Frjáls verslun - 01.01.1992, Side 25
BRÆÐUR MUNU BERJAST
Helgi Jóhannsson.
Hörður Gunnarsson.
Mannlegi þátturinn í ferðaskrifstofueinvíginu er kostulegur. Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, er nú í samkeppni við fyrrum samstarfsmenn sína. Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar,
var um fimm ára skeið fjármálastjóri SL og vann þá mjög náið með Helga Jóhannssyni. Hörður tók við Úrval-Úfsýn fyrir
rúmu ári. Hann réði fljótlega til sín markaðsstjóra, Tómas Tómasson, sem getið hafði sér gott orð í því starfi hjá
Samvinnuferðum-Landsýn — í samstarfi við Helga og Hörð. Ætla má að þessir menn þekki allir hugsunargang og
vinnubrögð hvers annars og ætti því fátt að koma keppinautunum á óvart í þeirri baráttu sem er hafin milli
fyrirtækjanna.
berjast blóðugri baráttu sem getur
ekki leitt til annars en taprekstrar og
gjaldþrota. Þann stríðskostnað verð-
ur einhver að greiða — jafnvel þótt
síðar verði. Þeir, sem greiða að lok-
um, eru neytendur. Hins vegar njóta
neytendur hagkvæmari rekstrarein-
inga sem hafa afl til að halda kostnaði
niðri ef samkeppnin er nægileg til að
koma í veg fyrir óeðlilegan hagnað af
rekstri hinna hagkvæmu fyrirtækja.
Nú er sú staða á íslenskum ferða-
skrifstofumarkaði að tveir öflugir aðil-
ar eru allsráðandi. í krafti stærðar
eiga þeir að geta haldið kostnaði niðri
og boðið viðskiptavinum sínum hag-
stæð verð. Keppnin virðist vera svo
hörð á milli þeirra að ekki þarf að
óttast það eina sem er hættulegt við
þessar aðstæður — ólöglegt samráð
hinna stóru. Allt bendir til að þeir
muni berjast grimmilega og að sú bar-
átta skili neytendum hagstæðu verði
og góðri þjónustu.
GUÐNI HELDUR ÞEIM VIÐ EFNIÐ
Ekki má heldur gleyma því að óút-
reiknanlegasti frumkvöðull allra tíma í
íslenskri ferðaþjónustu, Guðni Þórð-
arson í Sunnu, er kominn til skjalanna
aftur og hefur í hyggju að anda niður
um hálsmálið á íslenskri ferðaþjón-
ustu og flugrekstri á þessu ári eins og
í fyrra! Þá snéri hann til baka og flutti
á annan tug þúsunda íslendinga til út-
landa á lægra verði en þekkst hafði
áður. Hann boðar nú framhald á því.
Og víst er að hann mun veita stóru
ferðaskrifstofunum og Flugleiðum
gríðarlegt aðhald við verðlagningu á
orlofsferðum, ef áform hans ganga
eftir.
Öllum, sem til þekkja mátti vera
ljóst að gjaldþrot Ferðamiðstöðvar-
innar Veraldar yrði ekki umflúið. Það
sem vekur undrun er að til gjaldþrots-
ins skyldi ekki hafa komið miklu fyrr.
Það lá einnig í loftinu að Ferðskrif-
stofan Saga myndi enda hjá Úrval-
Útsýn eftir að Flugleiðir keyptu 43%
hlutafjár í skrifstofunni þegar hún
hafði tapað nærri 20 milljónum króna
árið 1989 á þó ekki meiri umsvifum en
voru hjá fyrirtækinu. Sama er að
segja um Ferðaskrifstofuna Atlantik.
Menn þóttust sjá að þar væri um of
litla rekstrareiningu við sölu á utan-
ferðum íslendinga að ræða til að fyrir-
tækið ætti framtíð fyrir sér. Hins
vegar er talið að Böðvar Valgeirsson