Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1970, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1970, Blaðsíða 1
I Vinstra megin: Sandfell í Öræf- um, torfbær og torfkirkja. Hægra megin: Hleðsla úr klömbruhnaus, norðlenzk bygg- ingaraðferð. 28. tbl. 19. júli 1970, 45. árg. ARKITEKTtJR 1 Fyrir nokkrum áratugum, jafn- vel árum, staðhæfðu lærðir jafnt sem leikir, að fslendingar ættu því miður engan list- rænan arf. Mönnum fannst að myndlistin mundi hafa byrj- að með Sigurði málara og Þór- arni B. Þorlákssyni og húsa- gerðarlistin líklega einna helzt með bárujárnshúsunum snemma á öldinni. A síðari árum hefur þó orðið lýðum Ijóst, að íslenzk mynd- list og arkitektúr á sér miklu lengri sögu; hinn listræni arf- ur hefur furðanlega vel varð- veitzt með þjóðinni í fátækt hennar og þrengingum. Á lista- hátíð fengum við að sjá sýn- ingu á myndlistarverkum lið- inna alda, einkum og sér í lagi altaristöflur. Það Ieynir sér að vísu ekki, að myndlistarmenn þessara alda hafa unnið af van efnum við erfið skilyrði; ónóg skólun og lítil æfing setja einn- ig mark sitt á þessi verk. En við sjáum það nú, að þau eru dýrmæt. Á sama hátt hafa arkitektar efnt til sýningar, sem vekur at hygli á þeim listræna arfi og merku hefð, sem gamli, ís- lenzki torfbærinn geymir. Á steinsteypuöld hafa menn kom- ið auga á, að torfbærinn var annað og meira en samansafn moldarkofa, afkvæmi fátæktar og vanþróunar. Torfbærinn er íslenzkur arkitektúr, háþróað fyrirbrigöi, en um leið afleið- ing af sérstökum aðstæðum, veðurfari og byggingarefnum. Guðjón Samúelsson, fyrrum húsameistari ríkisins, hafði næmt auga fyrir hinu Iistræna í umhverfinu. Hann taldi, að nota mætti nútima byggingarefni og endurvekja burstabæjarstílinn. Sú endurreisn gafst ekki vel; arkitektúr á hverjum tíma hlýt- ur alltaf að vera rökrétt afleið- ing af þeim byggingarefnum, sem hagkvæmast er að nota og fyrir hendi eru. Nú eru flestir sammála um, að gamli íslenzki bæjarstíllinn verði ekki endur- reistur. Við byggjum ekki fram ar úr torfi og grjóti. Þar fyrir er hægt að meta og virða, sem vel hefur verið gert. Manfreð Vilhjálmsson, arki- tekt, sá um sýninguna. Að- spurður um það, hvers vegna arkitektafélagið hafi kosið að gera torfbænum einum slík skil á listaliátíð, svaraði Manfreð: „Listahátíð sem þessi hefur ekki verið haldin héráð ur. Við vonum að hún sé upp- haf, sem eigi sér áframhald. Þess vegna kusum við sýningu, sem bregður Ijósi á torfbæinn, hinn elzta arkitektúr, sem við eigum í þessu Iandi“. Sýningunni var valinn staður í forsal Háskólabíós og var að gangur ókeypis. Það mun hafa mælzt vel fyrir og þvert á móti því, sem búizt hafði verið við, hefur unga fólkið sýnt þessari sýningu mestan áhuga. Þótti það til dæmis tíðindum sæta, að hinir brezku beat-snillingar Led Zeppelin, sem hingað komu á listahátíðina, skoðuðu torf- bæjarsýninguna með mikilli at- hygli. Og eitt er það enn, sem gjarnan mætti komast á fram- færi til allra, sem halda slíkar sýningar, hvort heldur það er vegna sölumennsku eða í menn ingarlegum tilgangi einum: það er aðgangseyririnn. Það munar ef til vill ekki miklu fyrr full orðið fólk, en skólafólk og unglinga munar um að borga aðgangseyri á margar sýning- ar. Flestum þótti fyrir neðan allar hellur, að seldur skyldi aðgangur að kaupstefnu, sem nefnd var sýning: Heimilið — veröld innan veggja. Og á bíla- sýningunni í vor var lágkúr- an svo alger, að foreldrar, sem þangað komu með börn sín, á listahátíð Hjallur á Vestfjörðum og norc- lenzkur bær: Laufás í Eyjafirði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.