Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 26
50
^ Islendingaþættir
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002
I>V
»
i
»
*
*
J.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Jón Halldórsson
húsasmíBameistari,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Áður í Sólheimum 22,
Reykjavík. Hann ólst upp
á Arngerðareyri við Djúp.
80 ára_______________
Guðlaug Ingibjörg Björnsdóttir,
Múlavegi 34, Seyðisfirði.
75 ára________________________________
Axel Þorsteinsson,
Túngötu 2, Hofsósi.
Guðrún S. Einarsdóttir Clausen,
Hraunbæ 97, Reykjavík.
85 ara
70 ára________________________
Ágúst Nilsson,
Ránargötu 5a, Reykjavík.
Bjarney Sighvatsdóttir,
Þangbakka 8, Reykjavík.
Guðjón Heiðar Jónsson,
Háaleitisbraut 73, Reykjavík.
Hafþóra Bergsteinsdóttir,
Brávallagötu 50, Reykjavík.
Sigurður Guðmundur Jónsson,
Langanesvegi 21, Þórshöfn.
60 ára________________________
Guðný Bernhard,
Marklandi 10, Reykjavík.
Óskar Gunnarsson,
Skólavegi 64a, Fáskrúðsfiröi.
Þorkell Sigurjónsson,
Kirkjuvegi 82, Vestmannaeyjum.
Örn Helgi Steingrímsson,
Krummahólum 4, Reykjavík.
50 ára__________________________
Arnar F. Sigurþórsson,
Dalatanga 3, Mosfellsbæ.
Eyþór Benediktsson,
Tangagötu 13, Stykkishólmi.
Guðmar Rnnur Guðmundsson,
Viðarrima 13, Reykjavík.
Guðni Már Brynjólfsson,
Klausturhvammi 13, Hafnarfiröi.
Halla Ingibjörg Guðmundsdóttlr,
Merkurteigi 4, Akranesi.
Jóhanna Björnsdóttir,
Sólbrekku 7, Húsavík.
Lilja Jónsdóttir,
Baughóli 1, Húsavík.
Rúnar Ragnarsson,
Grundarvegi 13, Njarðvík.
Sævar Benediktsson,
Einigrund 5, Akranesi.
Vilhjálmur V. Ragnarsson,
Heiðarbraut 9a, Keflavik.
40 ára__________________________
Anna Margrét Hálfdánardóttir,
Flúðaseli 2, Reykjavík.
Arngunnur Ýr Gylfadóttir,
Smyrlahrauni 40, Hafnarfirði.
Björk Þórisdóttir,
Furugrund 22, Kópavogi.
Eva Kristjánsdóttir,
Sléttuvegi 9, Reykjavik.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Nýlendugötu ll_a, Reykjavík.
Gunniaugur B. Ólafsson,
Furubyggð 2, Mosfellsbæ.
Hafsteinn Hafsteinsson,
Bakkaflöt 1, Garöabæ.
Jóhann Youyi Xiang,
Sólheimum 49, Reykjavík.
Koibrún Reynisdóttir,
Fjóluhlíð 3, Hafnarfirði.
Sigurður Ólafur Steingrímsson,
Faxastíg 26, Vestmannaeyjum.
Svandís Ósk Stefánsdóttir,
Sléttuvegi 3, Reykjavik.
Tóna Sólrun Olsen í Nlðristovu,
Furugrund 16, Kópavogi.
Tui Donjai,
Engihjalla 25, Kópavogi.
Vilborg Hafsteinsdóttir,
Reynivöllum 5a, Selfossi.
Attræður
Magnús Ólafsson
húsgagnasmíðameistari í Reykjavík
Magnús Ólafsson húsgagna-
smíðameistari og kennari í hand-
mennt, Kjartansgötu 5, Reykjavík,
er áttræður í dag.
Starfsferill
Magnús fæddist að Vindheim-
um í Tálknaflrði og ólst þar upp í
foreldrahúsum til átta ára aldurs
og stundaði þar nám í bamaskóla
síðasta veturinn. Um vorið flutti
hann með foreldrum sinum til
Reykjavikur og var einn vetur í
Miðbæj arskólanum.
Næsta vor, er Magnús var níu
ára, flutti hann til foðurbróður
síns, Kolbeins Jónssonar á Eyr-
inni að Amarstapa á Snæfellsnesi
þar sem bamaskólahald var á
tveimur bæjum, Eiriksbúð og
Bjargi.
Magnús starfaði síðan hjá föð-
urbróður sínum við sveitastörf og
sjómennsku en vann einnig við
vikurtöku í Snæfellsjökli á vegum
Jóns Loftssonar.
Magnús fór til Reykjavíkur er
hann var nítján ára. Hann starfaði
í verksmiðju Jóns Loftssonar við
Hringbraut í eitt ár og var nokkra
mánuði á togara.
Magnús hóf nám í húsgagna-
smíði hjá Hjálmari Þorsteinssyni
við Klapparstíg 1942, lauk námi
við Iðnskólann í Reykjavík á
þremur árum, lauk sveinsprófi í
húsgagnasmíði 1946 og öðlaðist
meistararéttindi 1949. Þá fór hann
til Danmerkur og stundaði nám i
byggingarlist við
Byggemeisterskole i eitt og hálft
ár en starfaði þar jafnframt við
húsgagnasmíði.
Magnús stundaði síðan hús-
gagnasmíði allan sinn starfsferil,
m.a. hjá Axel Einarssyni, Tré-
smiðjunni Meiði og á Flúðum.
Hann fór til Svíþjóðar 1964 og
starfaði þar i fjóra mánuði. Eftir
heimkomuna hóf hann störf hjá
Húsgagnavinnustofu Árna Jóns-
sonar. Hann stundaði jafnhliða
nám í handmennt við Kennara-
skóla íslands og lauk prófum í
þeirri grein.
Magnús var siðan kennari í
handmennt við Reykholtsskóla í
Borgarfirði í fjóra vetur. Hann hóf
síðan störf hjá Nývirki og starfaði
þar fram yfir sjötugt. Þá kenndi
hann handmennt við Ármúlaskóla
í einn vetur.
Magnús fann upp og hannaði
manntaflið Víkingaskák 1967.
Fjölskylda
Systkini Magnúsar: Guðrún, f.
22.1. 1902, d. 1977, húsmóðir i
Reykjavík; Jón Bjarni, f. 1.7. 1903,
d. 1977, sjómaður og bóndi á Vind-
heimum i Tálknafirði; Gisli, f.
15.8. 1905, d. 1911; Kristrún, f. 3.11.
1906, d. 1995, húsmóðir á Akra-
nesi, og starfrækti lengi bama-
heimilið að Ölveri undir Hafnar-
fjalli; Sigurfljóð, f. 3.1. 1908, d.
1996, húsmóðir í Reykjavík; Anna,
f. 22.4. 1909, d. 1999, húsmóðir í
Reykjavík; Unnur, f. 2.1. 1911, d.
1998, húsmóðir í Reykjavík; Gísli,
f. 5.7. 1913, d. 1993, bóndi á Kirkju-
bóli í Arnarfirði; Snæbjörg, f.
13.10. 1914, húsmóðir í Reykjavík;
Bergljót, f. 30.6.1916, kjólameistari
í Reykjavík; Valdís, f. 30.6.1916, d.
1936; Ragnhildur, f. 11.4. 1918, d.
1996, rithöfundur í Kaupmanna-
höfn; Kristján, f. 11.8. 1919, d. 1996,
vélstjóri í Reykjavík; María Hug-
rún, f. 6.5. 1921, d. 1979, listmálari
i Kaupmannahöfn; Aðalheiður, f.
4.1. 1926, bóndakona í Mástungu í
Gnúpverjahreppi.
Foreldrar Magnúsar voru Ólaf-
ur Kolbeinsson, f. að Hreimsstöð-
um í Norðurárdal í Borgarfirði
24.6. 1863, d. 2.6. 1955, bóndi að
Vindheimum, og k.h., Jóna Sigur-
björg Gísladóttir, f. á Skriðufelli á
Barðaströnd 20.7. 1880, d. 14.5.
1952, húsfreyja.
Ætt
Foreldrar Ólafs voru Kolbeinn
Sæmundsson og Guðríöur Guð-
munsdóttir, ríka á Hraunsnefi.
Foreldrar Jónu Sigurbjargar
voru Gísli Snæbjömsson og Berg-
ljót Þórðardóttir.
Níræður
Húnbogi Þorleifsson
húsasmíðameistari í Njarðvík
Húnbogi Þorleifsson húsasmið-
ur, Hólagötu 41, Njarðvik, er ní-
ræður í dag.
Starfsferill
Húnbogi fæddist á Svínhólum í
Bæjarhreppi í Lóni, Austur-
Skaftafellssýslu, og þar ólst hann
upp í foreldrahúsum. Um tvítugs-
aldur fór Húnbogi til sjós og var
þá á bátum frá Homafirði og síð-
an á vertíðum í Vestmannaeyjum.
Hann var svo við nám í Bænda-
skólanum á Hvanneyri og lauk
þaðan prófi 1943.
Eftir það fór Húnbogi til Reykja-
víkur og hóf þar nám við Iðnskól-
ann 1947 en hann lauk húsasmíða-
námi 1949 og öðlaðist siðan meist-
araréttindi 1953.
Húnbogi stundaði síðan húsa-
smíðar í Keflavik, Njarðvík og
Sandgerði en einkum á Keflavík-
urflugvelli hjá Islenskum aðal-
verktökum. Hann hóf störf hjá
Sameinuðum verktökum 1951 og
starfaði síðan hjá íslenskum aðal-
verktökum til 1992.
Húnbogi bjó í Sandgerði frá
1951 en hefur svo búið í Njarðvík-
um frá 1963.
Fjölskylda
Eiginkona Húnboga er Einarína
Jóna, f. 27.2. 1922, húsmóðir. For-
eldrar hennar: Sigurður, sem
lengi var verkstjóri í Sandgerði,
Einarsson, og Sigríður Jónsdóttir,
ættuð úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Böm Húnboga og Einarínu eru
Ragnhildur, f. 1950, búsett á
Blönduósi en maður hennar er
Karl Tryggvason bílstjóri og eiga
þau þrjú böm; Áslaug, f. 1951,
skrifstofumaður á Keflavíkurflug-
velli, en hún á einn son; Þorleifur,
f. 1953, húsasmiður og starfsmað-
ur hjá íslenskum aðalverktökum;
Guðný, f. 1955, búsett í Keflavík,
en maður hennar var Þórður
Magnússon, skipasmiður og verk-
stjóri í Keflavíkurslippnum, en
þau eiga fimm böm; Halldóra, f.
1956, búsett i Njarðvík en maður
hennar er Ámi Stefánsson, múr-
ari og starfsmaður hjá íslenskum
aðalverktökum, og eiga þau þrjá
syni; Sólrún, f. 1957, búsett í Sand-
gerði, en maður hennar er Skúli
Jóhannsson, starfsmaður við
sundlaugina þar, og eiga þau þrjú
börn; Ásgeir, f. 1960, húsasmiður
og slökkviliðsmaður á Keflavíkur-
flugvelli, búsettur í Njarðvík en
kona hans er Guðbjörg Ásbjöms-
dóttir og eiga þrjú böm.
Fósturdóttir Húnboga er Hann-
veig Valtýsdóttir, f. 1945, húsmóð-
ir á Akureyri, gift Páli Hlöðvers-
syni skipatæknifræðingi og eiga
þau fjögur böm.
Hálfsystir Húnboga, samfeðra,
var Sólveig, nú látin, sem lengi
bjó á Eskifirði, var gift Halldóri
Árnasyni útgerðarmanni.
Alsystkini Húnboga: Guðrún,
nú látin, var síðast húsmóðir í
Reykjavík, gift Skúla Sigurjóns-
syni; Inga, nú látin, bjó í Vík í
Lóni, en maður hennar var Gunn-
ar Sigurðsson bóndi sem er látinn;
Halldóra, nú látin, bjó á Eskifirði,
var gift Sigurði Gestssyni sjó-
manni; Guðmundur, fyrrv. verka-
maður á Höfn í Homafirði, var
kvæntur Hjöltu Júlíusdóttur sem
er látin; Sigurbjörg, búsett á Höfn,
gift Hannesi Erasmussyni, fyrrv.
kjötvinnslumanni við Kaupfélagið
á Höfn.
Foreldrar Húnboga: Þorleifur
Bjamason, f. 7.10. 1880, bóndi í
Svínhólum, og k.h., Ragnhildur
Guðmundsdóttir, f. 10.12. 1879, d.
11.12. 1962, ljósmóðir i Lóni.
Ætt
Þorleifur var sonur Bjarna, b. á
Hvalsnesi og síðast í Svínhólum,
Bjamasonar og Guðrúnar Þor-
leifsdóttur frá Hólum í Hornafirði.
Ragnhildur var dóttir Guð-
mundar, b. i Bæ og síðar í Svín-
hólum, Guðmundssonar og Gróu
Sigurðardóttir.
Húnbogi verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Ektafiskurehf
J $.4661016 J
Útvatnaiur saltfiskur,
ánbeina,tiluosjóða.
SérúPvatnaðursaltfiskur,
ánbeina,tilaðsteikja.
Sagir
Tenging við ryksugu
tryggir nánast ekkert
ryk á vinnustað.
Beinn og góður skurður
sem minnkar alla eftirvinnu
fyrir málara.
ArmúU IV, lOB ReykJavOt
síml. 533 1334 fax, 55B 0499
Erum með sagir með
hraðastilli, sem henta vel
til að saga gifsplötur.