Alþýðublaðið - 24.01.1973, Qupperneq 12
alþýðu
KOPAVOGS APÚTEK
Opið öli kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og
SemiBtL ASTO&N Hf
FRIÐURI
VÍETNAM
HAFT EFTIR
ZIEGLER
Haft var eftir Ronald Ziegler,
bla&afulltrúa Nixons Bandarikja-
forseta, aö klukkan þrjú i nótt að
islenzkum tima ætlaði forsetinn
að koma fram i sjónvarpi og
skýra þjóöinni frá siöustu fréttum
af gangi friðarviðræðnanna við
Norður-Vietnam. Ziegler neitaöi
þvi ekki,'að forsetinn hygðist til-
kynna, sað samningar um frið i
Vfetnam hefðu tekizt.
Aður en Nixon heldur þessa
ræðu heldur hann fund með stjórn
sinni, og siðan með þingmönnum
beggja flokkanna.
GOÐ
BOÐ
Margir erlendir aðilar hafa
sent tslendingum samúðar-
kveðjur vegna hinn óskaplegu
náttúruhamfara i Vestmannaeyj-
um. Rikisstjórnir Bandarikjanna
og Vestur-Þýzkalands hafa enn-
fremur boðizt til að veita islenzk-
um stjórnvöldum aðstoð, sem að
gagni mætti koma til-ausnar þeim
vandamálum, er að steðja, vegna
eldgossins i stærstu og mikilvæg-
ustu verstöð landsins.
Ingvi S. Ingvarsson, skrifstofu
stjóri utanrikisráðuneytisins,
tjáði blaðinu i gærkvöldi, að for-
stöðumenn ýmissa erlendra
sendiráða I Reykjavik hafi i gær
látið i ljós samúðarkveðjur vegna
náttúrurhamfaranna i Vest-
mannaeyjum.
Formleg tilkynning barst i gær
sendiráði Islands i Bonn, þar sem
Framhald á bls. 4
HOPURINN
STÆKKAR
1 opnu segjum við frá þvi, aC
fjórar konur frá Vestmanna
eyjum hafi verið lagöar inn :
Fæðingardeild Landsspitakj
ans.
Klukkan 12.30 I dag ól ein
þeirra, Guðný Linda
Antonsdóttir manni sinum
Bjarna Valtýssyni, bráð|
myndarlegt stúlkubarn, sem
vóg 12 1/2 mörk og mældist 49
sentimetrar.
Guðný Linda kom á
Fæðingardeildina um kl. 6 i
gærmorgun, og heilsast
mægöunum prýöilega.
Við óskum foreldrunum
hjartanlega til hamingju, og
bjóðum bæði þau og barnið
velkomin til Reykjavikur.
OPNA
Eldsúlurnar virtust
á milli húsanna
inn
„Ég fór úr húsinu minu, þegar
rúðurnar voru orðnar sjóöandi
heitar, og hraunið ekki nema
um fjörutiu metra frá þvi”,
sagði Vestmannaeyingur, sem
Alþýðublaðsmenn hittu að máli
á flugvellinum á Heimaey um
hádegisbilið i gær. Hann var
meðal þeirra sjðustu til að fara
út á flugvöll méð fjölskyldu sina
og þann farangur, sem hann
komst með, og beið eftir flug-
fari. Um þetta leyti voru ekki
eftir i Eyjunum nema um fimm-
tiu manns, mest lögregluþjónar,
slökkviliðsmenn og björgunar-
liðar, en einnig menn, sem
hugðust gæta mannvirkja i
kaupstaönum meðan þess væri
nokkur kostur. Ekki var
örvæntingarsvip að sjá á nokkr-
um eyjarskeggja, þótt steinsnar
frá heimkynnum þeirra væru
kommr eldspiiandi gigar —
þvert á móti voru þeir hressir að
sjá, en rólegir.
Þegar flogið var inn yfir Vest-
mannaeyjakaúpstað úr austri
blöstu eldsúlurnar við, frá sjón-
um fyrir austan hann, þar til
þær hurfu á bak við Helgafell,
og virtist við fyrstu sýn sem þær
væru nánast inn á milli hús-
anna.
Suðvesturendi gigaraðarinn-
ar er ekki nema um tiu til
fimmtán minútna gang frá flug-
vellinum, en þar hafa hlaðizt
upp háir gjallhólar, þar sem
nær slétt land var áður, og allt
gróið land f nágrenninu þakið
gjalli svo hvergi sást stingandi
strá.
Kaupstaðurinn sjálfur tómur
og eyðilegur, einstaka bill á
ferli, og fyrir utan nokkur hús
voru menn að bera farangur i
bfla sina til þess sfðan að yfir-
gefa staðinn.
Syðst i kaupstaðnum er eld-
gosið óhugnanlegast að sjá, en
spölkorn frá húsunum þeyttist
eimyrjan upp i loftið með hvissi
og drynjandi sprengingum, og
hitinn orðinn nánast óbærilegur.
Fáeinir Vestmannaeyingar
voru þar staddir til að horfa i
siðasta sinn á náttúruhamfarir
þær, sem hrakti þá áð heiman,
en héldu sfðan þögulir burt.
1 fylgd með blaðamönnum
voru tveir jarðfræðingar, sem
voru að þvi spurðir, hvaða likur
þeir teldu á þvi, að sprungan
lengdist það mikið út I sjó, að
höfnin lokaðist. Þeir sögöu, að
ekki væri hægt að þvertaka
fyrir, að slikt gerðist, og bentu
á, að sprungan næði þegar tals-
vert i sjó fram sem raunar
leyndi sér ekki þvi mikla gufu-
Framhald á bls. 4
BÍLAR AÐ VERDMÆTI
240 MILLJÖNIR KRÖNA
LIGGJA UNDIR SKEMMDUM
Nálægt 800 bilar, eða allir bilar
Vestmannaeyinga, liggja nú
meira og minna undir skemmd-
ELDFLÓÐIÐ NÁLG-
AST KIRKJUBÆINA
Klukkan hálf tólf: gosiö
svipað og fyrr í dag —
gigarnir norðaustan í
sprungunni enn mjög
virkir — breytingar þó
örar— menn uggandi um
að hraunstraumurinn taki
stefnu á bæinn — nálgast
ískyggilega Kirkjubæina
— flestir bátar hafa yfir-
gefið Vestmannaeyjar —
fátt fólk eftir i Heimaey -
þeir sem eftir voru unnu
að þvi að bjarga bílum og
eignum úr yfirgefnum
húsum — Hekla á leiðinni
til Eyja að sækja bíla —
Hofsjökull lagði af stað
klukkan átta til að sækja
frosinn fisk — gott veður
var, breytileg átt og því
sem næst logn.
um vegna öskufallsins, sem varð i
Eyjum f fyrrinótt. Það vill
þannig til, að öskugjallið hefur
mjög óheppileg áhrif á lakk.
Það er ekki nóg með að hætt sé
við rispum, er gjallið er hreinsað
af, heldur virðist sem það tæri á
einhvern hátt lakkið, samkvæmt
þeirri reynslu, er fékkst á bilum,
sem lentu i öskufalli frá siðasta
Heklugosi.
Þeir bilar voru þó hreinsaðir
fljótlega, en óvist er hvenær
Vestmannaeyingar geta hreinsað
ófögnuðinn af bilum sinum.
Skemmdist lakkið það mikið að
sprauta þurfi upp á nýtt, kostar
það tugi þúsunda á hvern bil, og
þar með milljónaupphæð á allan
bilaflota Vestmannaeyinga.
Nær allir bilarnir standa nú úti,
þrátt fyrir að talsvert sé um bil-
skúra i Vestmannaeyjum.
Astæðan er sú að eyjarskeggjar
fóru flestir á bílum sinum niður á
höfn i gærmorgun, og skildu þá
þar eftir.
Maður nokkur i
Vestmannaeyjum, sem blaðiðátti
tal af í gær, stakk uppá að bilarnir
yrðu i skyndi fluttir til lands.
Ekki taldi hann sizt ástæðu til
þessa með hliðsjón af þvi að bil-
arnir kynnu að liggja undir
skemmdum. —
Sé miðað við að hver bill sé að
verðmæti um 300000 krónur,
sem ekki þarf að vera fráleit
ágizkun, þar sem yfirleitt virðist
vera mikið um nýlega bíla og i
hærri verðflokkum i Eyjum, þá er
heildarverðmæti þeirra bfla,
sem nú liggja undir skemmdum,
hvorki meira né minna en 240
milljónir króna.