Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001 17 ÍtftpLPORTÉ* Sport Haukar-Koiporter 33-27 3-0, 4-2, 4-4, 9-4, 9-6, 10-7, 13-9, 16-10, (18-11), 19-11, 19-13, 22-15, 23-16, 26-20, 27-21, 29-23, 31-24, 32-25, 33-27. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Jón Karl Björnsson 9/6 (10/7), Aron Kristjánsson 6 (11), Halldór Ingólfsson 5/2 (9/2), Rúnar Sigtryggsson 5 (14) , Einar Öm Jónsson 3 (9), Aliaksandr Shamkuts 2 (3), Tjörvi Ólafsson 2 (3), Þor- kell Magnússon 1 (3), Ásgeir Öm Hallgríms- son (1), Sigurður Þórðarson (1). Mörk úr hraóaupphlaupuin: 7 (Jón Karl 3, Einar öm 2, Aron, Tjörvi) Vitanýting: Skorað úr 8 af 9. Fiskuó viti: Einar Öm 3, Tjörvi 2, Rúnar 2, Aron, Shamkuts Varin skot: Bjami Frostason 14 (29/3, hélt 4, 48%), Magnús Sigmundsson 9 (20/1, hélt 4, 45%). Brottvisanir: 6 mín. Kolporter: Mörk/viti (skot/viti): Karol Bielecki 8 (15) , Filip Kliszcyk 8/4 (12/4), Grzegorz Gowin 5 (11), Wojciech Zydron 3 (5), Lukasz Krupa 2 (2), Radoslaw Wasiak 1 (1), Aleksander Liotwski (1), Pawel Tetelewski (2), Alexei Blokhine (2) Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Kmpa 2, Zydron) Vítanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (skot/viti á sig)-. Jaroslaw Tkaczyk 2 (13/4, hélt 2, 15%), Rafal Bernacki 19/1 (41/5, hélt 6, 46%). Brottvisanir: 18 minútur_______________ Dómarar (1-10): Bord og Buy frá Frakklandi (7). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 500. Maður leiksins: Aron Kristjánsson, Haukum Aliaksandr Shamkuts er tekinn föst- um tökum af varnarmönnum pólska liðsins Kolporter í siðari leik liðsins í 2. umferð EHF-keppninnar að Ás- völlum í Hafnarfirði á laugardag. Haukar báru sigur úr býtum, 33-27, og tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í keppninni. Á neðri myndinni fagna þeir Aron Kristjánsson, Einar Örn Jónsson, Siguröur Pórðarson, Þorkell Magn- ússon, Halldór Ingólfsson og Tjörvi Ólafsson sigrinum með áhorfend- um sínum. - ljóst að Haukar færu áfram í 3. umferð þangað sem þeir komust með 33-27 sigri á Kolporter DV-myndir Pjetur Það var nokkuð ljóst að Haukar væru á leiðinni í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða í upphafi seinni leiks þeirra við pólska liðið Kolporter á Ásvöllum á laugardaginn. Eftir eina mínútu og 40 sekúndur voru Haukar komnir í 3-0 og búnir að stela boltanum af Pólverjunum i fyrstu tveimur sóknum þeirra. í lokin munaði síðan 6 mörkum, 33-27, og Haukar fóru örugglega áfram eftir að hafa gert 29-29 jafntefli í fyrri leiknum. Haukar léku vel i þessum leik og þrátt fyrir að Pólverjarnir hefðu komið sér fljótlega aftur inn í leikinn eftir slæma byrjun og jafnað 4-4, höfðu þeir leikinn í öruggum höndum. Haukar skor- uðu þá næstu fimm mörk og mun- urinn fór aldrei niður fyrir þrjú mörk það sem eftir var leiksins. Jón Karl Björnsson átti skemmtilega innkomu í fyrri hálf- leik og skoraði fimm mörk úr fimm skotum á siðustu tíu mínút- um hálfleiksins og Haukar höfðu sjö marka forustu þegar liðin gengu til leikhlés. í seinni hálfleik hafði augljós- lega meira kæruleysi gripið um sig í Haukaliðinu enda úrslitin nokkuð ljós og þeir misnotuðu 21 af 36 skotum eftir hlé eftir að hafa nýtt 64% skota sinna fyrir hlé (18 af 28). Aron Kristjánsson átti mjög góð- an leik fyrir Haukana en eins eru framlög þeirra Halldórs Ingólfs- sonar og Rúnars Sigtryggssonar sjaldan metin til fulls. Rúnar átti þannig átta stoðsendingar og Hall- dór sjö auk þess sem fjórar send- ingar Rúnars gáfu víti. Báðir tóku þeir líka af skarið í lokin þegar Haukar þurftu mörk á mikil- vægum tímapunktum. Markverðir Haukaliðsins, Bjarni Frostason og Magnús Sig- mundsson, stóðu vaktina einnig ágætlega en réðu þó lítið við mörg þrumuskot Pólverjanna sem alls gerðu 15 mörk með langskotum flest þar sem að í glumdi í húsinu þegar þrumurnar þöndu net- möskvana. Þegar frá eru tekin 4 mörk úr vitum og 3 eftir hraðaupphlaup skoruðu Pólverjar aðeins fimm mörk úr horni með gegnumbroti eða af línu. Liðið tapaði líka alls 16 boltum í leiknum og þrátt fyrir marksæknar og hávaxnar skyttur komust þeir lítið áleiðis í gegnum Haukavörnina í leiknum. Nú bíða Haukarnir spenntir hverjir verða næstu mótherjar þeirra í keppninni en það kemur i ljós á næstu dögum. -ÓÓJ Hvaö sögðu Haukamenn eftir leik: Gekk allt upp Krzystof Latos: Vona að Haukar kom- ist langt „Við komum hingað til að spila til sigurs en því miður gerðum við ekkert að ráði fyrr en í siðari hálf- leik. Við töpuðum leiknum klár- lega í fyrri hálfleik. Ég vil samt fá að óska Haukum alls hins besta í keppninnni, þetta er gott lið og ég vona að þeir kom- ist langt í keppninni." - Kom lið Hauka ykkur á óvart í fyrri leiknum í Póllandi? „Við höfðum myndbandsupp- töku í okkar fórum frá leik liðsins gegn hollenska liðinu í 1. umferð en sá leikur var ekki dæmigerður fyrir liðið og sýndu þeir okkur það í Póllandi. Þeir komu okkur á óvart en við gátum einnig sjálfum okkur um kennt hvernig fór. Við erum því miður úr leik og er ekkert annað að gera en læra af þessari reynslu okkar,“ sagði Krzystof Latos, aðstoðarþjálfari Kolporter. -esá „Þetta var frábær frammistaða þar sem við lögðum grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Einbeitingin var rosa- lega fln þótt við misstum hana aðeins í seinni hálfleik en við vorum með það gott forskot að við áttum engan séns. Það gekk hreinlega allt upp hjá okkur í dag,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka. Pólverjamir voru mjög einbeittir í dag og ætluðu sér greinilega sigur. Þeir beittu einhverjum sálfræðibrögðum, eldgömlum eins og aprílgabb og síðan tóku þeir af okkur upphitunarvöllinn. Við létum þá hins vegar ekki setja okk- ur út af laginu og afgreiddum þá strax í fyrri hálfleik. Nú er bara að bíða og sjá við hverja við éigum að kljást í næstu umferð, það eru sterk lið í pottinum eins og Kiel sem gætu orðið okkur ofviða. En við verðum að sjá til, það veröur væntan- lega dregið á þriðjudaginn (morgun). Þrátt fyrir að við höfum orðið fyrir vonbrigðum með fjölda áhorfenda héma í dag þá myndaðist þó góð stemning á meðal þeirra áhorfenda sem vom hér í dag. Okkar kjami bregst okkur aldrei." Halldór Ingólfsson, fyrirliði: „Fyrri hálfleikur var mjög góður og það gerði útslagið að ég held. Við náð- um alveg að halda þeim niðri og spiluð- um alveg hreint glimrandi sóknarleik. Þeir fengu að vísu að leysa leikinn aðeins upp í seinni hálfleik og spiluðu stuttar sóknir sem við hefðum ekki átt að leyfa þeim að gera. En þetta lið er á góðum degi mjög sterkt og því góður sigur. Karakterinn í liðinu er frábær og er liösheildin mjög góð bæði innan vallar sem utan. Það er að mínu mati það mikilvægasta hjá okkur og gerir þetta lið að því sem það er.“ - Hvemig líst þér svo á framhaldið af keppninni? „Við ætlum okkur að mæta ein- hverju stóm liði einhvers staðar á leið- inni, skiptir ekki máli hvort það verö- ur í næstu umferð eða seinna. Það er helst að fara ekki langt inni í Austur- Evrópu. Hvað markmið varðar er ljóst að við ætlum okkur langt, jafnvel lengra en í fyrra." -esá Haukar-Fram 32-15 0-1, 3-1, 6-3,10-4,12-6,13-7,14-9, (16-9), 20-9, 20-10, 27-10, 29-11, 29-15, 32-15. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Harpa Melsted 7/2 (12/2), Nína K. Björnsdóttir 5/1 (13/2), Hanna G. Stefánsdóttir 4 (4), Thelma B. Ámadóttir 4 (5), Sonja Jónsdóttir 3 (4), Brynja Steinsen 3 (5), Heiða Erlingsdóttir 3 (5), Inga Fríða Tryggvadóttir 2 (4), Ema Halldórsdóttir 1 (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 12 (Hanna 2, Sonja 3, Heiða 3, Nína, Thelma, Harpa, Ema). Vítanýting: Skorað úr 3 af 4 Fiskuó viti: Harpa 2, Brynja, Nína. Varin skot: Jenný Ásmundsdóttir 26/2 (37/6, hélt 22, 70,2%, 2 víti í stöng), Bryndís Jóns- dóttir 4 (8/1, hélt 3,50%) Brottvisanir: 4 mín. Fram: Mörk/víti (skot/viti): Guðrún Þóra Hálf- dánsdóttir 5/2 (7/3), Ingibjörg Ýr Jóhanns- dóttir 4/2 (16/2), Þórey Hannesdóttir 2 (3), Kristín B. Gústafsdóttir 2/1 (7/3), Ingibjörg Magnúsdóttir 1 (2), Katrín S. Tómasdóttir 1 (11/1), Diana Guðjónsdóttir (2), Inga M. Ótt- arsdóttir (1), Hildur Leifsdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Ingibjörg Ýr, Þórey, Kristin). Vitanýting: Skorað úr 5 af 9. Fiskuó víti: Ingibjörg Ýr 2, Ingibjörg 2, Kristín 2, Katrin, Þórey, Inga. Varin skot: Erna M. Eiríksdóttir 6/1 (22/2, hélt 4,27,2%), Guðrún Bjartmars 9 (25/2, hélt 4,36%). Brottvisanir: 2 mín. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (7). Gœði leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 80. Maður leiksins: Jenný Ásmundsdóttir, Haukum Auðvelt hjá Haukum í 1. deild kvenna í handbolta mættust lið Hauka og Fram. Liðun- um hafði verið spáð efsta og neðsta sætið í deildinni og sást greinilega getumunurinn á þeim að Ásvöllum á laugardaginn. Niðurstaðan var mjög auðveldur sigur hjá Hauka- stelpum, 32-15. Eftir aö hafa komist þó marki yf- ir svöruðu Haukar strax með 3 mörkum og Framarar sáu aldrei til sólar. Sóknir Hauka voru snöggar og lauk oftast með marki enda mót- staðan í vöm Framara ekki mikil. Sömuleiðis var við ramman reip að draga í sóknarleik gestanna og gekk illa að eiga við ágætan vam- arleik Hauka. í þau skipti sem Frömurum tókst að koma skoti að marki sá Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Hauka við þeim - nán- ar tiltekið í 70,2% tilvika. Hlutfalls- markvarsla sem sést nánast aldrei í handbolta. Framstúlkum til varnar er Haukaliðið gífurlega sterkt og í öðrum gæðaflokki. Úrslitin áttu því ekki að koma á óvart. -esá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.