Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Qupperneq 13
Sumir Tungusveitungar grýttu á móti fénu vestan árinnar og höfðu hundgá við. Jón Ólafsson , bróðir Gvendar þjófs, tók hrút og festi taug á og vildi draga hann yfir ána. Það sá Einar á Yzta Vatni og reið á taugina, slengdist Jón við það í ána og sleppti. norðvesturs úr Stafnsgili, er grasigróinn hvammur allstór, sem heitir Vökuhvammur, norðan árinnar. Þar vöktu margir menn yfir safninu, þegar það hafði verið rekið yfir ána á miðvikudagskvöld. Vöktum fjárins var skipt þannig milli gangna- manna, að Lýtingsstaðahreppsmenn — Vestflokks- gangnamenn — pössuðu safnið í Lækjahlíð, Hún- vetningar í Vökuhvammi og Seylhreppingar á eyrinni sunnan við réttina þegar byrjað var að rétta. Það er langt síðan, að menn sáu þörf á, að girða fyrir safnið við Stafnsrétt og losna við að passa það í engu aðhaldi, yfir nótt og á meðan réttað var. Árið 1917 var rætt um þetta mál á hreppsnefndarfundi í Lýtings- staðahreppi og Jóhann bóndi á Skíðastöðum kosinn til þess að koma málinu fram, með væntanlegum full- trúum úr hinum hreppunum, sem heiðina áttu. En mál þetta dróst á langinn. Það var árið 1930 að hólf var girt fyrir safnið norðan við réttina, er hefur gengt sínu hlutverki síðan. Ekki held ég að neinar öruggar tölur séu til um fjölda fjár sem kemur að Stafnsrétt á hausti, en það er kannski ekki fjarri lagi að áætla töluna 12 til 16 þúsund fjár. Það hefur oft gengið illa að reka safnið yfir Svartá og tekið langan tíma. Það er ill meðferð á fénu, margt af þvi fer á sund og þannig á sig komið verður það að standa yfir nóttina, oft í frostum eða krapahríðum. Fyrir svo sem áratug var það, að ær kom með opið lærbrot upp úr ánni þegar rekið var yfir. 1 september er allra veðra von. 1 sögu Stafnsréttar hefur það tvisvar komið fyrir, að engin kind hefur komið að réttinni vegna stórhríðar á fjöllum. Hið fyrra sinn var það haustið 1863 og svo hundrað árum síðar 1963. Það var haustið 1934, að mikil fannkoma og hriðar- veður var á hálendinu síðasta gangnadaginn, en þó reynt að smala. Þá þótti ekki fært, að reka safnið úr Lækjahlíð út fyrir á og var látið vera þar án pössunar yfir nóttina og svo var veðrið vont, að það fór svo að segja ekki neitt. Mér er þetta minnisstætt, þvi skemma á Sveinsstöðum hallaði sér fram á hlaðið, meðan ég var í göngunum. A síðari árum hefur oftar en einu sinni verið beðió um brú á Svartá sunnan við Stafnsrétt, en landsfeður í fjármálum hafa ekki viljað kosta því til og munu hafa ályktað að féð gæti vaðið ána hér eftir eins og hingað til. Fyrir göngur 1976 hljóp fjallskilastjórum kapp í kinn og létu þeir smíða timburbrú á ána, svo fjársafn- ið gæti gengið þurrum fótum heim að réttinni. Máttar- viðir brúnarinnar voru þrír simastaurar. Þessi brú var svo tekin af eftir réttir, þvi áin eyrir engu bráða- birgðamannvirki yfir veturinn. Það gekk ágætlega, að reka safnið yfir á hinni nýju brú. Það gerðist á 33 mínútum, tók meira en helmingi styttri tima en reka í ána. Að venju var skvaldur við réttina um kvöldið en urn miðnætti varð hljótt. Sumir fóru heim á bilum sínum, aðrir á dansleik út i Húnaver. Um nóttina var ég ásamt fleirum í skála Seylhreppinga og Lýtinga fyrir sunnan og ofan réttina. Ég fór á fætur um kl. 7 á réttardagsmorgun. Það var hægviðri og bjartviðri og ég held að það hafi ekki verið frost urn nóttina. Ég gekk út og ofan að réttinni og hitti þar Gest Pálsson bónda á Bergsstöðum. Hann hafði vakað yfir safninu um nóttina. Safnið var hreyf- ingarlaust. Mildur sauðarsvipur var á hverri kind eftir hvíld næturinnar og sá ekki feigð á nokkurri skepnu. Eg gekk aftur upp að skálanum. Nokkru seinna var byrjað að reka t réttina. Ég leit á klukkuna og hún var 7 mínútur yfir 8, en þegar réttin var hálf af fé var hætt að reka inn og grindur settar i dyr. Astæðan var augljós. Safnið var búið að brjóta niður girðinguna og farið að renna upp brekkuna austan við hólfið. Hundur djölfaðist í fénu, sem enginn vissi þá eða síðar hvaðan kom eða hver átti. Safnið hljóp í hring og upp af hringiðunni steig gufa sem sást vel, vegna þess að hið svala næturloft var ekki farið að hlýna. Það er skemmst af að segja, að fjárfjöldinn braut niður alla girðinguna að austan frá miðju og norður á horn. Margir nýir staurar voru i girðingunni og þeir kvist- kar báðum megin og hlóðst þar hvað ofan á annað og margt fé átékk í stíflaði hann, svo vatnið sunnan við stífíuna hækkaði smátt og smátt, flutu út alla á... Endanleg tala þess fjár, sem fórst var 1+32 lcindur”. 11- •.•-, Pjj» ; l' W’t'Vír': ■ 4 Æ:: WiÉ&k i , vV>,' ■ ' 333 uðust í sundur sem eldspýtur væru. Hópsál sauðfjár með einn vilja, er eins og náttúrukraftur, sem fátt stendur fyrir. Það var átakanlegt að sjá féð troðast undir þarna með girðingunni. „Það voru þrjár hæðir“, sagði Freysteinn á Hverhólum. Tvö lög af skrokkum lágu undir þvi sem ofan á steymdi. Þegar loksins tókst að stöðva fjárstrauminn út úr nátthaganum var ekki eftir nema einn þriðji af safninu að þvi er sumir sögðu. Á sama tíma og féð rann úr nátthaganum út og upp i fjallið, kornu nokkrir menn ríðandi norðan Kiðaskarð á móti safninu og smalaðist það ofan i allstóran hvamm, sem er sunnan við Stafnsklif, en norðan við. „Lönguéýri". Vestan við hvamminn fellur Svartá í tveimur kvíslum og á milli þeirra er hólmi tvö til þrjú hundruð metra langur, breiðastur í miðju, en mjókkar í odda að norðan og sunnan. Kvislin með brekkunni að vestan liggur i stokk 6 til 8 metra breiðum og mjög djúpum. Það mun ekki vera mjög langt siðan Svartá tók aó grafa þennan farveg, því verkinu var ekki alveg lokið. Um niiðjan hólmann var dálítið fossfall af grónum bakka ofan í stokkinn, þar sem hann var fullgrafinn. Öskar í Brekku kom á bíl sínum utan veginn með fleira fólki og mætti fénu á Stafnsklifi. Féð var þá saman safnað i hvamminum og Öskar segir svo frá að það hafi verið einhver fyrirstaða við brekkuhornið sunnan við hvamminn, sem er skammt norðan við réttarhólfið. Og þá skeði það allt í einu að féð fór að renna í ána fyrst yfir austurkvíslina og var það fyrirstöðulaust, þvi þar eru eyrar að og landtaka góð, og svo í vesturkvíslina, liklega fyrst fyrir sunnan fossfallið, en þar mun hafa verið landtaka þó djúpt væri. Fjárstraumurinn færóist svo norður fyrir foss, þar sem holbakkar voru báðum megin og hlóðst þar hvað ofan á annað og margt fé hékk í bakkanum að vestan og komst ekki upp. Fjórir menn fóru vestur yfir stokkinn. -Sigurjón i Hamrahlíð og Gunnar 15 ára piltur frá Tunguhlíð voru á berbökuðum hestum og losnuðu báðir við hestana. Hestur Sigurjóns krafsaði sig upp á bakkann að austan, en Sigurjóni skolaði að vesturbakkanum, en Gunnar greip sundtökin. Þeir Rósmundur á Hóli og Kári frá Syðra-Vatni fóru líka vestur yfir. Kári óð og varð mittisblautur, en á leið austur yfir datt hann og varó þá kollvotur. Rósmundur mun hafa farið yfir norðarlega úr hólmanum, en þar mátti ríða yfir. Þeir fjórmenningar drógu margt fé upp á bakkann, sumt hálfdautt, en þaó sá ekki högg á vatni. Féð sem hlóðst ofan í stokkinn, stiflaði hann, svo vatnið sunnan við stifluna hækkaði smátt og smátt, sem endaói nteð þvi að stiflan sprakk og á fimmta hundrað kindarskrokkar flutu út alla á. Þegar stíflan sprakk, lækkaði vatnið í stokknum og kom þá hik á féð á austurbakkanunt og þá var þá hægt að stöðva strauminn svo ekki fór fleira. Fjöldi fjár, líklega um 2 þúsund, komst lifandi vestur yfir ána og svo var atburðaröðin hröð, að menn sem voru viðstaddir geta ekki gert sér grein fyrir, hvernig það mátti verða. Það var helzt álitið, að sumt hefði farið yfir sunnan við fossfallið, en sumt á stíflunni þar sem hið dauða fé var undir. Fénu sem vestur yfir fór, var smalað saman og rekið austur yfir á brú, sem er sunnan við túnið á Stafni. Þegar svona var komið, fóru ráðamenn Eyvindar- staðaheiðar hreppsstjörar og fjallskilastjórar að ráða ráðum sinum og þá fyrst það, hvað átti að gera við kindaskrokkana. Ekki mátti láta þá verða að hræum liggjandi um allar eyrar og særa með þvi augu vegfar- enda. Niðurstaða varð sú að grafa hið dauða sauðfé í kvíslarfarvegi sunnan og austan við brúna. Að þvi var svo gengið með miklum dugnaði. Þrír vörubílar voru i förum og hópur dugandi manna vann að þvi að hlaða bílana. Ekki komust rnenn þurrt við það, voru mittis- blautir og létu það ekki á sig fá. Á staðnum, þar sem grafa skyldi voru nokkrir menn, að telja og skrifa mörk. Eftir þvi sem ég veit bezt, var endanleg tala þess fjár sem fórst 432 kindur. Fréttir sem birtust i blöðum um þennan atburð voru ýmsar ónákvæmar og sumar villandi. Frásögn Magnúsar á Sveinsstöðum var tiokkuð rétt. það sem hún náöi, enda var hann áminntur um sannsögli, þegar hann kom á staðinn, en það þótti mér óviðkunn- anlegt, að hann notaði orðið hræ 8 eða 9 sinnum í tveimur stuttum blaðagreinum. Þetla er liklega ntál- Franthald á bls. 16.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.