Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1958, Page 1
Bernadotte greifi bjargaöi
þúsundum manna úr fangabúðum
FOLKE BERNADOTTE greifi, bróðursonur Gústafs Svíakonungs var
einhver mesti mannvinur, sem uppi var á þessari öld. Hann var for-
seti Alþjóða rauða krossins og vann kappsamlega að friði, þegar allur
heimurinn stóð í stríðsbáli. Að stríðinu loknu sendu Sameinuðu þjóð-
irnar hann til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs, til þess að reyna
að koma á sáttum í Palestínudeilunni. Hann vann þar mikið starf.
Hinn 17. sept. 1948 kom hann til Jerúsalem og ætlaði aðeins að hafa
þar stutta viðdvöl í það sinn. En á leiðinni í gegnum Gyðingahverfi
borgarinnar, var hann myrtur, ásamt André Serot fulltrúa sínum. Hann
fell af því að hann var að vinna að friði í heimi, sem engan frið
vill hafa. En það sem mun gera nafn hans ódauðlegt er björgunar-
starf hans í Þýzkalandi seinasta stríðsárið, er honum tókst að fá leyfi
Nazistaforingjanna til þess að flytja úr landi alla norræna menn, er
þar sátu í fangabúðum, og þó miklu fleiri. Sú saga er þess verð að
hún sé rifjuð upp nú í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá dauða hans.
ÞAÐ var í febrúar 1945. Öllum
var þá ljóst að hverju stefndi í
stríðinu. Þýzkaland var að komast
á heljarþröm.
Þá voru þar í fangabúðum þús-
undir norrænna manna. Og þá var
það að Folke Bernadotte greifa
kom til hugar, að reyna að fá þá
leysta úr haldi og flutta til Sví-
þjóðar. Hann fór til Þýzkalands og
hitti Himmler, sem þá var „hinn
sterki maður“ í landinu og hafði
yfirstjórn allra fangabúða. Greif-
inn fór fram á það við hann, að
allir norrænir fangar fengi burt-
fararleyfi og sænski Rauði kross-
inn mætti sækja þá og flytja til
Svíþjóðar.
Himmler var lengi tregur til.
Hann sagði að það mundi talið
veikleikamerki ef Þýzkaland veitti
slíkt leyfi. Eftir mikið þref fellst
hann þó á, að sænski Rauði kross-
inn mætti smala saman norrænum
föngum, sem voru á víð og dreif um
Austurríki, Tékkóslóvakíu og
Þýzkaland, og safna þeim öllum
saman í einar fangabúðir skammt
frá Hamborg.
Þar með var hálfur sigur unninn.
Þarna voru fangarnir ekki í jafn
mikilli hættu og annars staðar, og
Bernadotte
þaðan mátti svo síðar flytja þá I
skyndi til Svíþjóðar. Bernadotte
tók því þessu boði. Seinna tókst
honum svo að fá leyfi herstjórnar-
innar að flytja alla hina norrænu
fanga til Svíþjóðar. Og honum
tókst meira. Hann fekk leyfi til
þess að bjarga eins mörgum kon-
um úr fangabúðunum og unnt
væri, hverrir þjóðar sem þær voru.
En það var á seinustu stund.
i