Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 6
6
MIÐVKUDAGUR 8. MAÍ 2002
Fréttir
-y-^'ur
Forsætisráðherra sakar áköfustu talsmenn ESB-aðildar um óheiðarleika:
Davíð blæs til sókn
ar í Evrópumálum
- segir nýja könnun sýna að ESB-aðild yrði felld með meira en 80%
Davíö Oddsson forsætisráðherra
blés til sóknar í Evrópumálum á að-
alfundi Samtaka atvinnulífsins í
gær þegar hann kynnti óvænt nið-
urstöður nýrrar skoðanakönnunar
um viðhorf landsmanna til aðildar
aö Evrópusambandinu. Félagsvís-
indastofnun gerði könnunina að ósk
forsætisráðuneytisins.
Spurt var um viðhorf til aðildar
með hliðsjón af ýmsum göllum sem
henni fylgja og sagði Davíð þetta
vera í fyrsta sinn sem slíkar spurn-
ingar væru lagðar fyrir almenning í
landinu.
„Svörin við þessum spumingum
komu mér mjög á óvart,“ sagði Dav-
ið og sagði niðurstöðuna til marks
um að sá stuðningur sem mælst
hefði hjá þjóðinni við aðild að Evr-
ópusambandinu hvíldi á „afar veik-
um grunni, svo ekki sé nú meira
sagt“.
Mikil andstaöa
Eins og sést á meðfylgjandi skífu-
ritum reyndist mikill meirihluti að-
spurðra vera „frekar“ eða „mjög“
andvígur aðild að ESB með hliðsjón
af göllunum sem spurt var um í
hvert sinn. Spurningarnar sem
skífuritin vísa til voru svohljóðandi:
„Aðild íslands að Evrópusam-
bandinu myndi leiða til þess að
ýmsar ákvarðanir um stjómun fisk-
veiða á íslandsmiðum, þar á meðal
ákvörðun um heildarafla, yrði í
höndum Evrópusambandsins. Ert
þú, í því ljósi, hlynnt(ur) eða and-
víg(ur) aðild íslands að Evrópusam-
bandinu?"
„Ef þróun Evrópusambandsins
stefndi í þá átt að völd stærri þjóöa
í sambandinu myndu aukast á
kostnað minni þjóða, værir þú þá
hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðild ís-
lands að Evrópusambandinu?“
„Ef beinar greiðslur íslendinga til
Evrópusambandsins vegna aðildar
yrðu margir milljarðar króna á ári,
værir þú þá hlynnt(ur) eða and-
víg(ur) aðild íslands að Evrópusam-
bandinu?"
Hlutfall þeirra sem sögðust „mjög
andvígir" aðild i ljósi þessara ágalla
var frá 47 til 55%. Ef þeim sem sögð-
ust „frekar andvigir" er bætt við
þann hóp hækkar hlutfallið i 79 til
87%. Hlutfall þeirra sem sögðust
„mjög hlynntir" aðild var 1,4 til
3,6%.
Athygli vekur að 7,1% sögðust
„mjög hlynnt" því að evran yrði
gerð að gjaldmiðli íslands, jafnvel
þótt í spurningu um það efni væri
bent á að það gæti leitt til meira at-
vinnuleysis en ella. Stuðningsmenn
evrunnar reyndust alls rúm 19% ef
Blásið tll sóknar
Davíö Oddsson dró hvergi af sér í
gagnrýni á ESB-abild og áköfustu
stuöningsmenn hennar í gær.
þeim sem sögðust „frekar hlynntir"
henni er bætt við þá sem tóku ein-
dregna afstöðu með henni.
Öfgafullir óheilindamenn
Davíð sagði að þeir ágallar á aðild
sem nefndir væru í spumingunum
væru óumdeildir, „ef undan eru
skilin sjónarmið fáeinna öfgafullra
talsmanna Evrópusambandsaðild-
ar“. Hann gagnrýndi þessa ónefndu
talsmenn mjög harkalega; sagðist
hlynntur mikilli og öflugri umræðu
um málið en hún yrði að vera upp-
lýst til þess að öfgafullir talsmenn
aðildar kæmust ekki upp með að
villa vísvitandi um fyrir fólki.
„Þá verður ekki lengur hægt að
tala gegn betri vitund og láta eins
og hægt sé að semja sig frá öllum
ókostunum," sagði Davíð og bætti
Afstaða til aðildar að
ESB með tilllti til
sjávarútvegsstefnu:
Afstaða til aðildar aö
ESB með tilliti til kostnaöar:
Afstaöa til aðildar að ESB
með tillltl til aukinna
valda stórþjóöa:
1.4% 8.1%
3.5%
Mjög hlynnt(ur)
Frekar hlynnt(ur)
Hlutlaus
Frekar andvíg(ur)
Mjög andvíg(ur)
við að það væri „bæði óheiðarlegt
og villandi að gefa til kynna að hægt
sé að semja sig frá þeim annmörk-
um, þótt fyrir liggi að það sé óger-
legt ef frá er talin tímabundin aðlög-
un. Evrópusambandið sjálft hefur
verið miklu ærlegra í þessum efn-
um en áköfustu talsmenn aðildar
hér á landi“.
Um niðurstöðu könnunarinnar
sagði Davíð hana benda til þess að
það hefði verið varfærin ágiskun
hjá sér á sínum tíma að samningur
um aðild íslands að ESB - þar sem
menn stæðu frammi fyrir því svart
á hvítu að ekki væri hægt að semja
sig frá óþægindunum - yrði felldur
í þjóðaratkvæðagreiðslu með 75 til
80% atkvæða.
Ríkisábyrgð og ESB
í máli Davíðs komu fram nýir út-
reikningar á því hver yrði nettó-
kostnaður íslendinga af ESB-aðOd
eftir stækkun sambandsins. Sagði
hann að kostnaðurinn yrði að lág-
marki 10-12 milljarðar króna á ári.
Lægri tölur væru byggðar á ósk-
hyggju, ekki upplýsingum.
Hann bar þessa tölu saman við
umdeilda ríkisábyrgð á lánum
deCODE og sagði að öll sú umdeilda
ríkisábyrgð, sem vissulega væri
mikil fjárhæð, væri sama fjárhæð
og íslendingar myndu greiða fyrir
að fá að vera í 18 mánuði í Evrópu-
sambandinu - án þess að fá krónu á
móti.
„Á 7 ára ábyrgðartíma lánsins
myndum við greiða um og yfir 80
milljarða - 80 milljarða - til ESB,
umfram það sem við fengjum það-
an, til að fá að hafa áhrif á þróun
mála þar á bæ, eins og það er orðað.
Það er ekki um ólíklega eða hugsan-
lega 80 milljarða króna að ræða
heldur er þetta fyrirliggjandi, þekkt
stærð. Þetta eru allt mjög athyglis-
verðar tölur, góðir fundarmenn,"
sagði Davíð að lokum.
-ÓTG
Skiptar skoðanir innan LÍÚ varðandi afstöðu til ESB:
Auglýsi eftir öfga
lausri umræðu
- segir Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri ÚA
Skoðanir virðast skiptar innan
Landssambands íslenskra útvegs-
manna varðandi viðhorf til Evr-
ópusambandsins. Guðbrandur Sig-
urðsson, forstjóri Útgerðarfélags
Toyota Carína S/D, 03/96
ssk., rafdr. rúður, samlæsingar, krókur.
Verð 690.000 - allt að 100% lán.
Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3,
sími 567-0333
Verð 690.000
*
J. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
Visa/Euro raðgreiðslur
Akureyringa, var einn
höfunda skýrslunnar um
áhrif hnattvæðingar á
efnahagslífið á íslandi og
segist hann sannarlega
skrifa undir að ýmsir
kostir gætu fylgt aðild að
ESB og upptöku evru fyrir
íslendinga. Guðbrandur
segist ekki vilja meta
hvort þama kveði við nýj-
an tón innan sjávarútvegs-
geirans en aðspurður hvort hann
telji jafnjákvæða afstöðu vera fyrir
hendi hjá forystu LÍU segir hann
að komið hafi greinilega fram í
máli forystumanna LlÚ að þeir séu
gegn aðild að ESB vegna þess að
þeir telji ólíklegt að íslendingar fái
að stjórna eigin fiskveiðum.
„Hins vegar tel ég nauðsynlegt
að meta kosti og galla aðildar til að
menn geti tekið rökræna afstöðu
til málsins. Ég er fyrst og fremst að
skrifa upp á að menn séu vakandi
fyrir mnræðunni og möguleikum
framtíðarinnar. Ég vonast til að sjá
öfgalausa umræðu um þessi mál-
efni á næstu misserum," segir
Guðbrandur.
Skýrsluhöfundar nefna
að háir vextir og óstöðugt
géiigi séu fylgifískir sjálf-
stæðrar efnahagsstefnu ís-
íendinga og segir Guð,-
brandur gengissveiflur
slæmar fyrir atvinnuveg-
inn. „Ef við horfum til
áhuga erlendra fjárfesta á
Guðbrandur fjárfestingum innanlands
Sigurðsson. þá er mun hagkvæmara í
augum þeirra að gjaldmið-
illinn sé stöðugur en auðvitað er
líka Ijóst að ef menn fórna krón-
unni eiga menn sveiflur á hættu
sem kalla á atvinnuleysi. Ef sterk-
ur gjaldmiðill fer saman við litla
fiskveiði og lélegt markaðsástand
gætum við séð fram á fjöldaat-
vinnuleysi og það vill enginn. Ef
við erum með Islenska krónu dreg-
ur hins vegar úr þessum sveifliun
en við erum á köflum að borga dá-
lítið mikið með innflutningum. Á
móti gætum við einnig spurt okk-
ur hvort það sé ekki hluti af inn-
anlandspólitík hvaða vaxtastig
ríkir í landinu," segir Guðbrand-
ur.
-BÞ
Eimwm ?'-ýlílVU/.riJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.14 21.59
Sólarupprás á morgun 04.33 04.18
Síðdegisflóð 16.38 23.11
Árdegisflóð á morgun 04.51 09.24
Suðvestan og síðar sunnan 8-13
metrar á sekúndu og smáskúrir á
vestanverðu landinu en yfirleitt
hægari og léttskýjað austan til. Fer
að rigna vestanlands seint í kvöld.
Hiti 6-13 stig að deginum, hlýjast
austan til.
Víöa rigning
Þykknar upp austan til, hæg
breytileg átt og víða rigning síðdegis
en vestan til verður fremur hæg
vestlæg átt og rigning eða slydda
með köflum.
Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hit» 4° Hiti 4° Hiti 7°
m 8° til 8° til 12°
Vindur 4-8n>/s Vindur; 4—6m/® Vindun
Noröanátt og léttskýjaö sunnan- og vestanlands en smáskúrlr eöa slydduél austanlands. Noröanátt og léttskýjaö sunnarv og vestanlands en smáskúrir eöa slydduél austanlands. Hæg breytileg átt, bjartviöri og hlýnar heldur f dag.
4 4 4-
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinningsgola
Kaldi
Stinningskaldi
Allhvasst
Hvassvlðil
Stormur
Rok
Ofsaveöur
Fárviðri
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI alskýjaö 6
BERGSSTAÐIR alskýjaö 5
B0LUNGARVÍK úrkoma í grennd 4
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 3
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 3
KEFLAVÍK úrkoma í grennd 5
RAUFARHÖFN léttskýjað 2
REYKJAVÍK þokumóöa 5
STÓRHÖFÐI alskýjaö 6
BERGEN skýjaö 8
HELSINKI léttskýjaö 13
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 9
ÓSLÓ léttskýjaö 13
STOKKHÖLMUR 12
ÞÓRSHÖFN léttskýjað 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 8
ALGARVE léttskýjaö 11
AMSTERDAM þokuruöningur 10
BARCELONA rigning 13
BERLÍN þoka á síö. klst.10
CHICAG0
DUBLIN þoka 9
HALIFAX súld 9
FRANKFURT skýjaö 13
HAMB0RG súld á síð. klst. 9
JAN MAYEN skýjaö -2
L0ND0N mistur 8
LÚXEMBORG léttskýjað 11
MALLORCA rigning 15
MONTREAL alskýjað 7
NARSSARSSUAQ alskýjaö 1
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS skýjaö 12
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON
WINNIPEG heiöskírt 5