Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 17

Dagblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 17
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. 17 „Ég er ekki íhaldssamur landsliðseinvaldur” — sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, einvaldur íslenzka landsliðsins í handknattleik „Eg er ekki ihaldssamur einvaldur. Ég hef gjörbylt landsliðinu tvívegis á tveimur árum. Ég tel að nú sé rétti tím- inn til breytinga en ég geri mér grein fyrír því að róðurinn á Baltic-keppninni verður erfiður. Ég er reiðubúinn til að standa og falla með mínum ákvörðun- um. Standi landsliðið sig ekki vel er ég reiðubúinn til að taka pokann minn í vor.” sagði Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðseinvaldur á biaðamannafundi er haldinn var i gær í sambandi við val landsliðsins i handknattleik i fyrri viku. Talsvert var deilt á einvaldinn vegna þeirrar ákvörðunar hans að hafa Ólaf H. Jónsson ekki í hópnum. „Ég tel að Ólafur sé ekki í nægilega góðri æfingu og það er mín skoðun að félagsliðin eigi að skila leikmönnum í góðri þjálf- un og það eigi ekki að vera hlutverk landsliðsins að sjá um þá hlið málsins. Þá tel ég ákaflega óliklegt að Ólafur gæti verið með okkur nema bara i Baltic keppninni, m.a. vegna mikilla anna í starfi. Landsliðið mun æfa allt næsta sumar og ég er að byggja upp tpeð B-keppnina 1981 í huga.” 1 því sambandi má benda á að miklar likur eru á að B-keppnin verði haldin hér á landi og fari svo — sem væri ósk- andi — verður hér um mesta íþrótta- viðburð að ræða á íslandi fyrr og síðar. HSÍ hefur sótt um að halda keppnina og vonir standa til að ísland verði vett- vangur þessarar miklu keppni. Ákvörðun um það mun verða tekin fyrir lok janúarmánaðar og því fróð- legt að fylgjast með framvindu mála'. Einnig var rætt á fundinum hvort ekki hefði verið rétt að hafa leikreynda kappa eins og t.d. Björgvin Björgvins- son og Axel Axelsson með i hópnum. „Björgvin gaf afsvar í fyrra og slíkt hið sama gerði Axel,” sagði Jóhann Ingi. „Menn fá ekkert nema heiðurinn fyrir að spila fyrir íslands hönd. Yngri menn eru að mínu mati þar af leiðandi miklu frekar tilbúnir til þess að fórna sér og það er það sem við þurfum. Við verðum þó að gera okkur grein fyrir því að handknattleikurinn á íslandi getur ekki gert sér vonir um betri tið nema ,komi til gerbreytt aðstaða," sagði Jó- hann Ingi. - SSv. ■V . MARSIPANHJUPUR v :- , . — VANIUJUIS ÍSPRAUTUÐ ROMMSÓSA SÚKKULADIIS KRANSAKOKUBOTN Nýr aðall ftá Entinrt fcidi i rriar lagskipt lostæti í emangprunarumbuÖum Við látum okkur ekki segjast. Nú er það Veisluterta. Lagskipt lostæti sem slær öllum ístertum við í glæsileik. Og nú þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að hún þiðni áður en heim er komið, því nýju einangrunarkassarnir gefa þér 2ja tíma forskot. En örlög hennar eftir heimkomu þorum við ekki að ábyrgjast. Nema bragðið, það er gulltryggt. EMMESS ÍSlHimiR w m 3. stiga for Staöan i 1. deild eftir sigur Vikings á FH í gærkvöld. Víkingur FH KR Valur Haukar ÍR Fram HK 0 0 1 2 134— 107 135— 127 135—126 123— 113 124— 133 104—105 100—111 96—131 Síðasti leikurinn i 6. umferð er í kvöld i Laugardalshöll. Þá leika Fram og ÍR. Leikurinn hefst kl. 21.00. Rúmenía vann V-Þýzkaland „Stórbikarinn” I handknattleik hófst i Dortmund i V-Þýzkalandi i gær. Í fyrstu leikjunum sigraði Rúmenia Vestur-Þýzkaland 16—15 (8—8) og Sovétríkin Júgóslavíu 19—16 (10—7). I stórbikarnum leika heimsmeistarar og ólympíumeistarar eftir síðarí heims- styrjöldina. Ulfamir í undanúrslit — eftir sigur yfir Grimsby í gærkvöld í deildarbikamum — samkvæmt úttekt bandaríska tímaritsins Playboy á háskólakörfuknattleiknum Lílið hefur hcyrzt af högum Péturs „risa” Guð- mundssonár í körfuknattleiknum i Bandarikjun- um en þar leikur hann með liði Washington, sem flestum körfuknattleiksunnendum hérlendis er vafalitið kunnugt. Fyrir skömmu rákumst við á grein um bandaríska háskólakörfuknattleikinn i hinu sívinsæla og víðlesna tímaríti Playboy. Þótt Playboy sé reyndar þekkt fyrir flest annað en iþróttaskrif hefur blaðið haldið þeirri hefð að birta itarlega úttekt á háskólakörfuknattleiknum i des- emberhefti sinu ár hvert. Háskólaliðunum er skipt niður í 5 megindeildir, The East, Mid-West, The South, Near-West og Far-West. Innan jtessara deilda eru svo margar minni deildir. Ails munu vera um 200 háskólalið i þessum 5 megindeildum og því geysilegur fjöldi körfuknattleiksmanna i éldlínunni. Það vekur þvi að vonum mikla athygli hér heima að sjá nafn íslendings á meðal 8 beztu miðherj- anna í háskólakörfuknattleiknum. Playboy velur Pétur í 30 manna „All-America-Squad” og er hann eini leikmaðurinn úr sinu liði sem kemst í þetta lið. Þetta er ekki svo litill heiður fyrir Pétur, en hann hefur verið i stöðugri framför allt frá þvi hann hélt til náms í Bandaríkjunum. I stuttri klausu um Pétur í blaðinu segir að Pétur sé nú loks kominn i þann gæðaflokk sem við var búizt af honum. Sannarlega lofsverð ummæli um Pétur. Playboy velur einnig 20 beztu liðin og aðeins tvö lið, Oregon State og Southern California, úr Far- West-deildinni, sem lið Péturs er í, komast í þann’ hóp. I úttekt á Far-West deildinni er Pétur tví- mælalaust talinn bezti leikmaður Washington og reyndar er hann eini leikmaður liðsins, sem getið er í blaðinu. - SSv. „Afl-Ameríca-Squad” FRAMVERÐIR: Kelly Trípucka (Notre Dame), Kiki Wanderweghe (UCLA), Michael Brooks (La Salle), Gene Banks (Duke), Hawkeye Whitney (North Carolina State), Tracy Jackson (Notre Dame), Mike Woodson (indiana), Sam Clancy (Pittsburgh), DeWayne Scales (Louisiana State), Al Wood (North Carolina), Purwis Miller (Southem CalHornia), Dick Miller (Toledo). MIÐHERJAR: Steve Johnson (Oregon State), Rossevelt Bouie (Syracuese), Herb Williams (Ohio State), Rudy Woods (Texas A Cr| M), Rickey Brown (Mississippi State), Jonathan Moore (Furman), Dean Uthoff (lowa State), Pétur Guðmundsson (Washington). BAKVERDIR: Darroll Gríffiths (Louisville), Bill Hanzlik (Notre Dame), Dwight Andorson (Kentucky), Jeff Lamp (Virginia), Rich Branning (Notre Damo), Kelvin Ramsey (Ohio State), Chad Kinch (UNCC), Wesley Matthews (Wisconsin), U.S. Reed (Arkansas), Rintie-Ray Williams (Nevado^Las Vogas). usta Víkings — eftir sigur á FH í 1. deildinni í handknattieiknum í gærkvöld „Þetta var góður leikur — FH hefur góðu liði á að skipa en leikmenn mínir voru sterkari likamlega. Höfðu betra úthald og héldu höfði. Börðust vel og hugsuöu. Sigruðu því. Ég er átiægður með leik þeirra, einkum í síðarí hálf- léiknum,” sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Vikings, eftir að Víkingur sigraði FH í hörku-skemmtilegum og góðum leik i Laugardalshöll í gærkvöld 22—18 að viðstöddum tæplega 1000 áhorfendum, sem létu mjög i sér heyra. Mikil spenna lengstum en Víkingur sterkari eftir þvi, sem á leikinn leið. FH hafði tvívegis i fyrri hálfleik fjögurra marka forskot. Liðsstjóri FH, Ragnar Jónsson, var skiljanlega ekki eins ánægður eftir leikinn. Hann sagði. „FH gat ekki sigrað í leiknum með þessari dómgæzlu.” Það var góður handknattleikur, sem liðin sýndu. FH-ingar komu mjög ákveðnir til leiks. Fóru oft á kostum i fyrri hálfleiknum. Náðu fallegum fléttum og skoruðu glæsileg mörk. I markinu varði Sverrir Kristinsson eins og berserkur framan af — en dalaði, þegar á leið og í s.h. varði hann varla skot. Skot Víkinga þá líka hnitmiðaðri. í heild bezti leikur FH á mótinu þrátt fyrir tapið. Víkingsliðið gafst ekki upp þótt á móti blési framan af og þá alltaf á brattann að sækja. í síðari hálfleiknum náði það stórleik — lék mjög sterka vörn og að baki var Jens snjall í markinu. Víkingar klipptu á sóknar- fléttur FH með þvi eð leika með tveim- ur mönnum mjög framarlega í vörninni. Greinilegt að Bogdan hafði í leikhléinu gefið sínum mönnum góð ráð. Svo sterk var vörn Víkings og markvarzla Jens að FH skoraði ekki mark í s.h. nema úr vítaköstum, þar til nokkrum sekúndum fyrir leikslok, að Pétur Ingólfsson sendi knöttinn í mark- ið með langskoti framhjá Jens. Eftir þessi úrslit hefur Víkingur náð 3ja stiga forskoti i 1. deildinni. Það kom á óvart í byrjun að Viking- ar léku ekki með sínu sterkasta liði — hins vegar tveimur línumönnum og Páll utan vallar í sókninni. Það heppnaðist ekki. FH komst i 3—1 eftir 7 mín. Þá breyttu Víkingar um leikað- ferð en komust lítið áleiðis. Sverrir þeim mjög erfiður og eftir 18. min. var staðan 8—4 fyrir FH. Hörkuleikur og falleg mörk FH. Enn var fjögurra marka munur eftir 23 min. 10—6 fyrir FH. Lokakaflann í f.h. voru Víkingar sterkari. Staðan í hálfleik 11—9 fyrir FH. Staðaní 1. deild Víkingar voru mjög ákveðnir i s.h. Skoruðu þrjú fyrstu mörkin og komust i 12—11. Jafnt var síðan á öllum tölum upp í 15—15. Síðan fór að draga í sundur og þá urðu liðsstjóra FH á mistök — sendi Guðmund Árna inn á, svo leikmenn FH voru einum fleiri en þeir áttu að vera. Karl dómari fljótur að sjá það og Guðmundur Árni útilokaður það, sem eftir var leiksins. FH einum færri í 2 mín. Víkingar skoruðu fimm mörk í röð um miðjan hálfleikinn. Breyttu stöðunni i 19—15 og sigur í höfn. Síðan 22—17 en FH skoraði síðasta mark leiksins. Mörk Víkings Erlendur 6, Sigurður 5, Árni 4/1, Páll 4/2, Þorbergur 2, Steinar 1. Mörk FH Kristján 9/8, Valgarður 2, Sæmundur 2, Pétur 2, Geir 1, Magnús 1 og Guðmundur Árni. 1. -hsím. Piltalandsliðið valið Valinn hefur verið 24 manna hópur tilcundirbúnings fyrir Norðurlandamót pilta i handknattleik, sem fram fer í Finnlandi í vor. Samkomulag var á meðal Norðurlandaþjóðanna að hækka aldursmörkin um 1 ár i þessari keppni mcð hliðsjón af Heimsmeistara- keppni unglinga 1981. Venjulega hafa leikmenn ekki verið eldri en 18 ára cfi nú mega leikmenn vera 19 ára gamlir. Undirbúningur liðsins er þegar liafinn og er Pétur Jóhannesson þjálfari þess en Jóhann Ingi Gunnarsson mun hafa yfirumsjón með liðinu. Ætlunin er að þessi hópur fái fyrsta verkefni sitt gegn landsliði Bandarikjamanna, sem mun sækja okkur heim á milli jóla og nýárs. Barcelona í efsta sætinu „Við sigruðum Granoller, 20—28, á útivelli um helgina og höfum nú 27 stig úr 14 umferðum,” sagði Viggó Sigurðsson, þegar DB ræddi við hann i gær i Laugardalshöll. Hann var þar að horfa á leik Vikings og FH og þar var einnig annar landsliðsmaður úr Vík- ingi, sem leikur erlendis, Stefán Hall- dórsson. Barcelona, liðið, sem Viggó leikur með á Spáni, er efst með 27 stig. Atletico Madrid hefur 23 stig og Calpisa Alecante 22. Þau lið hafa leikið einum leik minna. Viggó hefur skorað um 50 mörk i leikjum sínum með Barcelona. Érlendur Hermannsson frír á linu og sendir knöttinn framhjá Sverri Kristinssyni, markverði FH, sem varði með ólikindum I fyrri hálfleik. Þarna kom hann ekki við vörnum og Erlendur átti sinn bezta leik á keppnistímabilinu. Árni Indriðason og Valgarður Valgarðsson fylgjast með. DB-mynd Halla. Úlfarnir — Wolverhamplon Wanderers — tryggðu sér sæti i undan- úrslilum enska deildabikarins í gær- kvöld í Dcrhy, þegar þeir sigruðu Grimsby 2—0. Það var annar leikur liðanna. Jafntcfli 1—1 varð í þeim fyrri eftir framlengingu í Wolverhampton. Rochdale-Tranmere 2—I York-Bury 1—2 Millwall-Croydon 3—2 Halifax-Walsall I — I Torquay-Swindon 3—3 Wimbledon-Portsmouth 0—0 Millwall sigraði eftir framlengingu. Úlfarnir náðu forustu með marki Ken Hibbitt úr vítaspyrnu er langt var liðið á leikinn. Miðvörður Grimsby, Clive Wiggington, braut á sóknar- manni Úlfanna en leikmenn Grimsby héldu því fram, að brotið hefði verið framið utan vítateigs. Sjö min. siðar skoraði John Richards síðara mark Úlfanna — knölturinn fór af Wigginton í mark Grimsby. Í undanúr- slitum leika Úlfarnir við Swindon, heima og að heiman. Chelsea náði forustu i 2. deild í gær eftir jafntefli við QPR á útivelli 2—2. Hefur betri markamun en Newcastle. Það virtist stefna í sigur Chelsea, en aðeins tveimur min. fyrir leikslok jafnaði Clive Allen fyrir QPR með frá- bæru skoti. Skotland tryggði sér rétt i undan- úrslil Evrópukeppni landsliða í gær, leikmenn 21 árs og yngri, eflir jafntefli 2—2 við Belgiu í Edinborg. I ensku bikarkeppninni, 2. umferð, urðu úrslit þessi: Chester-Barnsley I—0 Harlow-Southend 1—0 „Jólasveina- hátíd” í höll- inni á morgun Á morgun verður haldin heljarins mikil „jólasveinahátíð” í Laugar- dalshöllinni á vegum HSI og íþrótta- fréttamanna. Verður þar margt sér til gamans gert. Landsliðið mun leika við pressulið og þá mun unglingalandsliðið- (18 ára og yngri) leika við landslið ísalnds frá 1966. Þá verður tizku- sýning. Skúli Óskarsson og nokkrir félagar hans munu reyna með sér í reiptogi gegn sljórn HSI og fleiri gestum. Síðast en ekki sizt ber að geta þess að fyrsta heimsmeistarakeppnin í innanhússknaltspyrnu, verður haldin annað kvöld. Munu þar leika lið skemmtikrafta, alþingismanna og svo að sjálfsögðu hið ósigraða lið iþrólta frétlamanna. Nánar verður greint frá þessari frábæru skemmtun í DB á morgun. erum vid konún meó tutt hús at jöto- skrauti og jóhpappk sem enginn annar ermeá EINNIG: Dúkar Servíettur Bönd Slaufur Merkimiöar Kort Kerti, spil Leikföng MUhGsio Laugavegi 178 — Sími 86780 (nœsta hús við Sjónvarpið) Þessi nýlega mynd af Pétrí sýnir hann hirða frákast i einum leikja Washington. íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Víkingur-FH 22-18 (9-11) itlandsmótið 11. daild karta I handknatUeik, Vikingur - FH. 22-18 19-11) i Laugardatshöll 18. desember. Beztu leikmenn: Sigurður Gunnarsson, Vkingi, 9, Ámi Indríðason, Víkingi, 8, Kristján Ara- son, FH, 8, Eriendur Hermannsson, Vikingi, 8, Jons Einarsson, Vikingi, 8. Vikingur. Jens Einarsson, Krístjén Sigmundsson, Péll Björgvinsson, Ami Indríðason, Por- bergur Aðalsteinsson, Steinar Birgisson, Ólafur Jönsson, Eríendur Hermannsson, Sigurður Gunnarsson, Guðmundur Guðmundsson, Brynjar Stef&nsson, Heimir Karísson. FH: Sverrir Krístinsson, Magnús Ólafsson, Geir Hallsteinsson, Sœmundur Stefénsson, Guð- mundur Magnússon, Valgarður Valgarðsson, Krístján Arason, Guöm. Áml Stefénsson, Pétur IngóHsson, EyjóHur Bragason, Magnús Teitsson, Ami Ámason. Dómarar Karí Jóhannsson og Gunnar Kjartansson. Vikingur fékk 4 vitakösL Nýtti þrjú. Sigurður étti vitaskot i stöng. FH fékk 8 vitaköst. Nýtti öll. Þremur leikmönnum FH var vikið af velli, Guðmundi Mag., Guðmundi Áma og Sœmundi. Einurh Vikingi. Áhorfendur 960. PÉIUR EINNAF ÁnA BEZTU MIDHERJUNUM!

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.