Dagblaðið - 24.08.1976, Side 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 24. AGUST 1976
17
Veðrið
Gert er ráð fyrir að þaö fari að rigna
síödegis með suöaustan kalda um-
allt vestanvert landið og ó vestan-
verðu Norðurlandi í kvöld. Þurrt
verður á Norðausturlandi en skýjað.
Hiti verður víða um 10 stig, kannski
allt upp í 12—14 stig fyrir norðan.
Stefán Wathne framkvæmda
stjóri, fæddur 15. júní 1917, lézt
15. ágúst 1976 i New York. Stefán
lauk verzlunar- og vi^skiptafræði-
prófi við verzlunarháskólann í
Kaupmannahöfn 1940. í ársbyrj-
un 1955 réðst Stefán til starfa sem
framkvæmdastjóri skrifstofu ts-
lenzkra aðalverktaka í New York.
Stefán var kvæntur Soffíu
Guðrúnu Hafstein og eignuðust
þau þrjár dætur, Þórunni, Önnu
Bergljótu og Soffíu Guðrúnu.
Stefán verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag kl. 1.30.
Kristján Dýrfjörð, f. 22. júní 1892
á ísafirði, lézt 16. ágúst á Hafnar-
fjarðarspítala. Árið 1945 var
Kristján ráðinn sem umsjónar-
maður raflagna hjá Rafmagns-
veitu Hafnarfjarðar og var við
störf hjá henni þar til 1973.
Kristján kvæntist Þorfinnu Sig-
fúsdóttur frá Hlíð og eignuðust
þau fjóra syni, en misstu einn á
fyrsta ári. Þeir sem upp komust
eru Bragi, Vopnafirði, Jón á
Siglufirði, Birgir, Kópavogi.
Stjúpbörn Kristjáns voru tvö,
Baldur sem er látinn og Margrét,
búsett í Reykjavík. Þorfinna og
Kristján slitu samvistum. Þegar
Kristján fluttist til Hafnarfjarðar
kynntist hann Sólveigu Ólafs-
dóttur kaupkonu og stofnuðu þau
heimili. Hún lézt fyrir ellefu
árum. Fyrir hjónaband eignaðist
Kristján son, Hólm Dýrfjörð, sem
lengi var búsettur á Siglufirði. Nú
um nokkurn tíma hafa Hólm og
kona hans Rósa átt heimili hjá
Kristjáni í Hafnarfirði. Bálför
hans fer fram frá Fossvogskirkju
í dag kl. 13.30.
Jón Örvar Geirsson læknir var
fæddur 2. febrúar 1947. Hann
lauk stúdentsprófi frá Kennara-
skóla íslands 1968 og kandídats-
prófi í læknisfræði frá Háskóla
Islands 1975. Hann starfaði við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
frá 1. júní 1975 og gegndi auk
þess störfum á Kristneshæli um
tíma. Jón Örvar var ókvæntur.
Hann fórst í bílslysi á Spáni 12.
ágúst. Hann verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag kl. 3
síðdegis.
Helga Hólmfríður Jónsdóttir frá
Purkey lézt á Elliheimilinu
Grund 22. ágúst.
Helga P. Jónsdóttir, Lönguhlíð
21, lézt í Landspítalanum 21.
ágúst.
Heiga Halldórsdóttir, Safamýri
40, sem lézt 18. ágúst verður jarð-
sett frá Fossvogskirkju 25. ágúst
kl. 13.30.
Sigurjón Jónsson fyrrv. yfirvél-
stjóri, verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju 26. ágúst kl. 13.30.
Einar Heigi Sigfússon, Þúfubarði
8, Hafnarfirði, verður jarðsung-
inn frá Hafnarfjarðarkirkju 26.
ágúst kl. 14.00.
Arni Einarsson verzlunarstjóri
Minni-Borg, Grímsnesi, verður
jarðsunginn 26. ágúst kl. 3 síðdeg-
is.
María Guðmundsdóttir lézt í
sjúkrahúsinu á Selfossi 20. ágúst
sl.
Hjónin Freyja Finnsdóttir og Jón
ísieifsson fiskmatsmaður fórust í
umferðarslysi í Helgafellssveit
sunnudaginn 22. ágúst.
Ananda Marqa.
Dagana 23.-26. ágiKt verða haldnir fjórir
fyrirlestrar um jóga, heimspeki og þjóð-
fólagsheimspeki. Fyrirlesari verður jóginn
Ac. Mayatiita Brc.
Fyrirléstrarnir verða haldnir i Æskulýðs-
húsinu að Frikirkjuvegi 11 og hefjast kl. 20.
Efnin eru:
Þriðjudagur 24. 8.: Maðurinn og sköpun
‘^^•^"^agur 25.8.: Tantra og Astaunga
Fimmtudagur 26.8.: Þróun mannlegs sam-
félags.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Einnig gefst fólki kostur á að læra hugleiðslu
ókeypis.
Nánari upplýsingar eru gefnar á Skólavörðu-
stíg 21a. í síma i«*Qn
Teiknimyndasamkeppni
Svölurnar.Télag fyrrverandi og núverandi
flugfreyja, hyggjast efna til samkeppni
meðal barna á aldrinum 8-15 ára. Er hérum
að ræða teikningar á jólakort sem verða gefin
út fyrir jólin 1976 til styrktar þroskaheftum
börnum.
Teikningar sem verða fyrir valinu.verða
birtar ásamt nöfnum viðkomandi og þeim
veitt viðurkenning.
Teikningarnar þarf að senda til Dag-
blaðsins, Síðumúla 12 í slðasta lagi fyrir 10.
september merkt: „Svölurnar—Samkeppni."
Félag einstœðra foreldra
— Flóamarkaður
Félag einstæðra foreldra er að hefja undir-
búning flóamarkaðs síns og biður félaga og
alla sína mætu velunnara að taka til óspilltra
málanna — við sækjum heim. Sími 32601
eftir kl.*18.
Útivistarf erðir
Föstudagur 27.8. kl. 20:
Dalir — Klofningur. Berjaferð, landskoðun.
Gist inni. Fararstjóri Þorleifur Guðmunds-
son. Farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6,
sími 14606.
Föstudagur 3.9.:
Hú&avíkurferö. Aðalbláber, gönguferðir.
Fararstjóri Einar Þ. Guðjohnsen.
Fæjeyjaferð 16.—19. september. Fararstjóri
Haraldur Jóhannsson.
Vestf irðingaf élagið
í Reykjavík
eftir til þriggja daga ferðar austur í Lón
27.-29. ágúst i von um að sólin skíni í kringum
höfuðdag. Þeir sem oska ao Komast meo i
ferðina verða að láta vita sem allra fyrst í
síma 15413 vegna bíla, gistingar o. fl.
Badmintondeild KR
Vetrarstarf badmintondeildar KR hefst 1.
september. Verður það með svipuðu sniði og
áður. Þeir sem vilja fasta tíma verða að hafa
samband við stjórnina 24. ágúst milli kl. 18 og
20.
Unglingatimar verða milli 13 og 15 á
laugardögum eins og verið hefur.
Nýr
flotaforingi
Mikil skrautsýning
Karl J. Bernstein tekur í dag
við embætti flotaforingja í
herstöðinni á Keflavikurflugvelli.
Samtímis lætur Harold G. Rich af
embætti.
Mikið verður um dýrðir til
I heiðurs hinum nýja yfirmanni.
„ALUR GARÐAR FALLEGIR í
MOSFELLSSVEIT"
„Þetta er nú ekkert fallegri
garður en hjá nágrönnunum og
við þiggjum öll ráð hvert hjá
öðru,“ sagði Anna Jóna Ragnars-
dóttir í viðtali við Dagblaðið, en
hún og eiginmaður hennar hafa
hlotið verðlaun fyrir fallegasta
garðinn í Mosfellssveitinni.
Garðurinn er að Lágholti 11. „Við
erum raunar ekki búin að fá
afhent nein verðlaun ennþá enda
gerir það ekkert til,“ sagði Anna
ennfremur og vildi sem minnst ur
þessu gera. „Við eyðum ekki mjög
mörgum stundum í garðinum,
skiptumst á við verkin og þegar
hann er orðinn svona gróinn þarf
hann aðeins eðlilega umhirðu.“ Á
myndinni má einnig sjá litið
gróðurhús þar sem þau hjónin
rækta tómata og blóm. DB-mynd
Bjarnleifur. -HP.
Brotizt inn i raf-
geymaverksmiðju
tírouzi var ínn í Pólar-
rafgeymaverksmiðjuna í nótt.
Var farið inn í vinnusal og
skrifstofu. Það eina sem
saknað er að svo stöddu er
ávísun, en hún var ógild.
Laust eftir miðnætti í nótt
sást til tveggja manna þar sem
þeir voru að klifra yfir
girðingu við verksmiðjuna.
Ekki hefur enn náðst til
þessara manna.
-BÁ.
Nú geta Gaflarar farið ó Gafl-inn
— Nýr gríllstaður i Firðinum
Fyrir nokkru var opnaður nýr
grillstaður í Hafnarfirði og nefn-
ist hann Gafl-inn. Er hann til
húsa að Reykjavíkurvegi 68 þar
sem áður var Kokkurinn.
Það eru veitingamennirnir Jón
Pálsson og Einar Sigurðsson sem
sjá um allan reksturinn ásamt
eiginkonum sínum, systrunum
Pálmeyju og Fanneyju Öttósdætr-
um.
Þarna verður á boðstólum allur
algengur grillmatur og í hádeginu
verður lögð áherzla á að hafa
venjulegan neimilismat.
Veitingamennirnir hafa báðir
eldað veizlukost ofan í landsmenn
um árabil og ætla þeir að halda
f>ví áfram. Þegar blaðamaður og
jósmyndari DB litu inn hjá þeim
á laugardaginn voru þeir i óða
önn að útbúa veizlumat í brúð-
kaup. Veitingamennirnir sögðu
að algengt væri að veizlukostur
væri sendur út á land með flug-
vélum. Nýlega útbjuggu þeir mat
fyrir veizlu sem haldin var í
Bolungarvík. DB-mynd Bjarn-
leifur. — A.Bj.
Innbrotí
Kópavogsapótek
Brotizt var inn i Kópavogs-
apótek í nótt. Voru innbrots-
mennirnir gripnir á staðnum.
Nokkrar skemmdir urðu við
þetta innbrot. Innbrots-
mennirnir höfðu ekki náð í lyf.
Málið er nú í rannsókn.
-BÁ.
i
I
DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ
SIMI27022
ÞVERHOLTI 2
1
Til sölu
Tii sölu vandað
hesthús við Faxaból. Uppl. í síma
42319 eftirkl. 18.
Ódýr pottablóm
til sölu, nería, hoja, pelagónía og
fleira næstu daga á Bókhlöðustíg
2.
Ullargólfteppj,
ca 24 fermetrar, til sölu. Uppl. í
síma 72959.
Til sölu nýleg
Antares skólaritvél, ónotuð. Uppl.
i síma 19126 eftir kl. 4.
Smíðajárn.
Mjög fallegir smíðajárnskerta-
stjakar, veggstjakar, gólfstjakar
og hengikrónur til sölu. Gott verð.
Upplýsingar í síma 43337 á kvöld-
in og um helgar.
Til sölu Silver-Cross
kerruvagn. Á sama stað óskast
lítil barnakerra, enskt lingua-
phone námskeið fyrir byrjendur
og æfingahjól. Uppl. í síma 25537.
Tii sölu kringlótt borð,
—gólf-vínskápur. Telefunken út-
varpstæki, mosagrænt gólfteppi,
2.70x4m og nýr vandaður Senn-
heiser hljóðnemi (Typ:MD 421 U-
4) ásamt 5m snúru. Uppl. í síma
73083 eftir kl. 19.
Ef ykkur vantar
kassa undir kartöflur, sem þið
viljið geyma i jarðliúsunum, leitið
þá upplýsinga í sínia 10328.
Til sölu tvö
ryateppi. 2x3 metrar og 1.70x2.
Uppl. í sima 72945.
Hey til sö!u.
Uppl. eftir kl. 1 <>. i sima 66493.
Túnþökur til sölu.
Upplýsingar í síma 41896.
8
Óskast keypt
8
Vil kaupa hesthús,
4—6 hesta pláss, helzt í Víðidal,
ekki skilyrði. Vinsamlegast hring-
ið í síma 22718 eða 85502 eftir kl.
18.
Ysunet óskast
til kaups. Uppl. í síma 51328.
Verzlun
8
Hunnyrðaverzlunin
Grímsbæ við Bústaðaveg. Stærsta
rýmingarsala sem um getur. Verð
verður reiknað út um leið og
varan er keypt. Mikill afsláttur.
Notið þetta einstæða tækifæri til
mánaðamóta.
Kjöt — kjöt.
6 verðflokkar úrvals dilkakjöt á
kr. 545 kg. með sögun. Lifur 500
kr. kg, hjörtu 400 kr. kg, mör 100
kr. kg, svið 175 kr. stk. Mitt viður-
kennda hangikjöt frá 600 kr. kg.
Ný egg 380 kr. kg. Sláturhús
Hafnarfjarðar sími 50791, heima
50199. Guðmundur Magnússon.
Konur — útsala.
Konur innanbæjar og utan af
landi. Hannyrðaverzlunin Lilja,
Glæsibæ, býður ykkur vel-
komnar. Við erum með útsölu á
öllurn vörum verzlunarinnar svo
sem hannyrðapakkningum. r.va,
smyrna, krosssaum. góbelin,
naglalistaverkum.barnaútsaums-
myndum og ámáluðum stramma.
lleklugarnið okkar er ódýrasta
heklugarn á íslandi. 50 gr af úr-
vals bómullargarni kr. 180. Sjón
er sögu ríkari. I’óstsendum. Sími
85979. Hannyröaverzlunin Lilja.
Glæsibæ.
Brúðuvöggur á hjölagrind,
margar stærðir, hjólhestakörfur
og margar stærðir af bréfa-
körfum, þvottakörfum og hand-
körfum. Þá eru ávallt til barna-
vöggur með eða án hjólagrinda,
klæddar eða óklæddar. Blindra-
iðn, Ingólfsstr. 16, sími 12165.
Útsala.
Peysur á alla fjölskylduna, bútar
og garn. Síðasta vika. Anna
Þórðardóttir, Skeifan 6
(vesturdyr).
Hafnfirðingar— Hafnfirðingar,
höfum opnað skrautfiskasöl
Verið velkomin opið mánuil
föstud. 5-8, laugard. 10-2. F\
og fuglar. Austurgötu 3.