Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 26.09.1965, Blaðsíða 12
Almennur áhugi lesenda
fyrir síðustu getraun
Sunnudags
Rétt svör sendu 17 lesendur. Guð-
jón Benediktsson hlaut vinninginn
Ilmur Árnadóttir, sjö ára telpa, dró u'm vinningiun.
Þá hittumst við afitur, les-
endur góðir. Ég þakka ykk-
ur áhugann sem þið hafið
sýnt fyrir Sunnudegi og þá
aðstoð sem mörg ykkar haf-
ið látið honum í té.
1 sumar hafa mörg ykkar
raunar sagt ýmislegt óþveg-
ið við mig og um mig fyrir
að Sunnudagur hvarf af
sviðinu; hef ég þegið það í
þögn. Raunar er ekki við
mig að sakast, heldur bág-
borinn fjárhag Þjóðviljans.
Og ykkur sem nefnit hafið
skaðabótakröfu ræð ég til að
snúa ykkur til þeirra sem
frestunarákvörðunina tóku
það er ekkert af mér að
hafa!
Annars mættum við Þjóð-
viljamenn vera orðnir lang-
eygðir eftir þessum rúblum
sem borgarablöðin eru alltaf
að fræða okkur um að
„kommúnistar“ (þ.e. við
Þjóðviljamenn m.a.) fáum,
nú síðast 2 (eða4) prósent
af öllum viðskiptum lands-
manna við Sovétríkin. Það
mætti notast við minna! Þá
þyrftum við ekki að skera
við nögl ritlaun fyrir grein-
ar í Sunnudag og ekki held-
ur að horfa í hvert mynda-
mót. En því miður get ég
ekki flutt ykkur neinn fagn-
aðarboðs'kap um rífleg rit-
laun, enda býst ég ekki við
að við Þjóðviljamenn sjáum
hinar margnefndu rúblur á
næstunni fremur en hingað
til. Það er nú svo með rit-
stjórn borgarablaðanna að
eins og brennt barn forðast
eldinn eru ritstjórar borg-
arablaðanna einstakir snill-
ingar í að halda sig í ör-
uggri fjarlægð frá sannleik-
anum, endk er hann sorg-
lega sjaldséður gestur á síð-
um blaða þeirra, — og hin
tuttugu ára útlegð Grettis
sterka á söguöld er lítill
barnaleikur hjá þeirri við-
búð sem sannleikurinn hef-
ur orðið að þola á síðum
fyrrnefndra blaða.
En það var ekki ætlunin
að gerast langorður um
þenna andlega óþrifnað á
þjóðarheimilinu, nú, þegar
við höfum hitzt aftur, held-
ur þakka ykkur fyrir gömul
kynni og áframhaldandi vin-
semd og samstarf ykkar.
Þegar á'kveðið var fyrir-
varalaust að gera hlé á út-
komu Sunnudags stóð til að
birta úrslit getraunarinnar í
næsta blaði. Nú er „næsta“
blað loksins komið, og hafið
þið sýnt mikið umburðar-
lyndi.
Áhugi fyrir síðustu get-
raun var mikill og þátttaka
I henni einnig. Kom þar
greinilega í ljós að almennt
eru Islendingasögurnar ekki
keyptar sem veggskraut
heldur til að lesa þær.
Rétt svör sendu 17, átta
konur og níu karlar, og
voru mörg svör mjög ná-
kvæm og ýtarleg.
Þegar dregið var um verð-
launin kom út nafn Guðjóns
Benediktssonar, Freyjugötu
25 A, og getur hann vitjað
verðlaunanna, Stiurlunga-
sögu, I hinni ágætu útgáfu
Sturlungaútgáfunnar, til rit-
stjórnar Þjóðviljans. Bið ég
hann vel að njóta, þakka
honum og öllum öðrum þátt-
takendum, og um leið sam-
hryggist ég hinum 16 er
höfðu jafnvel til verðlaun-
anna unnið, en þau er rétt
svör sendu auk Guðjóns
voru þessi:
Ásta JónsdóttLr, Gunnars-
braut 28.
Birna Oddsdóttir, Lauga-
vegi 130.
Dóra Petersen, Grjótag. 14
Fjóla G. Aradóttir, Hátúni
Friðgeir Magnúss., Þingeyri.
Guðbrandur Guðjónssón,
Laugateig 10.
Guðfinna Guðbrandsdóttir,
Vífilsstöðum.
Guðmundur Hafsteinsson,
Kambsvegi 33.
Halldór Tjörvi Einarsson,
Flókagötu 3.
Helgi Þorkelsson, Bólstaða-
hlíð 39.
Jensína Björnsdóttir, Mark-
arfljótsbrú.
Kristinn Gíslason, Hoft. 52.
Málfríður Einarsdóttir, Rvík.
Páll Guðmundsson, Hofs-
Vallagötu 18.
Ragnar Þorsteinsson,
Reykjaskóla.
Sigurlaug Höskuldsdóttir,
Skólavörðustíg 12.
SVÖR
við getrauniuni eru, í stuttu
máli þessi:
Framhald á bls. 238.