Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1990, Side 4
Ljósmyndir Yigfúsar
Sigurgeirssonar
á sýningu í Kaupmannahöfh
Vigíús Sigurgeirsson ljós-
myndari fæddist alda-
mótaárið 1900 og dó
1984. Hann nam Ijós-
myndaiðn hjá Hallgrími
Einarssyni ljósmyndara á
Akureyri og rak eigin
ljósmyndastofu þar í bæ
frá 1923-1935. Hann fór til frekara náms
í ljósmyndun og kvikmyndagerð til Þýzka-
lands og dvaldi þar veturna 1935 og 1936.
Þá hélt hann ljósmyndasýningu í Hamborg
og eru nokkrar þeirra mynda á sýningu sem
staðið hefur í Jónshúsi í Kaupmannahöfn.
Norrænni samsýningu tók hann og þátt í
1939.
Vigfús fluttist til Reykjavíkur 1936 og
opnaði ljósmyndastofu, sem hann rak til
æviloka. Alla tíð ferðaðist hann mikið um
landið og tók þá urmul ljósmynda, sem sýna
staðhætti og atvinnulíf -og eru ómetanleg
heimild um Island þessara liðnu áratuga.
Um 100 ljósmyndir eru á sýningunni og
sjást nokkrar þeirra hér. Allar voru þær
teknar á árunum 1925-1969. Það er Gunn-
ar G. Vigfússon, Ijósmyndari og sonur Vig-
fúsar, sem unnið hefur myndirnar og sett
sýninguna upp. Að sögn hans er óhemju
mikið myndasafn til eftir Vigfús og allar
filmur eru varðveittar. Þar á meðal eru
myndir frá öllum ferðum forsetanna Sveins
Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar um
landið og einnig kvikmyndir, sem Vigfús tók
þá.
Vonandi verður þessi merka sýning einn-
ig sett upp hér, þótt síðar verði og þá
stærri en sú, sem send var utan, þvi af
nógu er að taka í filmusafni Vigfúsar Sigur-
geirssonar.
gs.
Vigfás Sigurgeirsson, ljósmyndari.
Sýningin er í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn. Hún
var opnuð 2. þ.m. og
stendur fram til 29. júní.
Tivolíí Vatnsmýrinni íReykjavík 1954. íbaksýn er Vetrargarðurinn, einn vinsælasti skemmtistaður íReykjavík um árabil.
Sigluíjörður á síldarárunum.
4
Austurvöllur 1930. Myndin er tekin á Alþingishátíðinni, enda eru allir í sínu
fínasta pússi og sá maður fyrirfínnst ekki þama, sem ekki hefur húfíi eða hatt -
og sama er um kvenþjóðina.
Ölfusárbrúin í september 1944, eftir að burðarvírar brúarinnar öðrum megin
slitnuðu undan mjólkurbíl, sem féll í ána.
Kannski muna fáir, hvernig Skálholtskirkja leit út áður en
hún var endurbyggð. Svona fátækleg var hún, svona var reisn
staðarins um miðja öldina.
Sigmenn í Drangey 1938.
Akureyri séð úr lofti 1930. Búið er að byggja verzlunarhús KEA.
Akureyri 1930. Hér eru aldaskil: Nýtt samgöngutæki, flugvél-
in, er komin til sögunnar og fólk þyrpist niður í fjöru á Oddeyr-
inni til að sjá farkostinn.
Amarvatn í Mývatnssveit árið 1930.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. JLINÍ 1990 5