Vísbending - 22.04.2005, Qupperneq 1
ISBENDING
22. apríl 2005
16. tölublað
Viku
rit um viðskipti og efnahagsmál
23. árgangur
Millj arðamæringur
að vakti talsverða athygli og
sennilega undrun þegar Björgólf-
ur Thór Björgólfsson var á meðal
milljarðamæringa á Forbes-listanum i
marsmánuði. Islendingar voru sér meðvit-
aðir um að Björgólfi Thór og föður hans
hefði gengið vel síðan þeir létu til sín taka
í íslensku viðskiptalífi en fæstir áttuðu sig
á að hann væri samanburðarhæfur við þá
ríkustu í heiminum. Ritstjórum Forbes
fannst þetta ekki síður merkilegt og lögðu
fjórar síður í blaðinu undir umíjöllun
um þennan unga Islending. Þegar stærð
hagkerfisins áíslandi og fjöldi Islendinga
er hafður í huga kemur þessi niðurstaða
vissulega merkilega fyrir sjónir.
Norðurlandameistarinn
ndanfarin ár hafa það aðallega verið
SvíarafNorðurlandabúum sem hefur
tekist að stilla sér meðal þeirra ríkustu í
heimi. Þeir eru enn flestirNorðurlandabúa
á þessum lista, eða níu talsins með Ingv-
ar Kamprad, eiganda Ikea, sem ríkasta
mann Evrópu og sjötta á aðallistanum,
og eru eignir hans metnar á 23 milljarða
Bandaríkjadala. Næsturhonum í röðinni,
hvað Norðurlandabúa snertir, er aðaleig-
andi fatakeðjunnar Hennes & Mauritz, og
eru eignir hans metnar á 11,2 milljarða
dollara og erhann í 29. sæti heildarlistans.
Fjórir norskir milljarðamæringar eru á
listanum. Efstur þeirra er John Fredrik-
sen skipakóngursem hefúrfjórfaldaðriki-
dæmi sitt á einungis tveimur árum og telst
nú vera í 160. sæti á listanum, með eignir
metnar á 3,4 milljarða Bandaríkjadala.
Annar skipakóngur og ríkasti maður Dan-
merkur er þó öllu ríkari en sá er Maersk
Mc-Kinney Moller, sá hinn sami og gaf
dönsku þjóðinni óperuhús fyrr á árinu og
fjármagnaði enn fremur að stórum hluta
menningarhús Islendinga í Kristjánshöfn.
Eignir hans eru metnar á 5,3 milljarða
Bandaríkjadala og telst hann vera í 90.
sæti á listanum yfir ríkustu menn heims.
DanimireruþríráþessumlistaogerKjeld
KirkKristiansen, aðaleigandi Lego, þeirra
á meðal, í 243. sæti aðallistans með eignir
metnar á 2,5 milljarða dala. Athyglivert
er að enginn finnskur milljarðamæringur
er á listanum en eins og áður sagði þá er
einn Islendingur á listanum og er hann sá
fyrsti í sögu Forbes-listans.
Eignir Björgólfs Thórs Björgólfs-
sonar eru samkvæmt matsaðferðum
Forbes metnar á 1,4 milljarða dala og
telsthann vera488. ríkasti maðurheims.
Eins og áður sagði verður þetta sæti fyrst
Milljarðamœrmgar Norðurlanda miðað við lista tímaritsins
Forbes (milljarðar Bandaríkjadaia)
verulega merkilegt þegar stærð hagkerfis
íslands er haft í huga. Þannig er virði
eigna Björgólfs Thórs um 11,2% af vergri
landsframleiðslu (VLF) í slands árið 2004
en verðmæti eigna Kamprads er 6,7%
af VLF Svíþjóðar, virði eigna Mollers
um 2,2% af VLF Danmerkur og virði
eigna Fredriksens 1,4% afVLF Noregs.
Hlutfallslega er Bj örgólfúr Thór því lang-
ríkasturNorðurlandabúa og hlutfallslega
ríkari en Bill Gates en eignir hans eru
metnar á 46,5 milljarða dala sem er þó
einungis 0,4% af VLF Bandaríkjanna.
Byltingin
Björgólfur Thór er merkisberi nýrra
tíma í viðskiptum þar sem menn geta
orðið ótrúlega ríkir á örskömmum tíma.
Fyrir u.þ.b. sex árum vissi varla nokkur
á Islandi hver þessi maður var, nú geta
sennilega fleiri nefnt hann á nafn en for-
sætisráðherra landsins. Það sem sýnir þó
enn frekar uppgang hinna nýríku, og það
er ekki alveg ótengt Björgólfi Thór, er
rússneska byltingin en hann aflaði einmitt
upphaflega auðmagnsins í Rússlandi. Alls
má finna 26 rússneska milljarðamæringa
á listanum og efstan þeirra ber Roman
Abramovich,olíukónginnogeigandaknatt-
spymufélagsins Chelsea. Hann er í 21. sæti
á aðallistanum og eignir hans eru metnar
á 13,3 milljarða dala. Samanlagt er virði
eignaþessararússneskumilljarðamæringa
um 90,6 milljarðar Bandaríkj adala eða um
14,8% afVLF Rússlands.
Alls fór 131 nýr milljarðamæringur
inn á lista Forbes að þessu sinni og þeirra
á meðal var Islendingurinn. I viðtali við
Forbes segir Björgólfúr Thór að völd og
peningar séu einungis vegur til virðing-
ar. I nútímaþjóðfélagi er það raunin og
virðing hans hefur aukist vemlega í
íslensku þjóðfélagi. Það sem erþó kannski
athygliverðara er að vegur Islands hefúr
einnig vaxið fyrir tilstilli þeirra fyrirtækja
sem hafa verið hve digmst á erlendum
mörkuðum, og þá ekki síst fyrir tilstilli
fýrsta íslenska milljarðamæringsins. Það
er hugsanlega bylting.
^ BjörgólfurThórBjörgólfs- ^ RíkidæmiNorðurlandamia Ólafur Klemensson hag- a heim allan um þessar'
I son er á meðal milljarða- ) er ekki jafn stórkostlegt -4 fræðingurfjallarumþálágu mundir.Raunvextirmunu
X mæringa heimsins sam- Á* þegar það er borið saman raunvexti sem einkenna T aðöllumlikindumennum
kvæmt samantekt Forbes. við fylki Bandaríkjanna. stöðu efnahagsmála um sinn haldast lágir.