Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 20

Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 20
VÍSIR Mánudagur 10. júni 1974 íslandsmótið var í húsi, en... íslandsmótinu i sveitakeppni i bridge, sem fram fór núna um helgina, var nánast lokið, áður en siðasta umferðin hófst. Sveit Hjalta Eliassonar, sem flestir höfðu talið sigurstrangleg- asta, hafði 68stig, en næsti keppi- nautur, sveit Þóris Sigurðssonar, hafði 51 stig, — Forskot Hjalta var of stórt. En þessir tveir áttu eftir að mætast i siðustu umferðinni, og það var reikningslegur möguleiki á þvi, að sveit Þóris gæti unnið sveit Hjalta með 19-1 og orðið þannig íslandsmeistari. Rétt að- eins reikningslegur möguleiki og litið annað. Ahorfendur bjuggu sig þó undir að horfa á harða keppni i gær- kvöldi, og voru svo sannarlega ekki sviknir um hana. Eftir fyrri hálfleik var sveit Þóris komin meö 54 im-punkta gegn 15, en meira þurfti til, þvi að 42-im punkta mun þurfti til 19-1 vinnings. En þeir héldu áfram að bæta við muninn i siðari hálfleik, sem þeir unnu einnig 32-4. Islandsmeistarar urðu þvi Þór- ir Sigurðsson, Hallur Simonar- son, Höröur Blöndal, Páll Bergs- son, Simon Simonarson og Stefán Guðjohnsen. I siðustu umferðinni komst sveit Hannesar Jónssonar upp að hlið sveitar Hjalta i öðru og þriðja sæti. -GP. ennþá betur í viðureigninni við Svíþjóð i skákinni t þriðju umferð á skákmótinu i Nice standa lslendingar vel að vigi gagnvart Svium. Skákir þeirra Inga og Björns fóru i biö, en Guömundur vann sina skák og Friðrik náði jafntefli. Eru ts- lendingar þvi með einn og hálfan vinning á móti hálfum vinning Svia. „Útlitið er nokkuð gott i viður- eigninni viðSviþjóð. Við eigum að vera að minnsta kosti jafnsterkir þeim,” sagði Baldur Möller, ráðuneytisstjóri og skákáhuga- maður, er Visir leitaði álits hans á stöðu tslendinga á skákmótinu. „tslendingarnir voru nokkuð óheppnir i fyrstu umferðinni. Það vakti athygli er þeir töpuðu fyrir S-Afrikumönnum og urðu það okkur vonbrigði, þar sem þeir voru ekki taldir ýkja sterkir,” sagði Baldur ennfremur. „Eins má segja, að við hefðum getað farið betur út úr viðureigninni við Þjóðverja en 3-1. Það var þó ná- lægt eðlilegri útkomu, þvi Þjóð- verjar eru það sterkir.” „Það kemur tæpast til greina annað en að tsland sigri trland, Trinidad, Hong Kong, Guernsey ogTobaqo,” sagði Baldur. „Mað- ur trúir heldur ekki öðru en að ts- land verði ófar en S-Afrika, þrátt fyrir þaö sem á undan er gengið. Nú stendur þvi baráttan um ann- að sætið i okkar riðli á milli ts- lands og Sviþjóðar.” „Minni von er hinsvegar til þess að við eigum möguleika á að sigra þær þjóðir, sem fara i A- riöil,” sagði Baldur loks. „Bæði Tékkar og Júgóslavar, og jafnvel lika Rúmenar og Búlgarar, eru þjóöir, sem reynslan hefur kennl okkur, að við komumst ekki upp fyrir.” —ÞJM Ómálga barn í fylgd með dauðadrukknum foreldrum Eins og hálfs árs gainalt barn, úrvinda af þreytu, illa hirt og hlandbrunnið upp á bak, var i fylgd ineð dauðadrukknum foreldrum sinuin i miðbæ Reykjavikur, þegar lögreglan stöðvaði fjölskylduna. Þetta var eftir hádegi á laugardag. Hjónin höfðu gengið talsvert um bæinn, og barnið fylgt þeim eftir. Þegar lög- reglan stöðvaði þau, voru þau svo drukkin, að ekki þótti annað fært en setja þau i fangageymsl- ur. Barnið var tekið af þeim og fengið félagsmálafulltrúa Kópavogs, en þar býr fólkið. Hjón þessi eru um fertugt, og hefur barnið einu sinni áður verið tekið af þeim. Þau fengu það hins vegar aftur. -ÓH. Frá setningu Listahátiðarinnar 1974 IHáskólabiói. Þar hélt m.a. forseti tslands dr. Kristján Eldjárn ræðu, Sinfóniuhljómsveitin Iék, Einsöngvarakórinn söng og borgarstjórinn hélt ræðu. 12 ÞÚSUND MIÐAR SELDIR Á w w w w „LISTAHATIÐ I REYKJAVIK Aðgöngumiðar á „Listahátið i Reykjavik” hafa selzt mjög vel. Alls höfðu selzt um 12 þús. miðar, þegar Visir ræddi við Pétur Snæ- land, blaðafulltrúa hátiðarinnar. I morgun. Uppselt er á allar 3 kabarett- dagskrár á verkum Sigfúsar Halldórssonar. Á ljóð og tónlist með Lone Hertz o.fl. er uppselt. Miðar eru að verða búnir á „Gömul norsk tónlist með kveð- skap” með hjónunum Knut og Hanne K. Bue. örfáir miðar eru eftir á hljóm- leika Sinfóniuhljómsveitar Lunduna, þar sem André Previn stjórnar og Ashkenazy leikur ein- leik og litið eftir á hljómleika sömu hljómsveitar með Pinchas Zuckerman, einleikara á fiðlu. Sala aðgöngumiða á Sinfóniu- hljómsveit tslands, þar sem Re- nata Tebaldi syngur, ganga mjög vel. A kvöldstund með Cleo Laine, John Dankworth o.fl. er löngu uppselt. Pétur vildi vekja athygli á þvi, að jassunnendum gefst tækifæri til að hlusta á einhverja fremstu jassleikara Finna, söng- varann Lasse Mortensson ásamt kvartett Esko Linnavalli þann 16. júnl. —EVI— ÞAÐ RIGNDI A SJOMENNINA tirhellisrigning var, er sjómenn héldu sjómannadaginn hátiðleg- an i gær. Um morguninn drógu skip I höfnum fána að hún, og i Ilafnarfirði var tekin fyrsta skóflustungan að nýju DAS- heimili. Aðalhátiðarhöldin i Reykjavik fóru fram i Nauthólsvik. Þar lék lúðrasveit, ávörp voru flutt, og Pétur Sigurðsson, formaður Sjó- mannadagsráðs, afhenti Garðari Jörundssýni af bátnum Kára frá Bfldudal a^reksverðlaun dagsins. Garðar bjargaði fyrir nokkru sið- an bátsfélaga sinum frá drukkn- un. Heiðursmerki dagsins fengu þeir Sigurður Halldórsson, Jó- hannes Þórðarson, Friðfinnur Kjærnested og Sigfús Bjarnason, allt aldraðir sjómenn úr Reykja- vik. Mikill straumur fólks lá niður I Nauthólsvik þrátt fyrir leiðinda- veður, og tók það klukkustund að komast akandi frá slökkvistöð- inni við Reykjanesbraut niður i Þeir öldruðu reykvisku sjómenn, sem heiðurspening hlutu á sjómanna- daginn, voru Sigurður Halldórsson, Jóhannes Þórðarson, Friðfinnur Kjærnested og Sigfús Bjarnason. Nauthólsvik. t lokin fór fram að hefðbundn- um hætti koddaslagur, siglinga- keppni og sund. Um kvöldið má svo ætla, að margur landlegusjó- maðurinn hafi gert sér glaðan dag. Næturlif höfuðborgárinnar var þó litið liflegra en gengur og gerist um helgi að sögn lögregl- unnar. —JB Sólin skein ekki heldur ó Eyrbekkinga Það var dágóður hópur, sem var i skrúðgöngunni, sem gekk frá kirkjunni á Eyrarbakka i gær- dag. Leiðin lá I gegnum þorpið, út að kirkjugarðinum og lagður var blómsveigur á leiöi óþekkta sjó- mannsins. Sjómannadagshátiðin hafði byrjað með messu og 2 börn sjómanna skirð I leiðinni. Veöurguðirnir reyndust Eyrbekkingum ekkert betur en okkur Reykvikingum og fleirum. Enda ekki laust við að eitt og eitt brot úr stifpressuðum karl- mannsbuxum væri að syngja sitt siöasta i rigningunni. Nokkrir hættu sér ekki út i regnið og létu sér nægja að sitja i bium slnum og horfa á. Ef einhverjum hefur verið kalt, þá kom það ekki að sök, þvi að konur i Slysavarnarfélaginu seldu sjóðheitt kaffi með tilheyr- andi meðlæti i veitingahúsi staðarins til ágóða fyrir Slysa- varnafélagið. A Eyrarbakka er björgunar- stöð. Er útbúnaöur fyrir 14 menn þar til þess að leggja upp i björgunarleiðangur. Þeir eiga samt ekki bil til þess að leggja upp i slika leiðangra og þvi er það, að slysavarnafélag staðarins hefur lagt áherzlu á að safna fyrir honum nú. Til fjáröflunar eru haldin böll, hlutavelta og kaffi- sala. 1 gærkvöldi var svo auðvitaö haldið ball á vegum félagsins. Hefur vafalaust verið glatt á hjalla þar sem annars staðar á landinu, þar sem stiginn er dans til að halda upp á sjómannadag- inn. — EVI —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.