Frjáls verslun - 01.01.1992, Side 17
VIÐTAL
BREYTUM HUGMYNDUMI
VERULEIKA
RÆTT VIÐ MARGRÉTI
GUÐMUNDSDÓTTUR, 37 ÁRA
REYKVÍKING SEM UNDANFARIN 5 ÁR
HEFUR GEGNT STÖÐU
FRAMKVÆMDASTJÓRA HJÁ Q8,
STÆRSTA OLÍUFYRIRTÆKI í
DANMÖRKU.
Þeir eru ekki margir íslendingarnir sem hasla
sér völl í æðstu yfirstjórn stórfyrirtækja erlendis.
Sú ætlun var heldur ekki ofarlega í huga hjá Mar-
gréti Guðmundsdóttur að fylla þann flokk nokkr-
um árum síðar þegar hún, árið 1974, lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla íslands. stJÓri hjá Q8, stærsta olíufyrirtæki í Danmörku.
TEXTI: HÁKON GUNNARSSON MYNDIR:
Hún lauk cand.oecon. prófi frá HÍ
1978 en í Iláskólanum tók hún virkan
þátt í félagslífi og síðasta árið var hún
formaður AIESEC-nefndar og átti
það eftir að hafa sínar afleiðingar.
AIESEC eru alþjóðasamtök hag-
fræði- og viðskiptafræðinema og hafa
höfuðstöðvar í Brussel en Margréti
bauðst vinna þar sem hún þáði. Hún
var þar í 1 ár og fluttist þaðan til Kaup-
mannahafnar 1979 þar sem hún hefur
búið síðan.
Frjáls verslun tók Margréti Guð-
mundsdóttur tali og var þá nærtæk-
ast að spyrja hana að því hvers vegna
hún væri ekki farin heim fyrir lifandi
löngu því hún lauk cand.merc. þrófi
frá Handelshpjskolen í Kaupmanna-
höfn 1981, þá 27 ára gömul en með
víðtæka menntun og reynslu úr at-
vinnulífinu:
1 H. HANNESSON
5ÁR HJÁESSO
,Já, það er nokkuð sérstakt því
hugurinn stefndi heim eins og reynd-
ar alltaf en maðurinn minn, Lúðvíg
Lárusson, var í námi í sálarfræði við
Kaupmannahafriarháskóla á þessum
tíma og ég ákvað að reyna að fá vinnu
meðan hann var að klára. Það gekk
ekki alveg nógu vel þannig að til að
nýta tímann skrifaði ég bók um starfs-
mannastjórann á meðan. Sú bók hefur
víst talsvert verið notuð við kennslu
heima þótt ég tæki kannski aðeins
öðruvísi á efninu ef ég væri að skrifa
svona bók í dag. Þá gerðist það að
Esso hér í Danmörku auglýsti stöðu
hagfræðings í starfsmannadeild lausa
og umsækjendurnir voru á milli 70 og
80. Ég var ótrúlega heppin og fékk
starfið. Það, sem gerði útslagið, held
51