Dagblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 32
Dansad af krafti í lokin Lokatrimmið í hinni norrænu lands- keppni fatlaðra fór fram í gær í blfði veðri. í Reykjavík mættu um 60 manns að Hátúni 12 og tóku þátt í síðustu göngunni. Þá var einnig trimmað í Hafnarfirði, á Akureyri og víðar. Eftir klukkustundar göngu frá Hátúni var öllum boðið upp á pylsur og kók.' Sfðan var dansað af fullum krafti. Stemmningin var afbragðsgóð og dönsuðu allir sem gátu fram eftir kvöldi. Flestir voru sammála um að keppnin hefði gengið framar öllum vonum. Stigin í keppninni verða reiknuð saman fljótlega en verða síðan innsigluð fram á haust. Er það gert vegna þess að Dan- mörk og Noregur hafa fengið frest fram í september til að keppa. Úrslit keppninnar munu því ekki liggja fyrir fyrr en i október. -ELA. Smjörkflóið úr 49 krónum í63,60: Landbúnaðarvörur hækkuðu um 15-30% í morgunsárið — laun, olía, rafmagn og áburður aðalorsakir verðhækkananna Smjörkilóið hækkaði í morgun um kr. 14,60, eða um 29,8%. Kostar það nú kr. 63,60 1 stað kr. 49,00 áður. Hvert kiló af kartöflum 1 2,5 kg pok- um hækkaði 1 morgun um 29,6%, eðaúrkr. 3,38 ikr. 4,38. Ofangreindar hækkanir á landbún- aðarvörum eru mestar þeirra sem til framkvæmda koma frá og með 1. júní. Svokallaður verðgrundvöllur til bænda hækkar um 14,08%. í honum vega þyngst launaliður bóndans, nýtt áburðarverð, hækkun á rafmagni og oliu. Mjólkurlltrinn í pökkum kostar nú kr. 5,60, hækkun 23,7%, rjómapel- inn kostar nú kr. 9,75, hækkun 22,6%, kiló af skyri kostar nú kr. 9,15, hækkun 26,2%, 45% ostur 1 heilum stykkjum kostar nú kr. 57,60 pr. klló, hækkun 24,5%, 30% ostur hækkar úr kr. 38,95 í kr. 48,05 hvert kiló í heilum stykkjum, hækkun 23,2%. Kindakjöt í 1. veröflokki 1 heilum skrokkum hækkar úr kr. 30,30 1 kr. 35,35. Kiló af kótilettum hækkar um kr. 6,40 og kostar nú kr. 48,40. 1. verðflokkur af nautakjöti í heilum og hálfum skrokkum hækkar um kr. 10,50 hvert kiló og kostar nú kr. 45,95. Kiióið .af miðlæri hækkar úr kr. 66,90 ikr. 77,80 hvert kUó. Fullt samkomulag varö i sex- mannanefndinni um ofangreind verð. Niðurgreiöslum mUli tegunda var lftiö breytt. Ekki voru þær aukn- ar. - BS Var gripinn löngun til sundaf reka við Lækinn: Synti á nærbuxunum einum yfír Kópavog —Kom kaldur og hrakinn að landi en varð ekki meint af Ungur aðkomumaður í Reykjavík brá heldur betur á leik í gær. í blíð- viðrinu við Lækinn í Nauthólsvík, greip hann löngun til stærri afreka en að synda í heitum læknum. Lagði hann til sunds út á Kópa- voginn og linnti ekki sprettinum fyrr en á athafnasvæði Vitamálastjórnar- innar í Fossvoginum. Þar beið hans heil móttökunefnd, með Kópavogs- lögregluna í broddi fylkingar. Þar var og komin sjúkrabifreið frá Reykja- vík. Þó maðurinn væri kaldur orðinn og hrakinn, þótti ekki ástæða til að nota sjúkrabílinn en í lögreglubUnum var maðurinn fluttur i slysadeUd. Ekki varð honum meint af volkinu. Á sundsprettinum klæddist kapp- inn einungis nærbuxum sínum. -A.St. / DB-mynd: S. Dansad af miklum krafti eftir lokatrimmið í gœr. Fremstur er Sigurður Guðmundsson, framk væmdastjóri keppninnar, sem lét sitt ekki eftir liggja. DB-mynd: Einar Ólason. Norræn landskeppni fatlaðra: frjálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1981. íslandsmótið íhraðskák: Jóhann varði íslandsmeist- aratitilinn Jóhann Hjartarson sigraði örugglega á {slandsmeistaramótinu i hraðskák sem fram fór í gær. Þetta er annað árið f röð sem Jóhann hlýtur íslands- meistaratitilinn í hraðskák. Jóhann hlaut 15,5 vinninga af 18 mögulegum. I 2. sæti varð Jóhannes Gísli Jónsson með 13,5 vinninga og í 3. sæti varð Jón L. Árnason með 13 vinn- inga. Keppendur á mótinu voru alls 42. -GAJ. 10%hækkuná tóbakiogáfengi Áfengi og tóbak hækka í dag um 10% að meðaltaU. Sem dæmi um nýju verðin má taka að slgarettupakki kostar nú kr. 15,60, flaska af islenzku brennivíni kr. 152, vodkaflaska ca 217 og viskíflaskan ca 211. Verðin á vodka og viskU eru breytUeg eftir tegundum en þau framangreindu eru algengustu verðin. ^ - ARH IVIKUHVERRI Vinningur vikunnar er Apple tölva Vinningur í þessari viku er Apple-tölva frá Radtóbúðinni, Skipholti 19, Reykjavlk. 1 vikunni vcrður birt á þessum stað I blaðinu spurning, tengd smáauglýsingum blaðsins, og nafh heppins áskrif- anda dregið út og birt í smáauglýs- ingadálkum. Fylgist vel með, áksrifendur, fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegri tölvu ríkari. c ískalt Seven up. p hressir betur. |

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.