Frjáls verslun - 01.01.1985, Blaðsíða 18
ans. Hvaö innanlandsflotann
varðar munum við biöa enn um
sinn og sjá hvaða reynsla muni
fást á þær vélar sem nú eru að
koma á markað og eru svipaðar í
rekstri og Fokker vélarnar.
Fokker vélarnar eru góðar en
orðnar dýrar i viöhaldi sem gerir
okkur erfitt fyrir um leið og verð-
lagsyfirvöld neyða okkur til að
reka innanlandsflugið með tapi.
En við reynum þvi að vega og
meta hvort er hagkvæmara mikill
viðhaldskostnaöur á gömlu vél-
unum sem enn duga vel eða hár
fjármagnskostnaður, sem kemur
í kjölfar kaupa á nýjum vélum.
Þoturnar eiga enn eftir mörg ár
og nú var valin sú leið að setja á
þær hljóðdeyfa fremur en kaupa
nýjar vélar eða nýja mótora. Si-
fellt er veriö aö lengja liftima vél-
anna meö aukinni tækniþekkingu
og reynslu og liftimi flugvélar er
mældur meira i flugtimum og
fjölda lendinga en árum. Við seld-
um fyrir nokkru tvær DC-8 63
þotur sem voru einnig fragtvélar
og keyptum tvær DC-8 63 vélar
frá KLM i þeirra stað og voru þær
minna notaðar. 'l þessu fólst þvi
ákveðin endurnýjun, en KLM vél-
arnar hafa ekki eins mikla burð-
agetu og eldri vélarnar.
Átturnar koma vel út i rekstri
meðan eldsneytiskostnaðurinn
rýkur ekki upp úr öllu valdi. En hér
þarf alltaf aö hafa i huga samspil
rekstrarkostnaðar annars vegar
og fjármagnskostnaðar hins veg-
ar. Hvaö breiðþotur varðar eru
flutningar félagsins ekki svo
miklir að breiðþoturekstur borgi
sig. Við erum auðvitað i sam-
keppni við félög sem reka breið-
þotur á leiöunum yfir hafið, en við
reynum að mæta þvi með góðu
atlæti um borð, þannig að farþeg-
ar geti notið ferðarinnar sem
best.“
Hefur það engin óþægindi í
för meö sér að vera nafni fyrr-
verandi forstjóra og núverandi
stjórnarformanns?
„Auðvitað hefur komið upp
misskilningur sérstaklega hjá
þeim sem halda að ég sé sonur
Sigurðar Helgasonar, en við
erum ekkert skyldir. Ég held aö
starfsheiti okkar, hann stjórnar-
formaður og ég verðandi forstjóri,
geti tekið af allan vafa. Slikur
nafnamisskilningur var reyndar
líka fyrir hendi þar sem ég vann
fyrst, hjá Hagvangi, þvi fram-
kvæmdastjórinn þar hét líka Sig-
uröurHelgason.“
Munuð þið ekki starfa náiö
saman?
„Sem stjórnarformaður verður
aöalverkefni Siguröar Helgason-
arað fara með öll málefni stjórnar
milli funda og undirbúa stjórnar-
fundi. Ég mun hins vegar fylgjast
með daglegum rekstri félagsins
og gefa honum skýrslu um allt
sem að honum lýtur. Verkaskipt-
ingin er því nokkuö Ijós, en sam-
starfiö verðureinnig talsvert."
Góð sætanýting
Ertu bjartsýnn á framtíð Flug-
leiöa í samkeppni heima og
heiman?
18