Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001 19 Sport Thomas Repka: Króatinn Thomas Repka byrj- ar ferilinn ekki gæfulega hjá West Ham. Síöan hann kom frá Fiorentina hefur hann tvisvar fengiö að líta rauða spjaldið í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið fyrir félagið. Þá er heitt undir Glemm Roeder, stjóra West Ham, en lið- ið undir hans stjórn hefur byrjað afleitlega og frammistaðan var kórónuð með 7-1 tapi fyrir nýlið- um Blackbum um helgina, sama leik og ofangreindur Repka fékk reisupassann öðru sinni. -esá Eiði Smára Guðjohnsen er hér fagnað af samherjum sínum í Chelsea, þeim Jimmy Floyd Hasselbaink (til vinstri) og Emmanuell Petit. Reuters Enska knattspyrnan: - Eiðs Smára var lykillinn að sigri Chelsea um helgina Um leið og Arsenal og Manchester United þokuðust nær Leeds á toppnum skyggði ástand Gerrard Houllier, stjóra Liverpool, á allt annað í enska boltanum um helgina. Það skiptust þó á skin og skúrir hjá íslendingunum um helgina. Guðni Bergsson og félagar í Bolton töpuðu stórt fyrir Newcastle - og virðist sem sú bóla sé sprungin, og Ipswich með Hermann Hreið- arsson innanborðs gerði markalaust jafntefli við Ev- erton og gengi liðsins það sem af er leiktíðinni ekki gott. Það birti þó aðeins til hjá Arnari Gunnlaugssyni sem fékk ioksins að spila eitthvað að ráði eftir að hafa komið inn sem varamaður á 64. mín- útu hjá Leicester sem beið lægri hlut fyrir Chelsea, 0-2. Þar var hins vegar Eiður Smári Guðjohnsen í essinu sínu. Hann var án efa maður leiksins og ásamt því að skora annað marka leiksins fiskaði hann. vítið sem gaf hitt. Jimmy Floyd Hassel- baink skoraði úr því og þar með 8. markið sitt í deildinni í vetur. En þrátt fyrir að mark Eiðs Smára hafi verið hans fyrsta í ensku úrvalsdeildinni hefur hann svo sannarlega látið til sín taka í haust. Við saman- tekt á tölfræði hans með Chelsea á yfirstandandi tíma- bili kemur margt athyglisvert í ljós. Á þeirri 181 mínútu í 4 leikjum í deildinni (um 45 mínútur í leik) hefur hann skorað 1 mark, lagt 1 upp og fiskað 1 vítaspymu. í þeim 7 leikjum sem hann hefur leikið á tímabilinu hef- ur hann auk þessa skorað 4 mörk til viðbótar, þar af 3 í Evrópukeppninni. Jimmy Floyd Hasselbaink hefur skorað 8 mörk á tíma- bilinu, þar af 3 úr vítaspyrn- um. Það eru einu mörkin sem hann hefur átt beinan þátt í. Samanlagt hafa hann og Eiö- ur gert 13 mörk Chelsea á tímabilinu, af 18. Hin mörkin 6 deilast á 6 leikmenn. Markatala Man. Utd. Manchester United tefldi fram hálfgerðu varaliði gegn Newcastle á laugardaginn og vann auðveldan sigur, 1-3. Markatala liðsins er þó at- hyglisverð fyrir margra hluta sakir. Manchester United er með 11 mörk í plús núna en var með 15 fleiri mörk skoruð en fengin á sig í fyrra. Liðið hefur nú fengið á sig 11 mörk á útiveHi og aðeins West Ham hefur fengið á sig fleiri (16 - þar af 7 um helgina, gegn Blackburn). Leicester hefur einnig fengið 11 mörk á sig á útivelli. Til samanburðar má nefna að samanlagt hafa Leeds, Arsenal, Aston Villa og Chel- sea fengið samanlagt á sig 10 mörk á útivelli það sem af er tímabilinu. Jussi Jaaskalainen, mark- vörður Bolton, var rekinn af velli gegn Newcastle um helgina eftir að hafa handleikið knöttinn ut- an teigs. Bo Hansen þurfti að fara í mark- ið því Sam Allardyce, stjóri Bolton, var búinn að nota allar 3 skiptingar liðsins. Fyrsta verk Hansen var að taka bolt- ann úr netinu eftir mark Laurent Roberts. Charlton og Middles- brough geröu jafntefli í leið- inlegum leik þar sem helst bar á Alen Boksex sem fór illa með tvö góð færi Middles- brough í leiknum. í gær rústaði Blackburn West Ham eins og áður segir, 7-1 og Aston Villa vann góð- an sigur á Fulham, 2-0. -esá Houllier í uppskurö Ljóst er aö Gerrard Houllier, stjóri Liverpool, verður frá störf- um um nokkurt skeið eftir hjartaaðgerð sem hann gekkst undir á sunnudag. Hann kvartaði undan verkjum í brjósti á meðan í hálf- leik leiks Liverpool og Leeds um helgina. Á meðan síðari hálf- leikur stóð var hann fluttur á konunglega sjúkrahúsiö í Liverpool og eftir skoðun þar á hjartadeild Broadgreen-sjúkrahússins. Ástandi hans er lýst sem stöðugu eftir langa og stranga aðgerð. Leikmenn liösins fengu ekkert að vita af ástandi Houllier fyrr en eftir leikinn. Staðan í hálfleik var 0-1 fyrir gestina, eftir mark Harry Kewell, en áður en yfír lauk hafði Danny Murphy jafnað fyrir Liverpool. Margir frammámenn í ensku knattspyrnunni óskuðu Houllier alls hins besta, þ.á m. landi hans og kollegi hjá Arsenal, Arsene Wenger. -esá Liverpoolmaöurinn Danny Murphy miili Leeds- mannanna Lee Bowyer og Robbie Keane. Bland i poka Heióar Helguson skoraði þriðja mark Watford þegar liðið vann Sheffield Wed- nesday í dag, 3-1, í ensku 1. deildinni. Heið- ar kom inn á sem varamaður á 60. mínútu. Stoke City vann i dag fjórða leik sinn í röð þegar liðið lagði Notts County, 1-0, í ensku 2. deildinni en þetta er í fyrsta skipti sem Stoke nær að vinna County á Britannia-vellinum. Peter Hoekstra skoraði eina mark Stoke úr vítaspyrnu. Bjarni Guöjónsson og Brynjar Björn Gunnarsson léku allan ieikinn fyrir liðið en Birkir Kristinsson sat á varamannabekknum. Stefán Þóró- arson var fjarverandi vegna bakmeiðsla. Brentford sigraði i dag Peterborough, 2-1, í íslendingaslag deildarinnar. Ólafur Gottskálksson og ívar Ingimarsson spil- uðu allan leikinn fyrir Brentford og fengu góða dóma en Helgi Valur Danielsson fór útaf í hálfleik i liði Peterborough. Stoke City er í 5. sæti ensku 2. deildarinn- ar en Brentford í því efsta. Skoska iiðið Celtic heldur uppteknum hætti í skosku úrvalsdeildinni og vann í dag Motherwell, 1-2, á útivelli og var það enginn annar en Henrik Larsson sem skoraði sigurmarkið undir lok leiksins. Erkifjendurnir í Rangers unnu einnig ágætan sigur, 3-1, á Kilmarnock. Litla lið- ið Livingston er í þriðja sæti deildarinnar en náði aðeins 2-2 jafntefli gegn Aberdeen á heimavelli. Önnur úrslit og stöðu í deild- inni má finna hér til hliðar. -ÓK DV i : ENGIAND Úrvalsdeild Bolton-Newcastle.............0-4 0-1 Solano (41.), 0-2 Robert (62.), 0-3 Shearer (72.), 0-4 Beliamy (84.). Chelsea-Leicester............2-0 1-0 Hasselbaink (20., víti), Eiður Smári (45.). Liverpool-Leeds..............1-1 0-1 Kewell (27.), 1-1 Murphy (69.). Charlton-Middlesbrough .... 0-0 Southampton-Arsenal.........0-2 0-1 Pires (5.), Henry (74.). Ipswich-Everton .............0-0 Sunderland-Man. Utd..........1-3 0-1 Varga (35., sjálfsm.), 0-2 Giggs (59.), 0-3 Cole (66.), 1-3 Phfllips 83 Aston Villa-Fulham...........2-0 1-0 Vassell (35.), 2-0 Taylor (60.) Blackbum-West Ham ...........7-1 1-0 Flitcroft (18.), 2-0 Dunn (26.), 3-0 Johnson (28.), 3-1 Carrick (39.), 4-1 McCann (63., sjálfsm.), 5-1 Tugay (80.), 6-1 Jansen (82.), 7-1 Hignett (90.). Staðan úrvalsdeild Leeds 8 5 3 0 12-3 18 Arsenal 8 5 2 1 18-5 17 Man. Utd. 8 5 2 1 25-14 17 Aston Villa 7 4 3 0 11-3 15 Newcastle 8 4 2 2 15-11 14 Chelsea 7 3 4 0 12-7 13 Liverpool 7 4 1 2 11-8 13 Blackburn 9 3 3 3 15-11 12 Bolton 9 3 3 3 10-10 12 Sunderland 9 3 3 3 9-10 12 Everton 8 3 2 3 12-10 11 Charlton 7 2 3 2 7-7 9 Tottenham 8 2 2 4 11-13 8 Middlesbr. 9 2 2 5 8-17 8 Fulham 8 1 4 3 7-10 7 Ipswich 8 1 3 4 6-11 6 Southampt. 7 2 0 5 5-12 6 Derby 7 1 2 4 5-12 5 West Ham 7 1 2 4 5-16 5 Leicester 9 1 2 6 5-19 5 1. deild: Rotherham-Portsmouth..........2-1 Barnsley-Birmingham...........1-3 Bradford-Wolves ..............0-3 Crewe-Preston.................2-1 Crystal Pal.-Wimbledon........4-0 Gillingham-Norwich ...........0-2 Man. City-Stockport ..........2-2 Nottingh. F. -Burnley ........1-0 Sheff. Utd.-Grimsby...........3-1 Watford-Sheff. Wed............3-1 Walsall-Coventry..............0-1 Staðan í 1. deild Wolves 11 8 3 0 23-9 27 Burnley 12 7 1 4 27-19 22 Norwich 12 7 1 4 15-15 22 Crystal P. 10 7 0 3 29-16 21 Coventry 11 6 2 3 14-9 20 Man. City 11 6 1 4 29-22 19 WBA 11 6 1 4 14-9 19 16. Watford 11 4 2 5 17-18 14 2. deild: Cardiff-Wigan ................2-2 Blackpooi-Colchester..........2-1 Brentford-Peterborough........2-1 Cambridge-Bury ...............3-1 Chesterfield-Port Vale........1-1 Huddersfield-Brighton.........1-2 Northampton-Tranmere..........4-1 Oldham-BristolCity............0-1 Reading-Swindon...............1-3 Stoke-Notts County............1-0 Wrexham-QPR...................1-0 Wycombe-Bournemouth ..........1-1 Zi< SKOTtANP Dundee Utd-Hibemian...........3-1 Dunfermline-Dundee............1-0 Hearts-St. Johnstone..........3-0 Livingston-Aberdeen...........2-2 Motherwell-Celtic ............1-2 Rangers-Kilmarnock............3-1 Staða efstu liða: Celtic 10 9 1 0 23-3 28 Rangers 10 6 3 1 25-9 21 Livingston 10 4 5 1 11-7 17 Hibernian 10 4 2 4 21-16 14 Aberdeen 10 4 2 4 15-15 14 Kilmarnock 10 4 2 4 12-12 14 Dundee Utd 10 4 2 4 13-18 14 Hearts 10 4 1 5 12-12 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.