Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. Guðrún Á. Símonar við afgreiðslustörf Milli sjötíu og áttatíu manns not- uðu sér tækifærið og kcyptu hljómleikaplötu Guðrúnar Á. Simonar, er söngkonan tók að sér af- greiðsluna í hljómplötudeild Fálkans á laugardaginn var. Að sjálfsögðu áritaði Guðrún plöturnar fyrir viðskiptavinina. Plata Guðrúnar var hljóðrituð á afmælistónleikum hennar í Háskóla- bíói í vor. Þá fagnaði hún fjörutíu ára söngafmæli sínu. Auk Guðrúnar koma fram á plötunni rnargir söngvarar aðrir. Þar á meðal eru Þuríður Pálsdóttir, félagar úr kór Söngskólans í Reykjavík og Magnús Jónsson. -DB-mynd: RagnarTh. ENSKA HUÓMSVEITIN GOLD SLÆR í GEGN í RÚSSLANDI Enska hljómsveitin Gold er ein al- vinsælasta erlenda hljómsveitin i Sovétríkjunum um þessar mundir. Gold fór í hljómleikaferð austur fyrir járntjald fyrir nokkru og dvaldist meðal annars í 75 daga í Sovét- ríkjunum. Þar lék hún að meðaltali fyrir tíu þúsund manns á hverjum hljómleikum. Það furðulega við hljómsveitina Gold er að utan Sovétrikjanna er hún svotil óþekkt. Þar til síðastliðið suntar hafði hún ekki sent frá sér eina einustu plötu. Sú fyrsta nefndist Gold Live From Moscow og var tekin upp á hljómleikum í Moskvu. Hún hlaut mjög góðar viðtökur í Sovét- ríkjunum. Liðsmenn Gold eru að vonum i sjöunda himni yfir þessari óvæntu velgengni sinni. John Shehen hljóm- sveitarstjóri segir: „Þetta er allt mjög furðulegt. Einn daginn máttum við þakka fyrir að fá að spila á litlum klúbbum i Birmingham. Nokkru síðar vorum við komnir á svið í Leningrad og lék- um fyrir ellefu þúsund æpandi áheyr- endur.” Vinsældir Gold leiddu til þesS að gerður var sjónvarspþáttur með hljómsveitinni. Það varð til þess að eftirspurn eftir miðum á hljómleika hennar stórjókst. Á hljómleikum í Yalta var dóttir Brezhnevs forseta meðal gesta. Forsetanum sjálfum nafði verið boðið, en hann sá sér ekki fært að koma og sendi dóttur sina í staðinn. Henni líkaði leikur Gold svo vel að hún tryggði sér þegar miða á næstu hljómleika. Ufnaryfír tónlist diskótekanna DB-myndir: Ragnar Th. -PELS-PELS UM JÓUN Mídas HVERAGERÐI SÍM199-4499. Pelsjakkar, peysur - pils í úrvafi - jakkann mð nota á innhverfu sem úthverfu. Pöstsendum Þau tvö diskótek í Reykjavík, sem til þessa hafa eingöngu boðið upp á danstónlist af hljómplöt- um, hafa nú tekið lifandi tónlist upp á arma sína einn dag í viku. Diskótekin eru Hollywood og Óðal. Undanfarna miðvikudaga hefur „big band” undir stjórn Gunnars Ormslevs leikið í Óðali. Á síðasta miðvikudagskvöld bauð Hollywood gestum sínum upp á leik hljómsveitarinn- ar Mezzoforte, auk þess sem kynntur var jass af hljómplötum fyrrihluta kvöldsins. Ætlunin er sú að hafa lifandi tónlist sem fastan lið í skemmtipró- grammi Hollywood í fram- iíðinni! - ÁT ASGEIR TÓMASSON

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.