Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. GLUGGINN ’sMrrna!9 KYNNINGAR AFSLÁTTUR á pkiumobil M 1 SYSTEM LEIKFÖNGUM LAUGARDAG' MÁNUDAG- ÞRIÐ JUDAG Greenpeace-menn geta f engið báta sína aftur: Vilja fá gúmmíbátana senda til Englands — en Landhelgisgæzlan segist ekkert hafa heyrt um slíka kröf u „Tækin voru tekin.af okkur ólög- iega og því eiga íslenzk stjórnvöld að sjá um að senda tæki okkar og báta til Englands,” sagði Allan Thornton, talsmaður Greenpeace-samtakanna í samtali við DB í gær. Sem kunnugt er voru bátar Greenpeace-samtakanna og tæki þeirra gerð upptæk af Land- helgisgæzlunni í sumar. ,,Ég hef ekki séð neina slíka kröfu frá Greenpeace-samtökunum,” sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæzlunnar, e,r DB innti hann álits á þessum ummælum Thorntons. „Við erum búnir að skrifa þeim fyrir alllöngu og tilkynna, að þeir geti fengið tæki sín hvenær sem þeir vilji.” Aðspurður um hvað honum sýnd- ist um slíka kröfu, kæmi hún fram, sagðist Pétur ekki hafa litið á málið frá því sjónarhorni en augljóst væri að Landhelgisgæzlan gæti ekki staðið í því aö senda þessi tæki og báta eitt- Grsnfriðungar sigla einum báti sinum út úr Reykjavikurhöfn i sumar. DB-mynd ÁPJ. hvað út i heim. Hins vegar stæðu bát- peacemenn sótt þau hvenær sem er. arnir og tækin tilbúin og gætu Green- Á því yrðu engar hömlur. -GAJ Vöruflutningabillinn sveigði þvert yfir Elliðavoginn og staðnæmdist uppi á vélarhúsi fólksbilsins. Dýr tengibraut inn á Elliðavog: SEX MENN í SLYSADEILD OG TVHR BÍLAR ÓNÝTIR - DB-mynd Sv. Þorm. —og það allt á tveimur dögum í fyrradag varð umferðarslys af og er fólksbíllinn ónýtur eftir. stærri gráðunni á Elliðavogi móts við Á miðvikudag varð árekstur á þess- Súðarvog en þar er verið — til mikilla um sömu gatnamótum er ökumaður óheilla — að opna bílum leið á Elliða- ætlaði aö taka þar U-beygju. Varð þá voginn af Súðarvogi. Þar slösuðust þrir harður árekstur, þrír voru þá einnig menn í fólksbil sem nánast varð undir fluttir í slysadeild og annar bílanna er stórum og þungum vöruflutningabíl afskrifaður sem ónýtur. Sem sagt: á tveimur dögum hafa sex menn slasazt á sama horninu og tveir bílar eyðilagzt. Þessi tenging Súöarvogs við Elliöavoginn virðist heldur dýr- keypt og spurning hvort ekki eigi þegar i stað að loka henni aftur. - ASt. Athugasemd frá Ragnhildi Helgadóttur „Alvaríeg ósannindi” Ragnhildur Helgadóttir kom að máli við blaðið i gær með athugasemd við kjallaragrein Svövu Jakobsdóttur þann dag. ,,í Dagblaðinu birtist í gær grein eftir Svövu Jakobsdóttur, þar sem sögð eru um mig alvarleg ósannindi, sem ég vil ekki láta ósvarað,” sagði Ragnhildur. ,,Hún endurtekur enn á ný þau ósann- indi ofstækismanna úr Alþýðubanda- laginu, að ég hafi í þingræðu krafizt ritskoðunar og refsingar. Hvort tveggja eralrangt. Hitt er rétt, að ég notaði það tján- ingarfrelsi sem okkur er ennþá búið í þessu þjóðfélagi, til að gagnrýna. Við- brögð kommúnista við gagnrýni minni eru hins vegar svolítil áminning um það, aö í draumalandi þeirra er gagn- rýni ekki þoluð. Þeir sem leyfa sér að nota þau mannréttindi aö gagnrýna, þar sem kommúnistar ráða ríkjum, eru umsvifalaust bornir ósönnum sökum með þeim hrikalegu afleiðingum og mannréttindaskerðingu, sem samtíma- sagan frá kommúnistaveldunum sýnir okkur. Þess vegna er það dýrmætt að hafa frelsi til að bera af sér óheiðarlegar sakargiftir, frelsi til að tjá sig, frelsi til aðgagnrýna.” -HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.