Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. DB á ne ytendamarkaði ANNA BJARNASON. Jólafastan byrjar á morgun: FYRSTA JÓLAUÓSK) í DAG Jólamánuðurinn hefst í dag. Við skulum reyna að komast i svolítiö jólaskap og vera í því fram að jólum. Sumir eru sífellt aöamast við snemm- búnu jólaskrauti. Mér finnst sjálfsagt að gera svolítið jólalegt i kringum sig strax i byrjun múnaðarins. Það léttir skammdegið að horfa á eitthvað fallegt. Ég segi kannski ekki að skreyta eigi jólatréð og kveikja á því Þeir sem eiga „fokhelda” kransa frá i fyrra geta látið binda þá upp og skreytt þá siðan eftir eigin vali og óskum. Nota má sömu slaufur og upphengi og notuð voruifyrra með lagfæringu. fyrr en á aöfangadag en það er ýmis- legt annað sem gera má til tilbreyt- ingar. Á morgun er fyrsti sunnudagur í jólaföstunni. Þá á að kveikja fyrsta jólaljósið. Það er gert á aðventu- kransinum. — Aðventukransar fást nú i öllum blómaverzlunum og kosta um 6800—9800 kr. Einnig er hægt að hnýta kransinn sjálfur en til þess þarf greni. Reiknað er með að það þurfi um 300 gr af greni í einn krans þegar vanur maður er að verki. Hins vegar má gera ráð fyrir því að mun meira greni fari í kransinn hjá óvönum manni. í grenibúntunum eru tæp 500 gr og kostar búntið 1650 kr. (normalgreni) og 1950 kr. (nobilis). Hægt er að kaupa undirlag á 1090 kr. og krans sem búið er að hnýta grenið á á 3900. Þá er einnig hægt að koma með gamla aðventukransinn og fá sett á hann greni. Aðventukransakerti kosta um 100 kr. stykkið og pakki með tíu kertahlífum 260 kr. Aðventukrans er falleg skreyting sem skapar jólablæ. Vinsældir þeirra fara stöðugt vaxandi. DB-myndir Bjarnleifur. Jólaglögg í jólamánuði Daglega getum við notað óáfenga rauðvínið Nú í byrjun jólaföstu bjóðum við legt að fara nákvæmlega eftir henni, aðeins gott að hafa einhverja grunn- auðvitað upp á jólaglögg. Hér er hægt er að breyta til með kryddið uppskrifttil þess að styðjast við. uppskrift að glöggi. Ekki er nauðsyn- eftir smekk hvers og eins. Það er Það er heldur ekki nauðsynlegt að hafa áfengt rauðvín i glögginu. Það óáfenga fæst í flestum stærri mat- vöruverzlunum og kostar flaskan af því 992 kr. í Ríkinu má fá áfengt rauðvín á 1450 kr. Jónas Kristjáns- son ritstjóri ÐB og vínþekkjari mælti með því víni i Vikunni á dögunum þannig að það ætti að vera óhætt að' nota það. 2 fl. rauðvín 5 stk. heilar kardemommur 2 stk. heill kanill 21/2 dl sykur lOGgr rúsínur 100 gr afhýddar möndlur Rúsínurnar og kryddið er látið út í vínið og látið liggja i bleyti allt frá 2 tímum upp í 24 tíma. Þá er allt hitað í potti, sykurinn látinn út í ásamt af- hýddum möndlunum (skornar í flís- ar). Drykkurinn má ekki sjóða heldur aðeins hitna vel. Borinn fram í rauðvínsglösum á fæti ef ekki eru til hefðbundnir púnsbollar með hanka. Glögginu er ausið í glösin og rúsínur og möndlurlátnar fylgjameð. Sama aðferð er við tilbúning á glögginu þótt notað sé óáfengt rauð- vin. Hráefniskostnaður við áfenga glöggið er um 3782 (þar af 2 rauð- vínsfl. á 2900 kr.), en ef notað er óáfengt rauðvín kostar þessi skammtur 2866 kr. (þar af 2 óáfengar rauðvínsfl. á 1984 kr.). Sennilega er hentugra að nota óáfenga rauðvínið svona dagsdaglega, annars gætum vií) átt á hættu að vera búin að fá skorpulifur eða einhvern annan hræðilegan lifrarsjúkdóm í lok mánaðarins. - A.Bj. KOSNINGAGETRAUN RAUÐA KROSSINS Fridrlk Sopkoaaon h. atþlogtsm. ÉG SPÁI: Fjöldi þingmanna '78-79 Spá Alþýðubandalag 14 /3 Alþýðuflokkur 14 n Framsóknarflokkur 12 fl Sjálfstæðisflokkur 20 Aðrir flokkar og utanflokka 0 0 Samtals 60 60 Svona einfalt er aö vera með. Klippið þessa spá út og berið saman við aðrar sem birtast. ALLIR MEÐ! + RAUÐI KROSS ÍSLANDS HJÁLPARSJÓDUR HÁLFMÁNAR á RÚMAR 5 KR. STK. Nú er um að gera að koma með kökuuppskriftirnar fyrir jólin. Því fyrr sem byrjað er á bakstrinum því fyrr verður honum lokiö. Héma er uppskrift að góðum hálfmánum — frá einni af vinkonum neytenda- síðunnar: 500 grhveiti 300 gr sykur 300 gr smjörlíki 1/2 tsk. hjartarsalt legg 2 msk kalt vatn Sulta er höfð inni í og penslað yfir með eggi, síðan er mylsnu af hnetum og skrautsykri stráð ofan á. Hnoðað deig. Búnir til hálfmánar. Sulta látin á milli. Gott er að pensla brúnirnar með eggi áður en þær eru klemmdarsaman. Úr þessari uppskrift fást um 110 stk. Hráefniskostnaðurinn er um 600 kr. eða rétt um 5,45 kr. stykkið. -A.Bj. Vinkona okkar sem sendi hálfmána- uppskriftlna sendi okkur sýnishorn meö. Kökurnar smökkuðust mjög vel. Margir hafa það fyrir sið að láta málshátt 1 hálfmánana. Þeirri hugmynd: er komið á framfæri hér. DB-mynd Bjarnleifur. 7

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.