Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 4

Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 4
4 Vlsir. Mánudagur 10. júni 1974 stuttvm fyrirvara varabluti í tiestar gerðir bandarískra bifreiða, mótorhjóla og vinnvvéia. [ NEiTOlR UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN Lækjargötu 2 (Nýja Bió) - Reykjavik - lceland - Tel.: 25590 - P. O. Box 285 VÍSIR VÍSAR Á VIÐSKIPTIN TILSÝNIS: i dog kl. 14—22 LOKSINS eru fáanlegir hér á landi hinir heimsþekktu paradiso tjaldvagnar Paradiso hefur góða innréttingu Paradiso hefur gaseldavél Paradiso hefur vask Paradiso hefur svefnpláss fyrir 4 til 5 Paradiso hefur kosti hjólhýsis Paradiso hefur þó þá kosti framyfir hjól- hýsi, að það byrgir ekki útsýni og er mjög létt og stöðugt i drætti. Paradiso er reist á 3 sekúndum Búsport Rofabæ 27, Arbæjarhverfi. Simar 84348 — 83097. Akureyri simar 22550 og 22680 Lausar stöður við norrœnu landbúnaðarstofnunina í Tanzaníu Finnska utanrikisráðuneytið hefir óskað eftir þvi, að auglýstar verði til umsóknar hér á landi svo sem á öðrum Norður- löndum 17 stöður við norrænu land- búnaðarstofnunina i Mbeya i Tanzaniu. Stöður þessar eru: Ein staða yfirmanns, er umsjón hafi með kennslu á vegum stofnunarinnar, 8 kennarastöður við bóklegt og verklegt nám, 4 stöður við rannsóknarstofnun og 4 stöður við tilraunastörf og þjálfun i þeim. Háskólapróf i búvisindum eða land- búnaðarhagfræðier yfirleitt skilyrði fyrir þvi, að ráðning komi til greina, auk þess sem krafist er nokkurrar starfsreynslu. Umsækjendur þurfa einnig að vera mjög vel færir i ensku. Launakjör miðast við ráðningarkjör sérfræðinga hjá Sameinuðu þjóðunum. Þeir, sem stöðurnar hljóta, njóta skatt- frelsis, ókeypis húsnæðis fyrir sig og fjöl- skyldur sinar, auk ýmissa annarra friðinda. Ráðningartimi er tvö ár frá kom- andi hausti. Umsóknareyðublöð og nánari upp- lýsingar verða veittar á skrifstofu Að- stoðar íslands við þróunarlöndin, Lindar- götu 46 (herbergi nr. 12), Rvk., en skrif- stofan er opin á mánudögum og miðviku- dögum kl. 4-6 e.h. Tekið verður á móti um- sóknum til og með 24. júni n.k. Aðstoð íslands við þróunarlöndin Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsqötu 49 — Simi 15105 MALNINGAVÖRUR Elsta og reyndasta málningavöruverzlun landsins i nýjum húsakynnum aö Grensásvegi 11 — sími 83500. Erum einnigá gamla staönum Bankastræti 7 sími 11496. Sakharov fer hvergi Kjarnaeðlisfræðingurinn Andrej Sakharov, sem átt hefur i erjum við sovézk yfirvöld vegna borgaralegra réttinda sinna og annarra, segist ekki munu sækja um að fara frá Sovétrikjunum, þvi honum finnist hann vera eins konar leiðarljós þeirra Rússa, sem berjast fyrir auknum mannréttindum. „Landflótti er ekki hótinu betri en fangabúðirnar. Ég er i sömu aðstöðu og Solsjenitsin. Hann hefði heldur ekki valið útlegðina, hefði hann átt einhverra kosta völ,” sagði Sakharov i samtali við norska fréttamenn, sem nýlega voru á ferð i Moskvu. í fyrrahaust sótti Sakharov um leyfitilaðfara til Bandarikjanna, þar sem honum bauðst að flytja fyrirlestra við Princeton-háskóla. Nú virðisthonum hafa snúizt hug- ur, eftir að Solsjenitsin var vlsað úr landi. A sama tima hafa svo sovézk yfirvöld loks tekið til greina umsókn ballettdansarans Valeri Panov um fararleyfi. Panov er af Gyðingaættum, og þótt hann væri áður einn af fremstu dönsurum Rússa, hefur hann ekki fengið verk að vinna, eftir að hann tók undir mótmæli Gyðinga vegna ofsókna yfirvalda á hendur þeim. Panov var velkomið að fá fararleyfi fyrr, en þá hefði kona hans, ballettdansmærin Galina, ekki fengið að fara með honum. Þau vildu hvorugt láta stia sér þannig sundur, og þar við sat, þar til loks þeim var veitt núna báð- um leyfi til að fara. Uppreisn í gullnámu Það kom til harðrá átaka við gullnámuna I bænum Wel- kom I Suður-Afríku, þegar nokkur þúsund afríkanskra námaverkamanna gerðu uppþot. Urðu árekstrar við lögregluna, og létu tveir menn lífið, en þrír særðust. Uppþotsmennirnir báru eld að nokkrum byggingum við Tarmoni- gullnámuna og ollu spjöllum á öðrum. — Varð að senda liðsauka frá nágrannabæjum til að aðstoða slökkvilið og lögreglu. Var beitt táragasi og vatnsslöngum á óeirðar- seggina, en þeir leituðu skjóls lengst inn i dimm námagöngin. Ekki liggur ljóst fyrir, hvað kom uppþotinu af stað en vonir stóðu til þess að koma mætti á ró i dag. Nóbels- skáldið Asturias látinn Nóbelsskáldið, Miguel Angel Astucias lézt á sjúkrahúsi i Madrid i gær, 74 ára að aldri. Hann hafði verið lagður inn á sjúkrahúsið fyrir fyrir þrem vikum, þá með andarteppu. 1 tilkynningu frá sjúkrahúsinu var skýrt frá þvi, að æxli i þörmum og galli i öndunarfærum hefðu leitt hann til dauða. — Fjölskylda hans hefur skýrt frá þvi, að hann verði jarðsettur i Paris. Asturias, sem einnig var kunnur af stjórnmálaafskiptum i heimalandi sinu og störfum i utanrikisþjón- ustunni, aflaði sér fyrst frægðar með bók sinni „Þjóðsögur frá Guatamala”, en þaðan var hann ein- mitt sjálfur. Gat hann sér orðstir fyrir skrif um stöðu hinna kúguðu Indiánaættkvisla i Suður-Ameriku.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.