Dagblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 12
12
C
DAGBl AÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. JULl 1980.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþró
Heimsmethafinn sigraði
Skotann á marklínunni!
— Gíf urleg keppni Pietro Mennea og Allan Wells f200 metra hlaupinu
„ítveggja manna úrslitahlaupi”
ílulski heimsmethafinn í 200 m
hlaupi, Pietro Mennea, sýndi i j>ær
gífurlega keppnishörku í úrslitum 200
m hlaupsins á olympíuleikunum — allt
benti til þess að Skotinn AllanWells
mundi vinna tvöfalt I spretthlaupun-
um. Hafði gott forskot en Mennea var
á annarri skoðun. Smávann upp mun-
inn og vann svo Skotann á mark-
línunni. Var tveimur hundruðustu úr
sekúndu á undan í mark.
Wells fékk að þessu sinni mjög gott
viðbragð og var vel fyrstur þegar á
beinu brautina kom en Mennea sem
hljóp á áttundu brautinni talsvert á
eftir. En svo fór Mennea að vinna upp
muninn á Wells og hlaupið varð
einvígi milli þessara tveggja hvítu
Annað lengsta stökk
í sögu langstökksins
—Austur-Þjóðverjinn Lutz Dombrowski stökk 8,54 metra
,,Eg hef ekki trú á að Bob Beamon
hefði sett heimsmet sitt við venjulegar
aðstæður. Heimsmet hans, 8,90 metr-
ar, er einstætt og ég hef ekki trú á að
mér takist að bæta það,” sagði Austur-
Þjóðverjinn, Lutz Dombrowski eftir að
hann hafði tryggt sér ólympíumeistara-
titilinn í langstökki i Moskvu i gær.
Stokkið 8,54 metra. Annað lengsta
stökk f sögu langstökksins.
Hinn 21 árs Dombrowski var í sér-
flokki í langstökkinu og bætti Evrópu-
met sitt verulega þó hann kæmist ekki
nálægt árangri Beamon frá Mexíkó-
leikunum 1968. Árangur í langstökkinu
var mjög góður. Sjö fyrstu keppend-
urnir i gær stukku lengra en snillingur-
inn Jesse Owens, þegar hann varð
ólympíumeistari í Berlín 1936 með 8,06
metra. Ótrúlegur árangur þá — fyrir 44
Trúiröu því
aö þetta sé
ódýrasti appel- r
sinusafinn á
markaönum?
Ef ekki,
relknaöu þá
sjálfur.
Floridana appelsinuþykkniö jafngildir heilum
litra al hreinum appelsinusafa frá Ftorida.
Mjolkursamsalan í Reykjavík
árum.
Það merkilega með Dombrowski er,
að hann tryggði sér ekki sæti í austur-
þýzka liðinu fyrr en hann setti Evrópu-
met sitt 5. júlí sl. Úrslit:
Lutz Dombrowski, A-Þýzkal. 8.54
2. Frank Paschek, A-Þýzkal.
3. Valery Podluzhnyi, Sovét,
4. Laszlo Szamla, Ungverjal.
5. Stanislaw Jaskulka, Póll.
6. Viktor Belsky, Sovét,
7. Antonio Cargos, Spáni,
8. Yordon Yanev, Búigaría,
Kjeld Rasmussen sigraði f leirdúfuskyttirfi á ólympfuleikunum f Moskvu og færði
Dönum eina gull sitt til þessa á leikunum.
Verkamaðurínn
nældi í gullið
—sigraði í leirdúfuskotkeppninni
Danski verkamaðurinn Kjeld Ras-
mussen vann eina gull Dana á ólympiu-
leikunum til þessa er hann sigraði i leir-
dúfuskotkeppni á laugardag. Vegna
þrengsla hefur ekki enn gefizt rúm til
Sænsktgull
Svíinn Johan Hermenberg varð
ólympíumeistari i skylmingum á
leikunum í Moskvu i gær. Það var i
épée-flokki, langt, oddhvasst sverð.
Næstur varð Kolczonay, Ungverja-
landi og þriðji varð Philippe Riboud,
Frakklandi.
að segja frá þessu. Keppnin var geysi-
lega hörð og að henni lokinni voru
fimm skotmenn með 196 af 200 mögu-
legum.
Varð þá að fara fram aukakeppni.
Pavell Pulda frá Tékkóslóvakíu og
ítalinn Celso Giardini misstu fljótlega
af lestinni og urðu i 4. og 5. sæti en
Rasmussen, Svfinn Lars Göran Karls-
son og Kúbumaðurinn Roberto Castr-
illo börðust um fyrsta sætið. Carlson
missti af einni leirdúfu i úrslitakeppn-
inni en Castrillo af tveimur. Rasmussen
lét hins vegar ekkert hafa áhrif á sig og
splundraði öllum dúfunum og hlaut
fyrsta sætið að launum.
hlaupara. Mennea sýndi gífurlega
hörku og tókst að sigra en ekki hefði
hlaupið þó mátt vera metra styttra.
Glæsilegur sigur hins 28 ára Mennea,
sem hefur verið bezti 200 m hlaupari
heims um nokkur ár. Alan Wells,
Skotinn snjalli, hafði ekki alveg nóg út-
hald en um tíma virtist hann öruggur
um sigur. Var þremur metrum á undan
Mennea þegar 70 m voru eftir en
ítalinn átti ótrúlegan endasprett sem
nægði. Hann var mjög vinsæll sigur-
vegari í Moskvu í gær. Hljóp á 20.19
sek. og var því langt frá heimsmeti
sínu, 19,72 sck.. sett í þunna loftinu í
Mexikóborg i fyrra.
Þessir tven voru í sérflokki í
Moskvu en ólympíumeistarinn Donald
Quarrie frá Montreal-leikunum varð
að láta sér nægja þriðja sætið. Það var
Blikastúlkur
meistarar
Breiðabliksstúlkurnar urðu i gær
íslandsmeistarar i kvennaknattspyrnu
er þær sigruðu FH 4—1 á Kaplakrika-
velli i Hafnarfirði. Fyrir leikinn var
staðan mjög tvisýn. Ef leiknum hefði
lokið með jafntefli hefði orðið auka-
leikur á milli Breiðabliks og Vals. Ef
FH hefði unnið hefði Valur orðið
meistari og Breiðablik varð þvi að sigra
til að vera öruggt með titilinn.
Og það gerðu dömurnar léttilega,
þó svo að FH leiddi 1—0 i hálfleik. Tvö
mörk frá Ástu B. Gunnlaugsdóttur og
önnur tvö frá Bryndisi Einarsdóttur
tryggðu Blikastúlkunum góðan sigur.
Þetta var 10. og 11. mark Ástu í
leikjunum fjórum í sumar. Breiðablik
varð einnig kvennameistari í fyrra.
Þjálfari stúlknanna er Guðmundur
Þórðarson, fyrrum landsliðsmaður
Blikanna. Hann hefur á 8 árum fært
Blikunum 7 íslandsmeistaratitla og
hlýtur slfkt að vera fágætt afrek.
Skellur hjá
Forest
Evrópumeistarar Nottingham Forest
í knattspyrnunni fengu heldur betur
skell á sunnudag gegn landsliði Kol-
ombfu. Leikið var f Bogota og landslið-
ið sigraði með 5—0 eftir 4—0 i hálfleik.
þá aðeins á síðasta metra sem honum
tókst að fara fram úr Lenard frá Kúbu.
Urslit.
1. PietroMennea, Ítalíu, 20.19
2. Alain Wells, Bretlandi, 20.21
3. Donald Quarrie, Jamaíka, 20.29
- 4. Silvio Leonard, Kúbu, 20.30
5. Bernhard Hoff, A-Þýzk. 20.50
6. Leszek Dunecki, Pólland, 20.68
7. Marian Woronin, Póllandi, 20.81
8. Odvaldo Lara, Kúbu 21.19
Birgir Þór
varð tólfti
Birgir Þór Borgþórsson varð i 12.
sæti i 100 kg flokki i lyftingum i gær á
ólympluleikunum, lyfti samtals 330 kg.
Sigurvegarinn Ota Zaremba, Tékkósló-
vakiu, setti ólympiumet í flokknum,
lyfti samtals 395 kg. Úrslit:
1. Ota Zaremba, Tékkósló. 395
' 2. Igor Nikitin, Sovét, 392.5
3. Alberto Blanco, Kúba, 385
4. Mlchael Henning, A-Þýzk. 382.5
5. Janos Solyomvari, Ung. 380
6. Manfred Funke, A-Þýzk. 377.5
7. Anton Baraniak, Tékk. 375
8. Laszlo Varga, Ungverjal. 367.5
9. Michael Persson, Sviþj. 360
10. Pekka Niemi, Finnlandi, 347.5
11. John Burns, Bretlandi, 337.5
12. Birgir Þór, íslandi, 330
13. Omar Yousfi, Alsír, 320
14. Addison Dale, Zimbabwe, 225
Hinrik Þórhallsson, bezti leikmaður Vfkings f
STORS
GEGNSI
Það er ekki nóg að vera sterkari aðilinn á
vellinum. Það fengu Akurnesingar að reyna
fyrstu 15 mfnútur leiksins gegn Vfkingi i gær-
kvöld. Þeir byrjuðu leikinn mun betur en
Hæðargarðsliðið en engu að síður var það
Vikingur sem leiddi 2—0 eftir tvær mjög vel
útfærðar sóknarlotur á 10. minútu. Skaga-
menn voru sterkari aðilinn áfram en siðan
fór að létta á sóknarþunga þeirra og Vfking-
arnir tóku leikinn smám saman i sínar hend-
ur. Þegar svo Hinrik Þórhallsson skoraði
þriðja og siðasta mark leiksins strax í upp-
hafi siðari hálfleiks þurfti aldrei að spyrja að
úrslitunum og Akurnesingar gátu prisað sig
sæla fyrir að fá ekki mörg mörk á sig það
sem eftir lifði leiksins. Klaufaskapur og
óheppni Víkinga setti þar strik i reikninginn
en f heild gáfu tölurnar 3—0 nokkuð rétta
mynd af þvi sem gerðist.
Akurnesingar léku án Árna Sveinssonar,
sem var i leikbanni og það kom heldur betur
niður á vörninni, sem var hriplek. Sigurður
Harðarson kom í stað Árna en réð engan
veginn við verkefnið og mistök hans komu
vörninni hvað eftir annað í klípu. Ekki þar
fyrir, aðrir varnarmenn áttu ekki góðan dag.
Ekki voru nema 5 mín. liðnar af leiknum
er Vikingur skoraði fyrsta mark sitt. Lárus
brauzt þá upp vinstri kantinn og Sigurður
Halldórsson sá ekki annað ráð en að bregða
honum. Skagamenn steinsváfu er aukaspyrn-
an var tekin. Helgi Helgason lyfti laglega inn
í teiginn og þar kom Hinrik að og nikkaði
yftr Bjarna í markinu.
Staðan í 1. deild
Staðan í 1. deildinni er nú þannig eftir
leikina 1 gærkvöld. Vfkingur-Akranes 3- -0
Kefluvík-FH 2- -2
Valur n 7 1 3 28—12 15
Fram u 6.2 3 12—13 14
Akranes n 5 3 3 17—13 13
Víkingur ii 4 5 2 14—10 13
Breiðablik u 6 0 5 19—14 12
Vestmeyjar n 4 2 5 17—19 10
KR n 4 2 5 10—16 10
Keflavik u 2 5 4 11—16 9
Þróttur n 2 3 6 7—11 7
.FH n 2 3 6 16—27 7
Markahæstu menn: mörk
Matthfas Hallgrimsson, Val 11
Sigurlás Þorleifsson, IBV 7
Sigurður Grétarsson, Breiðabl. 7