Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 16
30 MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001 Sport i>v Stefán Guðjónsson: Framúh skarandi íþrótt Skvassið er aö veröa sífellt vinsælla meðal landans og þessir tveir menn böröust af krafti þegar DV-Sport var í heimsókn í Veggsporti. DV-myndir PÖK Hafsteinn Daníelsson og Hilmar Gunnarsson reka Veggsport: - mikill vöxtur er í skvassíþróttinni Það má segja að Hafsteinn Daníels- son og Hilmar Gunnarsson séu upp- hafsmenn þess að skvass kom til landsins þrátt fyrir að menn hafi að- eins byrjað á að slá bolta í vegg í Hafnarfirði í byrjun níunda áratugar- ins. Þeir störfuöu báðir sem íþrótta- kennarar í Iðnskólanum en ákváðu sem aukabúgrein að innleiða skvass- ið, sem þá hét veggtennis, til landsins. Byrjað var á grein sem heitir á ensku „rackett ball“ og er leikin í Bandaríkj- unum en þar eru spaðarnir styttri, boltinn er stærri og skoppar meira auk þess sem áherslurnar í leikregl- unum eru nokkuð mismunandi. Opn- aðir voru fimm salir í gamla Héðins- húsinu í mars 1987 og naut þetta strax Hafsteinn Daníelsson og Hilmar Gunnarsson. nokkurra vinsælda. Síðan fóru menn að lesa sér til í breskum bókum en þar var allt miðað við skvassið og þar með sneru menn sér alfarið að því. „Þetta varð strax mjög vinsælt og það varð strax allt fullt hjá okkur. Þama var fólk á öllum aldri, frá börnum upp í gamalmenni," segir Hafsteinn. Mikill vöxtur Veggsport flutti upp á Höfða fyrir nokkrum árum og nú er skvass mest spilað þar. Það er þó hægt að fara í skvass á einum öðrum stað í borginni auk þess sem salir eru á ísafirði, Ak- ureyri og Vestmannaeyjum. „Vöxtur- inn í þessari iþrótt hefur verið mjög góður hjá okkur og það eina sem í raun stendur okkur fyrir þrifum er að okkur vantar fleiri sali. Vandinn er hins vegar að það er dýrt aö búa til svona sali, sérstaklega þar sem eru einungis tveir með um 65 fermetra pláss. Þetta stendur vonandi til bóta,“ segir Hafsteinn. Hilmar segir hópinn sem sæki í íþróttina mjög blandaðan. „Hérna era krakkar á skólaaldri, skrifstofumenn og ellilífeyrisþegar," segir hann. Haf- steinn bætir því svo við að stærsti ald- urshópurinn sem stundi þetta sé 30-40 ára. „Ég hef hins vegar trú á þvi að fólki á aldrinum 40-50 ára eigi eftir að fjölga." Vantar sali úti á landi Hilmar bætir því við að það vanti fleiri sali úti á landi. „Það væri mjög gaman ef einhverj- ir fram- takssam- ir menn úti á landi tækju sig til og létu gera nokkra sali. Við viljum að út- breiðsla íþróttar- innar sé sem mest og því hefðum við ekkert á móti því að einhverjir tækju sig til og settu upp sali.“ Báðir eru þeir sammála um að skvassið sé góð alhliða þjálfun. „Þetta þjálfar styrk sem þarf til að slá bolt- ann, snerpu þar sem maður þarf að vera snöggur á réttan stað og þol þvi hlaupin eru mikil. Þetta þjálfar upp nánast allan líkamann og þarna eru vöðvar notaðir sem maður vissi varla að væru til. Með því að púla svona á þennan hátt í 45 mínútur losnar mað- ur við allt stress og kemur hress út aftur. Það er þetta sem gerir þessa Stefán Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, hefur stundað skvass um 10 ára skeið. Hann var þá leita sér að íþrótt til að taka þátt í en hafði áður stundað knattspyrnu þegar hann var yngri. Hann hafði kynnst þessi íþrótt þegar hann bjó í Bretlandi og þegar hann frétti af stofnun Veggsports ákvað hann að láta slag standa. „Ég byrjaði vestur í bæ þegar Veggsport var í Héð- inshúsinu og það passaði ágæt- lega þar sem ég er Vesturbæing- ur. Þegar þeir fluttu hingað upp eftir lét maður sig þó hafa það að keyra hingað," segir hann. Stefán segist mæla með þess- ari íþrótt við hvern sem er. „Þó að ég hafi stundað þetta svona lengi finnst mér ég enn eiga langt í land. Þetta er góð alhliða íþrótt sem reynir bæði á líkama og andlegt ástand sem er mjög spennandi. Það er líka mikið erfiði þegar maður er að glíma við erfiðan andstæðing en það er að sama skapi meira krefjandi að finna sér alltaf nýjan and- stæðing því maður er oft fljótur að læra á þá.“ Stefán segir þessa iþrótt henta sér vel sem skrifstofumanni. „Ég er dæmigerð skrifstofublók og mér hefur fundist þessi iþrótt framúrskarandi fyrir mig. Þetta er góð heilsurækt auk þess sem keppnin og átökin í þessu er góð leið til að losna við stressið. Þannig að það er margt að græða á þessu. -HI Stefán Guöjónsson, framkvæmdastjóri stórkaupmanna, er hér á fullu í skvassinu. Félags íslenskra iþrótt heillandi og við erum mjög ánægðir með að hafa byrjað á henni en ekki einhverri annarri." Hafsteinn bætir því við að skvassið geti verið gott vetrarsport fyrir golfara. „Sveiflan með spaðanum er nefnilega ekki ósvipuð golfinu því þama sveiflar maður alveg aftur og þegar maður slær þá klárar maður sveifluna. Þetta er mjög svipað og golfleikarar gera.“ Það er greinilegt að báðir eru bjartsýnir á framtíð greinarinnar og nú er að sjá hvort vöxturinn heldur áfram eins og hann hefur gert. -HI Verð mlBast við settið þ.e. einn sendi og einn móttakara. Nú getur þú sent sjónvarpsmerkið þráðlaust I gegnum veggi um allt hús. Þú getur horft á hvaða sjónvarpsrás sem er, myndbands- tækið eða OVD spilarann.Engu máli skiptir þó að verið sé að horfa á aðra rás I stofunni. IIJDjjJSDj'J ít: pú getur llka stýrt tækjum I stofunni úr t.d. svefnherberginu þvl móttakarinn sendir merkið úr fjarstýringunni til baka! BT Skeifunni • BT Hafnarfirði • BT Kringlunni • BT Grafarvogi • BT Reykjanesbæ • BT Akureyri • BT Egilsstödum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.