Dagblaðið - 14.01.1980, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 1980.
Leyfið nýrrí stjömu að skína:
lohn Travolta í sjónvarpið
„Ég” skrifar:
Kvikmyndirnar Grease og Saturday
Night Fever hafa báðar verið sýndar
hér á landi eins og eflaust flestir vita.
Leikarinn John Travolta varð mjög
vinsæll og því finnst mér furðulegt að
ekki skuli hafa verið sýndar hér aðrar
myndir sem hann hefur leikið í, eins og
t.d.: Kotter-sjónvarpsþættirnir, Carrie,
Moment by Moment, The Boy In The
Plastic Bubble og Bus stop. Þessar
myndir yrðu áreiðanlega mjög vinsælar
hjá ungu kynslóðinni sem gjarna vill
sjá eitthvað annað en bara gömlu
kempurnar. Auðvitað geta þær verið
góðar en bara ekki of mikið af þeim.
Af hverju ekki að leyfa nýrri stjörnum
að komast að líka?
»
John Travolta sló sannarlega í gegn í
myndunum Saturday Night Fever og
Grease sem sýndar voru hér. „Ég” vill
fá fleiri myndir með stjörnunni.
Fríðrik
gæti
bjargað
Reykja-
víkur-
mótinu
Skákunnandi hringdi og lýsti áhyggj-
um sinum yfir þvi ef ekki yrði af þátt-
töku Friðriks Ólafssonar og Viktors
Kortsnoj i Reykjavikurmótinu i skák
sem hefst í lok febrúar.
„Skákhreyfingin hér á landi mundi
líða fyrir þetta. Ég tel að það sé á valdi
Friðriks Ólafssonar, forseta FIDE, að
koma í veg fyrir að einvígi Kortsnojs og
Petrosjans rekizt á Reykjavikurmótið.
Það þyrfti ekki að færa það til nema
um nokkra daga til að Kortsnoj gæti
tefit hér. Hann hefur lýst því yfir að
hann taki þátt í Reykjavíkurmótinu ef
það rekist ekki á einvigið. Það yrði
auðvitað mjög þýðingarmikið fyrir
Kortsnoj að tefla hér því þá reynir á
hvort Rússum sé alvara með þvi að láta
af útilokunarherferð sinni gegn Korts-
noj.
Það er ekki óeðlilegt að Friðrik beiti
áhrifum sínum til að verða islenzku
skákhreyfingunni aö liði.”
Jón Guðmundsson hringdi:
Ég æski þess hér með að komið verði
upp umferðarljósum við Tollstöðina í
Tryggvagötu. Umferð, bæði gangandi
og akandi, er þar oft svo mikil að sam-
felld bílalest myndast alla leið upp i
Rauðarárvík og hefur það tekið mig
upp í þrjá stundarfjórðunga að komast
frá Skúlatorgi og vestur á Granda. Ég
hefði haldið að það væri sparnaður
fyrir rikið að koma upp ljósum og
draga þar með úr bensíneyðslu bíla.
Raddir
lesenda
Spurning
dagsins
Hefurðu lesii*
eitthvað af
uK-
um?
Steindór Marteinsson gullsmiður: Enga
þeirra. Ég geri það kannski með tíman-
um.
Ragnhildur Hreiðarsdóttir húsmóflir:
Nei, ég hef ekki haft tima til þess. Ég
hef ekki einu sinni haft tíma til að at-
huga hvort ég hef áhuga á einhverri
þeirra.
• Dóra Ingvarsdóttir tækniteiknari: Nei,
en ég ætla mér að lesa einhverja þeirra.
Tómas Þórðarson, vinnur hjá Smjör-
líki hf.: Já, já, nokkrar af þeim. En þvi
miður hafa þær ekki vakið hjá mér
neinn verulegan áhuga.
Eyvör Baldursdóttir, vinnur vifl út-
akstur hjá Hólagarði: Já, 16 stykki.
Þær eru allar mjög góðar.
Helga Kristlefrsdóttir húsmóðir: Nei,
ósköp litið. Ég hef ekki mátt vera að
því fyrir vinnu.