Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 11
11
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002
DV
Þetta helst
HEILOARVIÐSKIPTI 4.587 m.kr.
Hlutabréf 1.068 m.kr.
Húsbréf 2.022 m.kr.
MEST VIDSKIPTI
0 Búnaðarbankinn 274 m.kr.
í íslandsbanki 181 m.kr.
0 Pharmaco 146 m.kr.
MESTA HÆKKUN
Q SÍF 3,2%
Q Sæplast 2,3%
Q Fiskmarkaður íslands 2,0%
MESTA LÆKKUN
0 Hlutabréfamarkaðurinn 32,7%
Q Búnaðarbankinn 5,1%
Q Hraöfr.h. Eskifj. 4,1%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.287 stig
- Breyting Q 1,92%
Horfur á óbreyttu
ástandi í verslun
Horfur eru á að rekstur verslun-
arfyrirtækja verði svipaður á næst-
unni þótt samkeppnin aukist eitt-
hvað að mati aðildarfyrirtækja
SVÞ. Samtökin gerðu könnun meðal
félagsmanna fyrir helgi um stöðu og
horfur í verslun
og þjónustu. Fiest-
ir svarenda töldu
að starfsmanna-
fjöldi myndi
standa í stað og
eignastaða verða
óbreytt á næst-
unni.
Einu breyting-
amar sem verslunareigendur telja
að verði á næstunni er aukin sam-
keppni í sérvöru. Um 25% eigenda
sérvöruverslana sem svara könnun-
inni telja að lítils háttar samdráttur
gæti orðið á þessu ári. Yfir 70%
stjómenda matvöruverslana sem
svöruðu töldu að starfsmannafjöldi
myndi standa í stað á þessu ári en
28% að um lítils háttar fækkun yrði
að ræða. Svipuð niðurstaða er með-
al sérvöruverslana.
Þetta er í fyrsta sinn sem SVÞ
gera slíka skoðanakönnun meðal
aðildarfyrirtækja. Um var að ræða
rafræna könnun sem fór fram á Net-
inu. Alls svöruðu um 20% þeirra
verslana sem fengu könnunina.
Svarhlutfall þjónustufyrirtækja var
lægra og þvi ekki marktækt en nið-
urstaðan var mjög svipuð þeirri
sem kom fram meðal matvöru- og
sérvöruverslana.
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaðid
78% hagnaöaÞ
aukning
hjá Kaupþingi
Hagnaður Kaupþings banka á
fyrsta ársfjórðungi 2002 var 400
milljónir króna fyrir skatta en 321
milljón eftir skatta. Þar af var hagn-
aður erlendra hlutdeildar- og dótt-
urfélaga 30 milljónir króna eftir
skatta. Hagnaður Frjálsa fjárfesting-
arbankans hf. var 116 milljónir
króna eftir skatta. Arðsemi eigin
fjár nam 14,7% sem er í samræmi
við markmið bankans um 15% arð-
semi eigin fjár. Hagnaður bankans
fyrir sama tímabil í fyrra var 180
milljónir og er aukning hagnaðar
því 78% á milli ára.
Hreinar vaxtatekjur bankans
voru jákvæðar um 42 milljónir
króna á tímabilinu á móti 17 millj-
ónum fyrir sama tímabil í fyrra.
Fjármagnskostnaður vegna hluta-
bréfastöðu bankans nam 554 millj-
ónum króna.
Hreinar rekstrartekjur voru 1.924
milljónir króna á tímabilinu en
voru 1.117 milljónir á árinu 2001
sem er aukning um 72% milli tíma-
bila. Aðrar rekstrartekjur námu því
samtals 1.882 milljónum á móti 1.100
milljónum á sama tímabili í fyrra.
Gengishagnaður af annarri fjár-
málastarfsemi var 877 milljónir
króna. Nokkur lækkun varð á þjón-
ustutekjum, en þær námu 801 millj-
ón á móti 1.042 milljónum króna á
sama tímabili í fyrra og er það
minnkun um 23% milli tímabila.
Þessi lækkun skýrist af því að á
fyrsta ársfjórðungi 2001 féllu til
verulegar þjónustutekjur vegna
verkefna á sviði fyrirtækjaþjónustu
á móti óverulegum tekjum á fyrsta
ársfjórðungi 2002.
Rekstrargjöld námu 1.397 milljón-
um króna á fyrsta ársfjórðungi en
voru 795 milljónir árið áður. Aukn-
ing rekstrargjalda nemur því 76%
frá sama tímabili í fyrra. Megin-
skýringin er sú að fleiri fyrirtæki
koma nú inn í uppgjörið en áður,
m.a. Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf., Kaupthing-Sofi og Kaupthing
Bank Denmark.
Framlag í afskriftareikning út-
lána nam 127 milljónum króna. Af-
skriftareikningm• útlána sem hlut-
fall af útlánum og veittum ábyrgð-
rnn nemur nú 2,0%. Heildareignir
bankans í lok ársfjórðungsins voru
129,5 milljarðar króna og hafa auk-
ist um 11,5 milljarða frá áramótum,
eða 9,8%.
Harpa Sjöfn úthlutar 14.000 lítrum af málningu:
22 verkefni fá
alls 3.000 lítra
Nú í upphafi sumars úthlutar
Harpa Sjöfn 22 aðilum málningar-
styrk til verðugra viðhaldsverkefna
og er þetta fimmta árið í röð sem
fyrirtækið úthlutar slíkum styrkj-
um. Á þessu tímabili hefur Harpa
Sjöfn úthlutað 82 aðilum samtals
14.000 lítriun af málningu til mjög
fjölbreyttra verkefna um allt land,
að verömæti 6 milljónir króna. Fjöl-
mörg sögufræg hús og mannvirki
hafa á undanfómum árum hlotið
nýtt og fallegt útlit með þessum
hætti. Einnig hafa góðgerðafélög,
þjónustuklúbbar, íþróttafélög og
aðrir notið málningarstyrkja Hörpu
Sjafnar.
Meðal þeirra sem hljóta málning-
arstyrk Hörpu Sjafnar fyrir árið
2002 eru Kjarvalsstofa á Borgarfirði
eystri, gamla síldarverksmiðjan í
Djúpuvík, Norska húsið i Stykkis-
hólmi, Blindrafélagið í Reykjavík,
Sauðlauksdalskirkja (1863) í Vestur-
byggð, Syðstibær - hús Hákarla-Jör-
undar í Hrísey, Iönaðarsafnið á Ak-
ureyri, gamla þinghúsið í Maríu-
gerði, Ljósavatnshreppi í Köldu-
kinn, og Þroskahjálp á Suðumesj-
um vegna Lyngsels.
Krónan styrkist
Gengi krónunnar hækkaði um
tæpt 1% á mánudag í 4,5 milljarða
viöskiptum og fór dollari undir 91
krónu í fyrsta skipti síðan vikmörk-
in vom afnumin og veröbólgmnark-
mið tekið upp í mars á síðasta ári.
Ástæðuna má e.t.v. rekja til vænt-
inga um að veröbólgumarkmiöið
náist en Hagstofan birtir vísitölu
neysluverðs 14. maí nk. Aðilar á
markaði spá almennt lítilli sem
engri breytingu á vísitölu neyslu-
verðs og gangi það eftir mun samn-
ingum ekki verða sagt upp.
Opið virka
daga 10-19.
SUÐURNESJUM
SÍMI 421 4888-421 5488
Opið iau.
12-16.
Chrysler Town & Country, 3,8 I, árg. 96, Toyota Land Crulser VX 3,0 turbo, dísll,
ekinn 68 þús., hvítur, sjálfskiptur, leöur, nýskráöur 4/97, ekinn 120 þús., 8 manna,
álfelgur. Einn meö öllu. Verö 1.950 þús. Ath. vínrauöur, sjálfskiptur, dr-beisli, cd. Verö
skipti 2.340 þús.
Lexus IS 200, nýskráöur 03/01, ekinn 12 Toyota Land Crulser LX 3,0 turbo, dfsll,
þús., 17T álfelgur, 6 diska cd, sjálfskiptur, nýskráöur 07/99, ekinn 85 þús., 35Í breyting,
svartur. Verö 2.630 þús. Ath. skipti. varahjólshlíf, spoiler, grillgrind, kastarar,
toppgrind, vínrauöur, 5 gtra. Verö 3.150 þús.
Ath. skipti.
Toyota Land Crulser LX 3,0 turbo, disll, Toyota Land Cruiser LX 3,0 common rail,
nýskráöur 04/00, ekinn 51 þús., 33116T nýskráður 07/01, ekinn 10 þús., sjálfskiptur,
breyting, toppgrind, dr-beisli, sjálfskiptur. Verö 331 breyting, svartur, toppgrindarbogar,
3.100 þús. Ath. skipti. varahjólshlíf, dr-beisli. Verö 3.950 þús.
MMC Pajero 2,8 turbo, disll, intercooler, árg. BMW 320 Cl, nýskráöur 11/01, ekinn 4
97, ekinn 90 þús., fjarstart, sjálfskiptur, dr- þús., svartur, 5 gíra, álfelgur o.fl. Verö 3.590
beisli. Verð 1.980 þús. þús.
Toyota Land Crulser 100 4,2 turbo, dísll,
intercooler, nýskráöur 11/99, ekinn 100
þús., silfurgrár, leöur, topplúga, tölvujöörun,
35Í breyting, tölvukubbur. Verö 5.950 þús.
Musso 602 EL 2,9 turbo, disll, intercooler,
nýskráöur 05/98, ekinn 96 þús., 35T breyting,
loftlæstur aö framan og aftan, lækkuö hlutföll,
sjálfskiptur, grænn, einn eigandi. Verö 2.250
þús.
Honda CRV, nýskráö 02/99, ekin 65 þús., Toyota Land Cruiser 80 VX 4,2 turbo, dísil,
hvít, 5 gíra, sílsarör, filmur, upphækkuö. Verö intercooler, árg. 1995, ekinn 170 þús.,
1.530 þús. sjálfskiptur, 38T breyting, dr-beisli, grár/rauöur
- þetta er toppbill. Verö 3,300 þús. Ath.
skipti.
Smáauglýsingar
Markaðstorgið
-allt til alls
550 5000
PR
7T
>
Mið. 8. MAl
MIEMES........... Vídalín v. Ingólfstorg
BUTTERCUP Players Kópavogi
FIM. 9. MAl
KK Leikskálum Vík
B0C CATS Vídalín v. Ingólfstorg
FÖST. 10. MAÍ
KK Borg í Grímsnesi
PLAST Vídalín V. Ingólfstorg
SIXTIES Kaffi Reykjavík
PAPAR Players Kópavogi
LAIIG. 11. MAI
SSSÓL Sjallanum Akureyri
HUNANG............Hollinni Vestmannaey.
KK Útlaganum Fiúðum
BUFF Vídalín v. Ingólfstorg
SIXTIES Kaffi Reykjavík
PAPAR Players Kópavogi
SUK. 12. MAt
ÖRKUML Vídalín v. Ingólfstorg
mið. 15. MAÍ
KK Samkomuh. Garði
FIM. 16. MAl
KK Kaffi Duus Reykjanesb.
FRAMO NDA.KI
fÖST. 17. MAi j
Á MÓTI SÓL Höllinni Vestmannaey.i
DJ Baddi Vídalín v. Ingólfstorg
HUNANG Kaffi Reykjavík
LAND & SYNIR Players Kópavogi
LAUG. 18. MAl
Á MÓTI SÓL Sjallanum Akureyri
BUTTERCUP Víkinni Hornafirði
Nánar augl. siðar Vídalín v. Ingólfstorg
HUNANG Kaffi Reykjavík
BSG Players Kópavogi
SUK. 19. MAl !
SÓLDÖGG Sjallanum Akureyri
HLJÓMAR Höllinni Vestmannaey.
Nánar augl. síðar Vídalín v. Ingólfstorg
BSG Players Kópavogi
www.promo.is