Vísir - 18.12.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 18.12.1973, Blaðsíða 3
PriAjudagur 1S. desember Jolagjafahandbók Vísis 3 Þaö er orðið jólalegt um að litast i miðbænum og folk Kraðar sér eftir götun- um með pinkla i höndunum. Allir eru að verzla fvriniólin. Bragi tók mynd- ina i Austurstræti i jólaös. Bf ffe •. : . V;/V’.v jjPHj^jPSP V| 2*,, w % • "... - „Allt er bezt í hófí..." Jólin eru að ganga í garð. Það er sama hvað hver segir og tautar, og það er sama á hverju gengur i þessari hrjáðu veröld okkar, jólin koma aftur og enn aftur, og það fer líklega ekki framhjá neinum. Um leið og nóvember hefur kvatt og jólamán- uöur er tekinn við, er eins og mönnum hafi verið Hún er ekki ósvipuð, stemmningin á þessari jólamynd forsíðunnar þeirri sem við eigum við að búa um jólin. Enda er myndin ekki lengra að sóttenínæsta nágrennið, til Danmerkur. AAyndin er gerð af Vibe Vestergaard. Þessi fallega myndætti að geta vakið okkur til umhugsunar og hnippt aðeins í okkur. Ef við munum ekki eftir smá- gefið eitt duglegt spark í afturendann. í einu vet fangi lifna allir búða- gluggar í bænum við, jólasveinar með rauða skotthúfu hneigja sig og beygja taktfast í glugg- unum, og börnin horfa stórum augum á þessa furðukarla, sem koma ofan af fjöllunum. En mamma er að flýta sér, hún þarf að kaupa fuglunum, sem finna víst litið æti á þessum tima, þá er tíminn til þess nú. Sólskríkjusjóður minnir okkur á það i út- varpinu, en líklega skaðar það ekki, þótt við séum minnt á það einu sinni enn. Jólin eru lika einn bezti tíminn til þess að muna eftir þeim minnstu, þegar friður, sátt og samlyndi á að ríkja alls staðar á jörðunni. —EA allar jólagjaf irnar og svo jólakort.in, og svo jóla- matinn. Og hvað á nú að hafa í jólamatinn? Ekki það sama og í fyrra, það er ekki hægt, — og svo eru það hr-eingerningarnar, ja, almáttugur, hvilíkt umstang. Og blessuð börnin verða ringluð i allri hringiðunni. Pabbi þeys- ist líklega með þau í bæ- inn einn sunnudaginn í f rosthörkunni. Það eru nefnilega jólasveinar sem ætla að skemmta í bænum, og þangað er nú ágætt að fara með börnin, á meðan húsmóðirin þvær af hvern blett úr hverjum krók og kima. Það er liklega ekki að furða þó að einhverjir heyrist tauta eitthvað á þá leið, að það ,,sé farið að gera of mikið úr þess- um blessuðu jólum." Og hvað á nú að gefa....? — Allar beztu jólavör- urnar fáið þér hjá okk- ur... — Hvergi meira úr- val af jólafatnaði.... — Allt í jólamatinn hjá .... — Og útvarp og f jölmiðl- ar halda áfram. Og neyt- andinn þeysist i bæinn, reynir að gera sér grein fyrir verðmismun, þó það verði oft á tiðum erfitt, sérstaklega ef of seint er farið af stað. Hvar f innst svo rétta jólagjöfin handa Stinu, sem varð 15 ára í haust, og er á þessum erfiða aldri? Hvað í ósköpunum á svo að gefa Gunna litla, sem ekki er nema 3ja ára? Blaðamaður og Ijós- myndari Vísis fóru af stað fyrir þessi jól og kynntu sér vörur og verð í ýmsum verzlunum í bæn- um, og árangurinn má svo finna hér. Við reyn- um nú eins og undanfarin ár, að létta undir með les- endum okkar í jólaösinni, og þetta er i fimmta sinn sem jólagjafahandbók blaðsins er gefin út. i þessari handbók eru þær hugmyndir sem við gefum um jólagjafir flokkaðar niður, t.d. fyrir 13-19 ára, fyrir 5 ára og yngri, jólagjafir til heim iiisins, handa honum o.s.f rv. Er það von okkar að handbókin komi lesend- um að sama gagni og hún hefur gert áður, og geti fækkað sporum þeirra i jólag jafainnkaupunum. Allar upplýsingar eru gefnar um viðkomandi vöru, verð, stærðir o.fI., sbr. fatnað. Sérstök ástæða er kannski til þess að benda á flokkinn, þar sem finna má jólagjafir undir fimm hundruð krónum. Það skiptir líka talsverðu máli að létta ekki pyngjuna of mikið, þó verið sé að kaupa f yrir jólin. En einna mestu máli skiptir þó að enginn gangi fram af sér í jólaundir- búningnum, og verði svo yfir sig þreyttur og úrill- ur þegar hátíðin sjálf er gengin í garð. Allir á heimilinu verða að hjálp- ast að. Reyndar er það svo að menn segja hver við ann- an: ,,0, ég er farinn að hlakka til jólanna, að geta nú loksins slappað af eft- ir öll þessi læti". Og það er nú kannski eins gott að menn geti það á þessum hátíðlegustu frídögum ársins. Það er því kannski ráð að hafa það í huga jólamánuðinn allan, að „allt er bezt í hófi..." Gleymum ekki þeim minnstu..

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.