Vísir - 13.08.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 13.08.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Miðvikudagur 13. ágúst 1975 —181. tbl. Olöglegar bílaleigur í borginni? — bls. 3 Fiskverðið féll úr 1,3 millj. í 30 þús. kr. — Baksíða fyrir borgarráð: Nýja leikhúsið kostar milljarð HBHHH ■■Hjm Hann er óbanginn þessi pilt- ur. Hann hefur þann starfa að snurfusa brúna yfir ölfus- á, sem flokkur manna málar af kappi þessa dagana. — Sjá baksiðu Allt sem við gerðum í gœr eyðilagðist í nótt — sagði Brandur Stefánsson, vega- verkstjóri, um ástand og horfur við Múlakvísl Astandið hefur ekkert batnað. Allt það, sem við gerðum i gær, eyðilagðist aftur i nótt,” sagði Brandur Stefánsson, vegaverk- .stjóri i Skaftafellssýslu, i viðtali við VIsi i morgun. Brandur sagði, að unnið hefði verið að þvi i gær með þremiy stórvirkum jarðýtum að veita Múlakvisl undir brúna á öðrum stað, en flaumurinn hefði rifið það niður i nótt. „Það er mikið vatn i ánni”,sagðiBrandur, „en þóekki meira en venjulegt er á sumrin. Hins vegar er áin svo breytileg, að hún getur breytt sér frá degi til dags og stundum jafnvel á hverj- um klukkutlma. Nú verða mér æðri menn að koma til og gera skyndiráðstafanir. Það er aug- ljóst, að sú viðgerð, sem nú verð- ur að fara fram, verður ekki til ' frambúðar.” Ekki verður farið yfir brúna öðruvisi en gangandi, og fólk kemur ekki að brúnni öðruvisi en eiga vist far hinum megin. Áætl- unarbilarnir hafa mikið að gera og gengur vel, þvi að sérleyfis- hafinn hefur bila báðum megin br.úar — og fólksflutningar hans hafa aukizt við þessa vegartálm- un. Einnig fer margt fólk Fjalla- baksleið, og hefur verið unnið að þvi þar að gera við verstu farar- tálmana. Ferðafólk á þeirri leið hefur fengið aðstoð þar, sem til hefur þurft, þótt opinberir hjálp- arbilar séu þar engir. Sú leið er. ekki talin fær litlum fólksbilum. —SHH KEKKONEN KOMINN I LAXINN Uhro Kekkonen, forseti Finn- lands, kom i heimsókn til fslands klukkan 11 i morgun. Hann kom I einkaflugvél sinni, sem lenti á Reykjavikurflug- velli. Aðaltilgangurinn meö heimsókninni er að veiða lax I Viðidalsá, en forsetinn mun heimsækja Vestmannaeyjar og Akureyri. Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn, tók á móti Kekkonen á flugvellinum og fór með hann til Bessastaða, þar sem þeir snæddu saman hádegisverð. — OT.(MyndBG) Teikningar og likön af nýju borgarleikhúsi voru lagðar fyrir fund borgarráðs, sem haldinn var I gærdag. Frestað var að visa málinu til Byggingarnefndar, þar eð Albert Guðmundsson óskaði eft- ir að gera sérstaka bókun, sem hann var ekki tilbúinn með, þar eð mál borgarleikhússins var sett mjög snögglega inn á dag- skrá fundarins I gær. Teikningar og likön af húsinu, sem unnar hafa verið af arkitektunum Guðmundi Kr. Guðmundssyni og Ólafi Sigurðs- syni, eru mjög nýtizkulegar og jafnframt frábrugðnar þeim út- linum, sem viö eigum að venjast af Þjóðleikhúsinu og öðrum eldri leikhúsum. Aætlaður kostnaður við smiði hússins er um 1000 milljónir og mun gert ráð fyrir, að borgin standi straum af miklum’ meiri- hluta þess fjár. Visir hafði i morgun samband við Albert Guðmundsson, borg- arráðsmann til að kanna efni þessarar sérbókunar, sem hann vildi gera við afgreiðslu máls- ins. — Leikfélagið er þannig upp- byggt, að það er I eigu mjög fárra aðila. Ég tel rétt,-þegar verja á þúsund eða jafnvel tvö þúsund milljónum I byggingu nýs leikhúss, að stjórn félagsins verði endurskoðuð frá þvi, sem nú er, sagði Albert. — Leikfélagið leigir sitt hús- næði'. I dag og þvi er ekki óeöli- legt, að aðeins einn fulltrúi borgarinnar sitji i stjórn fé- lagsins, En þegar byggja á yfir félágið fyrir slikar upphæð- ir og hér er'um að ræða, tel ég borginni skylt að hlutast frekar til um reks'tur ög stjórn félags- ins, sagði Albert Guðmundsson. Albert sagði jafnframt, að hann teldi fjármagnshraða vegna byggingar nýja hússins of mikinn og jafnframt, að borg- inni væri skylt að sinna húsnæð- isvanda laglegusjúklinga og aldraðra, áður en ráðizt væri i að byggja jafn dýran munaö og nýja leikhúsið væri. _jb Það er svona sem nýtt borgarleikhús kemur til meö aö líta út I nýja miöbænum. Glæsileg bygging og dýr (Ljósmynd Visis BG).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.