Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 11
Fyrst eftir að Marabel Morgan og maður hennar voru gift, fannst henni líf- ið vera eins og dans á rós- um. Eftir nokkra mánuði var þó annað hljóð komið í skrokkinn. Mesti ástar- Ijóminn var horfinn af sambúðinni og í stað þess komið upp missætti, sem skapaðist af því, að Mara- bel var einatt að reyna að betrumbæta mann sinn, Charles, sem er lögfræð- ingur í Miami. Hann lét sér þetta ekki lynda og eft- ir nokkur stormsöm hjú- skaparár fannst henni, að svona gæti þetta ekki geng- ið lengur. Síðan eru liðin 6 ár. Hún sá, að hún gat ekki breytt manni sínum. Þrátt fyrir það elskaði hún hann og vildi koma í veg fyrir skilnað. Hún tók því þaó ráð að reyna aó breyta sjálfri sér. í bókum sínum „Total woman“ og „Total joy“ lýs- ir Marabel, sem nú er orð- in þrjátíu ára gömul, hvernig henni tókst þetta. I^n Marabel lét sér ekki nægja að skrifa bækur. Hún hélt einnig námskeið fyrir óhamingjusamar eiginkonur, sem voru farn- ar að efast um að hægt væri aö vera hamingjusam- ur í hjónabandi. Morgan á svo sannarlega vin- sældum að fagna, því nú þegar halda 75 fyrrverandi nemendur hennar námskeið í yfir 60 borgum í Bandarfkjunum. A hverju n.ám- skeiði eru fjórir fundir, fvo tíma í senn, og kosta þessi námskeið, sem stöðugt eru fullbókuð, um fimmtán dollara. Samt sem áður er hin árangursríka aðferð þess- arar smávöxnu, og jafnan sól- brúnu konu, ekki eins róttæk eins og álíta mætti. Hún hefur verið lagin við að taka upp ýmsar nútímastefnur í sálfræði, svo sem hina jákvæðu lifskenningu, sem upprunnin er i Kaliforníu: Ef ég er o.k., þá ert þú einnig o.k. Auk þess hagnýtir hún sér ýmsar hegðunaraðferðir, sem notaðar eru lil þess að auka sjálfs- öryggi. Ekki eru nú allir sammála þess- um talsmanni „Hinnar fullkomnu eiginkomu". Einkum eru það full- trúar rauðsokka, sem eru reiðar yfir því, að Marabel Morgan skuli l>oða þá gömlu kenningu Páls postula. að konan skuli vera manni sínum undirgefin. Þetta finnst vinstrisinnum og ýmsum menntamönnum vera „sjúklegt", eins og Martin Maily, prófessor i guðfræði við háskólann í Chicago kallaði það. Einnig fannst bjónun- uin Masters og Johnson, sem bæði eru sálfræðingar, þessar kenning- ar vera gamaldags og úreltar. En einmitt á þeim tima, þegar hjönaskilnaðir í Bandaríkjunum eru jafn algengir og hjónavigslur, setur Marabel Morgan hantingju fjölskyldunnar ofar öllu öðru. í stað þess að leggja áherslu á mis- rétti kynjanna og liina réttlágu stöðu konunnar í þjóðfélaginu, þá ræðir hún hlutverk konunnar i hjónabandinu og innan veggja heimilisins, og þá fullnægju og hamingju, sem hún öðlast, viður- kenni hún mikilvægi sitt i þessu hlutverki. Þessi laglega anteríska kona líkir á mjög einfaldan hátt starfi eiginmannsins við starf eig- inkonunnar. Hún segir: „Það getur aðeins einn ráðið, hvort sem það er i atvinnulífinu eða á heim- ilinu. í hvorugu tilfellinu þurfa menn að vera kúgaðir. Ég lit á starf húsmöðurinnar sem at- vinnu, og í þessu tilfelli er maður minn vinnuveitandinn. Ég vil standa mig i starfi, og reyni þar af leiðandi að leysa það sem best af hendi.“ Morgan ber ákaft á móti því, að hún sé andstæð rauðsokk- um. „Að sjálfsögðu á að vera jafn- rétti kynjanna á vinnustaó" segir hún. „Konur og karlar eiga að bera jafna ábyrgð og fá fyrir það sömu.laun. En ég álit hamingjuna i hjónabandinu vera mikilvægari. Þess vegna þ.vkir mér leitt, að kvenréttindakonur skuli aóeins sjá ágæti þess að komast áfram í starfi." Hin fullkomna eiginkona Marabel Morgan hefur skrifað bækur um hjónabandshamingjuna og listina að halda f eiginmanninn. Hún heldur einnig nðmskeið fyrir verðandi fyrir- myndareiginkonur. Bandarisk frú, Mara- bel Morgan, hefur saman settar bœkur um listina aö vera göö eiginkona og halda í eiginmanninn Þá hatda þær heim og eru margs fróðari: Marabel Morgan kveður þátttakendur I námskeiði f hjónabandssælu Námskeið f rúarinnar eru ávalt fullsetin. Hér er sýnt, hvernig á að fara að þvf: Það tilheyrir skyldum hinnar fullkomne eiginkonu að kveðja mann sinn með kærleikum, þegar hann fer f vinnuna. Blaðakonan Karin Davison frá þýzka vikublaðinu „Bunte“ fór á eitt námskeið til þess uð kynnast þvi, hvernig lifa ætti hamingju- sömu hjónabandslífi. Þetta nám- skeió var haldið i Stuart, Florida, og var Márabel Morgan, sem starfaði áður sem snyrtisérfræó- ingur, stjórnandi námskeiðsins. Hér á eftir fer frásögnt blaðakon- unnar. Námskeiðið var haldið í ný- tískulegri Baptistakirkju og voru eitt hundrað og fjörtíu þátttak- endur, konur á aldrinum nitján til sextiu og átta ára. Um þriðj- ungur kvennanna vann úti með heimilinu, meira en helmingur þátttakenda hafði notið æðri mennt unar, og nær allar voru þær giftar og áttu börn. Það að námskeiðió var haldið í Baptistakirkju virtist ekki skipta máli, þvi þarna voru konur af hinum ýmsu trúarflokk- um, kristnar konur, ’ gyðing- ar, Múhameðstrúarmenn og trú- leysingjar. Þó áttu þær sameigin- legt takmark, og það var að reyna að finna aftur hamingju hjóna- bandsins. Við hlið mér sat Pat, feimin þrjátiu ára gömul kona og þriggja barna móðir. Hún var gift iðn- aðarmanni. Þetta var hennar þriðja námskeið, og hún viður- kenndi fyrir mér með ánægju- brosi, aó eftir að hún byrjaði að lifa eftir reglum þeim, sem kenndar eru i „Hin fullkomna eiginkona" hefði eiginmaður hennar breyst mikið til batnaðar. „Hann er ekki lengur afundinn, heldur vingjarnlegur og tillitsam- ur“. Loks birlisi Marabel Morgan og kynnti f.vrir okkur grundvallar- reglur hinnar fullkomnu eigin- konu. Lagaðu sjálfa þig áður en þú ferð að betrumbæta aóra. Eyddu engum tíma til ónýtis. Geróu daglega lista yfir alll það, sem gera þarf. Sú kona, sent fer að undirbúa kvöldmatinn finun mfnúlur áóur en eiginmaðurinn kemur heim er ekki fær um að taka brosandi á móti honuin. Einmitt þetta er mikilvægt, ef hindra á aó eigin- maðurinn setjisl í fúlu skapi fyrir framan sjönvarpið. Ef þú sýnir honum þannig tillitsemi mun hann gera það einnig, gagnvarl þér„ Þvínæst nefndi Marabel Morg- an fjögur höfuðatriði, sem áttu að hjálpa okkur í leit að hamingju hjónabandsins. Þau voru: Að sætta sig við manninn eins og hann er. Aðlaga sig að honum. Bera virðingu fyrir honum. Láta í ljós viðurkenningu. Marabel fullyrðir að konan gift- ist manninum af því að hún elski hann eins og hann er. Byrji hún svo eftir brúðkaupið að nöldra i honum og reyna að bæta úr göll- unt hans muni það eyðileggja sambandið á milli þeirra. Þá er betra að ræða vandamálin opin- skátt, en er það eini möguleikinn á þvi, aö eiginmaöurinn breytist með góðu móti til batnaðar án þess að móðgast. Jafnan beri að sýna gagnkvæmt þakklæti, og er það einn mikilvægasti þáttur hjónabandsins. Á öðrum degi námskeiðins voru kynferðismál rædd. Morgan gaf liagnýt ráð, hvernig örva mætti ástarþrá eiginmannsins eftir margra ára hjónaband. Hverri konu var það í sjálfsvald sett, hvort hún notaði til þess silkinærföt eða góðan mat með vini og kertaljósum. Þessar kenningar Marabel Morgan eiga mikinn hljómgrunn meðal ntillj- óna amerískra kvenna. Um það bera upplög bóka hennar og full- skipuð námskeið glöggan vott. Fyrir nokkrum árum hefði það verið óhugsandi, að þessar kenn- ingar næðu slikri útbreiðslu með- al kvenna, en þá var jafnréttis- baráttan efst á baugi. En úr þvi að konur og karlar eru ekki eins frá liffræðilegu sjónarntiði, ^getur aldrei verið um fullkomið jafn- rétti að ræða. í seinni tið hefur vegur húsmóðurstarfsins aukist. Meðal annars beindi Carter for- seti þeirn tilmælum til húsmæðra, aó þær aðstoðuðu stjórnvöld við orkusparnað og hjálpi þannig til að sigrast á vandamálum framtið- arinnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.