Frjáls verslun - 01.01.1992, Síða 18
Q8 veltir um 100 milljörðum íslenskra króna á ári og er með 4000 starfsmenn á sínum snærum. Þetta er
dótturfyrirtækið Kuwait Petroleum International, en móðurfyrirtækið er með aðsetur í London.
ég að hafi verið reynsla mín frá Bruss-
el en ég var orðin nokkuð góð í ensku
eftir þetta ár og alþjóðafyrirtæki eru
mörg hver mjög opin fyrir útlending-
um,“ heldur Margrét áfram og vill
gera sem minnst úr þessum árangri.
„Ég var í 5 ár hjá Esso í ýmsum
störfum í starfsmannadeild og síðast í
markaðsdeild. Mér líkaði mjög vel hjá
Esso en eftir 5 ár fannst mér kominn
tími til að breyta til. Kuwait Petrol-
eum hafði skömmu áður fengið nýjan
prófíl, „Q8“, sem hafði vakið mikla
athygli hér í Danmörku vegna mjög
góðrar markaðssetningar á hinu nýja
nafni.
Þegar Q8 auglýsti stöðu starfs-
mannaframkvæmdastjóra lausa var
ég ekki í vafa um að það væri staða,
sem mér þætti spennandi, og sótti
um. Þetta var skref fram á við fyrir
mig en þar sem ég vissi að fyrirtækið
var mun minna en Esso var ég viss
um að ég mundi ráða við það. Staðan
hafði í för með sér að ég sat í fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins ásamt 5
öðrum framkvæmdastjórum. Það,
sem ég hafði hinsvegar enga hug-
„Með skipulagningu og samvinnu
heima fyrir er hægt að samræma
umönnun fjölskyldunnar og það
krefjandi starf sem ég gegni hérna,“
segir Margrét Guðmundsdóttir.
mynd um, var að Q8 stóð í samn-
ingaviðræðum varðandi kaup á BP í
Danmörku og þar með var litla fyrir-
tækið ekki lítið lengur heldur eitt
stærsta olíufyrirtæki landsins með
ca. 10 milljarða dkr. í brúttó veltu og
rúmlega 20% af olíumarkaðnum.
Við kaupin á BP var nauðsynlegt að
breyta framkvæmdastjórn fyrirtæk-
isins. í hinni nýju framkvæmdastjórn
hafði ég áfram starfsmannamálin á
minni könnu en samtímis tók ég mjög
virkan þátt í sameiningu fyrirtækj-
anna. Við eyddum ótrúlega miklum
kröftum í að vinna að markaðssetn-
ingu, „corporate culture" og þess
háttar. Erfiðið hefur borið árangur því
hér má nefna að við erum talin meðal
fárra fyrirtækja, sem hafa sloppið vel í
gegnum samruna, og staða okkar í
dag er gjörólík stöðu þeirra fyrirtækja
sem voru sameinuð um svipað leyti.
í dag höfum við framkvæmdastjórn
með 6 aðilum og þótt við höfum öll
okkar ákveðnu svið er ætlast til að við
getum hvenær sem er tekið að okkur
önnur verkefni hvenær sem þörf
krefur. Mín svið eru í dag tölvudeild,
52