Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Síða 15
14
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoðarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson
Auglýslngastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Ríkið og auglýsingar
Forráðamenn Ríkisútvarpsins koma hver á fætur öðrum
fram í fjölmiðlum til að verja stöðu stofnunarinnar. Líkja
má framrás þeirra í blaðagreinum undanfama daga við
litla PR-herferð fyrirtækja sem byggja þurfa upp orðspor.
Forstöðumaður markaðssviðs ríkisstofnunarinnar reið á
vaðið á þriðjudag með blaðagrein í Morgunblaðinu. Greini-
legt er að markaðsstjórinn hefur miklar áhyggjur af því að
æ háværari kröfur um að samkeppnisstaða einkarekinna
ljósvakamiðla gagnvart ríkisvemduðu fj ölmiðlafyrirtæki
verði leiðrétt. Ein leiðin sem bent hefur verið á er að Rík-
isútvarpið dragi sig að fullu út af auglýsingamarkaði. Með
því yrði unnið upp það forskot sem ríkisfjölmiðillinn hefur
í formi „skattheimtuvalds".
Hitt er svo annað að sterkustu rökin gegn því að taka
Ríkisútvarpið út af auglýsingamarkaði snýr að fyrirtækj-
um og markaðssetningu á vöru og þjónustu. Leiða má rök
að því að markaðskostnaður fyrirtækja kunni að hækka í
kjölfarið þegar þeim er meinaður aðgangur að sterkum
auglýsingamiðli. Auk þess leiðir auglýsingabannið til þess
að framtíðarvirði ríkismiðilsins verður lægra en ella þegar
og ef stofnunin verður seld.
Vinir og vandamenn ríkisfjölmiðilsins eru hins vegar
sjálfir verstu óvinir stofnunarinnar. í leiðara DV í mars
1999 sagði meðal annars: „En í stað þess að leita leiða til
breytinga standa vinir og vandamenn Ríkisútvarpsins sam-
an og reyna að telja landsmönnum trú um að engu megi
breyta, nema þá að leggja stjórn stofnunarinnar - útvarps-
ráð - niður. Engum dettur í hug að uppdráttarsýkin sé inn-
byggð í úrelt stjórnskipulag og eignarhald. Vinir og vanda-
menn Ríkisútvarpsins mega ekki heyra á það minnst að
hugsanleg leið út úr ógöngunum sé að breyta fýrirtækinu í
hlutafélag. Það gengur landráðum næst að leggja til að
landsmönnum - sem á hátíðarstundum eru sagðir eigendur
útvarps allra landsmanna - verði seld hlutabréf i fyrirtæk-
inu.“
Útvarpsstjóri virðist þó átta sig á nauðsyn þess að breyt-
ingar verði gerðar en hann kvaddi sér hljóðs í PR-herferð
ríkisfjölmiðilsins með blaðagrein í Morgunblaðinu í gær.
Þar bendir Markús Örn Antonsson á að kröfur um þjónustu
Ríkisútvarpsins séu festar í lög og segir síðan orðrétt:
„Meðan umrædd lagaákvæði standa óbreytt mun Ríkisút-
varpið að sjálfsögðu uppfylla þær skyldur sem það hefur
við alla landsmenn. Vilji menn hafa það eitthvað öðruvísi
og kjósi þeir að þrengja kost Ríkisútvarpsins og starfssvið
þess eiga þeir að segja það undanbragðalaust.“
Eftirtektarvert er að nú hafa helstu rök ríkishyggju-
manna í fjölmiðlarekstri um öryggishlutverk stofnunarinn-
ar þagnað. Frammistaða Rikisútvarpsins i Suðurlands-
skjálftunum á liðnu ári og snjóflóðum á Vestfjörðum 1995
undirstrikaði rökleysu þeirra sem lögðu áður áherslu á ör-
yggishlutverkið. Og með því fuku síðustu haldbæru rökin
fyrir tilvist ríkisrekins fjölmiðils og skylduáskriftar lands-
manna út í veður og vind.
Og fyrst kallað er eftir því að talað sé undanbragðalaust
út um hlutina þá er það tímaskekkja að ríkið skuli standa
í rekstri fj ölmiðlafyrirtækis. Sé það almennur vilji að halda
úti íslenskri menningu á öldum ljósvakans er það hægt
með markvissari hætti en gert er innan veggja Ríkisút-
varpsins. Ekki yrði það ónýt vítamínsprauta fýrir íslenska
kvikmyndagerð og menningarstarfsemi ef söluandvirði
Ríkisútvarpsins yrði varið með beinum hætti til uppbygg-
ingar á því sviði.
Óli Björn Kárason
DV
Þingmannalög og Guðslög
Árin eru orðin nokkuð
mörg, síðan ég lét hafa það eft-
ir mér, að ekki væru það leng-
ur Guðs lög, sem hefðu vinn-
inginn, ef þau greindi á við lög
mannanna. Þau orð féllu í
sambandi við skilnað prests og
lutu því, að allir íslendingar
stæðu jafnir fyrir lögum lýð-
veldisins, og þau næðu því til
hvers og eins, hvort heldur til
varnar eða sóknar. Og ævin-
lega skyldi þeim fylgt og gæti
refsingu annars verið beitt.
Ekki mikiö vald
Minnist ég þess, að þá rak Guð-
mundur G. Þórarinsson, fyrrverandi
alþingismaður, upp nokkur undrunar-
andvörp yfir þessu hjá mér, og taldi
síst sæma biskupi að hafa slíkar skoð-
anr. Og enn man hann orð mín eins
og fram kemur í grein hans í DV 20.
ágúst sl.
Vildi ég gjarnan óska þess, að þau
væru fleiri jafn minnisstæð, svo mörg
hef ég látið þau frá mér fara, hvort
heldur í beinu sambandi við fjölmiðla-
mann eins og þau fyrrgreindu eða í
prédikun í kirkjum.
Vald kirkjunnar er ekki
mikið. Hún drottnar hvorki
yfir trú manna né hefur
hún síðasta orðið í þvi
hvað leyfist eða leyfist ekki
í íslensku samfélagi. Einu
sinni naut hún meiri valda
og þótti sumum nóg um.
Hryggir jafnvel marga
enn í dag, hvernig því
valdi var á stundum beitt
og þykir sem ekki hafi það
alla tíð túlkað vilja
himnesks föður, sem sendi
einkason sinn til að sýna, að það er
kærleikurinn, sem á að ráða í hví-
vetna. Enda biðjum við um það í Fað-
ir vorinu, að vilji Guðs megi verða,
ekki aðeins á himni, sem við væntum
að gista þegar þar að kemur, heldur
og á jörðinni, þar sem önnur lögmál
eru þó fyrirferðarmeiri. Og þrátt fyrir
hita þessa bænavers hjá trúuðum -
sem velviljuðu fólki - fer ekki hjá því,
að langt virðist í land með það, að vilji
Guðs sé í hvívetna túlkaður í sam-
skiptum manna eða í löggjöf þjóða.
Guölega valdiö ræður ekki eitt
Nei, hið títtnefnda guðlega vald
Olafur Skúlason
biskup
„Þó skal ég fúslega játa það, að ég vildi gjaman sjá eina
og eina Biblíu eða Nýja testamentið í blaðahrúgu þing-
manna á borðum þeirra, þegar þeir em að rökrœða hin
flóknustu málefni sem skipta okkur öll miklu. “
ræður ekki eitt í lýðveldinu íslandi um við minnast veikleika mannanna
eða trónar þar ætíð hæst. Harma ég og hryllir við því, þegar trúarleiðtog-
það í sjálfu sér ekki, þar sem vel meg- ar í fjarlægum löndum þykjast svo
Umhverfisráðherra gerður vanhæfur
Kærufrestur vegna úrskurðar
Skipulagsstofnunar um Kárahnjúka-
virkjun rennur út 5. september næst-
komandi. Stofnunin taldi mikið
vanta á að virkjunin kæmist gegnum
mat og staðfesti með því sjónarmið
lögboðinna umsagnaraðila, félaga-
samtaka og fjölmargra einstaklinga
sem athugasemdir gerðu við mats-
skýrslu Landsvirkjunar.
Varla var úrskurðurinn fallinn
þegar liðsoddar ríkisstjórnarinnar
og formenn beggja stjórnarflokkanna
stigu fram og lýstu úrskuröinn
ómerkan og að engu hafandi. Um-
hverfisráðherra og Alþingi hefðu síð-
asta orðið og varla þyrfti að velkjast
í vafa um niðurstöðu. Forsætisráð-
herrann hnykkti síðan á þessu sjón-
armiði í fréttaviðtali sunnudaginn
19. ágúst og bætti við að úrskurður
Skipulagsstofnunar gengi gegn lög-
um.
Umhverfisráöherra ómerktur
Svo er að sjá sem ríkisstjómin viti
ekki sitt rjúkandi ráð í
þessari stöðu, sem virðist
hafa komið ráðherrunum í
opna skjöldu. Með fleipri
sínu og yfirlýsingum eru
oddvitar ríkisstjórnarinn-
ar að gera umhverfisráð-
herra ómerkan og vanhæf-
an til að sinna lögboðnu
hlutverki sínu að úrskurða
í hugsanlegum kærumál-
um vegna Kárahnjúka-
virkjunar.
Hverjum dettur i hug að
halda að umhverfisráðu-
neytið muni við þessar aðstæður
kveða upp hlutlægan úrskurð vegna
boðaðra kærumála þar sem þess yrði
krafist af Landsvirkjun eða öðrum
fyrir hennar hönd að úrskurður
Skipulagsstofnunar verði úr gildi
felldur? Hafa ber i huga fyrri yfirlýs-
ingar umhverfisráðherra, þegar hún
á árinu 1999 lagðist gegn kröfunni
um lögformlegt mat á Fljótsdals-
virkjun og bar þvi við að hún væri
bundin af stefnu ríkisstjórnarinnar.
Landsvirkjun rannsakar upp á
nýtt
Viðbrögð Landsvirkjunar við úr-
skurði Skipulagsstofnunar eru hóf-
stilltari en hjá ráðherrunum en engu
að síður fumkennd og ómarkviss.
Rokið er til að efna í nýjar rannsókn-
ir, að sagt er til að fylla í eyður sem
Skipulagsstofnun benti á í úrskurði
sínum. Svo virðist sem Landsvirkjun
telji að nú sé rétti tíminn til að efna
í nýtt mat, aö þessu sinni til að sann-
færa umhverfisráðherra um ágæti
Kárahnjúkavirkjunar. Það virðist
gleymast að hugsanlegar kærur yrðu
að beinast að úrskurði Skipulags-
stofnunar og þeim grunni
sem hann var reistur á. Upp-
lýsingar frá Landsvirkjun,
byggðar á rannsóknum eftir
að úrskurður Skipulags-
stofnunar féll 1. ágúst síðast-
liðinn, geta í besta falli nýst
í nýrri matsskýrslu frá fyr-
irtækinu. Eftir er að sjá
hvort stjórn Landsvirkjunar
nær saman um kæruefni
innan tilskilins frests eða
hvort byggt verði á meiri-
hlutaákvörðun stjórnar fyr-
irtækisins til að þóknast rik-
isstjórninni.
Stefnir í víðtæk máiaferli
Forsætisráðherra reynir að bera
sig vel og staðhæfir að landi verði
náð eins og til stóð með NORAL-
verkefnið í byrjun næsta árs. Ekki
þarf spámenn til að sjá að afar ólík-
legt er að það gangi eftir, nema þá til
að slá striki yfir stóriðjuáformin.
Þótt ríkisstjórnin ráðgeri að knýja
fram niðurstöðu sér í hag í krafti
meirihluta á Alþingi er ólíklegt að
fjáifestar að Norsk Hydro meðtöldu
dansi eftir þeirri sekkjapípu. Margir
lögspekingar hafa þegar tjáð sig um
málavöxtu og með afar ólíkum hætti.
Því er líklegt að í vetrarbyrjun upp-
hefjist víðtæk málaferli sem vart
geta endað fyrr en á æðsta dómsstigi.
Með ótímabærri ihlutun sinni eru
forkólfar ríkisstjórnarinnar að eyði-
leggja eðlilegan framgang lögboðins
ferlis um mat á umhverfisáhrifum
og þar með að stefna stóriðju á Aust-
urlandi sem og annars staðar í enn
meiri óvissu og ófrið en ella.
Hjörleifur Guttormsson.
„Hafa ber í huga fyrri yfirlýsingar umhverfisráðherra
þegar hún á árinu 1999 lagðist gegn kröfunni um lög-
formlegt mat á Fljótsdalsvirkjun og bar því við að hún
vœri bundin af stefnu ríkisstjórnarinnar. “
skilja vilja guðs, að þeir geti túlkað
hann með þvi að þjarma að fólki og
jafnvel refsa því fyrir „glæpi" sem á
stundum eru ekki í öðru fólgnir en því
að það fylgir ekki fyrirmælum þess-
ara foringja í hvívetna.
Þó skal ég fúslega játa það, að ég
vildi gjarnan sjá eina og eina Biblíu
eða Nýja testamentið í blaðahrúgu
þingmanna á borðum þeirra, þegar
þeir eru að rökræða hin flóknustu
málefni, sem skipta okkur öll miklu.
Vera má þó, að þessi rit finnist í einka-
skrifstofum, sem þeir nú njóta og ætti
að tryggja þeim betri yfirsýn, þegar
réttrar niðurstöðu er leitað. Og heill
fylgdi því, ef vilji Guðs réði sem oftast
í afstöðu þingmanna, og hans sé leitað
í auðmýkt og hollustu, svo að þeir fái
notið, sem samferða eru á lifsgötunni.
En því held ég fast við þessi orð
min, sem kunningja mínum Guð-
mundi G. Þórarinssyni þykja svo
furðuleg, að hann man enn og vitnar
til, að ég hygg, að Guðs vilji komist
ekki alltaf að eða lög hans séu höfð til
viðmiðunar, þegar þingmál eru af-
greidd og verða þau lög sem öllum ber
að lúta - og það án undantekningar.
Ólafur Skúlason
Veruleiki Samfylkingar
„Eftir að hafa búið til
forsendur í málinu, telur
þingflokkur Samfylking-
arinnar, að ég hafi ekki
gefið viðhlítandi skýring-
ar á þvi, hvers vegna ég
brást ekki við, og krefst þingflokkur-
inn undanbragðalausra skýringa á
allri aðkomu minni. Þetta hef ég gert,
en líklega verður aldrei nóg að gert í
þessu efni af minni hálfu að mati Sam-
fylkingarinnar, því að hún hefur búið
sér til eiginn veruleika í þessu máli
eins og flestum öðrum - þessum til-
búna veruleika get ég ekki breytt með
neinum upplýsingum. Miðað viö fyrri
yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur
og Margrétar Frímannsdóttur vakti at-
hygli mína, að þess er ekki lengur
krafist að ég segi af mér. Var það i
raun aldrei neitt fréttnæmt, að þessir
þingmenn krefðust afsagnar minnar.“
Björn Bjarnason menntamálaráöherra
á heimasíöu sinni.
Vextir sem drepa
„Taprekstur og þar með minnkandi
lánstraust og fáránlega háir vextir
munu verða banabiti einhverra fyrir-
tækja á næstu mánuðum. Seðlabank-
inn virðist vera að slást við þenslu
sem hvarf eins og dögg fyrir sólu með
gengislækkun krónunnar. Verðhækk-
anir sem nú eru að koma fram eru
allt annars eðlis en verðhækkanir
þensluáranna 1999-2000. Sá sem þetta
skrifar er ekki alveg viss um það
hvort það er mótuð stefna Seðlabank-
ans að slaka ekki á klónni fyrr en
gjaldþrotahrina ríður yfir. Þar á bæ
tala menn um að vextirnir eigi að
bíta. Enginn atvinnurekstur þolir
þetta vaxtastig til lengdar. Það er orð-
ið meira en tímabært að lækka vexti
hér á landi umtalsvert."
Sveinn Hannesson í leiöara
Islensks iðnaðar
Spurt og svarað
Eru líkur á að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs
Tómas Ingi Olrich
alþingismadur
Við
suðumark
„Þarna er búið að ríkja ófrið-
arástand síðan Ísraelsríki var
stofnað, og jafnvel fyrir þann
tíma. Ástandið er verra en það
hefur lengi verið og það má lítið út af bera til
þess að þama sjóði upp úr. Það hvetur menn
hins vegar til þess að beita öllum ráðum til að
finna lausn á deilunni.
Þarna hefur soðið upp úr áður og þarna hafa
orðið víðtæk átök herja ísraelsmanna, Egypta
og Sýrlendinga svo það er vitað hvað er í húfi.
Ráðamenn munu því gera sitt ýtrasta til þess að
finna einhverja lausn á málinu og ég vona auð-
vitað að svo verði.“
Gísli S. Ámason,
bœjarstjóm Homafjardar
Fullreynt að að-
ilar nái saman
„Maður heldur auðvitað alltaf
í vonina að þarna komist á frið-
ur og ófriðaröldumar lægi þótt
fréttir séu mjög ógnvekjandi.
Fréttimar af þessum hefndaraðgerðum og eld-
flaugaárásum fá mann til þess að hugsa hvað
gerist ef allt fer á versta veg. Mér finnst að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna eigi að grípa í
taumana. Það er löngu orðið tímabært að þessi
sameiginlegi vettvangur þjóða heimsins komi
með afgerandi hætti að þessum málum fyrir
botni Miðjarðarhafs ef hann beitir sér einhvern
tíma. Það virðist fullreynt að þessir aðilar nái
saman við samningaborðið."
Svanfríður Jónasdóttir
alþingismadur
Útrýma palest-
ínsku þjóðinni
„Það er fátt sem bendir til
þess núna að þarna komist á
friður, því miður.
Ég óttast að ef alþjóðasamfé-
lagið tekur ekki öðruvísi á málinu en það hefur
gert til þessa þá muni ég ekki lifa það að sjá frið
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Bandaríkjamenn þurfa í fyrsta lagi að breyta
sinni afstöðu og menn verða að horfast í augu
við þetta mál eins og það liggur fyrir, þ.e. að
ísraelsmenn eru að útrýma palestínsku þjóð-
inni.
En þetta er svo langt ferli að nú dugir ekki
vonin ein lengur.“
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri
Hveifandi
líkur
„Þarna hefur ríkt ófriðar-
ástand undanfarna áratugi svo
það er eflaust mjög erfitt að ná
sáttum án milligöngu annarra
þjóða. Ég held reyndar að það séu hverfandi lík-
ur á því. Við íslendingar erum reyndar ekki í
neinni stöðu til að meta ástandið þarna og líkur
á friði því við fáum okkar fréttir eingöngu gegn-
um alþjóðlegar fréttastofur og þær fréttir eru
allar eins og óhugnanlegar. Það er fyrst og
fremst fólkið sem býr á svæðinu sem veit hvað
snýr upp og niður á hlutunum. Það er þvi tak-
mörkuð mynd sem við höfum af ástandinu í
þessum heimshluta.“
ísraelskar hersveitir skutu í gær tveimur eldfiaugum á lögreglustöð Palestínumanna á suðurhluta Gasastrandarinnar og jöfnuðu hana við jörðu.
Skoðun
Kjósendur vilja
ekki valdhroka
Vald spillir segir máltæk-
ið. Getur verið að vel mein-
andi alþingismenn, fulltrú-
ar fólksins, missi fótanna
og tapi jarðsambandi eftir
að völdin eru komin í hend-
ur þeirra? Ég hef, eins og
margir aðrir, orðið var við
persónuleikabreytingar hjá
fólki sem hefur komist yfir
völd. Hæglætisfólk getur
breyst í ótrúlega hrokafull-
ar og andstyggilegar per-
sónur sem níðast á undir-
sátum sinum. Nýr stjóri á
vinnustað getur breyst í
pínulítinn hitler við það eitt að fá
mannaforráð. Þetta er auðvitað ekk-
ert algilt. Ég þekki marga þingmenn
og nær alla að góðu einu. Ég er því
algjörlega ósammála þeirri vinsælu
kenningu að allir stjórnmálamenn
séu í eðli sínu glæpamenn.
Ég var í sveitasælunni þegar Árna
mál Johnsens reið yfir þjóðfélagið
með mitt blað í forystunni. DV vann
mikið blaðamennskuafrek með því
að fletta ofan af glórulausri spill-
ingu. Það hefur blaðið reyndar gert
svo oft að ekki verður tölu á komið.
Stundum eru slíkar fréttir kallaðar
æsifréttir, jafnvel sorpfréttir. En
þetta eru bara fréttir, óþægilegar að
vísu. DV er vinsælt blað, líka i sveit-
um landsins, og ég var stoltur af
mínum mönnum þegar ég las það
innan um bændur og
búalið. Umræðuefnið hvar-
vetna var Árni og hans sér-
kennilegu krókaleiðir við
húsbyggingar sínar.
Eiga þingmenn
ekki veski?
Ámamálið losaði um
tappa. Landsbyggðarfólkið
kom út úr skel og fór að
tala um þingmennina sína.
í ljós komu ýmsir vankant-
ar á þessum fulltrúum al-
múgans og þeir siunir frem-
ur hallærislegir. Ég heyrði
um þingmann vestra sem aldrei
borgar sig inn á samkomur fólksins
í plássinu, þingmann sem borgar
ekki fyrir sig á barnum, þakkar bara
fyrir „gott boð“ og býður góða nótt.
Þingmann sem borgar ekki verka-
mönnum reikninga fyrir vinnu i
hans þágu. Ég heyrði um ráðherra
sem kemur á veitingastað við þjóð-
veginn með lið með sér og yfirtekur
staðinn gjörsamlega með frekju og
yfirgangi þannig að gestir víða af
landinu undrast.
Ég hef heyrt um íleiri þing-
menn sem taka ekki upp veskið;
hreinlega borga hvorki eitt né
neitt heima í héraði. Þetta er hlá-
legt. Á mölinni verða þessir kall-
ar að borga, þar þekkir varla
nokkur sála þá. Ég heyrði líka
um þingmennina þegar þeir fara
„heim“ í hérað til að ræða við um-
bjóðendur sína. Þá tala þeir sumir
gróílega niður til sveitafólks og
verkafólks í þorpunum, sömu menn
sem breytast í skriðdýr frammi fyrir
jafnokum sínum og sér æðri verum.
Valdhroki af þessu tagi er ekki í
nokkrum takti við okkar tíma. Þing-
menn þurfa að vanda sig. Kannski
fara kjósendur að svara hrokanum á
sinn hátt.
Vitað er að þingmenn njóta tak-
markaðs álits ahnennings enda þótt
margir þeirra séu að vinna góð störf
í þágu alþjóðar. Þingmenn hafa gerst
berir að því að blaðra í þingræðum
illilega drukknir sem hefur hentað
ágætlega í „Ekki-fréttum“ Hauks
Haukssonar en dregur að sama skapi
úr áliti fólks á Alþingi og alþingis-
mönnum. Fyrir næstu kosningar
sleikja þessir þingmenn innan úr fúl-
um kjósendum. Þeir verða endur-
kosnir fyrir héraðsfræga hnyttni og
orðheppni, sterkan róm og dólgslega
framkomu. Þeir koma suður daginn
eftir kjörið. Það er leiðin flestra.
Jón Birgir
Pétursson
skrífar:
vi *. f4
SWwUwe. urjj u
► >>'.***•* t . >. -v!
imMHv ú" -mri
.»*?««» r-f-'.»>
">x>C'W» '
ua7Kt«/Jv. Kastt
jjt; v,-
„Sölumaður hjá BYKO var sá sem hleypti af fyrsta skotinu. Hann þoldi ekki lengur
skefjalausa misnotkun á almannafé. Vonandi sýna margir slikt þor þegar þeir verða
vitni að misnotkun og misbeitingu valds. DV er stóra kanónan þessa fólks. “