Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1987, Síða 12
prestur ekki látunum við mig, að byggja
fyrir sig tólfæring og fór svo að ég hét
honum komu minni með Goe byijun og
þangað fór ég á settum tíma. Fór ég þá
fyrst að smíða jám það allt sem þurfti til
byrðingsins, en prestur lét vinnumenn sína
saga, og ryðja innviði og fleira; vergagna-
búð var mikil þar við sjóinn með spili framan
undir, hún var losuð og átti þar inni að
smíða skipið. Hafði ég ráðið til þess, því
þá gat maður haldið verkinu áfram þó ill-
viðri væri. —
í þriéju viku Goe byijaði ég að tengja
neðri stefnin við kjöltréð, var eftir það hvem
dag hjá mér einhver af vinnumönnum
prestsins eftir því sem hver var við látinn
og bráðum varð það aðalhlutfall Sveins því
hann var dálítið lagvirkur, var hann mér
þá hinn auðveldasti og fylgispakasti, þótti
mér ekkert að því, af því hann var glaðlynd-
ur, og fann jafnan upp á einhverju ræðuefni
til dægrastyttingar, galt ég honum það í
líkri mynd eftir mínu skapferli. Það var einn
dag, að veður var mjög slæmt, fyrst var
framan af deginum aftaka rigning, svo búð-
in lak öll stórkostlega, svo við urðum blautir
af lekanum, og stundum urðum við að vera
úti við með þau efni sem bágt var að rúma
í búðinni, svo við urðum nærri því gegn-
drepa; en síðari part dagsins kom bæði
stormur og bleytu kafald. Og eitt sinn um
daginn mælti Sveinn hlæjandi til mín: Það
ætla ég, Jón minn! að hamingjan muni
skipta misjafnlega kjörum okkar í kvöld,
eins og hún er vön og þurfum við þó báðir
góðra hluta við þegar við komum heim þjak-
aðir af kulda og vosi. Þá svaraði ég: Það
er mér nýtt, ef hamingjan breiðir faðminn
að mér. Sveinn svarar: Hvað sem um það
er, þá gjörir hún það samt nú, og ekki ónota-
lega kallmannlegu kyni, og þykir mér
auðsætt að þú hafnir ekki slíkri gæfuvon,
því að það mundi ég ekki hafa gjört, hefði
ég átt von á slíku happi. Þá svaraði ég:
Vera má að okkur lítist þetta báðum ekki
á einn og sama veg. Sveinn hló þá og
mælti: Máské þú viljir þá selja mér þessa
gæfuvon þína. Ekki veit ég það gjörla, svar-
aði ég, fyrr en ég veit hvert happið er. Ef
það er annars nokkuð annað en leikrit sjálfs
þín. Eða má ég spyija: hver er þessi nota-
lega hamingja? Það hvorki má ég né vil
segja þér, mælti Sveinn, því þess óvæntar,
sem þetta happ hnígur í skaut þér, þess
glaðari verður þú og þess áhrifameiri og
langvinnari verður ánægja þín. Því af því
að þú er hraustastur kallmaður, þá vona
ég að áhrifín verði þér ekki að meini hversu
óvænt sem þau koma þér. Þá hló ég hátt
og mælti: Góði Sveinn minn, hættu nú öllu
þessu skáldlega rósamáli. Sveinn mælti:
Ertu þá fráleitur að selja mér þessa von.
Ég svaraði: Happið verð ég að vita fyrri
heldur en ég verðlegg það, eða hvað mikið
vilt þú gefa fyrir það? Sveinn svarar þá:
Dýrt mundi ég hafa viljað kaupa þá von,
ef ég vissi mér kaupvon í henni. En það
hygg ég sem víst, að hvorki þú né aðrir
veiti mér þann kauparétt þegar til alvöru
kemur. Þá gjörði ég mig nokkuð alvarlegan
og sagði: Það gjörir líklega hvorugum okk-
ar neitt hvor okkar sem hlýtur, eða hvor
okkar sem missir þessa von, eða hvort þú
segir mér hana ellegar leynir mig henni,
því að líklega eru þetta hégómlegir smámun-
ir eður alls ekkert nema sköpunarverk sjálfs
þín, ellegar eitthvað það sem mér er mót-
fallið, því að heldur hefur mig dreymt
þesslega, hvemig sem það rætist, en vissir
þú nokkuð á þá leið mér til handa, þá þætti
mér þú eiga að vera svo mannkæriegur að
leyna mig þvi ekki. Þá þagði Sveinn um
stund og mælti síðan: flest getur greinar-
manni orðið greiður vegur, og sé ég nú að
þú hefír tekið þér alvarlegri svip, og er þá
ráð að ég gjöri þá hið sama, og skal ég þá
segja þér dálitla sögu. —
Það var í morgun, eftir að þú varst geng-
inn til smíða en ég var að reka sauði á
haga; hafði maður sá sem hirti ær og lömb
komið heim í bæinn og kallað um hjálp að
ná út hesti sem dottið hafði um nóttina inn-
um ærhús, en þá var enginn við nema
prestur sem nýkominn var á fætur, og
vinnukonur. En meðan að þessu fór fram
kom ég heim og þurfti ég að finna prest-
inn. Gekk ég þá upp á baðstofuloft og að
húsdyrum hans. Þar var dimmt inni, tók
ég þá Ijós er var fram á loftinu og gekk
með það inn í húsið og vildi vita hvort að
prestur svæfi. En þar var einungis kona
hans, og lá hún í hvílu sinni sofandi. Ég
sá ritfæri prests á borðinu og kerti sem
nýlega hafði verið slökkt á, byrjun var þar
á sendibréfi sem prestur hafði hlaupið frá,
þegar honum kom sagan um hestinn og
húsbrotið, en forvitnin rak mig til að líta
yfír þær línur sem komnar voru á bréfíð,
og las ég þetta:
Góðan morgun,
heiðraði og stórgjöfuli vinur!
Nú í dag sendi ég einn vinnumanna minna
NíelsJónsson skáldi, annar höfundur
sögunnar. Teikning eftir Sigurð Guð-
mundsson máiara.
til þín eftir umtali okkar til að sækja stúlk-
una, Signýju dóttur þína, upp á þann
grundvöll, sem að við höfum áður samið
um, ef ské mætti að ég kæmi því til vegar,
að heldur drægist aftur saman hugir þeirra
Jóns og hennar. Ég ætla mér að láta hana
sofa næstu nótt í rúminu sem er á móti
Jóns rúmi, þau eru í húsinu sem er undir
baðstofuloftinu. Það verður vogun að vinna
og vogun að tapa, ég mun vaka yfir ef svo
kynni verða þau hittust í sömu sæng, en
Sveinn vinnumaður minn sefur í rúmi fyrir
framan húsdymar og gæti hann ef mér
lægi mikið á orðið mér að ...“
Meira en þetta var ekki ritað af þessu
bréfi, og þóttist ég sjá af síðustu stöfum
þess, að ég mundi verða tekinn til vitnis
ef nokkuð yrði nýlunda; en úr því að ég
hafði heyrt að þú værir hvorfínn frá þeim
ráðahag, þá þótti mér síður eiga við að leyna
þig þessum vélræðum, og því heldur sem
ég vissi fleiri hverfa til slíkrar varmennsku,
og nær mér að halda það, að Ámi hafí tölu-
vert mútað presti til þessa, og því mun
hann hafa ritað í upphafi bréfsins „stórgjöf-
uli vinur“.
Þessi saga og samtök þóttu mér hreint
yfírganganleg, og steinþagði nokkra stund,
og hugsaði mig um hvemig að ég gæti
hegðað mér þannig að ég festi mig ekkert
í slíku vélaneti, mig sárlangaði til að krókur
kæmi hér á móti bragði, því mér fannst nú,
sem fyrri að ofsóknir þessar allar dyndu
yfír mig saklítinn þegar málefni mitt væri
skoðað frá réttu sjónarmiði. Loksins kom í
huga minn eitt bragð sem að mér þótti þá
mátulegt í svipinn, meðan hefndargimisras-
ið var á mér, en síðan iðraðist ég eftir því.
Þegar ég skoðaði betúr huga minn og
hjarta, ég fann þar þá enn meðaumkunar-
og velunnunartaug sem ekki gat slitnað og
slitnar aldrei, — til Signýjar, maður er skyld-
ugur að kenna í bijósti um hvem sem leiðist
afvega og þótt óvinur væri. Signý gat aldr-
ei orðið óvinur minn, þó léttúð hennar og
staðfestuleysi, gjörði það að verkum, að ég
gat ekki trúað henni framvegis.
Loksins braut ég þögnina og sagði: Rétt
var það, Sveinn minn, sem þú sagðir, að
ekki mun ég selja þessa von, heldur væri
mér að gefa hana svo framt ég hefði nokk-
urt vald yfír henni; en ég hvorki hefí það,
né vil hafa það; en yrði nú þessi valdsvon
nokkuð annað en getgáta, þá skal ég eftir-
láta þér hana. Hvemig getur þú það? mælti
Sveinn. Ráð sé ég til þess, en verðugur
hrekkur liggur í því, sem gæti orðið öllum
þessum þremur bandamönnum að nokkurri
geðraun, ef að það gengi fram, og ráðið er
það að ljá þér í nótt rúmið mitt í húsinu,
en ég tek hest minn úr húsinu, og ríð honum
í H; því þangað á ég nauðsynlegt erindi.
Ef að þú notar þetta ráð þá hefir þú hlýrra
rúm og hlýrra herbergi, og er þér þá í sjálfs-
valdi um aðrar framferöir þínar, ef svo
verður þar allt sem þú getur til. Og þetta
gæti svo farið, ef hamingjan er með þér,
að þú nytir Signýjar. Og hugði ég eitt sinn
að þú hefðir þegið að ná ráðahag við hana.
Og eftir nokkrar fleiri umræður okkar um
þetta, varð Sveinn samþykkur þessu. -
Nú leið þessi dagur til enda, og bjuggum
við okkur til heimferðar í síðasta lagi og
ætluðum svo til að fólk yrði háttað; á leið-
inni heim ræddum við um áform þetta, og
réði (ég) honum til að brúka minn málróm
en ekki sinn, ef hann yrði var við nokkum
í hinu húsrúminu, og sagði ég honum að
ég vissi vel að hann gæti hermt svo nett
eftir mér að engan mundi gruna það, að
ég væri það ekki sjálfur. Þessu var Sveinn
öllu samþykkur, og var hinn kátasti. Þegar
heim kom fórum við fyrst hvor að sínu rúmi
og borðuðum, og á meðan ég var að borða
komst ég að raun um að einhver persóna
var þar, sem hafði mjög kyrrt um sig. Síðan
gekk ég aftur fram til Sveins, bauð honum
góða nótt, óskaði honum til hamingju, tók
reiðtýgi mín í bæjardyrum, og síðan lokaði
Sveinn, en ég tók hest minn og reið þangað
sem ákveðið var, og þangað var nokkuð
langt.
Sveinn gekk inn í húsið til rúms míns og
læsti hurðinni, hafði hann þá andardrátt
minn hvað þá annað, þá heyrði hann sem
vaknað væri í hinu rúminu, og spurt í hljóði
hver þar væri. Það er Jón, var svarað, og
spurði hver við sig mælti. Var þá kastað á
hann kveðju, og sagt: það er maður af öðr-
um bæ, og um það bil var Sveinn kominn
í rúmið, og mælti (sjálfsagt í mínum róm)
köld eru nú rúmklæði fyrir kalda menn og
blauta. Honum var svarað á þá leið að slæmt
hefði verið smíðaveður þann dag. Já heldur
var það, sagði Sveinn, og held ég að ég
sálist nú af kulda, og vil ég nú lagsmaður
minn, hver sem þú ert, að þú komir til mín
og við sofum saman, því heitara verður
tveimur en einum, og þú líklega nú miklu
heitari en ég. Svo er víst sem þú hyggur,
var svarað, og er svo langt síðan ég af-
klæddist að bæði ég og rúmið er nú fullheitt
og er þér velkomið að koma til mín. Það
vil ég feginn, kvað Sveinn og spratt við og
fór í rúmið til gestsins. Þá fann hann að
gesturinn lá í nærklæðunum, og mælti: Mér
fínnst eftir nærklæðum þínum, að ég komi
hér til konu en ekki karlmanns, kæri rúm-
félagi minn! Eða er ekki svo? Gesturinn
mælti: Það getur héðan af verið á þínu
valdi að ganga úr skugga um hvort heldur
er. Sveinn þreifaði þá um höfuð og bijóst
gestinum og sagði: Mær ert þú en ekki
maður og se g mér nú nafn þitt og heimili.
Honum var svarað: Það gjöri ég ekki fyrr
en við skiljum aftur rúmið, og ef þú gjörir
þig óánægðan með það, þá getur þú farið
aftur í þitt kalda rúm, og búi svo hvort að
sínu. Sveinn svarar þá: Þó ég ekki viti hvert
nafn þitt er, þá gjörir það mér lítið til, því
sama varma og atlota get ég notið af þér,
hver sem þú ert. Og eftir það lagðist hann
út af.
En ekki var langt liðið á nótt fram, þeg-
ar hún sagði honum nafn sitt eftir því sem
Sveinn sagði mér, því að eftir það þau voru
búin að hafa veruleg afskipti saman þá
duldi hún það ekki lengur. En Sveinn lét
vel yfír öllu, og var hinn blíðasti og þau
hvort við annað; þegar nokkuð var liðið fram
á nóttina heyrði Sveinn að gengið var hljóð-
lega um loftstigann og lit.lu síðar var húsinu
lokið hægt upp og lagði ljósbjarma inn í
húsið, þá breiddi Sveinn uþp yfír höfuð
þeirra beggja og sagði um leið: Við skulum
nú láta sem við sofum. Prestur gekk inn á
gólfíð, og sá að tveir líkamir hvfldu í sama
rúmi en enginn í hinu, og segir síðan í lág-
um róm: Vakir þú, Jón? Hinn svarar dræmt
og svefnlega: Ég er að sofna. Þá sneri prest-
ur að hurðinni, tók úr skránni þann lykilinn
sem að innan var, gekk síðan út og læsti
húsinu hljóðlega. Og þegar prestur var far-
inn, þá spurði Sveinn rekkjunaut sinn hvort
hann ætti að fara frá henni aftur í sitt rúm,
en hún hélt að það mundi jafn kalt nú eins
og það hefði verið. Eða segir þú þig nú strax
uppgefinn við hvílubrögðin? Það er ég ekki,
mælti Sveinn. Þá er best að vera kyrr hjá
mér, og nota það af mér sem þú þarfnast
og gimist. Svo skal vera, kvað Sveinn, og
á ég þar ekki meira í hættu heldur en þú
sjálf. Og þegar stundir liðu þaðan frá sofn-
uðu þau bæði hvort í annars armlagi. —
Snemma næsta morgun kom ég heim
aftur á prestsgarðinn, var þá enginn kominn
á fætur nema stúlka sú er ætíð fór fyrst á
fætur, spurði hún mig hvort ég hefði ekki
verið heima í nótt, og kvað ég nei við. Þá
spurði ég hana hvort prestur mundi vaknað-
ur, og hélt hún svo mundi vera. Voru hér
engir næturgestir? spurði ég. Jú, jú, svaraði
hún, og brosti við. Hveijir eða hver var
það? Hún mælti: Það var fomkunningja-
stúlkan þín, hún Signý Ámadóttir. Hvað
mun vera erindum fyrir henni? Hún brosti
og sagði: Það er nú ekki ljóst orðið fyrir
okkur smærri mönnunum. Eftir þetta sam-
tal okkar, gekk ég upp á loftið og að
húsdyram prests og spurði hvort hann
vekti, hann kvað svo vera, og sagði mér
að koma inn, og svo gjörði ég, og kvaðst
þurfa saum sem hann geymdi, og ég þurfti
að brúka þann dag. Hann brá skjótt við og
klæddist og tók Ijós hjá stúlku sem þá var
nýklædd, gengum við síðan ofan fyrir loft-
ið. Spurði ég þá prest hvort Sveinn skyldi
vera með mér þann dag, og játaði hann
því. Þá er mál að vekja hann, sagði ég.
Hann e_r kominn á fætur, kvað prestur. Eða
hvað? Ég sé að rúmið er uppbúið, og hefur
hann ekki verið í því í nótt? Ég gegndi þá
til og segi: Hans var ekki hér að vænta því
að ég léði honum í gærkveldi mitt rúm því
að það var betra en hans, og hlýrra fyrir
innan en framan þilið, en þér vissuð sjálfur
hversu gott var veður í gærdag, og við
komum holdvotir heim. Og þér vitið að ég
fékk hér ekki þjónustu og hlaut ég því að
taka hest minn og ríða til H., þar hefí ég
keypt þjónustu. Var ég þar í nótt því að
fullkalt var mér orðið að ríða svo langt, svo
votur sem ég var.
Og í þeim svifum lauk ég upp húsinu.
Kom prestur þar inn með mér, sá ég þá að ■
Sveinn svaf ekki í mínu rúmi, sneri ég mér
þá að hinu rúminu og sáum við prestur jafn
snemma hvar Sveinn hvfldi og svaf í armlög-
um við Signýju. Ég vakti Svein, og sagði
honum vera mál að klæðast, og hefur þér
orðið vært í dögunardúmum hjá rekkjunaut
þínum. Geta máttu nærri hvemig Signýju
mun hafa fallið að sjá mig standa þama
uppi yfír sér, enda grúfði hún sig strax nið-
ur í sængurklæðin, stokkroðnaði hún svo í
andliti að ég sárkenndi í bijósti um hana,
því allt að þeirri stundu sem ég vakti Svein,
hefír hún verið fulltrúa um að ég en ekki
Sveinn væri rekkjunautur sinn. Þegar ég
var genginn út, stóð prestur þegjandi fáein
augnablik og sagði síðan: Hver gaf þér slíka
dirfð, monsjúr Sveinn, að hafna því rúminu
sem þér var leyft, en brúka hitt sem þér
var ekki leyft? Þá leit Sveinn alvarlega til
prests og mælti: Það er ósatt, það var ekki
leyfíslaust, því að í gærkveldi þegar ég var
háttaður í því leyfða rúmi, sagði ég við
þann sem var í hinu rúminu, og kvaðst vera
gestur af öðram bæ: Köld era nú klæði og
kaldir era menn, og heitara mundi vera
fyrir okkur að sofa saman, hitt kvað satt
vera, og er mér bæði heitt og rúmið gott
og heitt, er þér innan handar að koma til
mín ef þú vilt. Þetta lét ég ekki segja mér
tvisvar að hafa rúmaskipti, og þegar ég var
þangað kominn þá komst ég að raun um
að það var kona en ekki kallmaður. En
hvað gekk yður til, prestur minn, að láta
hana eina í einhýsi á meðal kallmanna, en
hafa þó nóg rúm fyrir hana meðal kven-
manna? Því get ég svarað sjálfur, því það
liggur í augum uppi, yður hefír staðið á
sama hvemig liði um hagi hennar og hátta^
lag, og hveiju fram væri farið við hana.
Við þessi orð Sveins sneri prestur til dyr-
anna, og sagði: Finnast munum við síðar,
Sveinn sæll. Sveinn hló þá kulda hlátur og
sagði: Lítið hræðist ég það, og haldið þér
þessu máli fram ef þér þorið.
Þegar ég hafði vakið Svein, fór ég út á
bæjarhlaðið, og var að líta þar eftir efnivið
sem brúka þurfti þann dag, og þegar ég
gekk aftur inn í dymar, þá mætti ég presti
þar, hann sagði stutt og þurrlega til mín:
Þama er saumurinn, Jón, og gekk síðan
sótrauður í andliti af reiði til stofu. Ég hélt
ferð minni áfram inn til baðstofu og vildi
vita hvort Sveinn væri klæddur, heyrði ég
þá að Signý átti tal við Svein, stansaði ég
þá lítið eitt og heyrði hún sagði: Það er
ekki fyrsta bölvunin sem ég hef haft af
þér, og mun ekki verða hin síðasta. Sveinn
svarar: Verðugt var þér, að ég léki þér þessa
glettnishegningu fyrir okkur Jón báða, fyrir
léttúð þína og ótryggð, heyrði ég vel að
Signý var bæði hrygg og reið sem von var,
og í því kom Sveinn, svo við héldum þá
tafarlaust á verkstæði okkar og biðum ekki
morgunverðar. Bæði á leiðinni og síðar tjáði
Sveinn mér öll orð þeirra Signýjar og þótt-
ist ég fyrir Sveins hjálp hafa sloppið vel úr
þessum vélræðum, var mér því betur til
hans eftir en áður. Meðfram vegna Signýjar
beið ég ekki eftir morgunverði, því að ég
vissi vel að henni gat fátt komið ver en að
sjá mig fyrir augum sér heima, enda kvað
svo að skapraun hennar að hún fór þann
sama dag aftur heim til föður síns. En leynd-
ur var hann útfallinu af ferðum hennar, svo
sem hægt var.
Eftir þetta þótti mér prestur heldur þurr
og fáorður, kom það þó minna fram við
mig heldur en Svein, allt fyrir það tók mér
að leiðast að vera þar, svo nálega vakti ég
nætur og daga og kepptist við verk mitt
svo sem framast var auðið, þar að auki tók
ég mér aðstoðarmann, og galt ég honum
af mínu fé, því að ég vildi fyrir hvern mun
losast sem fyrst úr þvflíku völundarhúsi.
En þó sá ég um að skipið skyldi vera hið
fegursta og vandaðasta, svo að ég væri viss
um, að verkið lofaði meistarann, og var
skipið albúið í miðjan einmánuð.
Nú mun ég hljóta hér næst að segja þér
hvem ávöxt Signý skar upp af prettabrögð-
um Sveins og mínum, þegar fram liðu
stundir tók hún að þykkna undir belti, og
jafnframt fór heilsu hennar og geðsmunum
að hnigna svo hún mælti sjaldan orð frá
munni, og hafði miklar vökur um nætur,
oft var hún þrúngin af harmi og þó aftur
annað veifið stygglynd, og flóttaleg á köfl-
um svo hún forðaðist að koma fyrir nokkurra
manna sjónir, og ekki einu sinni foreldra
sinna, stundum hélt hún við rúm sólarhring-
um saman og oft lengur; þessi geðbreyting
og veikleiki gekk svo að henni, að hún ól
bam andvana á sjöunda mánuði, og var
þess vegna ekki gengið í grafgötur um fað-
erni þess . . .
12