Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Blaðsíða 16
«r hufskoti Woody dklltn HÉR ? i'ÚTHVeRFI ? ÉG HÉLT AQ SUKT KÆMI 8ARA F’HK/R /AJA/I í doRÚIA/NI LATTU \ /M/<5 FÁ ALLT VERÐMÆ TT^ EG VAR í HB/M- SÓKK hj'a MURIEL sysTW? AV/VNI, pEGAZ þJÓFU/Z BRaust JfJN T/L hennaR. rjÁ! FURSTA HE/, HÚN HLFUR BARA AA/KAE) X/ERDM/L TAAAA r. SARTRB TÖNH/N HANS S£TH5. VER£>- LAUNASKJALIQ S£M OENNH ■ FÉKK í HALTU þEKSaaMa SL ERAUÖNAGl’aM/ UR.' L'attU/MIG FA PEN/NGAMA Þína,FRú! HOU/AftO L/BTUR MlG EKK! FÁ MATARPEN/NG ANA FVRREN 'A MORGUN. f JÁ,JÁ/ HÉR ER EITT FVR/R HRE/NSUN/NA ■ HÉR ERANNA-D FVR/R M7ÓLK■■■ V/Ð HÖFUM E VTT SVO M/KLU íAÐ VERA FÍN, AD l/19 \ HÖFUM EKKI EFN/ 'A AÐKAUPA D'Í/RA HLUT'. ' OK. EG ER , N FAR/NNy EN EG TEK PLASTSTVTT■ UNA MED MÉR! Kinfl F*»turaa Syndicat*. Inc.. »977. Wo/ld rishta raaarvad. þETTA ER 'aL/T/Ð VERA F/NT hverf/! þuRRKAoh AF FÓT- UNUM 'APUREN .'/ ferðút! 'þú ERT BÚIN AÐ _ FlNNfl ÖRUGGT RAB GEGÚ þJÓFUM — AÐ LlFA UM H EFN! FRAM- ----t! y ö WOODY ALLE cJt . Menning utan alfaraleiöa Framhald af bls. 7 bækur hjá bókaverslunum út á landi svo hægt sé að selja þær með niðursettu verði í Reykjavík. Sanngjarnara væri að gefa fólki út á landi einnig tækifæri til aö kaupa þessar bækur á bókamark- aðsverði áður en þær væru sendar til Reykjavíkur. Þær sem ekki seldust gætu svo farið á bóka- markað í borginni. Ásamt bókmenntum er söngur og tónlist sá menningarþáttur sem mest ítök á i heimilislífi á Hvalnesi. Benedikt syngur og spilar á orgel. Hann lærði að spila hjá Bjarna Bjarnasyni, sem lengi hefur verið kirkjuorganisti í Nesjum og stjórnaði einnig karla- kór sem starfaói þar á sínum tíma. Hann er mikill tónlistar- maður og tónsmíðar hans eru i undirbúningi til útgáfu vegna átt- ræðisafmælis hans þ. 10. mai, seg- ir Benedikt. — Fyrir 5 árum stofnuðum við nýjan karlakór og hlaut hann nafnið „Jökull“. I kórnum eru 40 menn úr öllum hreppum Austur- Skaftafellssýslu. Stjórnandi hans er Sigurjón Bjarnason, sonur Bjarna Bjarnasonar. Við erum komnir í Samband sunnlenskra kóra. Samæfingar höfum við á Höfn en getum haft raddæfingar heima þar sem hljóðfæri eru. Slefnt er að því að hafa samæf- ingar einu sinni í viku og oftar þegar kemur fram á veturinn og daginn tekur að lengja. Vega- lengdin milli þeirra kórfélaga sem búa vestast og austast í sýsl- unni er 175 km. eða alla leið frá Hofi I Öræfum og hingað austur að Hvalnesi. Kórinn fer eina söng- för á hverju vori og samsöngvar eru haldnir í nærsveitunum auk þess sem vió syngjum við ýmis tækifæri. Þetta má telja merki- legt menningarframlag að mínu áliti, ekki sist þar sem menn verða að leggja nokkuð á sig og taka tíma til þess frá öðrum störf- um. Við höfum engan fjárstyrk frá ríki en aðeins nokkra viður- kenningu höfum við fengið frá sýsiunni. Þessu er öfugt farið um t.d. leikfélög. — Tfmakaup ykkar er Ifklega teljandi í þágu kórsins? — Greiðsla fyrir tímaeyðslu og ferðakostnað er ekki önnur en skemmtunin fyrir okkur sjálfa og áheyrendur og svo kynningin inn- byrðis og út á við. Það er mér mikils virði að kynnast kórfélög- um, sem ég hefði ekki kynnst að öðrum kosti. Auk þess höfum við fengið Karlakór Reykjavikur hingað austur en því miður var aðsókn ekki nægilega góð. Ég tel að ekkert geti afsakað það að láta ónotuð tækifæri til að sækja þá menningarviðburði sem hingað koma. Við höfum hlustað á Sin- fóníuhljómsveitina þau tvö skipti sem hún hefur haldið hljómleika á Höfn. Við vildum gjarna njóta þess oftar. Það sama er að segja um leiksýningar, við látum þær ekki fara fram hjá okkur ef fært er frá Hvalnesi að Höfn. Lengra eigum við óhægt um vik að sækja. — Við mundum kjósa að kom- ast stöku sinnum til Reykjavíkur á hljómleika og Ieiksýningar, seg- ir Valgerður og bætir við þeirri tillögu, að Búnaðarfélögin setji á stofn afleysingaþjónustu fyrir bændur og sveitakonur, svo þau megi komast að heiman til gagns og upplyftingar. ★ Við höfum tafið þau hjónin lengur en skyldi og þaö um há- bjargræðistímann. Benedikt hafði einmitt ætlað að flytja heim hey frá Reyðará í dag. En áður en við kveðjum sest hann við orgelið og syngur fyrir okkur lagið: „Mamma ætlar að sofna“. Jafnvel laglausu fólki gæti ekki dulist að söngrödd Benedikts er óvenju næm og fögur, næstum einsdæmi. Hvers vegna lærði þessi maður ekki söng? . — Ég var einu sinni aö gæla vió þá hugmynd, segir Benedikt. Ég skrifaði Sigurði Birkis á mínum ungdómsárum og bað hann um kennslu. Hann hafði þá öðru að sinna og hafði ekki tíma fyrir mig. Seinna hafði ég sjálfur hvorki tíma né tækifæri og þessi draumur varð aldrei að veruleika. Sú spurning vaknar hvort hér hafi snilligáfa farið forgörðum. Ef til vill, á einhvern hátt en ekki allan. Benedikt hefur alla ævi sungið af hjartans list sjálfum sér og öðrum til óblandinnar ánægju. Lærð tækni og ströng þjálfun hefðu breytt rödd hans og söng til muna og hugsanlega dregið úr ánægjunni. Þegar við komum út kemur í ljós að Austfjarðaþokan, sem áð- ur dró gráart pilsfaldinn alla leið niður að túni hefur lyft honum upp í miðjar hlíðar. Má nú betur greina hrjúfleik umhverfisins og lausgrýttar skriður beint upp af bænum. En Benedikt segir að ekki hafi nema einn steinn fallið niður á túnið síðan þau fluttu að Hvalnesi. Okkur til hugarléttis hafa bræð- urnir, Sigurður og Benedikt, lokið við að flytja heyið sem flytja átti heim í dag. Heimasætan, Kristín, gælir við heimalingana á hlaðinu. Hún kvað vera mikil búkona í hugsun en hvort hún býr ein- hvern tima í sveit og hvar, það á tíminn eftir að leiða í Ijós. Eitt er enn ótalið af störfum Benedikts en það eru störf hans í þágu sveitarfélagsins. Um þau er hann ófáanlegur að ræða. Þó kom- umst við að þvi að hann hefur á hendi hreppstjórn. — Einhverjir veröa að vinna þessi störf og það sem kemur i minn hlut er ekki i frásögur fær- andi, segir hann. Ekki er víst að sveitungar hans séu þar á sama máli. Gera má ráð fyrir að gest- kvæmt verði, bæði af innansveit- ar- og utansveitarfólki á Hvalnesi þ. 10. desember á þessu ári. Vænt- anlega verður sönglistin þá ekki vanrækt. Við sendum þangað kveðjur og þakkir fyrir alúðlegar móttökur og ánægjulegt samtal. Aö lokum má taka fram að til- gáta Benedikts um vegagerð aust- ur fyrir Ilvalnes á þessu sumri reyndist rétt. Eins og kunnugt er af fréttum er nú komið vegasam- band austur í Álftafjörð og ein- angrun á Hvalnesi rofin þegar ófærð hamlar ekki. ÞJÁ l’lKvfandi: II.f. Arvakur. Krvkjavík Framki.slj.: Ilaraldur S\Hnss»n Kilsljórar: IVIallhías Johanncssen S|> rmir (lunnarsson Rilslj.fllr.: (• isli SÍKUrðsson Auulysinuar: Arni (iarðar Krislinsson Rilsljórn: AðalslraMi 6. Sfmi 10100

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.