. Hann
mun hafa verið skotinn eftir að
hafa hætt sér of nálægt ísraelskri
hersveit.
í morgun var síðan gerð eld-
flaugaárás á bíl háttsetts palest-
ínsks embættismanns, sem særð-
ist illa ásamt tveimur öðrum.
Mikill órói er nú á svæðinu og
búast menn við hinu versta eftir
atburði gærdagsins.
Yasser Arafat í Indlandi
Á sama tíma og allt er að fara í bál og brand heima fyrir er Yasser Arafat, leiötogi
Palestínumanna, í opinberri heimsókn í Indlandi þar sem hann leitar stuönings
ráöamanna fyrir stefnu sinni í málefnum Miö-Austurlanda. Hann mun einnig
heimsækja Pakistan og Kína í feröinni og er taliö líklegt aö hann muni leggja
hart aö ráöamönnum í Kína aö taka virkari þátt í friöartiiraununum fyrir botni
Miöjaröarhafs. Á myndinni hér aö ofan er Arafat meö Atal Behari Vajpayee,
forsætisráöherra Indlands.
Vill Bondevik við hlið sér
Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra
Noregs og formaður
V erkamannaflokks-
ins, kappkostar nú
að fá forvera sinn,
Kjell Magne
Bondevik, formann
Kristilega flokksins, til liðs við sig.
Stoltenberg segir Bondevik veðja á
rangan hest velji hann samstarf
með Hægriflokknum eftir komandi
þingkosningar.
í mál við ákæranda
Hjónin Neil og Christine
Hamilton, sem eru sökuð af konu
um að hafa átt þátt í nauðgun á
henni í vor, hafa kært hana fyrir
meiðyrði. Neil er fyrrverandi við-
skiptaráðherra Bretlands.
Elding varð fimm að bana
Elding varð fimm manna fjöl-
skyldu að bana á bóndabýli hennar
í Rúmeníu í fyrradag. Fjölskyldan
var að slá tún þegar slysið varð.
Geimskutla lenti heil
Geimskutlan Discovery lenti
heilu og höldnu i Flórída í gær og
lauk þar með því verkefni að skipta
um áhöfn í geimstöðinni Alpha.
Kyrkislanga slasaði barn
8 ára stúlka fannst meðvitundar-
laus á eldhúsgólfinu heima hjá sér i
Pennsylvaníu i gær með þriggja
metra kyrkislöngu um hálsinn.
Slangan var gæludýr stúlkunnar.
Varasamt verkefni
Nató í Makedóníu
Atlantshafsbandalagið ákvað í
gærmorgun að senda 3500 manna af-
vopnunarlið til Makedóníu. í gær
komu 136 liðsmenn frönsku útlend-
ingahersveitarinnar til landsins og i
morgun var byrjað að flytja her-
menn frá Bretlandi. Alls munu Bret-
ar senda 1800 hermenn til Makedón-
íu, Frakkar 530 og Kanadamenn 200.
Nató hyggst eyða 30 dögum í að
afvopna albönsku skæruliðana í
Makedóniu. Hlutverk hersveitanna
er vel afmarkað. Nató þvertekur fyr-
ir að liðið verði lengur en 30 daga í
landinu og undirstrikar að það
muni ekki stunda friðargæslu eða
miðla málum. Deilt er um möguleg-
an árangur af fór Nató þar sem ekki
hefur náðst sátt um hversu mörg
vopn Albanar láta af hendi. Sjálfir
segjast þeir hafa 2000 vopn til að
skila inn en Makedóníustjórn segir
þau 85 þúsund.
Ríkisstjórn Makedóníu fagnaði
komu afvopnunarsveitanna og sagði
hana mikilvægan áfanga í átt til
friðar. Albönsku uppreisnarmenn-
imir fógnuðu einnig, en vildu fá
Nató í friðargæslu vegna árásar-
girni Makedóníuhers. Slavneskir
íbúar landsins tóku fálega í komu
Nató, minnugir þess að bandalagið
neyddi Makedóníu til að taka við
230 þúsund albönskum flóttamönn-
um frá Kosovo, sem siðar tóku
margir þátt i uppreisninni. íbúar
Makedóníu eru 2 milljónir en land-
ið er fjórðungur af stærð Islands.
Á leiö til Makedóníu
Breskir hermenn lögöu upp frá Oxfordskíri í morgun. Förinni var heitiö til smáríkisins Makedóníu á Balkanskaga þar
sem albanskir uppreisnarmenn hafa átt í borgarastríöi við slavneska stjórnarherinn. Nató hyggst eyöa 30 dögum í aö
afvopna albönsku uppreisnarmennina. Fylkingarnar eru hins vegar ekki á eitt sáttar um hversu mörg vopn þær eigi
aö skila inn. Albanar segja þau 2000 en stjórnarherinn segir uppreisnarmennina búa yfir 85 þúsund vopnum.
Iain Duncan Smith:
Aldrei evru
Iain Duncan Smith, keppinautur
Ken Clarkes um leiðtogasætið í
breska íhaldsflokknum, segist aldrei
taka það í mál að taka upp evruna
komist hann til valda. Duncan Smith
lét þessi orö falla í kappræðum við
keppinaut sinn sem fram fóru í
beinni sjónvarpsútsendingu í gær-
kvöldi. Hann sagði einnig að meiri-
hluti íhaldsmanna væri honum sam-
mála og því væri nauðsynlegt að nýr
leiðtogi flokkins væri á þeirri línu.
Clarke, sem er ákveðinn evrusinni,
hefur verið harðlega gagnrýndur af
íhaldssamari armi flokksins fyrir
evrumálin og nú síðast af Margréti
Thatcher sem lýsti yfir stuðningi við
Duncan Smith á mánudaginn. Hún
varaði einnig við að Clarke gæti
klofið flokkinn og að hann væri því
„hörmulegur“ valkostur. William
Hague, fyrrum leiðtogi flokksins,
hefur einnig lýst yfir stuðningi við
Duncan Smith, en John Major, fyrr-
um forsætisráðherra, er í stuðnings-
liði Ken Clarkes.
: .: ■■ r-
1. SEPTEMBER
HAUST 2001
ALLA SUNNUDAGA KL. 12:30JJG 22:00
ÖLL FIMMTUDAGSKVi
ÖLL MIÐVIKU