Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. Um framkomu dyravarða — þankabrot vegna greinar í Þjóðviljanum 27. nóvember 1979 8497—7624 skrifar: Ja, nú þykir mér moldin vera farin að rjúka i logninu. í Þjóðviljanum þ. 27. nóvember segjast dyraverðir á Borginni vera að hugsa um að kæra fólk fyrir líkamsárás á sig. Eftir því sem manni skilst á þessari grein var fólk þetta einn maður og tvær stúlkur en dyraverðirnir fjórir. Er nú ekki ansi ótrúlegt að dyraverðirnir, sem voru þetta margir, hefðu þurft að láta kvenmann ráðast á sig án þess að næsti dyravörður kæmi þar til hjálpar — trúlegt eða hitt þóheldur. Nú er ég ekki að mæla bót slæmri Raddir lesenda Hringið ísíma 27022 miltí kl. 13 og 15, eða skrifið Hótel Borg. hegðan fólks en mér fannst rétt að kæmi í ljós að til er fólk i Reykjavík sem hefur þannig reynslu af dyra- vörðum næstum því hvaða skemmtistaða sem er í Reykjavík, að næstum öllu er hægt að trúa upp á þessa stétt manna. Það er nú ekki langt síðan öllum skemmtistöðum var lokað kl. 11.30 og þá voru dyraverðir húsanna kóngar í sinu riki í nokkrar klukku- stundir og nutu þess allflestir í rikum mæli. Eða er nokkur, sem farið hefur á skemmtistaði, ekki minnugur þess að hafa þurft að bíða fyrir utan og siðan að horfa upp á það er dyra- verðir hafa vinsað úr hópnum kunnug andlit, vini og vandamenn, en hinir sem ekki áttu innkomu máttu bíða eins lengi og dyravörðunum þóknaðist. Og eitt er það sem okkur var alltaf óskiljanlegt í sambandi við dyravörslu húsanna, að fólk var látið bíða, jafnvel fram yftr kl. 24, en síðan var allt í einu hægt að hleypa öllum þeim inn, sem höfðu haft þolinmæði til að bíða svo lengi. Hvað gaf húsinu eða dyravörðum leyfi til þess að hleypa fólki inn eftir þennan tima? Var verið að verðlauna þá þolinmóðu? Oft og mörgum sinnum hef ég hlustað á dyravörð vera dóna- legan við gesti þeirra skemmtistaða sem ég hef farið á og hef ég oft undrað mig á þvi hvernig fólk hefur tekið því. Ekki hefur það alltaf verið þessum starfsmönnum að þakka að ekki hefur verr farið. Ætli það væri bara ekki ágætis ráð fyrir veitinga- menn að reyna að segja þessum mönnum sínum svolitið til verka áður en þeir klæðast einkennisbúningi staðarins. Nú er ég ekki að segja að það finnist ekki menn í þessari stétt, sem kunni sitt fag svo mannsæmandi sé, en því miður eru alltof margir, sem álíta þetta starf vera einhvers konar kóngahlutverk í stóra ævintýrinu. Þetta er bara eins og hvert annað þjónustustarf sem verður að rækja með alúð og vissulega er dyravörður hvers veitingahúss andlit hússins og ekki get ég ímyndað mér að veitingamenn á íslandi séu svo skyni skroppnir að þeir geri sér þetta ekki ljóst. Ég hef ekki hugsað mér að taka nein dæmi af kynnum mínum við þessa menn en þau eru mýmörg og bæði góð og slæm. Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að dyravörður hvers veitingahúss væri sá maður sem ætti að bjóða gesti velkomna en ekki kasta þeim frá húsinu. Hvar væru skemmfístaðirnir líka staddir ef ekki væru gestirnir til að sækja þá? Kannski dyravörðunum mundi líka lífið þá? Þá þyrftu þeir ekki að kæra væntanlegan gest hússins fyrir lík- amsárás. Bifreiöaafgreiðslur Aðalstöðvar Vesturbær — Miöbær — Melar: Grandagarði 5, símar 21860 — 28860 Austurbær — Hlíðar — Háaleiti: Reykjanesbraut 12, sími 20720 (4 línur) Laugarnes — Langholt — Vogar — Heimar — Smáíbúðahverfi — Bústaðahverfi — Fossvogur — Árbær: Sigtúni 1, sími 85699 (3 línur) Breiðholtshverfin: Seljabraut 54, sími 77344 (3 línur) Utanbæjarakstur: Sigtúni, sími 84399 (2 línur) Þeir sem vilja aka fyrir D-listann kjördagana eru vinsamlegast beðnir um að mæta á einhverri af ofangreindri bílastöð. Skrifstofur hverfafélaganna Nes- og Melahverfi (Melaskóli): Átthagasal Hótel Sögu, upplýsingasími 29996 Vestur- og Miðbæjarhverfi (Miðbæjarskóli): Átthagasal, upplýsingaslmi 29997 Austurbær og Norðurmýrí (Austurbæjarskóli): Templarahöllin, upplýsingasimi 19511 HUða- og Holtahverfi (SjómannaskóUnn): Hekla v/Laugaveg, upplýsingasími 29898 Laugarneshverfi (LaugarnesskóU): Borgartún 20, upplýsingasimi 29003 Langholtshverfi (Langholtsskóli): Sigtún, upplýsingasími 31991 Háaleitishverfi (ÁlftamýrarskóU): Valhöll v/Háaleitisbraut, upplýsingasími 39836 Smáibúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi (BreiðagerðisskóU): Fáksheimilið, upplýsingasimi 29733 Árbæjarhverfi (ÁrbæjarskóU); Hraunbær 102b, upplýsingaslmi 85048 Bakka- og Stekkjahverfi (BreiðholtsskóU): Seljabraut 54, upplýsingasímar 74311 — 73220 FeUa- og Hólahverfi (FeUaskóU): Seljabraut 54, upplýsingasimar 74311 — 73220 Skóga- og Seljahverfi (ölduselsskóU): Seljabraut 54, upplýsingasimar 74311 — 73220 Almenn upplýsingamiðstöð Allar upplýsingar vaiðandi kosningarnar em gefnar á vegum D-listans í síma 82900 (5 línur). Sjálfboðaliðamiðstöðvar Það fólk sem vill starfa fyrir D-listann á kjördag er beðið um að koma eða hafa samband við sjálfboðaliðamiðstöðvar D-listans Valhöll, Háaleitisbraut 1, kjallara, símar 37877 — 37977 Utankjörstaða- skrifstofan er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 39790 — 39788 — 39789 — 39787. TIL STUÐNINGSMANNA D-listans starfsstöðvar kjördagana Spurning dagsins Er rétt að efna til fegurðarsamkeppni? Haukur Michelsen: Já, já, karlmcnn líka eins og kvenmenn. Sigriður Garðarsdóltir: Nei, ciginlega ckki, þær eru eins og nauigripasýn- ingar. Pálína Georgsdóllir: Hef ckkeri t'vlgzt með þvi. Örn Guðjónsson: Já, já, fyrsi þær \ ilja það sjálfar. Guðbjörg Runólfsdóllir: Mér finnsl þetta hálf fiflalegl. Krístinn Pedersen: Ég kann mjög vel við þær, alveg sjálfsagt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.