Vísir - 16.06.1975, Page 5
Vlsir. Mánudagur 16. júnl 1975
5
ÖND I MORGUN ÚTLÖND ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón: Óli Tynes
Vesturiönd áhyggju-
full vegna vœntan-
legs sigurs kommún-
istanna á Ítalíu
Gert er ráð fyrir, að
kommúnistar og
sósialistar bæti mjög
við sig atkvæðum i hér-
aðskosningunum, sem
lýkur á ítaiiu i dag.
Þetta gæti valdið mikl-
um pólitiskum breyt-
ingum og er Bandaríkj-
unum og öðrum NATO
rikjum nokkurt
áhyggjuefni.
Atkvæöagreiöslu lýkur kl. 14 i
dag og búizt er viö fyrstu tölum i
kvöld. Aukið fylgi vinstri manna
yröu á kostnaö kristilegra
demókrata, sem hafa veriö
helzta valdið í öllum rikisstjórn-
um Italiu siöan heimsstyrjöld-
inni lauk.
Það myndi færa vinstri mönn-
um I hendur stjórn mikils hluta
landsins og auka mjög þrýsting-
inn á kristilega demókrata um
aö láta undan kröfum kommún-
ista um aðild aö rikisstjórn, sem
þeir telja sig eiga rétt á sem
næststærsti flokkur landsins.
Italski kommúnistaflokkurinn
er sá stærsti i Evrópu.
Stórsigri kommúnista yröi
ekki tekiö með mikilli hrifningu
innan NATO. Vegna þróunar-
innar I Portúgal og óvissu um
Tyrkland og Grikkland, er Italia
siöasta örugga vigi NATO við
Miðjarðarhaf.
Verið er að kjósa stjórnir i
fimmtán af tuttugu héruðum
landsins, 86 hreppum og 6.345
borgum og þorpum. Héruð á
Italiu búa við nær algera sjálfs-
stjórn.
Um 120 þúsund vopnaðir lög-
reglumenn og hermenn hafa
veriö á verði við kjörstaði siðan
kosningarnar hófust i gær.
Hingað til hefur þó allt farið
friðsamlega fram.
i W'sl
rv
PIRlil
mw
- f % 4 §
1
* f
X. s? m
Hf* W %
m
snúa heim
til Chile
Tveir hópar chile-
anskra skæruliða, sem
verið hafa i þjálfun i
Argentinu, eru komnir
til Chile tii að hefja að-
gerðir gegn herforingja-
stjórn Augusto Pino-
chet, að sögn lögreglu-
yfirvalda i Chile.
Lögreglan segir, að 15 manna
hópur hafi lent i átökum við chile-
anska hermenn i slöustu viku.
Hún gaf ekki neinar upplýsingar
um bardagana, en fréttastofa I
Argentlnu sagði I dag, að fimm
menn úr fyrsta hópnum hafi verið
teknir af lífi I gær.
Lögreglan I Chile segir, að
skæruliðarnir tilheyri frelsis-
hreyfingu vinstri manna. Þeir
hafi verið I þjálfun hjá svipuðum
samtökum I Argentlnu. 1 slðustu
viku var tilkynnt, að 14 skæruliö-
ar hefðu verið handteknir
skömmu eftir að þeir komu yfir
landamærin. Þeir hefðu áður veg-
ið kaftein I her landsins.
Lögreglan
valhoppaði
í stað
hestanna
Hestasveinar I Chantilly I
Frakklandi stöðvuðu I gær
kappreiðar, sem áttu að fara
þar fram.Þeir voru að krefjast
betri lifskjara og þyrptust inn á
brautina og lokuðu henni.Mikið
lögregíulið var drifið á staðinn
og sést það hér á harðahlaupum
i staöinn fyrir hestana.
Ekki kom til stórátaka og það
var þó nokkuö um pústra og
hrindingar. Hestasveinarnir
gengu allavega með sigur af
hólmi, þvi það varð að aflýsa
kappreiðunum.
Robert og John F. Kennedy.
Kennedy brœðurnir
í vitorði með CIA?
Nelson Rockefeller,
varaforseti Bandarikj-
anna, gaf i skyn i dag, að
John F. Kennedy, fyrr-
um forseti, og Róbert,
bróðir hans, kunni að
hafa verið viðriðnir
áætlanir leyniþjón-
ustunnar CIA um að
myrða erlenda stjórn-
málaleiðtoga. Rocke-
feller sagði þó, að hann
hefði engar beinar sann-
anir.
,,Ég held, að það sé ekki órétt-
látt að segja,að CIA hafi ekki tek-
ið neinar meiriháttar ákvarðanir
án vitundar Hvita hússins”, sagði
varaforsetinn i sjónvarpsviðtali.
Þeim fjölgar nú stöðugt I frétt-
um, sem CIA á að hafa haft hug á
að ráða af dögum. Meðal þeirra
er nú Charles de Gaulle, Frakk-
landsforseti.
Frank Church, öldungadeildar-
þingmaður, sem er formaöur öid-
ungadeildarnefndar, sem rann-
sakar starfsemi CIA, sagði i slð-
ustu viku, að nefnd hans hefði
ekki fundið neitt, sem benti til
þess, að Eisenhower, Kennedy
eða Johnson hafi átt þátt i ráða-
bruggi CIA.
Bhutto varar
við hugsan-
legri órós
frá Indlandi
Ali Bhutto, forseti
Pakistan, varaði i dag
landsmenn sína við þvi,
að Indira Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands,
kunni að reyna að draga
athyglina frá pólitiskum
erfiðleikum sinum
heima fyrir með hernað-
araðgerðum gegn
Pakistan.
Forsetinn vlsaði til ummæla
Gandhis um að úrskurður dóm-
stóls um, að hún væri sek um
kosningasvik, hefði „vakið mik-
inn fögnuð I Pakistan.”
Bhutto sagði, aö hann hvorki
gleddist né væri hryggur yfir nið-
urstöðu dómsins. Þetta væri ind-
verskt innanrikismál og Pakistan
myndi ekki á neinn hátt reyna að
notfæra sér það. „Við verðum þó
að vera vel á verði, ef frú Gandhi
skyldi reyna að losa sig úr þess-
um vanda með aðgerðum gegn
Pakistan. Slikt var gert fyrir
rúmum þrem árum.” Forsetinn
vísaði þarna til striðsins 1971,
sem gerði Bangladesh aö sjálf-
stæðu riki.
ISRAELSKT STORSKOTA-
LIÐ HERJAR Á LÍBANON
israelskt stórskotalið
gerði snemma í morgun
árás á þorpið Nabatiyeh í
Suður-Líbanon. I gær
gerði ísraelski flugherinn
fimm árásir á þorpið og
skotmörk í grennd við
það. Þetta var gert í
hefndarskyni vegna
árásar fjögurra skæru-
liða á afskekktan bónda-
bæ í norðurhluta Israels.
Þeir tóku konu bóndans, barn
og nokkra ættingja I gislingu og
kröfðust þess, að fjölmargir
fangar, sem nú sitja I Israelsk-
um fangelsum, yrðu látnir laus-
ir.Að venju neituðu Israelar að
semja og hermenn stormuðu inn
i bæinn og skutu skæruliðana til
bana.
Bóndinn á bænum tók þátt I
árásinni og féll fyrir hand-
sprengju. Annar Israeli, her-
maður sem var I frii, féll einn-
ig og sex særðust.
Itzhan Rabin, forsætisráð-
herra, kemur i dag heim frá
Bandarikjunum, þar sem hann
átti fundi með þeim Ford og
Kissinger.Árásin á bóndabæinn
er augljóslega tilraun til að
koma i veg fyrir frekari friðar-
tilraunirÞóttbæði Ford og Rab-
in hafi verið varkárir i orðum,
létu þeir að þvi liggja, að tölu-
verður árangur heföi orðið af
fundunum.
Israelar bregða jafnan hart
við árásum hryðjuverkamanna,
og má þvi búast við nokkrum
átökum á þessum slóöum á
næstunni.Ekki er þó vist, að þau
nái þeim pólitíska árangri sem
til er ætlazt af hálfu skæruliða,
þvi Sadat, forseti Egyptalands,
hefur að undanförnu fordæmt
morðárásir skæruliða á
óbreytta borgara og skólabörn.