Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002
Fréttir IOV
Unnið að skráningu allra vega og slóða á hálendinu:
Grunnur lagður að
harðari refsingum
- fyrir akstur utan vega - sýknun í eina málinu sem hefur farið fyrir dóm
Skelfilegt
Umhverfisráðherra kveðst harma hvernig iandinu við Krókamýrar hefur verið
spillt með akstri utan vega.
Landmælingaríslands og Vegagerðin
vinna nú hörðum höndum að því að
skrá alla vegi, slóða, heimreiðir að
sumarbústöðum og slóða uppi á há-
lendinu. Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfísráðherra er gert ráð fyrir að
þeirri vinnu ljúki í sumar.
Að skráningarvinnunni lokinni er
gert ráð fyrir að Náttúruvemd ríkisins
og sveitarfélögin eigi, ásamt Vegagerð-
inni, samvinnu um að ákveða hvaða
vegir og slóðar eigi að vera merktir og
hvenær þeir eigi að vera opnir og
hvenær lokaðir. Það verður síðan aug-
lýst rækilega.
Jeppaaksturinn við Krókamýrar,
sem olli gríðarlegum landskemmdum,
vekur spumingar um viðurlög við ut-
anvegaakstri. Afleggjarinn inn á Vig-
dísarvelli var greinilega lokaður með
skilti frá Vegagerðinni þegar jeppa-
mennimir fóra inn á hann. Að sögn
lögreglunnar í Grindavík kemur til
greina að setja steina á veginn til að
hindra alla umferð meðan bannið
stendur. Málið er nú til rannsóknar hjá
lögreglunni i Keflavík. Að henni lok-
inni fer það til sýslumannsembættisins
þar sem tekin verður ákvörðun um
hvort ákært verður eða ekki.
„Það er skelfilegt að sjá myndir af
þessu, hvemig menn fara með landið,"
sagði Siv. „Þorri fólks gengur með virð-
ingu um það en örlítiU minnihluti ger-
ir það ekki og það ber að harma. Með
skráningunni er lagður grunnur að þvi
að taka harðar á náttúruspjöllum af
þessu tagi.“
Ámi Bragason, forstjóri Náttúm-
vemdar ríkisins, sagði við DV að við-
urlög við náttúruspjöllum hefðu verið
„ansi lítil“ tií þessa. Aldrei hefði fallið
dómur þar sem manni hafi verið gert
að greiða sekt né sæta öðrum viðurlög-
um. Eina dómsmálið sem upp hefði
komið hefði verið dæmt í Héraðsdómi
Suðurlands sl. haust. Þar hefði verið
um að ræða kæra Náttúruvemdar rik-
isins á hendur starfsmanni ferðaskrif-
stofu sem ekið hefði í Hrafntinnusker.
Maðurinn hefði verið sýknaður. Mál-
inu hefði ekki verið áfrýjað. -JSS
Undirbúningur fyrir NATO-fundinn í fullum gangi:
Þúsund manns sækja fundinn
- þar af um 200 erlendir fjölmiðlamenn
Alls munu um þúsund manns
koma hingað til lands í tengslum
við ráðherrafund Atlantshafsbanda-
lagsins í næstu viku að sögn Bene-
dikts Ásgeirssonar skrifstofustjóra í
utanríkisráðuneytinu sem hefur
haft yfirumsjón með undirbúnings-
vinnu fundarins. Af þeim er 750
beinir þátttakendur á fundinum en
einnig eru væntanlegir um 200
blaða- og fréttamenn ásamt tækni-
og aðstoðarmönnum sem verða
væntanlega um 50 talsins. Þetta eru
um 50 fleiri blaðamenn en gert var
ráð fyrir í upphafi.
Mikil öryggisgæsla verður í
kringum fundinn, ekki bara á fund-
arstað heldur einnig á Keflavíkur-
flugvelli. Á miðnætti í fyrrinótt
hófst landamæraeftirlit vegna fund-
arins þannig að nú þurfa allir far-
þegar til landsins að visa vegabréf-
um og allir erlendir farþegar að
fylla út komuspjöld likt og farþegar
frá Bandaríkjunum gera nú. Þá
Hagatorg
Framkvæmdir eru hafnar vegna ráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins sem
hefst í næstu viku.
eykst eftirlit töluvert með öllum far-
angri. Þetta ástand mun var þar til
á miðnætti að kvöldi 16. maí. Á
fundarstaðnum sjálfum verður ör-
yggisgæslan hins vegar í umsjá Rík-
islögreglustjóra en embættið mun
kynna það betur á blaðamannafundi
síðar í vikunni.
Fundirnir munu fara fram í Há-
skólabíói og íþróttahúsi Hagaskóla.
í Tæknigarði verður aðstaða fyrir
fjölmiðla. Á Hótel Sögu verður svo
skrifstofuaðstaða fyrir sendinefndir
og starfsmenn NATO. Sendinefnd-
imar verða í almennu herbergis-
rými en starfsmenn NATO fá þriðju
hæðina undir skrifstofur, en þar
eru Bændasamtök íslands til húsa.
Benedikt segir undirbúninginn
hafa gengið þokkalega og sé
nokkum vegin samkvæmt áætlun.
„Það koma vissulega alltaf upp ein-
hver mál en þau hefur tekist að
leysa og engin stórvægileg vand-
ræði hafa komið upp.“. -HI
Hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum hjá Reykjavíkurborg hefur stóraukist:
50% kvenna stjórna nú
en voru 13% árið 1994
Breiðholt:
Löggæslan
sögð
í molum
„Það verður að segjast eins og er
að löggæslan í Breiðholti er í mol-
um,“ segir Helgi Kristófersson,
stjórnarmaður SAMFOKS, um óá-
nægju íbúa í Breiðholti með lög-
gæslu á svæðinu. Boðað hefur verið
til opins fundar um málefnið i há-
tíðarsal Breiðholtsskóla í kvöld.
Fundurinn hefst kl. 20.00.
Helgi sagði að væri beðið um að-
stoð lögreglu á svæðinu væri ekki
óalgengt að 2 klukkustundir liðu
þar til aðstoð bærist, væri ekki um
neyðartilfelli að ræða. 1 sumum til-
vikum kæmi lögreglan alls ekki.
Helgi kvaðst vilja undirstrika að
lögreglan sjálf ætti ekki sök á því
hvernig komið væri. Hún byggi við
þröngan kost, manneklu og mikið
álag.
Óskemmtileg dæmi
Helgi kvaðst þekkja mörg dæmi
þess hve seint og illa aðstoð hefði
borist. Á dögunum hefðu einhverjir
óprúttnir gengið á lítinn dreng og
sparkað illa í hann þar til hann lá á
jörðinni. Þegar hringt hefði verið á
lögreglu hefði hún spurt hvort
drengurinn ætlaði að kæra. Hann
hefði sagt að hann þyrði það ekki.
Þá hefði lögreglan sagt að þá yrði
enginn bOl sendur.
Fyrir nokkru hefði verið brotist
inn í nokkur fjölbýlishús í Breið-
holti og ýmsu stolið. Þegar hefði
verið grennslast fyrir um af hverju
vinnsla málsins gengi svona seint
hjá lögreglunni hefði komið í ljós að
lögreglumaðurinn sem tók skýrsl-
urnar var farinn í fri. Helgi sagði að
nefna mætti fleiri dæmi á þessum
nótum. -JSS
Ferðamenn til íslands:
* m m
lofa góðu
Bókanir þýskra ferðamanna til Is-
lands lofa góðu, að sögn Hauks Birgis-
sonar hjá skrifstofu Ferðamálaráðs í
Þýskalandi. Nokkuð mikið hefur ver-
ið um bókanir upp á síðkastið en ekki
er enn hægt að segja til um hvort þær
eru meiri eða minni en í fyrra.
Haukur segist þó merkja að menn
hafi byrjað að bóka seinna nú en
venjulega. „Bókanir duttu töluvert
niður í haust í kjölfar hryðjuverka-
árásanna á Bandaríkin og það virðist
vera að fólk hafi verið lengur að
ákveða sig nú en venjulega vegna
þessara atburða. En nú eru bókanir
komnar vel af stað og þær lofa góðu
fyrir sumarið."
Þrjú flugfélög munu fljúga frá
Þýskalandi til íslands í sumar en að-
eins eitt, Flugleiðir, mun fljúga á
milli landanna á hverjum degi. -HI
- launamunur kynjanna minnkar um helming - kynhlutlaust starfsmat fram undan
Árið 1994 var hlutfall kvenstjóm-
enda hjá Reykjavíkurborg aðeins
13,3% en það hefur nú hækkað í
50%. Þá er launamunur kynjanna
hjá Reykjavíkurborg kominn niður
í 7% en hann var 14% árið 1994.
Þessar upplýsingar eru meðal
helstu niðurstaðna skýrslu sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla íslands
hefur unnið um laun karla og
kvenna hjá Reykjavíkurborg en
skýrslan kemur út á næstu dögum.
Rannsóknin er endurtekning á
sams konar rannsókn og var gerð
fyrir tilstilli Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur árið 1995. Þá reyndist
launamunur kynja hjá Reykjavíkur-
borg vera 14% og aðrar kannanir
sem gerðar hafa verið hér á landi
hafa allar sýnt kynbundinn launa-
mun á bilinu 11-20%. Jafn-
réttisráð hefur m.a. lýst
áhyggjum yflr hversu stöð-
ugur þessi launamunur hef-
ur virst vera.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri segir í
samtali við DV að þessi nýja
rannsókn Félagsvísinda-
stofnunar sé gerð til að meta
árangur af margvíslegum og
umfangsmiklum aðgerðum
til að draga úr launamun kynjanna
í kjölfar rannsóknarinnar 1995.
„Niðurstaðan er mikið gleðiefni. Nú
reynist launamunur kynja hjá
Reykjavíkurborg, sem er næst-
stærsti atvinnurekandi landsins,
vera 7% þannig að okkur hefur á
fáum árum tekist að minnka kyn-
bundinn launamun um
helming. Ég veit ekki til
þess að neinn annar at-
vinnurekandi í okkar landi
hafi náð viðlíka árangri á
jafn skömmum tima og ég
þekki enga sambærilega ís-
lenska rannsókn sem sýnir
jafn lága tölu þegar kyn-
bundinn launamunur er
annars vegar," segir Ingi-
björg Sólrún.
Róttæk kerfisbreyting
Hún segir árangurinn sýna að
launamunur kynjanna sé ekki nátt-
úrulögmál en á hinn bóginn sé 7%
launamunur ekki heldur viðunandi.
„Við ætlum okkur að ná enn betri
árangri og eitt stærsta skrefið fram
undan er að innleiða kynhlutlaust
starfsmat sem er ein róttækasta
kerfisbreyting í kjarasamningagerð
sem gerð hefur verið hjá Reykjavík-
urborg. Undirbúningur að innleið-
ingu starfsmatsins er í fullum gangi
og munu laun alls þorra starfs-
manna Reykjavíkurborgar taka
breytingum í samræmi við starfs-
matið frá 1. desember á þessu ári.
Þessi ákvörðun Reykjavíkurborgar
hefur vakið mikla athygli bæði hér-
lendis og erlendis og er fylgst náið
með þeim aðferðum sem við erum
að beita í baráttunni fyrir launa-
jafnrétti kynja og þeim árangri sem
við erum að ná,“ segir Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
-BÞ
Inglbjörg Sólrún
Gísladóttir.
Ást í Landsbankanum:
Bónorð í banka
Viðskiptavinir Landsbankans við
Höfðabakka sem erindi áttu i útibú
í austurborginni síöastliðinn fóstu-
dag um tvöleytið ráku upp stór
augu þegar þar birti'st allt í einu
karlmaður uppáklæddur í smóking,
með rós í hnappagatinu, risastóran
blómvönd í fanginu og fána með
áletruninni: „Viltu giftast mér?“.
Þessi prúðbúni maður var mættur í
bankann á mesta annatíma til þess
að ná tali af útibússtjóranum, og
gekk hann rakleiðis að skrifstofu
útibússtjórans með fánann á lofti.
Dvaldist manninum þar inni um
stund en kom svo út nokkru seinna
með sigurbros á vör og klöppuðu
viðskiptavinir fyrir góðum mála-
lyktum. -snæ