Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Leiðtogi VG á Akureyri segir fólk liggja hjálparvana út um allan bæ:
Bæjarstjórinn ósáttur
við ummæli ráðherra
- imi sofandahátt bæjarstjórnar - fyrst og fremst mál ríkis, segir Kristján Þór
Forgangsröðun gagnrýnd
Vinstri hreyfingin - grænt framboð er ósátt við forgangsröðun bæjaryfirvalda
á Akureyri. Meðal þess sem VG gagnrýnir er nýtt fjölnota íþróttahús en þeir
segja kostnað við byggingu þess hafa verið vanmetinn.
Valgerður
Bjarnadóttir,
leiðtogi Vinstri
grænna á Akur-
eyri, segir að
gera þurfi stór-
átak í velferðar-
málum í bæn-
um. „Fólk liggur
hjálparvana út
um allan bæ,“
segir Valgerður
og á þar einkum
við sjúka og
aldraða en tugi
hjúkrunarrýma
vantar í bænum
fyrir þann hóp.
Valgerður
gagnrýndi for-
gangsröðun bæj-
aryfirvalda þeg-
ar Vinstri græn-
ir kynntu stefnuskrá sína á dögun-
um og sagðist ósátt við sumar
framkvæmdir bæjaryflrvalda á
síðasta kjörtímabili. Þar nefndi
hún byggingu fjölnota íþróttahúss
á Þórssvæðinu sem dæmi um vafa-
sama fjárfestingu. Kostnaður hefði
verið vanmetinn og íþróttahúsið
gæti kostað allt að 700 milljónir í
stað 500 á áætlun. „Á sama tíma
hafa bæjaryfir-
völd hreinlega
gleymt sjúkum
og öldruðum,"
segir Valgerður
og heitir því að
flokkurinn muni
ekki beita sér
fyrir ámóta „lúx-
Jón usverkefnum".
Kristjánsson. Kristján Þór
Júlíusson, bæj-
arstjóri á Akureyri og oddviti D-
listans, bendir á að fulltrúar
Vinstri grænna geti ekki komið
sér undan ábyrgð í stefnu bæjar-
ins þar sem hluti núverandi fram-
bjóðenda VG-framboðsins hafi
áður tekið þátt í Akureyrarlistan-
um, sameiginlegum lista vinstri
manna og kvennaframboðs. „Val-
gerður verður líka að líta í eigin
barm þegar hún er að skensa
aðra,“ segir leiðtogi sjálfstæðis-
manna. Hann segir að ætíð megi
deila um forgangsröðun en vöntun
á öldrunarrýmum sé fyrst og
fremst vandi ríkisins. Ef bærinn
eigi að útvega 30 öldrunarrými
strax kosti það hálfa milljón á dag
eða milli 180 og 190 milljónir ár-
lega en þar sé fyrst og fremst um
ákvörðun ríkisvaldsins að ræða.
Viðræður milli rikis og Akur-
eyrarbæjar um þjónustusamninga
hafa gengið hægt og fyrir skömmu
var haft eftir Jóni Kristjánssyni
heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum
að ákveðinn sofandaháttur hefði
ríkt hjá bæjarstjórn Akureyrar.
Hinn 24. apríl sl. sendi Kristján
Þór heilbrigðisráðherra bréf þar
sem hann getur m.a. um þennan
meinta sofandahátt. Bæjarstjórinn
er ósammála því að bærinn hefði
getað unnið betur og auglýsir í
bréfinu eftir skýrari samnings-
vilja ráðuneytis um úrbætur í
þessum málaflokki.
„Allt forræði í málefnum aldr-
aðra varðandi hjúkrun og pláss á
dvalarheimilum er á hendi ríkis-
valdsins og það er blekking að
halda öðru fram,“ segir Kristján
Þór. -BÞ
Valgerður
Bjarnadóttir.
Kristján Þór
Júlíusson.
BFGoodrScH
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík
Nesdekk • Seltjarnarnesi
Dekk og smur • Stykkishólmi
Léttitækni • Blönduósi
Höldur • Akureyri
Bílaþjónustan • Húsavík
Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
IB Innflutningsmiðlun • Selfossi
BFCoodrich
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmDekk
- veldu aðeins það besta
Skoða fjárhúsin
Ásta Einarsdóttir, Veðramóti, Haildóra
Björnsdóttir, Ketu, og Halla Guðmunds-
dóttir, Steini, virða fyrir sér aðstöðuna í
fjárhúsunum á Holtsmúla í Skagafirði.
Bændur læra að
byggja fjárhús
Á dögunum gengust Leiðbeininga-
miðstöðin á Sauðárkróki, Rannsóknar-
stofhun landbúnaðarins og Landbún-
aðarháskólinn á Hvanneyri iyrir nám-
skeiði um fjárhúsbyggingar og vinnu-
hagræðingu í sauðfjárbúskap. Alls
tóku fimmtán skagfirskir bændur þátt
i námskeiðinu sem stóð í tvo daga. Á
því var fjallaö um ýmsar gerðir fjár-
húsbygginga og hvernig bændur hafa
á síðustu árum breytt gömlum bygg-
ingum. í flestum tilfellum felast breyt-
ingamar i að komið er fyrir
gjafagrindum og tækni til að flytja rúll-
ur um byggingamar. Með því losna
bændur við að bera heyið eða keyra
það fram á garðann. Með gjafagrindum
er heil rúlla sett í grindina í einu og
hún skorin og þannig er grindin full af
fóðri sem endist í tvo til þrjá daga eft-
ir þeim fjölda sem hefúr aðgang að
fóðrinu, en ekki er talið heppilegt að
fleiri en 60-70 kindur hafi aðgang að
sömu gjafagrindinni. Þessi útbúnaður
hefúr mjög mtt sér rúms á síðustu
árum enda verður fjárbúskapur í sí-
fellt fleiri tilvikum hlutastarf þar sem
bændur stunda ýmsa vinnu með bú-
skapnum og þá vilja menn vera fljótir
að koma fóðrinu í skepnumar. -ÖÞ
Fordæmir akstur
utan vega
Ferðaklúbburinn 4x4 fordæmir utan-
vegaakstur vamarliðsmanna við
Grænavatn á Reykjanesi. Landspjöll
sem þar vom unnin og rannsókn á
þeim hefúr verið mjög til umfjöllunar í
fjölmiðlum undanfama daga. f yfirlýs-
ingu aðalfundar ferðaklúbbsins segir
að háttsemi sem þessi sé í fullkominni
andstöðu við stefnu klúbbsins, en hann
hefur barist gegn utanvegaakstri frá
stofnun árið 1983. -aþ
Dæmdur fyrir
ofsaakstur
Héraðsdómur Norðurlands hefur
dæmt 18 ára Ólafsfirðing til greiðslu
300.000 króna sektar og árs sviptingu öku-
réttar fyrir margvisleg umferðarlagabrot.
Ýmsar ákærur vom sameinaöar gegn
manninum en hann var m.a. ákærður
fyrir að hafa í tvígang ekið norður Hval-
fjarðargöng á 115 og 117 km hraða og fyr-
ir að hafa ekið á 152 km hraða á Ólafs-
fjarðarvegi og allt að 170 km hraða
skammt frá Akureyri. Þá fannst lítilræði
af hassi í bifreiö sem maðurinn velfi á
Lágheiði fyrir utan Ólafsfjörö. -BÞ
✓ m
Við Faxafen • Austurstræti • Kringlunni • Esso-stöðinni Ártúnshöfða • Esso-stöðinni Borgartúni • Spönginni Grafarvogi