Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Side 29
Yfirlit
yfir starfsemi Rœktunarfjelags Norðurlands 1923.
1. Gróðrartilraunir.
Flestum tilraununum frá fyrra ári haldið áfram, og auk
þess gerðar lítilsháttar tilraunir með samanburð á tilbún-
um áburði, síldarmjeli og fiski til áburðar. Reyndist síld-
armjelið lang best.
Orasfræblöndutilraunirnar, lagðar 1. júlí 1922, voru
slegnar 28. júlí. Heyið var vegið grasþurt og fullþurt;
en samanburðarhlutföllin eru ekki vel ábyggileg, vegna
hraknings á heyinu. Minst Ijettust: norsk blöndun, ís-
lensk blöndun og »tungt R«; voru hlutföllin þar litlu
minni en 2:1. Mest Ijettust aftur á móti »Let L« og
»Rosenborg Blanding«; þar var hhf. nálægt 3:1.
Rjett áður en reitirnir voru slegnir, fór nákvæm teg-
undagreining fram á hverri sæðisblöndu. Skal hjer sett
fullkomið yfirlit yfir greininguna, og einnig þurheymagn
hverrar tegundarblöndu, miðað við ha.:
»Let M.«
Meginið Bromus arvense, lítið eitt af Bromus mollis,
og auk þess Alopecurus geniculatus, Poa trivialis og
Holcus lanatus á stangli. illgresi ekkert. Heymagn 2930 kg.